Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 7
urnar, aðgerða eða ákvarðana fyrir- tækis. Þetta hefði ekki verið í upp- haflegum drögum að frumvarpinu þegar það var tekið til meðferðar á Alþingis heldur bætt við í efnahags- og viðskiptanefnd. Ekki er ljóst hvað er átt við með orðinu „aðstæður“ sagði Davíð en reyndi að skýra þessar aðstæður með því að vitna í umræður Stein- gríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna, á Alþingi. Stein- grímur hefði sagt að samkeppnisráð ætti að geta brugðist við, ekki ein- göngu vegna einhverra tiltekinna sérstakra ákvarðana í fyrirtæki sem lægju fyrir, heldur einfaldega vegna aðstæðna sem menn gætu staðið frammi fyrir og kölluðu á að gripið væri til aðgerða. Uppskipting fyrirtækja Davíð Þór sagði þetta mjög víð- tækt orðalag og aðgerðir gegn þess- um aðstæðum gætu, samkvæmt ann- arri málsgrein 17. gr., falið í sér afdrifarík áhrif á fyrirtæki sem þær beindust gegn. Samkeppnisráð hefði túlkað það sem heimild til að breyta uppbyggingu markaðar nema skýr ákvæði sérlaga eða ákvæði stjórnar- skrár mæltu fyrir um annað. Í þessu kynni að felast heimild til að skipta upp fyrirtæki. Davíð sagðist þó telja að varla væri hægt að óbreyttum lögum að ganga svo langt að skipta upp fyr- irtæki samkvæmt samkeppnislög- um. Innan ramma laganna væri e.t.v. rúm fyrir ekki eins afgerandi úrræði og fyrirtæki hætti tilteknum þætti starfseminnar, selji einhverjar eignir eða skipti því upp í fleiri sjálfstæðar einingar. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 7 TVEIR íslenskir flugmenn starfa nú hjá breska leiguflugfélaginu Astraeus, sem annast flug fyrir Iceland Express á B737-300 þot- um. Það eru þeir Ragnar Ingason og Róbert Ágústsson og í samtali við Morgunblaðið segjast þeir von- ast til að fleiri landar þeirra muni bætast í hópinn. Iceland Express býður sem kunnugt er ferðir milli Íslands og Kaupmannahafnar og London en Astraeus annast m.a. flug fyrir breskar ferðaskrifstofur út frá Bretlandi til sólarlanda. Ragnar og Róbert segjast ráðnir til flugsins út frá Íslandi og aðeins á þessum tveimur leiðum, til Kaupmannahafnar og London, en hafa báðir áhuga á að fljúga til annarra staða og hafa sótt um það. Vinnutilhögun þeirra er þannig að þeir fljúga nokkra daga í senn á annan staðinn og síðan nokkra daga á hinn eftir nokkurra daga hvíld. Þeir segja fleiri íslenska flugmenn hafa sótt um starf hjá Astraeus. Í dag er farin ein ferð á hvorn áfangastað en með vorinu ætlar Iceland Express að tvöfalda ferðatíðnina. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Íslensku flugmennirnir hjá Astraeus sem flýgur fyrir Iceland Express: Vinstra megin er Ragnar Ingason og Róbert Ágústsson til hægri. Tveir íslenskir flugmenn hjá Astraeus-flugfélaginu STJÓRNVALDSAÐGERÐIR eru forsenda breytinga í jafnréttismál- um. Eftirfylgd við þau lög sem þegar hafa verið sett um málaflokkinn er lykilatriði. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Margrétar Sverr- isdóttur, framkvæmdastjóra Frjáls- lynda flokksins, á ráðstefnu Kven- réttindafélags Íslands um kynbundinn launamun. Heiti ráðstefnunnar vísar til þess, eins og Margrét benti á, að karlar sem eru í hjónabandi eða sambúð og með börn á framfæri hafa hærri laun að meðaltali en einhleypir. Hjá kon- um er þessu hins vegar öfugt farið. „Að mínu mati skipta stjórnvaldsað- gerðir sköpum, lög og reglugerðir hafa að miklu leyti fleytt okkur þangað sem við höfum þó komist,“ sagði Margrét og vísaði til laga um fæðingarorlof sem hún kvað eitt stærsta skrefið í jafnréttisbarátt- unni á síðustu árum. Hún velti því upp hvort hugsanlega þyrfti að setja þak á greiðslur úr fæðingarorlofs- sjóði og nefndi tölur sem sýna að greiðslur úr sjóðnum jukust um 22,7% milli áranna 2002 og 2003 í kjölfar þess að hlutfall feðra sem þáðu greiðslur jókst. Stjórnvöld sýni fordæmi í jafnréttis- málum ORATOR, félag laganema við Háskóla Íslands, hefur starf- að í 75 ár. Það var stofnað haustið 1928 og átti upp- haflega að þjálfa félagsmenn í ræðumennsku. Að auki átti félagið að standa fyrir skemmtunum; skemmtikvöld- um, dansleikjahaldi, árshátíð- um og vísindaferðum. Jafn- framt hafa samskipti við erlenda stúdenta og ýmis út- gáfa verið stór þáttur í starfi Orators. Samhliða því að halda upp á 75 ára afmæli Orators halda laganemar nú árshátíð í 50. skipti í kvöld. Orator sjötíu og fimm ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.