Morgunblaðið - 16.02.2004, Síða 9

Morgunblaðið - 16.02.2004, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 9 Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Glæsilegar vorvörur Gallabuxur 80 cm og 85 cm síðar Stærðir 36—60 Glæsilegur vorfatnaður Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00. FRÁBÆRT VERÐ ! OSRAM flúrperur Lumilux Daylight, Lumilux Cool White Lumilux Warm White Lumilux Interna Kaupbætir fy lg i r hver jum 100 stk af perum. Jóhann Ólafsson & Co Johan Rönning Reykjavík/Akureyri Rekstrarvörur Reykjavík Rafbúðin Álfask. Hfj. Rafbúð R.Ó. Keflavík Árvirkinn Selfoss Faxi Vestmannaeyjar Rafás Höfn S.G. Raftv. Egilsstaðir Víkurraf Húsavík Ljósgjafinn Akureyri Tengill Sauðárkrókur Straumur Ísafjörður Glitnir Borgarnes Rafþj.Sigurdórs Akranes Það birtir til með OSRAM Útsölulok fimmtudag Aukaafsláttur Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-14 Sími 567 3718 SÍÐASTA ÚTSÖLUVIKA 30-50% aukaafsláttur Augnlæknar Reykjavíkur Augnlæknar Öldugötu 17 hafa flutt starfsemi sína að Hamrahlíð 17 og munu opna þar þriðjudaginn 17. febrúar. Nafninu hefur verið breytt í Augnlæknar Reykjavíkur. Tímapantanir í síma (sama símanúmer og áður) 551 8181 frá kl. 09:00 - 16:00. Dan Ohman, augnlæknir, Einar Stefánsson, augnlæknir, Eydís Ólafsdóttir, augnlæknir, Friðbert Jónsson, augnlæknir, Guðmundur Viggóson, augnlæknir, Guðrún Guðmunsdóttir, augnlæknir, Haraldur Sigurðsson, augnlæknir, María Soffía Gottfreðsdóttir, augnlæknir, Þórður Sverrisson, augnlæknir. UNDIRRITAÐUR hefur verið nýr fimm ára þjónustusamningur milli heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins og Krabbameinsfélags Ís- lands um skipulega leit að legháls- krabbameini og brjóstakrabbameini á vegum leitarsviðs Krabbameins- félagsins. Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra og Sigurður Björnsson, formaður Krabbameins- félags Íslands, undirrituðu samning- inn. Samkvæmt samningnum greiðir ríkissjóður kostnað sem ætlaður er til að standa undir þessari þjónustu en áætlað er að hann verði um 240,9 milljónir króna. Greiðsla ríkisins miðast við að heildarfjöldi skoðana á ári í legháls- krabbameinsleit verði að lágmarki 24.300 og að hámarki 34.100. Þar af mun Krabbameinsfélagið annast um 65% af heilarfjöldanum. Fjöldi skoð- ana hjá leitarstöð Krabbameins- félagsins með brjóstamyndatöku verði að lágmarki 13.100 á ári og að hámarki 18.400 á ári. Starfsemi leit- arsviðs Krabbameinsfélagsins fer fram í Skógarhlíð 8 í Reykjavík en auk þess er leitað skipulega á heilsugæslustöðvum um allt land. Í frétt frá Krabbameinsfélaginu segir að frá því leitarstarfið hafi byrjað fyrir 40 árum hafi tíðni og nýgengi leghálskrabbameins lækk- að um tvo þriðju. „Áætlað hefur ver- ið að ef dánartíðnin hefði haldist óbreytt frá 1966–1970 hefðu um 220 fleiri konur látist úr sjúkdómnum en raun ber vitni. Erlendar rannsóknir benda til að skipuleg brjóstamynda- taka fækki dauðsföllum af völdum sjúkdómsins um þriðjung og jafnvel meira meðal þeirra kvenna sem fara reglulega í skoðun,“ segir í fréttinni. Þjónustusamningurinn er gerður í samræmi við markmið Heilbrigð- isáætlunar til ársins 2010 sem sam- þykkt var á Alþingi í maí árið 2001 og í samræmi við tilmæli Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Landlæknir og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið hafa með höndum faglegt eftirlit með störfum leitarsviðs Krabbameinsfélagsins í samræmi við samninginn. Hann er til fimm ára og er miðað við hann hafi tekið gildi 1. janúar sl. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra (t.h.) og Sigurður Björnsson, formaður Krabbameinsfélags Íslands, eftir undirritun samningsins um leitarstarfið. Þjónustusamningur um krabbameinsleit YFIRMAÐUR upplýsingamála hjá Alcoa, Jake L. Siewert jr., verður gestur á opnum fundi Politica, félags stjórnmálafræð- inga og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands, þriðjudaginn 17. febrúar kl. 12.00– 13.15, í Odda 101. Þar mun hann ræða um reynslu sína sem pólitísk- ur ráðgjafi og tals- maður Bills Clintons í Hvíta húsinu og nú sem pólitískur ráðgjafi Johns Kerrys í baráttu hans fyrir útnefn- ingu Demókrataflokksins í Banda- ríkjunum. Jake er vinur Johns Kerrys og að- stoðar hann í frítíma sínum meðfram störfum sínum fyrir Alcoa. Hann mun m.a. ræða hver séu verkefni slíkra ráðgjafa, hvað sé mikilvægast í starfi þeirra. Hann mun enn fremur ræða um komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum og leggja mat á um hvað þær muni snúast; stríðið í Írak, fjárlagahallann, heilbrigðismál, menntamál, innri öryggismál Banda- ríkjanna og fleira. Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn. Jake L. Siewert hefur frá árinu 2001 verið aðstoðarforstjóri Alcoa og eru upplýsingamál fyrirtæk- isins svið hans. Árin 2000–2001var hann blaðafulltrúi og aðaltalsmaður Bills Clintons í Hvíta húsinu, bæði á sviði innanríkis- og utanríkismála. Áður var hann ráðgjafi forsetans á sviði efnahagsmála og þar á undan upplýsingastjóri samtaka ríkisstjóra Demókrataflokksins. Ræðir um kosningarnar í Bandaríkjunum Fjallar um hlutverk póli- tískra ráðgjafa Jake Siewert SIÐFRÆÐIRÁÐ Læknafélags Ís- lands hefur ekki fjallað sérstaklega um einræktun á stofnfrumum en bú- ast má við slíkri umfjöllun á næst- unni í kjölfar frétta af því að suður- kóreskir vísindamenn hafi orðið fyrstir til þess að einrækta manns- fósturvísi munu að sögn Einars Oddssonar læknis og formanns ráðs- ins. „Innan Læknafélagsins hefur ekki verið fjallað sérstaklega um einrækt- un á stofnfrumum. Þar sem fjallað hefur verið um þetta efni hefur yf- irleitt verið rætt um stofnfrumur úr fóstrum og í umfjölluninni hefur komið fram að menn líta svo á að það sé leyfilegt að nýta stofnfrumur úr fóstrum til lækninga,“ sagði Einar. LÍ mun fjalla um einræktun á stofnfrumum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.