Morgunblaðið - 16.02.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bil
lund
19.995kr.
Flugsæti
Flogið með Loftleidir Icelandic alla
miðvikudaga frá 2. júní til. 1. september.
Ver› frá
SÍÐAR á þessu ári tekur ný reglu-
gerð Evrópusambandsins gildi þar
sem m.a. er heimiluð leit á heimilum
stjórnenda fyrirtækja þegar rök-
studdur grunur er fyrir því að þar
séu geymd gögn er varða brot á sam-
keppnisreglum. Þetta eru viðbrögð
Evrópusambandins við því að í mál-
um, sem hafa komið til kasta fram-
kvæmdastjórnar sambandsins og
varða t.d. ólögmætt samráð fyrir-
tækja, hafa gögn verið geymd annars
staðar en í starfsstöðvum viðkom-
andi fyrirtækja og jafnvel á heimil-
um starfsmanna.
Þetta kom fram í erindi Jónu
Bjarkar Helgadóttur lögfræðings á
málþingi Orators, félags laganema
við Háskóla Íslands, um samkeppn-
ismál í gær.
Hún sagði að greinilega hefði orðið
viss áherslubreyting hjá samkeppn-
isyfirvöldum á allra síðustu árum í
Evrópu og Bandaríkjunum í þá átt
að þau sýndu samráði keppinauta
aukinn áhuga og hefðu víða tekið þá
ákvörðun að gera það að forgangs-
verkefni, að uppræta samráð fyrir-
tækja á sama sölustigi. Mætti
merkja þessa stefnubreytingu í
mörgum lagabreytingum sem gerðar
hefðu verið að undanförnu.
Jóna Björk benti á breytingar á
danskri löggjöf í þessu samhengi.
Fram til ágúst 2002 hefði verið lagt
til grundvallar að sektir vegna ólög-
mæts samráðs væru í samræmi við
danskar réttarhefðir vegna efna-
hagsbrota. Þá var hámarkssektin
þrjár milljónir danskra króna. Hún
sagði að þessu hefði verið breytt í
ágúst 2002 og nú væri ekki miðað við
danskar réttarhefðir heldur skyldu
dómstólar hafa hliðsjón af tilteknu
skema þar sem hámarkssektin væri
15 milljónir danskra króna eða um
150 milljónir íslenskar.
Spurning um varnaðaráhrif
Lítil reynsla er af sektarfjárhæð-
um í samráðsmálum á Íslandi segir
Jóna en samkvæmt sektarheimild
samkeppnislaga er ramminn þar víð-
ur; frá 50 þúsund krónum til 40 millj-
óna eða 10% af veltu sem er þakið á
sektinni. Til samanburðar tók hún
dæmi af grænmetismálinu svokall-
aða, sem er eina málið þar sem sekt-
að hefur verið fyrir samráðsbrot, og
námu sektir í kringum 2% af veltu.
Jóna spyr hvort þessar fjárhæðir
hafi þau varnaðaráhrif sem sektum
er ætlað að hafa. Erfitt sé að spá út
frá þessu eina máli hvort sektir í
samráðsmálum á Íslandi komi til
með að fylgja þróun hækkandi sekta
í nágrannalöndunum. Segir hún
hægt að setja dæmið upp þannig að
fyrirtæki reikni út hvort þau græði
samt á samráðinu þótt áhættan á
sektunum sé tekin með í reikninginn.
Sumir líti svo á að fjársektir hafi tak-
mörkuð varnaðaráhrif og í mörgum
tilvikum yrði niðurstaðan sú að menn
tækju áhættuna. Af þessum ástæð-
um hafi fleiri ríki bæst í hóp þeirra
sem láta brot á tilteknum samkeppn-
isreglum, sérstaklega samráðsbrot-
um, einnig varða fangelsisrefsingu.
Fjölbreyttir samningar
Heimir Örn Herbertsson, lögmað-
ur hjá Nestor lögmönnum, sagði að
það mætti deila um hvort fram-
kvæmanlegt væri að banna keppi-
nautum að hafa með sér samráð og
hvort slík lagaákvæði væru samþýð-
anleg hugmyndum og frelsi og rétt-
læti. Um það hefði Adam Smith
efast.
Heimir sagði að hugtakið samn-
ingur í skilningi 10. gr. samkeppn-
islaga gæti verið hefðbundinn bind-
andi samningur. Miklu fleira kæmi
þó þar til. Heiðursmannasamkomu-
lag eða í raun hvers konar sameig-
inlegur skilningur gæti flokkast sem
samningur hvort sem hann væri
lagalega bindandi eða ekki. Sam-
komulagið gæti verið munnlegt eða
skriflegt, formlegt eða óformlegt.
Með öðrum orðum, sagði Heimir,
hugtakið samningur yrði ávallt túlk-
að afar rúmt og margvísleg sam-
skipti keppinauta geta flokkast þar
undir.
Samstilltar aðgerðir
Heimir sagði það enga lagalega
þýðingu hafa að greina á milli samn-
ings eða samstilltra aðgerða sem
væru einnig bannaðar samkvæmt 10.
gr. laganna. Í stuttu máli sagði hann
að samstilltar aðgerðir væru eitt-
hvað sem kalla mætti huglæga sam-
stöðu keppinauta þar sem sam-
keppninni væri vísvitandi skipt út
fyrir samvinnu eða samstöðu. Það
þyrfti ekki að gerast á grundvelli
beinna tjáskipta milli fyrirtækja og
gæti verið afleiðing af hvers kyns
beinum eða óbeinum samskiptum
þeirra í millum.
Sagði hann að sumum kynni að
þykja langt seilst og erfitt að fóta sig
gagnvart svo óljósri reglu. En allt
væri ekki búið. Það væri nefnilega
ekki skilyrði að aðgerðirnar hefðu
komist til framkvæmda eða að þær
hefðu í reynd sannanlega haft skað-
leg áhrif á samkeppni. Staðreyndin
væri sú að samkvæmt meginreglu
evrópsks samkeppnisréttar þyrfti
hvorki að sanna ásetning til að raska
samkeppni né að samkeppnin hefði
raskast í reynd þegar metið væri
hvort 10. gr. samkeppnislaga hefði
verið brotin. Ef marka mætti dóma-
framkvæmd úr evrópskum sam-
keppnisrétti, sem byggðist á sams
konar lagareglu og 10. grein sam-
keppnislaga, þá fælu lögin í sér þá
reglu sem hann hefði lýst.
Opið orðalag
Davíð Þór Björgvinsson prófessor
sagði að í 17. grein samkeppnislaga
væri kveðið á um að samkeppnisráð
gæti gripið til aðgerða gegn samn-
ingum, skilmálum og hvers konar at-
höfnum sem brytu í bága við sam-
keppnislög. Einnig gæti ráðið gripið
til aðgerða gegn „aðstæðum sem
hefðu skaðleg áhrif á samkeppni“.
Þar sagði Davíð að vísað væri til
aðstæðna á markaði en ekki hegð-
Fleiri ríki taka upp fangelsisrefsingu við brotum á samkeppnislögum
Efast um varnaðaráhrif
fjársekta samkeppnisráða
Morgunblaðið/Jim Smart
Davíð Þór Björgvinsson prófessor flytur erindi á málþingi Orators í Háskóla Íslands í gær. Snorri Stefánsson
stýrði fundi en aðrir frummælendur voru Heimir Örn Herbertsson hdl. og Jóna Björk Helgadóttir lögfræðingur.
Samkeppnisyfirvöld
hafa víðtæka heimild til
að túlka hvað séu sam-
stilltar aðgerðir fyrir-
tækja. Jafnvel svokölluð
huglæg samstaða getur
falið í sér brot á sam-
keppnislögum.
STJÓRNENDUR eins stórfyr-
irtækis pössuðu vel upp á öll
gögn um samráð sem þeir
tóku þátt í. Komu þeir upp
flóknu kerfi innri endurskoð-
unar til þess að fylgjast með
slíkum gögnum og eyða þeim.
Þegar það þótti algjörlega
nauðsynlegt, að geyma yfirlit
yfir skiptingu viðskiptanna
milli meðlima samráðsins,
voru slík gögn færð yfir á
tölvudisk, sem síðan var
geymdur uppi á háalofti hjá
ömmu eins stjórnandans.
Þetta dæmi tók Jóna Björk
Helgadóttir í erindi sínu og er
úr árskýrslu OECD frá 2002.
Gögn geymd
hjá ömmu
STJÓRN Ungmennafélags Íslands
ákvað á stjórnarfundi um helgina að
landsmót UMFÍ, árið 2007 skyldi
haldið í Kópavogi og UMSK yrði
mótshaldari. Árið 2007 verða 100 frá
stofnun UMFÍ og verður því vænt-
anlega mikið um dýrðir í Kópavogi í
tilefni afmælisársins. Einnig var
ákveðið að landsmótið 2009 yrði
haldið á Akureyri og Ungmenna-
samband Eyjafjarðar og UFA yrðu
mótshaldarar, en félögin sóttu sam-
eiginlega um að halda landsmót. Ár-
ið 2009 verða 100 ár liðin frá fyrsta
Landsmóti UMFÍ, sem haldið var á
Akureyri árið 1909.
Fjögur héraðssambönd innan
UMFÍ sóttu um að halda landsmót
árin 2007 og 2009. Þar var um að
ræða UMSK, HSK, UMSE og UFA,
öll með stuðningi sinna sveitarfé-
laga, þ.e. Kópavogs, Árborgar og
Ölfushrepps, og Akureyrar.
Árni Arnsteinsson, formaður
UMFE, fagnar valinu á Akureyri
sem landsmótsstað árið 2009. „Ég er
mjög ánægður með þessa niðurstöðu
stjórnar UMFÍ. Við munum standa
undir þeim væntingum sem verða
gerðar til þessa móts og væntum
góðs samstarfs við okkar samstarfs-
aðila, UFA,“ segir Árni.
Haukur F. Valtýsson, formaður
UFA, tekur í sama streng. „Við höf-
um átt mjög gott samstarf í gegnum
tíðina og það mun væntanlega verða
enn frekar þegar þetta er komið. Ég
lít á þetta sem verkefni fyrir Eyfirð-
inga almennt,“ segir Haukur.
Valdimar Leó Friðriksson, for-
maður UMSK, segir þessi tíðindi
mjög ánægjuleg. „Mótið verður ein-
ungis í Kópavogi, þótt sambandið nái
yfir mörg sveitarfélög. Við ætlum að
vera með íþrótta- og menningarhátíð
í tilefni af 100 ára afmæli UMFÍ.
Þetta eru margar greinar, svo við
verðum með mótið úti um allan bæ,“
segir Valdimar og bætir við að til
standi að halda sögusýningu vegna
afmælisins. „Við höfum líka hugsað
okkur að fara með starfsíþróttirnar,
eins og pönnukökubaksturinn inn í
Vetrargarðinn í Smáralind. Það sem
er sérstakt við Kópavog er að hér er
öll aðstaðan til staðar.“
Næsta Landsmót UMFÍ verður
haldið á Sauðárkróki 8. til 11. júlí nú í
sumar. Nú munu aðilar utan UMFÍ í
fyrsta skipti fá að taka þátt í mótinu,
þannig að búist er við að það stækki
umtalsvert, en undanfarin ár hafa
keppendur verið rúmlega þúsund.
Kópavogur og Akur-
eyri urðu fyrir valinu
Stjórn UMFÍ ákveður staðsetningu landsmóta
Morgunblaðið/Þorkell
FLUGVALLA- og leiðsögusvið
Flugmálastjórnar er að undirbúa
útboð vegna byggingar nýrrar 200
fermetra flugstöðvar á Bakka-
flugvelli, sem Guðjón Hjörleifsson
alþingismaður segir að muni valda
byltingu í samgöngumálum Vest-
mannaeyja.
Kemur þetta fram í grein sem
Guðjón skrifar á vef Eyjafrétta á
Netinu. Hann segir að því stefnt
að flugstöðin verði tekin í notkun
áður en mesti ferðamannatíminn
gengur í garð. Segir hann að
kannað verði sérstaklega hvort
flýta megi lagningu varanlegs slit-
lags á 4,5 km vegarkafla sem vant-
ar á veginn að Bakka frá hring-
veginum, en sú framkvæmd ekki á
dagskrá fyrr en á næsta ári.
Ný flugstöð á Bakka-
flugvelli fyrir vorið