Morgunblaðið - 16.02.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
ALLS hafa 24 sjálfboðaliðar farið til
Palestínu á vegum samtakanna Ís-
land-Palestína á síðustu tveimur ár-
um, en samtökin héldu aðalfund sinn í
Norræna húsinu í gær. Sjö sjálf-
boðaliðar greindu frá reynslu sinni af
sjálfboðastarfinu á fundinum í gær.
Að sögn Sveins Rúnars Haukssonar,
formanns samtakanna, liggur fyrir að
fleiri sjálfboðaliðar fari utan á næst-
unni. Hann segir sjálfboðaliðana
flesta vera milli tvítugs og þrítugs en
sá elsti sem hefur farið utan á vegum
samtakanna er 67 ára gamall. Sam-
tökin hafa skipulagt 31 ferð frá því í
apríl 2002 og hafa 24 sjálfboðaliðar
tekið þátt.
Eldar Ástþórsson, 26 ára nemi í
fjölmiðlun í Gautaborg í Svíþjóð, var
staddur í Balata-flóttamannabúð-
unum við Nablus þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann í gær. Hann
sagði blaðamanni frá því sem hann
upplifði í þorpinu Budrus á dögunum
þar sem hann tók þátt í friðsamlegum
mótmælum með þorpsbúum gegn
múrnum sem reisa á milli Palestínu
og Ísraels.
„Múrinn er ekki byggður á landa-
mærum Ísraels og Vesturbakkans
[Palestínu]. Í tilfelli Budrus og
margra fleiri þorpa nálægt múrnum
liggur einn múr Ísraelsmegin og ann-
ar Palestínumegin sem einangrar
íbúana frá mörkuðum, vinnustöðum,
skólum og heilsugæslu í Ramallah.
Múrinn mun líka stela landi af bænd-
um í Budrus. Þorpsbúar hafa verið
duglegir við að mótmæla því að múr-
inn verði reistur þvert í gegnum land-
ið þeirra. Í Budrus hafa verið mót-
mæli á hverjum fimmtudegi þar sem
þorpsbúar planta ólífutrjám í stað
þeirra sem hefur verið eytt vegna
undirbúnings að byggingu múrsins.“
Eldar segir þorpsbúa vilja hafa al-
þjóðlega sjálfboðaliða með sér í frið-
samlegum aðgerðum af þessu tagi
þar sem ólíklegra sé að ísraelski her-
inn skjóti á sjálfboðaliðana. „Það hef-
ur oft gerst að herinn hefur skotið á
þorpsbúa ef sjálfboðaliðar eru ekki
með,“ segir Eldar.
Hann kveðst finna fyrir þakklæti
fyrir starf sjálfboðaliðanna. „Okkur
finnst það hafa sýnt sig að alþjóðleg
nærvera á staðnum skiptir máli bæði
til að sýna samtöðu með Palest-
ínumönnum og af því að þetta virðist
skila sínum árangri. Stofnanir eins og
SÞ hafa ekki sent neina eftirlitsmenn
til að verða vitni að því sem er í gangi
hérna og þess vegna hafa mannrétt-
indasamtök sent hingað sjálfboðaliða
til að vera vitni og einnig til að vera
Palestínumönnum til aðstoðar. Manni
finnst maður virkilega vera að gera
gagn og finnur að fólk er þakklátt
fyrir það sem við gerum hérna,“ segir
Eldar.
Hann kom til Palestínu fyrir mán-
uði og ætlar að vera í tvær vikur til
viðbótar. Að þeim tíma loknum held-
ur hann aftur til náms í Gautaborg.
24 sjálfboðaliðar hafa starfað á vegum samtakanna Ísland-Palestína
Planta trjám í mótmælaskyni
Jafnt ungir sem aldnir taka þátt í friðsamlegum mótmælum gegn múrnum
milli Ísraels og Palestínu. Þessir vösku palestínsku piltar planta ólífutrjám
í stað þeirra sem Ísraelsher ryður burt til að rýma fyrir múrnum.
Myndin er tekin í Palestínu fyrir
nokkru. Frá vinstri eru sjálf-
boðaliðarnir Árni Freyr Árnason,
Axel Wilhelm Einarsson, Þorsteinn
Otti Jónsson, Eldar Ástþórsson og
Sverrir Þórðarson.
VAKA sigraði naumlega í kosning-
um til Stúdentaráðs á dögunum, en
félagið hlaut 48,8% atkvæða og fimm
fulltrúa af níu. Háskólalistinn bætti
við sig um fjórum prósentum í fylgi,
fékk 15% atkvæða og náði inn manni
í annað sinn. Röskva hlaut 36,2% at-
kvæða og náði inn þremur fulltrúum.
Röskva og Vaka hlutu hvor sinn
fulltrúann í háskólaráð.
Háskólalistinn jók fylgi sitt einn
fylkinga. Arnar Þór Stefánsson, for-
maður kjörstjórnar, telur listann
hafa tekið fylgi sitt af Vöku í þetta
skiptið, en Vaka missti um fjögur
prósent frá síðustu kosningum.
Vaka hélt
meirihluta í
kosningum til
Stúdentaráðs
JÓN Kaldal sem stýrt hefur tímarit-
unum Iceland Review, Atlanticu og
Skýjum sl. átta ár mun láta af störf-
um í byrjun mars að því er segir í til-
kynningu frá Heimi. Við ritstjórn
Atlanticu og Iceland Review taka
Anna Margrét Björnsson og Páll
Stefánsson. Anna Kristine Magnús-
dóttir verður ritstjóri Skýja.
Páll er þekktur fyrir ljósmyndir
sínar og hefur starfað hjá Iceland
Review í 22 ár. Anna Margrét hefur
starfað sem blaðamaður á Iceland
Review sl. 4 ár. Anna Kristine hefur
starfað sem blaðamaður í 27 ár.
Ritstjóraskipti
hjá Iceland
Review
♦♦♦
KYNNISFERÐIR sf. voru í Hæsta-
rétti í fyrradag dæmdar til að greiða
tveimur félagsmönnum Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis skaðabætur
fyrir ólögmæta uppsögn. Þannig
sneri rétturinn við dómi Héraðs-
dóms Reykjavíkur, en þar var fyr-
irtækið sýknað af kröfum stefnenda.
Þegar mönnunum tveimur var
sagt upp í september 2001 var gild-
andi í kjarasamningi milli Samtaka
atvinnulífsins og Sleipnis ákvæði um
forgangsrétt félagsmanna í Sleipni
til að starfa samkvæmt samningn-
um, en á sama tíma hafði fyrirtækið
menn í störfum flutningabifreiða-
stjóra sem ekki voru félagsmenn í
Sleipni. Ástæða uppsagnanna var
sögð vera minnkandi umsvif í
rekstri. Báðir mennirnir voru fram-
arlega í harðvítugum kjaradeilum og
verkfallsaðgerðum Bifreiðafélagsins
Sleipnis árið 2000, sem meðal annars
beindust gegn Kynnisferðum.
Félagsdómur féllst í dómi sínum í
maí 2002 á það með Sleipni að Kynn-
isferðir hafi með uppsögnunum brot-
ið gegn forgangsréttarákvæðinu.
Kynnisferðir töldu aftur á móti að
ákvæði kjarasamninga um forgangs-
rétt Sleipnis hefði ekki náð til upp-
sagnar starfsmanna.
Héraðsdómur sýknaði Kynnis-
ferðir af öllum kröfum stefnenda í
apríl síðastliðnum. Hæstiréttur
dæmdi aftur á móti í gær að fyrir-
tækið skyldi greiða mönnunum
skaðabætur, sem og málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti, en féllst
ekki á kröfu áfrýjenda um greiðslu
miskabóta. Hæstaréttardómararnir
Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson
og Ingibjörg Benediktsdóttir
dæmdu málið.
Hæstiréttur sneri við Sleipnisdómi
Kynnisferðir
dæmdar fyrir
ólöglega uppsögn