Morgunblaðið - 16.02.2004, Page 26

Morgunblaðið - 16.02.2004, Page 26
26 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lukku Láki – Reipi böðulsins framhald ... © DARGAUD BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÍSLENSKA þjóðin hefur frá lýð- veldisstofnun haldið upp á nokkur afmæli er tengdust m.a. upphafi byggðar, stofnun alþingis, kristni- töku og lýðveldis- stofnun. Hafa þessar hátíðir verið haldnar í sátt og samlyndi með beinni þátt- töku forseta, stjórnvalda og yf- irleitt þjóðar. Nú ber svo við að haldið er upp á hundr- að ára afmæli heimastjórnar með þeim hætti að lengi verður í minnum haft. Forsætisráðuneytið, sem hefur frumkvæði að hátíðarhöldunum, kýs að hunsa forseta Íslands. Honum er ekki boðið að taka þátt í hátíðinni, hvorki sem þjóðhöfðingja né þeim doktor í stjórnmálafræðum sem hann er með sérstaka áherslu á heimastjórnina. Hann er í raun snið- genginn með svo afgerandi hætti að þjóðin stendur agndofa. Og ekki nóg með það. Forsætisráðherra virðist ákveða í desember að haldinn verði fundur í ríkisráði, sem er æðsta stofnun lýðveldisins, með þátttöku forseta og ríkisstjórnar. En forseti er ekki látinn vita. Fundinum er haldið leyndum fyrir forsetanum sem kýs að taka frekar þátt í annarri hátíð í lok janúar, hátíð í minningu Vilhjálms Stefánssonar í Vestur- heimi þar sem þátttöku hans er ósk- að og framlag hans virðist meira metið en við 100 ára afmæli heima- stjórnar á Íslandi. Þetta er þvílíkt virðingarleysi við þjóðhöfðingja okk- ar að manni dauðbregður, fyrir utan það að vera í sjálfu sér ólöglegt hvað ríkisráðsfundinn varðar. Maður get- ur ekki varist þeirri hugsun að hátt- vísi forsætisráðherrans sé viðbrugð- ið. Nú er það svo að þjóðin vill að sátt ríki um þjóðhöfðingjann hvað sem líður stjórnmálamönnum sem hrær- ast í pólitísku moldviðri hversdags- ins og eru títt umdeildir. Á það ekki síst við um forsætisráðherrann sem löngum hefur skipað þann sess í könnunum að vera sá vin- og óvin- sælasti í senn. Ekki er hægt að meta þessa uppákomu núna öðruvísi en svo að þarna hafi verið gerð regin- mistök. Að sniðganga forseta þjóð- arinnar vísvitandi með þessum hætti er gróf móðgun við þjóðina (sem reyndar virðist heldur ekki vera sjá- anleg á þessari hátíð) og þau gildi sem stór hluti hennar vill hafa í heiðri. Svo geta það varla talist póli- tísk klókindi að ráðast með svo óvægnum hætti sem gert hefur verið að því sameiningartákni sem nýtur hvað víðtækasts stuðnings meðal þjóðarinnar. Reyndar rifjast upp í þessu sambandi setning sem maður nokkur lét sér eitt sinn um munn fara að gefnu tilefni: „Svona lagað gera menn ekki.“ INGÓLFUR STEINSSON, ritstjóri og tónlistarmaður, Mánastíg 2, 220 Hafnarfirði. netfang tunga@ismennt.is „Svona lagað gera menn ekki“ Frá Ingólfi Steinssyni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi opið bréf frá Falun Gong: Til Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra, Halldórs Ásgrímssonar utanríkis- ráðherra, Sólveigar Pétursdóttur þing- manns. Háttvirtir móttakendur. Við erum komin um langan veg. Veltið þið ekki fyrir ykkur hvers vegna við komum aftur og aftur til Íslands? Við viljum styðja góð gildi, í sam- ræmi við íslenskar mannréttinda- hefðir, sem íslenska þjóðin lét svo einlæglega í ljósi í júní 2002. Hverja mínútu, allan sólarhring- inn í rúm fjögur ár, hafa iðkendur Falun Gong sætt grimmilegum pynt- ingum af hálfu kínversku lögregl- unnar, eins og stutt hefur verið skjallegum gögnum frá stofnunum Sameinuðu þjóðanna, Amnesty Int- ernational, Human Rights Watch og öðrum. Að fyrirmælum stjórnar Jiangs um að „svipta þá ærunni, gera þá gjaldþrota og tortíma þeim“ hafa 100 milljónir iðkenda Falun Gong misst öll réttindi sín, meðal annars réttinn til menntunar, atvinnu og húsnæðis. Hundruðum þúsunda hefur verið haldið í fangelsum, geðsjúkrahúsum og þrælkunarbúðum. Þau hafa orðið að þola heilaþvott, nauðganir, nauð- ungarfóstureyðingar, raflost og aðr- ar misþyrmingar. Þúsundir hafa lát- ið lífið af völdum pyntinga og upplýsingar um nær 900 dauðsföll hafa þegar verið skráðar. Okkur skilst að Falun Gong hafi ekki verið mjög þekkt á Íslandi fyrir júní 2002. Tíminn hefur liðið. Fleiri staðreyndir hafa komið fram og ís- lenskum leiðtogum hefur því gefist gott tækifæri til að breyta afstöðu sinni. Í hverju samfélagi er það skylda borgaranna að leggjast gegn ofbeldi í hvert sinn sem þeir verða vitni að því. Þar sem áreiðanlegar upplýsing- ar liggja fyrir um ofsóknirnar í Kína erum við öll vitni að þeim. Er það ekki skylda hvers manns að leggjast gegn þessum ofsóknum? „Það eina sem hið illa þarf til að sigra er að góða fólkið aðhafist ekk- ert.“ Við viljum skora á ykkur að senda réttu skilaboðin og lýsa yfir stuðn- ingi við þá sem sæta ofsóknum í Kína. Með kveðju. Opið bréf frá Falun Gong Frá Norrænum samtökum iðkenda Falun Gong

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.