Morgunblaðið - 16.02.2004, Page 27
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 27
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Liðveisla
Starfsmaður óskast til að aðstoða 35 ára fatlað-
an karlmann heima hjá sér á daginn á milli
kl. 12.00 til 20.00. Starfið felst í því að veita
honum félagslega þjónustu og aðstoða hann
við það sem viðkemur venjulegu heimilishaldi.
Þú þarft að vera létt/ur í lund og hafa gaman
af því að sitja og spjalla yfir góðum kaffibolla.
Nánari upplýsingar um starfið og launakjör
eru í síma 567 1734 á milli kl. 9.00 til 16.00.
Heimir og Þór Ingi.
RAÐAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Tilkynning um framboðs-
frest til stjórnarkjörs
Samkvæmt 34. gr. laga Félags ísleskra síma-
manna skal fara fram allsherjaratkvæða-
greiðsla um kjör stjórnar, varastjórnar, trúnað-
arráðs og varamanna í trúnaðarráð.
Með hliðsjón af framansögðu tilkynnist hér
með að framboðsfrestur hefur verið ákveðinn
til kl. 16.00 föstudaginn 19. mars 2004 og ber
að skila tillögum fyrir þann tíma á skrifstofu
félagsins.
Hverjum lista skal fylgja skrifleg staðfesting
þeirra sem á listanum eru.
Reykjavík, 13. febrúar 2004.
Stjórn Félags íslenskra símamanna.
FÉLAGSLÍF MÍMIR 6004021619 I H.v.
HEKLA 6004021619 IV/V H.v.
I.O.O.F. 19 1842168 III.O.O.F. 10 1842168 Fr.
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Þorsteini Þorsteinssyni,
markaðsstjóra Ríkisútvarpsins:
„Fyrir nokkru hafnaði undirrit-
aður, fyrir hönd Ríkisútvarpsins,
birtingu auglýsingar frá Skjá einum
með textanum:„Greiðendur afnota-
gjalda athugið – Skjár einn alltaf
ókeypis“. Ákvörðunin byggðist á
því mati að í auglýsingunni fælist
brot á reglum Ríkisútvarpsins frá
árinu 1983 um auglýsingar.
Þær reglur hafa skýra lagastoð.
Reglum þessum til stuðnings hefur
einnig verið bent á samsvarandi
ákvæði í samkeppnislögum.
Ákvörðunin um að hafna auglýsing-
unni var tekin að höfðu samráði við
lögfræðing Ríkisútvarpsins.
Áður en lengra er haldið skal
áréttað að ákvörðunin er byggð á
faglegu mati og alls ekkert eins-
dæmi. Ríkisútvarpið neyðist öðru
hverju til að hafna birtingu auglýs-
inga ef þær samrýmast ekki gild-
andi lögum í landinu. Þar skiptir
engu hver á í hlut.
Ákvörðunin var studd eftirfar-
andi rökum:
1. Auglýsing Skjás eins felur í sér
tileinkun á alþekktu ávarpi Rík-
isútvarpsins sjálfs til afnota-
gjaldsgreiðenda. Þetta ávarp
hefur eingöngu verið notað af
RÚV um langt skeið.
2. Ríkisútvarpið hefur boðið Skjá
einum að birta auglýsinguna
„Skjár einn alltaf ókeypis“
breytta þannig að ávarpið falli
brott. Forsvarsmenn Skjás eins
hafa sýnt þeirri tillögu tómlæti.
Auglýsingin með þessum breyt-
ingum segir í raun allt sem tals-
menn Skjás eins segjast vilja
koma á framfæri. Því má færa
rök fyrir því að forskeytið
„Greiðendur afnotagjalda athug-
ið“ sé villandi og notað í öðrum
tilgangi en látið er í veðri vaka.
3. Afnotagjaldsgreiðendur eru við-
skiptavinir RÚV, eins og kemur
fram í lögum um Ríkisútvarpið
frá árinu 2000. Þar er ekki
minnst einu orði á rétt annarra
til afnotagjalda. Forsvarsmenn
Skjás eins kynnu að rökstyðja
löngun sína til að ávarpa afnota-
gjaldsgreiðendur með eftirfar-
andi hætti: Til að geta verið með
sjónvarpstæki og horfa á Skjá
einn, þurfa allir að greiða afnota-
gjöld. Mótrök RÚV eru þau að
engin viðskipti fara fram á milli
greiðenda afnotagjalda og Skjás
eins. Viðskiptavinir Skjás eins
eru fyrst og fremst auglýsendur,
enda er stöðin eingöngu fjár-
mögnuð með auglýsingafé.
4. Ríkisútvarpið hefur alltaf farið
sparlega með það að ávarpa
greiðendur afnotagjalda þar sem
92% þeirra greiða gjöldin skil-
víslega. Með því að ofnota
ávarpið er skilvísum afnota-
gjaldsgreiðendum valdið ónæði.
Það brýtur gegn hagsmunum
Ríkisútvarpsins ef önnur fyrir-
tæki tileinka sér fyrrgreint
ávarp eins og Skjár einn vildi
gera í þessu tilfelli.
5. Auglýsing Skjás eins felur í sér
villandi samanburð sem sam-
keppnislög banna (20. gr. a, liður
a). Færa má rök fyrir því að með
auglýsingunni sé verið að leggja
Sjónvarpið og Skjá einn að jöfnu
– þar sé verið að segja að fólk
greiði afnotagjöld til Sjónvarps-
ins en fái Skjá einn ókeypis.
Þetta er tæplega samanburðar-
hæft þar sem afnotagjaldinu er
varið til rekstrar fleiri miðla en
eingöngu Sjónvarpsins. Þar má
meðal annars nefna Rás 1, Rás
2, fjórar svæðisstöðvar, auk
Textavarps og fjármögnunar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands að
hluta.
6. Enn fremur er vísað til liðar e í
20. gr. a samkeppnislaga þar
sem meðal annars stendur: ,,…að
ekki sé kastað rýrð á vörumerki,
vöruheiti, önnur auðkenni, vöru,
þjónustu, starfsemi eða aðstæður
keppinautar, eða þeim sýnd lítils-
virðing“. Augljóst er að saman-
burðurinn afnotagjöld og Skjár
einn ókeypis er gerður til að
kasta rýrð á aðstæður RÚV.
7. Í 21. gr. samkeppnislaga stendur
meðal annars: ,,...Auglýsingar og
aðrar viðskiptaaðferðir skulu
ekki vera ósanngjarnar gagnvart
keppinautum eða neytendum
vegna forms þeirra eða sökum
þess að skírskotað er til óviðkom-
andi mála“. Ekki verður séð að
afnotagjöldin sem slík séu við-
komandi Skjá einum.
Eins og sjá má að ofangreindu
telur undirritaður Ríkisútvarpið
hafi haft margar gildar ástæður til
að hafna birtingu auglýsingar Skjás
eins. Jafnframt hefur verið farið að
leikreglum í þessu máli. Útvarps-
stjóra og útvarpsráði hefur verið
kynnt staða málsins, sem væntan-
lega mun fá sína lokaafgreiðslu á
næsta fundi ráðsins.“
Yfirlýsing frá markaðs-
stjóra Ríkisútvarpsins
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða
orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
BÖRN og kennarar þeirra frá leik-
skólanum Krílakoti, sem starfar á
Kópaskeri og í Lundi, settu á dög-
unum upp myndlistarsýningu í af-
greiðslu Landsbanka Íslands á
Kópaskeri. Sýningin er hluti af
verkefni Landsbankans á öllu
Norðurlandi.
Eftir að hafa þáð veitingar í boði
bankans, settust börnin niður og
sungu fyrir starfsfólk bankans og
aðra sem áttu leið um, þar á meðal
fréttaritara Morgunblaðsins, sem
náði þessari mynd af þeim.
Listaverkin eru öll mjög áhuga-
verð, en eins og gefur að skilja er
aldur sumra listamannanna ekki
mjög hár eða alveg niður í eins og
hálfs árs. Myndirnar voru málaðar
ýmist af einstaklingum eða hópum.
Alls eru 20 börn í leikskólanum
Krílakoti. Þar er unnið metn-
aðarfullt og árangursríkt starf í
nánu samstarfi við Öxarfjarð-
arskóla. Leikskólastjóri er El-
isabeth Hauge.
Deildarstjóri í Lundi er Guðrún
Margrét Einarsdóttir.
Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir
Börnin sungu fyrir starfsfólk bankans.
Myndlistarsýning
leikskólabarna
Kópaskeri. Morgunblaðið.
STJÓRN Félags sjálfstætt starfandi
sjúkraþjálfara (FSSS) hefur sent frá
sér ályktun þar sem er mótmælt
harðlega fyrirhuguðum niðurskurði í
endurhæfingu á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi (LHS). Með þessari
ákvörðun missi tugir sjúklinga mik-
ilvæga þjónustu sem skerði lífsgæði
þeirra verulega.
„Stjórnin vekur athygli á því að
niðurskurður í endurhæfingu á fjöl-
fötluðum og langveikum sjúklingum
mun aðeins leiða til flóknari og dýr-
ari lausna í heilbrigðiskerfinu.
Stjórn FSSS hvetur jafnframt
heilbrigðisyfirvöld til að nýta sér
betur þá rekstrar- og fagþekkingu
sem víða leynist í heilbrigðiskerfinu
og ná þannig fram aukinni hagræð-
ingu og sparnaði.“
Mótmælir niðurskurði
á endurhæfingardeild
Bridsfélag
yngri spilara
Sex pör mættu og spiluðu
barometer, 5 spil á milli para mið-
vikudaginn 11. febrúar.
Inda Hrönn Björnsdóttir og Anna
Guðlaug Nielsen náði fljótlega góðri
forystu og héldu henni til loka. Loka-
staða efstu para varð þannig:
Inda Hrönn Björnsd. – Anna G. Nielsen 7
Bára V. Friðriksd. – Heiða H. Sigmundsd. 3
Þorvaldur F. Guðj. – Grímur Kristinss. 3
Guðbjörg E. Baldursd. – Sigrún Sveinbj. -1
Næsta spilakvöld verður miðviku-
daginn 18. febrúar og verður stefnt
að því að spila tvímenning. Allir spil-
arar 30 ára og yngri eru velkomnir.
Spilagjald er aðeins 200 krónur á
spilara.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Síðasta lotan í þriggja kvölda
monrad-tvímenningi var spiluð
mánudaginn 9. febrúar.
Efstu menn það kvöld urðu:
Guðni S. Ingvarss. – Hafþór Kristjánss. 59,8
Andrés Þórarinss. – Halldór Þórólfss. 57,7
Friðþjófur Ein. – Guðbrandur Sigurb. 56,8
Sveinn Vilhjálmss. – Ársæll Vigniss. 56,8
Ómar Óskarsson – Helgi G. Jónsson 54,2
Kvöldin þrjú eru síðan lögð saman
og reiknað meðaltal, og er niður-
staða þess þannig:
Friðþjófur Ein. – Guðbrandur Sigurb. 57,5
Andrés Þórarinss. – Halldór Þórólfss. 55,0
Atli Hjartarson – Sverrir Jónsson 54,3
Sveinn Vilhjálmsson – Ársæll Vigniss. 53,0
Ómar Óskarsson – Helgi G. Jónsson 52,9
Næstkomandi mánudag, 16. febr-
úar, verður spilaður eins kvölds tví-
menningur, en síðan verður tekið til
við hraðsveitakeppni 1. mars, að af-
lokinni Bridgehátíð, en frí verður hjá
félaginu 23. febrúar vegna hennar.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson