Morgunblaðið - 16.02.2004, Side 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Skaftafell og Skeiðfaxi
koma og fara í dag.
Dettifoss og Trinket
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Polar Amaraq og Sel-
foss koma í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10
söngstund, kl. 13-16.30
smíðar, útskurður, kl.
13–16.30 handavinna,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–11
samverustund, kl. 13–
16 bútasaumur, kl.
13.30 dans.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan er opin í
dag kl. 10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin,
kl. 11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, opin vinnustofa, kl.
9–16.30, félagsvist kl.
13.30.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Stólaleikfimi
kl. 9.30, kvennaleikfimi
kl. 10.20 og 11.15,
spænska framhald
11.30, glerbræðsla og
pílukast kl. 13,
spænska byrjendur kl.
14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, pútt í Hraunseli
kl. 10–11.30, biljardsal-
urinn opinn til kl. 16,
tréútskurður kl. 13, fé-
lagsvist kl. 13.30, kór-
æfing Gaflarakórsins
kl. 17.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Handmennt, kl. 13.30,
línudanskennsla fyrir
byrjendur kl. 18, dans-
kennsla í samkvæm-
isdönsum framhald kl.
19 og byrjendur kl.
20.30.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar m.a.
kennt að orkera, kl.
9.30 sund- og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug, spilasalur
opinn. Dans fellur nið-
ur. S. 575 7720.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, línu-
dansnámskeið kl. 17.30.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
lín, kl. 13 skák, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 11 boccia,
kl. 13 brids og búta-
saumur, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín, keramik og
fótaaðgerð, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
skrautskrift, kl. 13 hár-
greiðsla, kl. 13.30
skrautskrift.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
13–16 spilað. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju- til
föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun þriðjudag,
sundleikfimi Graf-
arvogslaug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–16
fótaaðgerð, kl. 10–11
ganga, kl. 13–16.45 op-
in vinnustofa, myndlist.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10
boccia, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 9.30–
10.30 boccia, kl. 11–12
leikfimi, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13–16
kóræfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 9–16. Kl. 13.30 opið
hús, ma. söngur, fé-
lagsvist.
Þórðarsveigur 1–5
Grafarholti. Kl. 13.30
spiladagur, kaffiveit-
ingar, allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánudags-
kvöld kl. 20.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK Gullsmára
spilar í félagsheimilinu,
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Í dag er mánudagur 16. febrúar,
47. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: Ég er góði hirðirinn.
Góði hirðirinn leggur líf sitt í
sölurnar fyrir sauðina.
(Jh. 10, 11.)
Björn Bjarnason, dóms-málaráðherra og
borgarfulltrúi, skrifar á
vef sinn í gær um yfirlýs-
ingu starfsmannafélags
Orkuveitu Reykjavíkur,
sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær. Voru
stjórnmálamenn, þ.á m.
stjórnarmenn í OR, beðn-
ir þar að hætta árásum á
fyrirtækið.
Þetta er nefnt hér,vegna þess að fyrir
tveimur árum, þegar tek-
ist var á í borgarstjórn-
arkosningum og málefni
Orkuveitu Reykjavíkur
bar óhjákvæmilega hátt,
var einnig látið að því
liggja af fulltrúum starfs-
manna, að umræður um
fyrirtækið væru skað-
vænlegar fyrir það.
Eðli máls samkvæmt
taka umræður um fyr-
irtæki mið af því, sem þar
er að gerast. Því miður
verður að segja þá sögu
eins og er, að tilefni til
neikvæðra umræðna um
OR eru meiri en almennt
gengur og gerist um fyr-
irtæki. Þar er að sjálf-
sögðu ekki við starfsfólk
OR að sakast heldur þá,
sem stjórna för þess og
störfum,“ segir Björn.
Hann nefnir að erfitt sé
að fá upplýsingar um ým-
islegt í rekstri fyrirtæk-
isins, jafnvel fyrir stjórn-
armenn. „Hver veit til
dæmis, hvað hinar um-
deildu höfuðstöðvar OR
kosta? Hvers vegna er
ekki unnt að leggja fram
yfirlit yfir kostnaðinn? Af
hverju er alltaf hörfað í
skotgrafir, þegar á þessi
útgjöld OR er minnst?
Sjónarspilið í kringum
hugsanlega sölu OR á
Perlunni, jók ekki álit
neins á þeim, sem að því
stóðu. Rökstuðningurinn
fyrir tveimur gjald-
skrárhækkunum á heitu
vatni síðastliðið sumar,
það er vísan til góðrar
veðráttu, varð ekki til að
auka álit almennings á
fyrirtækinu.“
Björn segir að hugs-anlega sé kveikjan að
yfirlýsingu starfsmanna-
félagsins viðtal í Rík-
issjónvarpinu við borg-
arfulltrúann Guðlaug Þór
Þórðarson, þar sem hann
vakti m.a. athygli á því
hvernig peningar OR
væru notaðir í vonlaus
fjarskiptafyrirtæki og í
risarækjueldi.
„Það er mikil einföldun
hjá starfsmannafélagi OR
að skilgreina vanda OR
sem „pólitísk átök“ – um-
ræðurnar snúast um
margra milljarða króna
óarðbæra ráðstöfun á
fjármunum Reykvíkinga,
eigenda Orkuveitu
Reykjavíkur. Halda
starfsmenn eða aðrir, að
það sé tilviljun, að stjórn-
endur Garðabæjar og
Hafnarfjarðar hafa kosið
að selja hlut sinn í OR?
Vissulega er mál að
linni, eins og starfsmenn
OR vilja, en til að það ger-
ist eiga þeir að beina máli
sínu til annarra en þeirra,
sem lýsa því, hvernig fjár-
munum fyrirtækisins er
ráðstafað – og síðan þarf
að hækka gjaldskrána
vegna góðrar veðráttu!“
skrifar Björn Bjarnason.
STAKSTEINAR
Umræður um OR
Víkverji skrifar...
Víkverji dagsins er ekki mikillsjónvarpsfíkill en honum finnst
þó gaman að setjast niður við kass-
ann litla stund til að njóta þess, sem
þar er í boði. Það er hins vegar mein-
ið að hans mati, að þar er heldur fátt
um fína drætti. Hann fylgist auðvit-
að með fréttunum og furðar sig á því
enn og aftur, að þær skuli vera á
sama tíma hjá báðum fréttastöðv-
unum en að því búnu lítur hann á
dagskrána. Þá áttar hann sig á því
hver dagurinn er því að hún er með
sama sniði alla tiltekna vikudaga.
Það er ekkert verið að koma fólki á
óvart og næstum því hægurinn hjá
að læra dagskrána utan að.
x x x
Smekkur manna fyrir sjónvarps-efni er að sjálfsögðu misjafn en
Víkverja finnst til dæmis gaman að
góðum sakamálamyndum, náttúru-
lífsmyndum, þáttum um sagn-
fræðileg efni og öðru, sem fróðleikur
er að. Um þetta má nefna ánægjuleg
dæmi eins og þættina hans Atten-
boroughs og um Endurreisnina og
Medici-ættina í Flórens.
Fyrir utan einstaka enska þætti,
sem eru oftar en ekki frábært sjón-
varpsefni, slæðist stundum inn í
dagskrána ein og ein mynd eða þátt-
ur frá einhverju öðru Evrópulandi
en að öðru leyti er uppistaðan í ís-
lensku sjónvarpi því miður amerísk.
Amerískar kvikmyndir, amerískar
sápuóperur, amerískir framhalds-
þættir og þannig mætti áfram telja.
Að mati Víkverja vantar verulega
á, að leitað sé fanga víðar um heim.
Hvað til dæmis með sakamálaþætti,
náttúrulífsmyndir og þætti um
menningar- og listasögu svo eitthvað
sé nefnt frá Austur- og Suður-
Evrópu, Rússlandi, Kína, Japan,
Afríku og Suður- og Mið-Ameríku?
Heimurinn er svo miklu stærri en
ætla mætti af þeirri mynd, sem ís-
lenskt sjónvarp dregur upp af hon-
um, og Víkverji á bágt með að trúa
því, að þar, það er að segja utan hins
engilsaxneska málsvæðis, sé ekki að
finna áhugavert sjónvarpsefni á
skikkanlegu verði.
Þættir frá fyrrnefndum heims-
hlutum, hvers eðlis sem þeir eru,
gefa okkur sýn inn í viðkomandi
samfélag og vega upp á móti þeirri
stöðluðu og fábreyttu mynd, sem við
erum mötuð á alla daga.
x x x
Víkverji minnist þess er Vil-hjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri fylgdi íslensku sjónvarpi úr
hlaði með óskum um, að það yrði að
eins konar kögunarhóli, sem gæfi
okkar sýn til allra átta, en því miður
virðist það ekki hafa ræst. Víða er-
lendis er þess gætt, að sjónvarpsefni
sé að drjúgum hluta innlent en lík-
lega yrði erfitt að koma því við hér.
Víkverji teldi það þó enga goðgá,
þótt reynt yrði að koma í veg fyrir,
að það hallaðist um of á merinni, og
settar yrðu reglur, sem tryggðu
meiri fjölbreytni en nú er boðið upp
á.
Sigrúnu svarað
ÉG þakka Sigrúnu Ár-
manns Reynisdóttur fyrir
réttmæta gagnrýni og að-
vörun í minn garð en verst
er að hún misskildi mig
hrapalega.
Ég get ekki skilið að sá
sem er virkilega 75% öryrki
geti unnið fullan vinnudag
bara af því að hann eða hún
þarf ekki að borga sína
skatta og skyldur. Ég hef
fulla samúð með þeim sem
eru raunverulega illa
staddir heilsu sinnar vegna
hvort það er til líkama eða
sálar. En ég get ekki haft
samúð með hinum sem eru
að svindla.
Sigrún er að vara mig við
að geysast svona fram á rit-
völlinn. Ég vona að hún sé
ekki að skella á skeið á fjöl-
miðlafáknum. Hún má
passa sig að slá ekki of fast
í klárinn svo hún detti ekki
af baki. Ég skil ekki af
hverju hún er að bera blak
af þeim sem geta verið
þekktir fyrir svona svindl
og siðleysi gagnvart þeim
sem borga sína skatta af
sínum launum. Ekki sleppa
ellilífeyrisþegar við skatta.
Ég er ekki að höggva
tærnar af neinum þó ég
segi sannleikann og ég hlýt
að mega bera af mér sakir
eins og þingmennirnir gera
hver við annan.
Kristjana Vagnsdóttir.
Fordómar
ÉG var að lesa grein í „Vel-
vakanda“, sem er undir fyr-
irsögninni, „Fordómafull
fyrirsögn“.
Ég er sammála konunni
sem skrifar hana. Ég minn-
ist þess ekki að hafa lesið
greinar um menn, sem hafa
skarað fram úr á einhverju
sviði (íþróttamenn, tónlist-
armenn, listamenn o.fl.); að
kynhneigðar þeirra sé getið
sérstaklega. Mér sýnist
þetta léleg söluvara, væg-
ast sagt.
Björk Pétursdóttir.
Að gefnu tilefni
AÐ gefnu tilefni vil ég taka
fram að pistlar sem birtir
hafa verið að undanförnu í
Velakanda undir nafninu
Ólafur Þórisson eru mér
óviðkomandi.
Ólafur Þórisson,
guðfræðingur,
Neðstaleiti 1.
Svar við
fyrirspurn
VEGNA fyrirspurnar hér í
Velvakanda þriðjudaginn
10. febrúar um umferðar-
ljós vil ég koma eftirfarandi
á framfæri: Græn beygjuör
þýðir að heimilt er að
beygja í þá átt sem örin vís-
ar og ekki þarf að veita um-
ferð á móti forgang, þar
sem rautt ljós logar á móti
henni. Ef hins vegar græna
örin er slökkt, þá virka ljós-
in eins og venjuleg umferð-
arljós, heimilt er að beygja
en veita verður umferð á
móti forgang.
Áhugamaður um
umferðaröryggi.
Tapað/fundið
Lopavettlingur
í óskilum
HÆGRI handar lopavett-
lingur, útprjónaður í svörtu
og hvítu, með annan hvítan
innan í, fannst á gangstétt
við Mýrarveg á Akureyri.
Eigandi getur vitjað þeirra
í síma 462 2045 og 899 3572.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 dreng, 4 dinguls, 7 seg-
ir ósatt, 8 drekkur, 9
veiðarfæri, 11 forar, 13
karlfugl, 14 rotna, 15
digur, 17 eymd, 20 am-
boð, 22 dylur, 23 básúna,
24 rás, 25 vagn.
LÓÐRÉTT
1 gösla í vatni, 2 huglaus,
3 mjöl, 4 úrræ›i, 5
hrammur, 6 græt, 10 sýð-
ur, 12 beisk, 13 agnúi, 15
er í svefni, 16 aldurs-
skeiðið, 18 ríkir yfir, 19
glitra, 20 grenja, 21 flatt-
ur fiskur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 grábölvað, 8 lýsir, 9 tugga, 10 gat, 11 tíðka, 13
ósatt, 15 hratt, 18 sakir, 21 enn, 22 glati, 23 örlar, 24
gleiðgosi.
Lóðrétt: 2 ræsið, 3 borga, 4 Lottó, 5 angra, 6 hlýt, 7
satt, 12 ket, 14 sóa, 15 hagl, 16 aðall, 17 teiti, 18 snögg,
19 kolls, 20 rýrt.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html