Morgunblaðið - 23.02.2004, Blaðsíða 1
Fasteignir og Íþróttir í dag
STOFNAÐ 1913 53. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Af ávöxtum
og grænmeti
Minna næringarefni í ávöxtum og
grænmeti en fyrir 60 árum | Daglegt líf
Fasteignir | Mismunandi varmi Húsbréfaumsóknir Rykið burt
Miðbæjarlíf Hvað má? Íþróttir | Patrekur meiddist Vala
náði ekki lágmarki í Gautaborg Enski boltinn Handbolti
UPPREISNARMENN á Haítí tóku í
gær á sitt vald næst stærstu borg
landsins og síðasta vígi ríkisstjórnar
Jeans Bertrands Aristides í norður-
hluta landsins,
Cap Haitien. Íbú-
ar borgarinnar
tóku uppreisnar-
mönnum fagnandi
og rændu og rupl-
uðu og lögðu eld
að nokkrum hús-
um, m.a. lögreglu-
stöðinni. Upp-
reisnarmennirnir
krefjast afsagnar
Aristides og hafa nú á valdi sínu stór
svæði í norður- og miðhluta Haítí.
Þeir sögðu að um 200 manna lið sitt
hefði mætt lítilli mótspyrnu í Cap
Haitien, nema við flugvöllinn, þar sem
þeir sögðu átta manns hafa fallið í
átökum þeirra við vopnaða borgara
sem hliðhollir voru forsetanum. Ar-
istide hefur engum her á að skipa, að-
eins um fjögur þúsund manna lög-
regluliði.
Þúsundir íbúa Cap Haitien, þar
sem um hálf milljón manna býr, hróp-
uðu „niður með Aristide“ og gengu
fylktu liði í kjölfar um 40 uppreisnar-
manna. „Við erum frjáls!“ hrópaði
fólkið og reif niður veggmyndir af for-
setanum. Í átökunum um borgina var
flugvél tekin herskildi, og svo virtist
sem þar hefðu flýjandi fylgismenn
Aristides verið að verki.
„Í dag tökum við Cap Haitien, á
morgun [höfuðborgina],“ sagði 19 ára
gamall uppreisnarmaður. „Markmið
okkar er að frelsa Haítí.“
Uppreisnarmenn
boðnir velkomnir
AP
„Loksins laus við hryllinginn“
Íbúi í Cap Haitien faðmar að sér uppreisnarmann fyrir framan lög-
reglustöðina í borginni í gær. Eldur var lagður að húsinu skömmu síðar,
en borgarbúar fögnuðu. „Loksins erum við laus við hryllinginn,“ sagði
einn, sem fylgdist með eldtungunum leika um lögreglustöðina./12
Taka á sitt vald
næst stærstu
borgina á Haítí
Aristide
Cap Haitien, Port-au-Prince. AP, AFP.
Í dag mun alþjóðlegi stríðs-
glæpadómstóllinn, að undir-
lagi allsherjarþings Samein-
uðu þjóðanna, taka fyrir
kæru á hendur Ísraelsstjórn
fyrir byggingu múrsins. Í til-
kynningu sem mannréttinda-
samtökin Human Rights
Watch senda frá sér í dag
segir að múrinn sé „alvarlegt
brot“ á mannréttindum.
Al Aqsa-herdeildirnar,
sem eru vopnaður armur
Fatah-hreyfingar Yassers
Arafats Palestínuleiðtoga,
lýstu tilræðinu í gær á hend-
ur sér. Þetta er annað til-
ræðið sem Palestínumenn
fremja í Ísrael á innan við
mánuði. Arafat og aðrir Pal-
estínuleiðtogar fordæmdu
tilræðið í gær.
Um sextíu manns særðust
í tilræðinu, sem framið var á
háannatíma, þar af margir
lífshættulega. Silvan Shalom,
utanríkisráðherra Ísraels, og
fleiri embættismenn, sögðu
að tilræðið réttlætti bygg-
ingu aðskilnaðarmúrsins.
Segja tilræði
réttlæta múr
Reuters
Björgunarmenn flytja særða konu á brott í Jerúsalem í gær.
Jerúsalem. AFP.
PALESTÍNSKUR sjálfsmorðssprengjumaður varð að minnsta
kosti átta öðrum að bana í þéttskipuðum strætisvagni í Jerúsal-
em í gærmorgun, og sögðu ísraelsk stjórnvöld að tilræðið sýndi
fram á réttmæti aðskilnaðarmúrsins sem þau eru að reisa um-
hverfis heimastjórnarsvæði Palestínumanna.
RALPH Nader, sem verið
hefur ákafur talsmaður
hagsmuna bandarískra neyt-
enda, tilkynnti í gær að hann
hygðist á ný bjóða sig fram
til forseta, að þessu sinni sem
óháður frambjóðandi. Sagði
hann að höfuðborgin Wash-
ington væri „hersetin af fyr-
irtækjasamsteypum“.
Nader bauð sig fram í síð-
ustu kosningum, þá undir
merkjum flokks Græningja,
en fékk aðeins 2,7% atkvæða.
Þó telja margir demókratar
að framboð hans hafi verið
meginástæða þess að Al
Gore, frambjóðandi Demó-
krataflokksins, tapaði fyrir
George W. Bush.
Terry McAuliffe, þingmað-
ur demókrata, sagði að fram-
boð Naders myndi ekki hafa
sömu áhrif nú. Stuðnings-
menn græningja væru allir
staðráðnir í að styðja Demó-
krataflokkinn að þessu sinni
„vegna þess að þeir vita
hversu mikið er nú í húfi“.
Nader
tilkynnir
framboð
Reuters
Ralph Nader greinir frá
framboði sínu í gær.
Washington. AP.
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar-stéttarfélags, sem leiðir Flóa-
bandalagið, og Halldór Björnsson,
formaður Starfsgreinasambandsins,
segja að viðræðunum hafi miðað vel
áfram. Þó að ekki sé séð fyrir end-
ann á viðræðunum hafi náðst að
klára nokkra sérsamninga. Segir
Halldór engar óvæntar uppákomur
hafa átt sér stað ennþá sem tafið
hafi viðræður.
Sigurður segir að enn séu þó
nokkrir sérsamningar eftir, eins og
fyrir starfsfólk hafna og veitinga-
húsa. Sú vinna haldi áfram eftir
helgi, sem og vegna heildarlauna-
krafna og lífeyrismála.
Samningsaðilar komu ásamt
sáttasemjara saman til sérstaks
fundar síðdegis í gær þar sem
vinnufyrirkomulag næstu daga var
rætt. Ákveðið var að halda við-
ræðum áfram strax í dag og funda
síðan daglega á meðan ástæða
þætti til.
Stóru málin órædd
Sigurður telur að miðað við gang-
inn um helgina geti lokafrágangur á
launatöflu og launakröfum hafist
fljótlega. Undir það tekur Halldór
Björnsson. Hvort jafnvel verði
skrifað undir nýja kjarasamninga
um næstu helgi, segist Sigurður
engu vilja spá um að svo stöddu.
Staðan núna sé nokkurn veginn í
samræmi við hans tímaáætlanir.
Telur Halldór líklegra að undirritun
samninga verði í mars frekar en að
það takist að ljúka öllu fyrir mán-
aðamót. Órædd séu „stóru málin“
þar sem til einhverra átaka geti
komið.
Góður gang-
ur í kjara-
viðræðum
Búið að klára nokkra sérsamninga
SAMNINGANEFNDIR Starfsgreinasambandsins, Flóabandalags-
ins og Samtaka atvinnulífsins funduðu alla helgina undir stjórn rík-
issáttasemjara. Var þetta fyrsta fundalotan eftir að viðræðunum var
vísað til sáttasemjara. Búið er að klára nokkra sérsamninga.
Samið fyrir 40
þúsund manns
í 30 félögum
VIÐRÆÐUR sem nú standa yfir
hjá ríkissáttasemjara milli verka-
lýðshreyfingarinnar og Samtaka
atvinnulífsins ná til um 40 þúsund
manns í 30 aðildarfélögum Starfs-
greinasambandsins. Þar af er
samið sérstaklega fyrir um 20
þúsund manns innan Flóa-
bandalagsins svonefnda, sem í eru
Efling-stéttarfélag, Verkalýðs-
félagið Hlíf í Hafnarfirði og
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur. Í báðum þessum
samningshópum eru m.a. verka-
fólk í fiskvinnslu, byggingariðnaði
og verksmiðjum, bensínafgreiðslu-
menn, hafnarverkamenn, bifreiða-
stjórar og ófaglært starfsfólk í
veitingahúsum, mötuneytum og
heilbrigðisstofnunum.