Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 6

Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ www.landsbanki.is sími 560 6000 Varðan - alhliða fjármálaþjónusta Nokkrir punktar um beinharðapeninga! Beinharðir peningar fyrir punkta Fram til 29. febrúar geta Vörðufélagar innleyst Landsbanka- punktana sína fyrir beinharða peninga og lækkað þannig bankakostnað sinn milliliðalaust. Þannig gefa til dæmis 10 þúsund punktar 5 þúsund krónur. Þú getur óskað eftir innlausn bankapunkta á www.landsbanki.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S LB I 23 55 9 02 /2 00 4 stefna skólans að leyfa sem flestum að komast inn og spreyta sig á fyrsta ári og láta reyna á hvort þeir stand- ast þær kröfur sem gerðar eru eða ekki. Þetta er annað kerfi en Rúnar miðar við, sérstaklega í Bandaríkj- unum þar sem nemendur eru valdir inn í skólana,“ segir Páll. Skilar góðum nemendum Hvort ástæða sé til að endurskoða þessa stefnu, líkt og Rúnar telur, bendir háskólarektor á að það hafi þegar verið gert í læknadeildinni með inntökuprófum. Endurskoðun á þessu sé hafin fyrir alvöru og útilok- ar Páll ekki að inntökupróf verði tek- in upp í fleiri námsgreinum innan skólans, eða þá skipuleg takmörkun á aðgangi með öðrum hætti. Páll segir að þrátt fyrir þetta fyr- irkomulag, að hafa skólann opinn sem flestum, sé Háskóli Íslands að skila af sér mjög góðum nemendum. ENDURSKOÐUN á því hvernig nemendur eru teknir inn í Háskóla Íslands er í fullum gangi og útilokar Páll Skúlason háskólarektor ekki að inntökupróf verði tekin upp í fleiri námsgreinum innan skólans en í læknadeild, eða þá skipuleg tak- mörkun á aðgangi með öðrum hætti. Páll segist fagna allri faglegri um- ræðu um Háskóla Íslands og sam- anburði á honum við erlenda háskóla. Sífellt þurfi að huga að öllum þáttum háskólastarfsins. Varðandi það atriði sem dr. Rúnar Vilhjálmsson prófessor bendir á í við- tali í sunnudagsblaði Morgunblaðs- ins að annmarkar geti verið á því að nær allir stúdentar fái inni í skólan- um, ólíkt mörgum háskólum erlendis, segir Páll að á fyrsta námsári sé mik- ið brottfall þegar nemendur standast ekki þær kröfur sem gerðar eru til þeirra. „Síðustu áratugina hefur það verið Framleiðni skólans sé mikil í vissum greinum og útskrifaðir nemendur, sem hafi farið í framhaldsnám er- lendis, hafi staðið sig framúrskarandi vel. Dr. Rúnar Vilhjálmsson telur að auka þurfi akademískar kröfur til kennara HÍ til að efna rannsókna- starf og rannsóknatengt framhalds- nám. Um þetta segir Páll að kröfur til kennara hafi sífellt verið að aukast. Kennarar komi til skólans sem ungir lektorar og vinni sig síðan áfram í framgangskerfi. Þeir þurfi að sýna árangur í starfi til að verða næst dós- entar og loks prófessorar. „Aðalatriði er að við erum með reglubundið eftirlit með frammistöðu allra kennara okkar og sérfræðinga. Við röðum þeim í launaflokka og umbunum þeim skipulega eftir því hvernig þeir standa sig. Hvata- og gæðakerfi okkar tryggir að kennar- arnir eru sífellt að auka hæfni sína í nánast öllum deildum, bæði hvað varðar árangur í rannsóknum og kennslu,“ segir Páll. Úttekt á öllum deildum Fram kom í viðtalinu við dr. Rúnar Vilhjálmsson að hann telur að menntamálaráðuneytið þurfi að gegna betur eftirlits- og aðhaldshlut- verki sínu í háskólanum. Páll tekur undir þetta, háskólinn hafi barist fyr- ir því að ráðuneytið auki þetta starf sitt, það hafi ekki sinnt því sem skyldi til þessa. Á þessu sé þó að verða breyting og nefnir Páll að mennta- málaráðuneytið sé samkvæmt nýjum starfsreglum að hefja úttekt á öllum deildum háskólans, með aðstoð fær- ustu sérfræðinga erlendis. Verið sé að vinna að skipulagðri áætlun um svona úttekt. Að sögn Páls er stefnt að því að hafa eina deild í úttekt hverju sinni og nú sé það lagadeildin sem sé til skoðunar. Endurskoðun á inntöku nemenda í Háskóla Íslands í fullum gangi sem jafnframt er sérstakur heiðursgestur hátíð- arinnar. Meðal þeirra landa sem þátt tóku í hátíð- inni voru Japan, Búlgaría, Nikaragva, Pólland, Taíland, Filippseyjar, Ástralía og Albanía. MARGIR lögðu leið sína niður í miðborg Reykja- víkur á laugardag til að taka þátt í þjóðahátíð. Há- tíðin hófst með fána- og ljósagöngu barna og full- orðinna frá Alþjóðahúsi að Ráðhúsi Reykjavíkur. Fyrir göngunni fóru tónlistarmenn sem slógu taktinn. Þórólfur Árnason borgarstjóri setti há- tíðina að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragn- ari Grímssyni, og Dorrit Moussaieff forsetafrú Morgunblaðið/Eggert Fjölmenni á þjóðahátíð í Reykjavík SAMFYLKINGIN hefur lagt fram á Alþingi tillögu þar sem birt er stefna flokksins um hvernig auka eigi notk- un endurnýjanlegra innlendra orku- gjafa í samgöngum, s.s. vetnis, raf- magns og metans. Fyrsti flutningsmaður er Össur Skarphéð- insson, formaður flokksins. Meginatriði stefnunnar eru fjór- þætt, segir í tilkynningu frá Samfylk- ingunni. Í fyrsta lagi er lagt til að lög- um verði breytt þannig að fjármálaráðherra geti fellt niður öll opinber gjöld af samgöngutækjum sem nýta endurnýjanlega orkugjafa. Í öðru lagi er lagt til að allur bún- aður, sem notaður er til að framleiða nýja endurnýjanlega orkugjafa hér á landi, verði einnig undanþeginn op- inberum gjöldum. Í þriðja lagi er gerð tillaga um að opinber gjöld verði einnig felld niður af endurnýjanlegu eldsneyti sem framleitt er hér á landi. Í fjórða lagi er lagt til að ríkisvaldið hafi frumkvæði að samstarfi við sveit- arfélög um aðgerðir sem ýta undir notkun þessara orkugjafa, s.s. tíma- bundna styrki vegna almenningssam- gangna og ókeypis aðgang að opin- berum bílastæðum og -húsum. Samfylkingin bendir á útreikninga Svía þess efnis að þjóðhagslegur sparnaður af notkun strætisvagna sem ganga fyrir endurnýjanlegri orku í Stokkhólmi sé að andvirði um 100 þúsund dollarar á hvern vagn á ári. Einnig er bent á að í Noregi þurfi ekki að greiða opinber gjöld af vist- vænum bílum. Auk fleiri ívilnana hafi sala á rafbílum þar í landi tífaldast. Tillaga Samfylkingar Gjöld felld niður af end- urnýjanlegum orkugjöfum NÆR þrír af hverjum fjórum Íslend- ingum setja sér markmið sem tengj- ast heilsufari, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir greiðslukorta- fyrirtækið Vísa. Stuðningur ættingja er mikilvægasti þátturinn til að fólk nái markmiðum sínum. Um 42% svar- enda sögðu að hjálp og hvatning ætt- ingja skiptu meira máli í því sam- bandi en rýmri tími eða ráðgjöf fagfólks. Tæpur fimmtungur sagðist sækja innblástur til vinnufélaga eða þekktra einstaklinga. Algengast er að þekktir rithöfundar (15%) eða íþróttamenn (14%) veiti þá hvatningu. Tæplega 72% svarenda sögðust hafa sett sér markmið og oftast náð þeim. Jafnframt kom fram að 31% karla var of stolt til að leita aðstoðar til að ná markmiðum sínum. Margir sækja hvatningu til rithöfunda ♦♦♦ BAKARAR landsins hafa haft nóg að gera um helgina við að undirbúa bolludaginn sem er í dag. Nokkrir af sterkustu mönnum landsins tóku forskot á sæluna í gær í boði Valbjörns Jónssonar bakara í Árbæjarbakaríi. Þeir hafa oft reynt með sér í aflraunum en að þessu sinni kepptu þeir í bolluáti. Kepp- endur fengu 10 bollur og áttu að klára þær á 10 mínútum. Aðeins einum, Grétari Hrafnssyni, tókst að klára bollurnar á svo skömmum tíma. Grétar fékk 50 bollur í verðlaun, en hann afþakkaði þær; taldi sig vera búinn að fá meira en nóg af bollum þetta árið. Valbjörn vildi ekki láta Grétar fara tóm- hentan heim og lét hann fá 20 þúsund króna gjafabréf. Kraftajötnar kepptu í bolluáti Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.