Morgunblaðið - 23.02.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.02.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ                                                                                                               !  "      „Hægt og hljótt.“ Kirkjusöngur í brennidepli Þori ég, vil ég, get ég.... Alkunna er að söng-ur er snar þátturí öllu helgihaldi í kirkjum. Það er hins veg- ar mál manna að auka mætti hlut söngsins og hlut almennra kirkju- gesta í honum, og þess vegna gengst Leik- mannaskóli Þjóðkirkj- unnar fyrir námskeiði þar sem viðfangsefnið er að bæta og auka kirkjusöng. Námskeiðið stendur fjóra næstu miðvikudaga og er sá fyrsti sá næsti, 25. febrúar. Alla dagana stendur námskeiðið frá klukkan 18 til 20. Mar- grét Bóasdóttir söngkona og tónlistarkennari er kennari á námskeiðinu og Morgunblaðið lagði nokkrar spurningar fyrir hana af því tilefni. Hefur námskeiðið einhverja yfirskrift, Margrét? „Já, það kallast, „Syngjum í kirkjunni – þori ég, vil ég, get ég,“ fólk kannast við seinni hluta titilsins úr öðru samhengi.“ Hafa svona námskeið verið haldin áður? „Nei, ekki í þessu formi.“ Hvað er hér á ferðinni? „Þetta er bara fyrir venjulegt fólk eins og þig og mig, fólk sem kemur í kirkju og veltir fyrir sér hvort það eigi að syngja, má það syngja, þorir það að syngja? Það eru vissulega siðir og venjur í kirkjuhaldi, en því fer víðs fjarri að kórinn eigi alltaf og alfarið að sjá um sönginn. Í sumum til- vikum er beinlínis ætlast til þess að fólk syngi með og í öðrum til- vikum má það syngja án þess kannski að gera sér grein fyrir því. Námskeiðið á meðal annars að hjálpa fólki að vita hvenær það má og á að syngja.“ Meðal annars? „Já, við syngjum auðvitað líka. Þetta verður blanda af fræðslu og söng. Það er mikið um það að fólk kann kannski aðeins fáa sálma, og þar sem æskilegt er að allir sem komi í kirkju taki þátt í söngnum þá verðum við með góða úttekt á helstu sálmum og lögum. Við munum aðallega syngja, en einnig fræðast um sálma, tilgang þeirra og hvernig þeir eru sungnir. Við munum kenna þessa söngva og fólk mun komast að raun um að þeir eru ekkert svo flóknir. Afbragðs organistar munu heimsækja okkur og spila með söngnum. Við munum einnig velta fyrir okkur hvers vegna við erum að syngja í kirkju. Fyrir utan að söngur er hluti af kirkjuhaldinu, þá veltum við upp hvort að söng- urinn geri okkur gott, hvort hann sé líkamlega og andlega bætandi. Hvaða áhrif hann hefur á okkur.“ Þetta hljómar nánast eins og vísindi... „Þetta eru ekki vísindi, en það eru vissir hlutir sem gott er að vita og ræða. Svo dæmi sé tekið, þá eru vissar athafnir í kirkj- unni þannig að þátt- taka í söng getur haft huggandi áhrif á kirkjugesti. Jarðar- farir eru þannig. Þar taka gestir mjög lítinn þátt í söngnum, en að syngja með í jarðarför gæti vissulega veitt mikinn styrk. Og það er jafnframt mikilvægt fyrir fólk að vita, að það er ekkert til sem heitir að vera laglaus. Fólk er bara óvant og kann ekki. Í kirkjusöng er engin fegurðar- stika, fólk þarf alls ekki að vera útlært í söng eða að öðru leyti alveg öruggt með söngrödd sína til að leyfilegt sé að taka lagið, það gerir hver með sínu nefi og það skiptir mestu máli að vera beinn þátttakandi en ekki sitja bara og hlusta.“ Er ekki mjög snúið að kunna alla þessa texta? „Nei. Oft eru messuskrár og síðan er fólk með sálmabækur. Meira máli skiptir að huga að líkamlegri tjáningu og standa upp og syngja í stað þess að sitja eins og poki með sálmabók í kjöltunni. Það er líkaminn sjálf- ur sem er hljóðfærið í söng og röng beiting á hljóðfærinu skilar sér ávallt í verri hljóm. Ég bjó um árabil í Þýskalandi og þar tíðkast að kirkjugestir rísi úr sætum og syngi með. Það er eðlileg líkamleg tjáning.“ Hverjir heldurðu að komi á svona námskeið? „Ég veit að það kemur hópur fólks sem hefur svo innilega gaman af því að syngja að það lætur ekkert tækifæri til þess sér úr greipum ganga. Ég vildi líka sjá fólk, sem ekki er kirkju- vant og þarf virkilega á þessari fræðslu að halda, koma til okkar og í hinum sanna kristilega anda yrði því fólki mikill styrkur af hinum söngglöðu sem munu skrá sig á námskeiðið. Við getum tek- ið á móti nokkuð stórum hópi, svona að minnsta kosti fjölda sem næmi glæsilegum kór. Ég vil auk þess sérstaklega óska eftir fólki sem sjálft álítur sig vera laglaust, en eins og ég gat um áður, þá er slíkt ekki til.“ Finnst þér sjálfri ekki vera nóg sungið í kirkjum? „Það er mikið sung- ið í kirkju og það á að syngja mikið í kirkju. Það er ekki til sú kirkja á jörðinni að ekki sé sung- ið í henni. Söngur er sjálfsagður og ófrávíkjanlegur hluti af helgi- haldinu, en við megum ekki gleyma að rækta sambandið við kirkjugesti og gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í söngn- um.“ Margrét Bóasdóttir  Margrét Bóasdóttir er fædd á Húsavík árið 1952. Hún er tón- menntakennari frá Tónlistar- skóla Reykjavíkur árið 1975 og lauk burtfararprófi í einsöng frá Tónlistarskóla Kópavogs sama ár. Þá stundaði hún framhalds- nám í söng í Þýskalandi og lauk ennfremur kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands. Í dag er hún söngkona og kennari við Söngskólann í Reykjavík. Eigin- maður er Kristján Valur Ingólfs- son og eiga þau tvo syni, þá Benedikt og Bóas. er bara fyrir venjulegt fólk eins og þig og mig ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.