Morgunblaðið - 23.02.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 9
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Dragtir - Dragtir - Dragtir
ljósar - galla - kakí
Opið virka daga
frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-14
ÚTSÖLULOK
30-50% aukaafsláttur
í dag og á morgun
Lokað miðvikudag
Nýjar vörur
fimmtudag
SALA Á FATNAÐI
Langar þig selja fallegan fatnað á
skemmtilegum heimakynningum?
Langar þig að nota frítíma þinn til þess að auka tekjumögu-
leika þína? Þá er Friendtex svarið. Friendtex er stærsta
fyrtæki á norðurlöndum sem selur fatnað á heimakynnigum.
Þú þarft ekki að hafa mikla reynslu af sölustörfum.
Mikilvægast er að hafa áhuga á tísku og að geta skapað
gott andrúmsloft á kynningum.
Lestu meira á www.friendtex.is, eða hringdu til okkar í síma.
568-2870
Friendtex Síðumúla 13 108 Reykjavík
www.f r i end tex . i s
Við erum styrktaraðilar krabbameinsfélagsins.
H
rin
gb
ro
t
Lagersala
Buxur
frá kr. 2.990
Dragtir
frá kr. 8.500
Pils
frá kr. 1.990
Blússur
frá kr. 1.990
og margt fleira
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 56, sími 552 2201
Vor 2004
Ný sending
P.s útsöluhorn
LÆKNIR á Ólafsvík óskaði í fyrra-
dag eftir þyrlu til að sækja mann
sem hafði slasast á vélsleða á Snæ-
fellsjökli, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni. Maðurinn hafði þá verið
fluttur með jeppa til Ólafsvíkur.
TF-SIF, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, var á eftirlitsflugi yfir Faxa-
flóa og var þegar haldið í áttina að
Rifi. Þyrlan lenti þar á flugvellinum
rétt fyrir kl. 14 og hafði hinn slasaði
verði fluttur þangað í sjúkrabíl. Þyrl-
an lenti við Landspítala um hálfri
klukkustund síðar.
Þyrlan sótti
vélsleðamann
SKIPULAGSSTOFNUN hefur í
nýjum úrskurði komist að þeirri nið-
urstöðu að fyrirhuguð breyting á
jarðhitanýtingu á Reykjanesi sé ekki
líkleg til að hafa í för með sér umtals-
verð umhverfisáhrif og sé því ekki
matsskyld. Um er að ræða stækkun
á virkjun Hitaveitu Suðurnesja, sem
ætlað er að selja Norðuráli raforku.
Umræddar breytingar eru bygg-
ing stöðvarhúss fyrir jarðgufu-
hverfla og byggingu kælibúnaðar,
sem er hluti rafstöðvar. Hönnun
stöðvarhússins liggur ekki fyrir en í
niðurstöðu Skipulagstofnunar segir
að stöðvarhúsið verði um 2.400 fer-
metrar að grunnfleti og almennt
ekki hærra en 22 metrar. Staðsetn-
ing hússins er ráðgerð milli fisk-
þurrkunar og sjóefnavinnslu. Verið
er að kanna hagkvæmni tveggja
kosta vegna kælibúnaðar, annars
vegar kælingu með andrúmslofti í
tveimur 15 metra háum kæliturnum
og hins vegar með sjódælingu í
gegnum svonefndan eimsvala.
Samkvæmt gögnum Hitaveitu
Suðurnesja eru fyrirhugaðar fram-
kvæmdir að mestu eða öllu leyti inn-
an iðnaðarsvæðisins á Reykjanesi.
Telur Skipulagsstofnun líklegt að
sjónræn áhrif framkvæmda og áhrif
þeirra á jarðmyndanir og landslag
verði „ásættanleg“.
Varðandi stöðu skipulags og leyf-
isveitinga bendir Skipulagsstofnun á
að ef farið verður í að nýta sjókæl-
ingu þurfi að breyta aðalskipulagi
Reykjanesbæjar með tilliti til stað-
setningar mannvirkja sem sjókæling
krefst utan iðnaðarsvæðisins og að
framkvæmdir verði að vera í sam-
ræmi við gildandi deiliskipulag.
Einnig bendir stofnunin á að fram-
kvæmdir séu háðar leyfisveitingum
Reykjanesbæjar, nýtingarleyfi iðn-
aðarráðuneytisins og starfsleyfi
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Áð-
ur en framkvæmdaleyfi sé veitt skuli
liggja fyrir áætlun um efnistöku að
fenginni umsögn Umhverfisstofnun-
ar.
Skipulagsstofnun um Reykjanesvirkjun
Ekki þörf á nýju
umhverfismati
ÁSTÞÓR Magnússon hefur ákveðið
að bjóða sig fram til embættis for-
seta Íslands. Ástþór tilkynnti
ákvörðun sína síðastliðinn laugar-
dag og opnað við sama tækifæri vef-
inn www.forsetakosningar.is. Í til-
kynningu um framboðið segir að
Ástþór bjóði sig fram til embættis-
ins ásamt konu sinni, Natalíu Wium,
sem sé lögfræðingur af rússneskum
ættum.
Forsetaefni þarf að hafa meðmæli
minnst 1.500 kosningabærra manna
þegar framboði er skilað formlega
til dómsmálaráðuneytis.
Ástþór Magnússon bauð sig fram
til embættis forseta árið 1996. Hann
hugðist bjóða sig fram við forseta-
kjör árið 2000, en náði ekki tilskild-
um fjölda meðmælenda áður en
framboðsfrestur rann út.
Ástþór Magnússon hygg-
ur á forsetaframboð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ástþór Magnússon kynnti ákvörðun
sína um helgina ásamt eiginkonu
sinni, Natalíu Wium.