Morgunblaðið - 23.02.2004, Side 19
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 19
Í DAG, 23. febrúar, hefjast vitna-
leiðslur hjá Alþjóðadómstólnum í
Haag um byggingu aðskiln-
aðarmúrs Ísraelsmanna í Palestínu.
Ísraelsmenn hafa
reynt að telja heims-
byggðinni trú um að
hér sé um „örygg-
isgirðingu“ að ræða,
reista í þeim tilgangi
að varna hryðjuverka-
mönnum inngöngu inn
í Ísrael. Sú staðreynd
að múrinn, sem er allt
upp í átta metra hár,
liggur víðast langt frá
viðurkenndum landa-
mærum Ísraels –
lengst inni á herteknu
landsvæði Vest-
urbakka Palestínu –
hlýtur að vekja grun-
semdir um að aðrar
ástæður liggi að baki.
Um hvað snýst bygg-
ing aðskilnaðarmúrs-
ins, og af hverju er
nauðsynlegt að við Ís-
lendingar tökum
skynsamlegri afstöðu í
málinu en að horfa að-
gerðalausir á – eins og
við því miður gerðum
nýlega með því að
sitja hjá í atkvæða-
greiðslu um málið innan Sameinuðu
þjóðanna?
Jarðýtur, vinnuvélar, hermenn og
vinnuflokkar eru þessa stundina
uppteknir um allan Vesturbakkann
ýmist við að undirbúa jarðveginn
fyrir aðskilnaðarmúrinn, með því að
ryðja burt ólífutrjám og íbúðar-
húsum, eða reisa sjálfan múrinn,
sem nú þegar er orðinn 180 kíló-
metra langur. Ef Ísraelsmenn ná
sínu fram verður heildarlengd
múrsins meira en 730 km, en til
samanburðar má nefna að landa-
mæri Ísraels og Vesturbakkans eru
um 200 km löng.
Múrinn hlykkjast eins og snákur
gegnum mörg frjósömustu rækt-
arlönd Palestínu, einangrar þús-
undir bænda frá jörðum sínum og
hefur þar af leiðandi stórskaðleg
áhrif á efnahag Palestínumanna.
Lega hans umkringir mörg byggð-
arlög Palestínumanna sem liggja
Ísraelsmegin múrsins þar sem múr-
blokkir, girðingar og skurðir hafa
verið reist til að varna íbúunum að-
göngu að afganginum af Palestínu.
Samkvæmt tölum frá mannréttinda-
skrifstofu Sameinuðu þjóðanna
munu hátt í 300.000 Palestínumenn
verða umkringdir með þessum
hætti – einangraðir frá vinnustöðum
sínum, mörkuðum, heilsugæslu og
háskólum sem liggja hinum megin
múrsins.
Sjálfur hef ég orðið vitni að bygg-
ingu múrsins við Jerúsalem, Ramal-
lah og Tulkarem. Fyrir norðan
Tulkarem heimsótti ég palestínsku
bæina Nazlat Isa og Baqa ash Shar-
qiya, sem eru algerlega umkringdir
múrnum. Líkt og aðrir Palest-
ínumenn í sömu aðstöðu geta bæj-
arbúar ekki farið frjálsir ferða sinna
til annarra svæða Palestínu – hvað
þá til Ísraels, þótt bæirnir séu í
raun Ísraelsmegin múrsins. Þeim er
meinað að fá heimsóknir og að
heimsækja fjölskyldumeðlimi sem
búa hinum megin múrsins. Sjúkra-
bílum er aðeins hleypt í gegnum
múrinn í neyðartilvikum. Bændur í
bæjunum þurfa leyfi til að fara inn
og út um hlið á múrnum til að rækta
jarðir sínar – leyfi sem sjaldnast eru
veitt.
Samkvæmt áætlunum Ísraela
mun rúmlega 40% alls lands Vest-
urbakka Palestínu liggja Ísr-
aelsmegin múrsins. Ísraelska her-
námsliðið hefur þegar gefið út
tilkskipun sem skilgreinir allt land
sem liggur á milli viðurkenndra
landamæra Ísraels og múrsins sem
öryggisvæði. Samkvæmt skipuninni
er íbúum þessara svæða gert skylt
að hafa leyfi frá hernum til að fá að
búa á heimilum sínum, sem gilda í 6
mánuði í senn. Engum er leyft að
yfirgefa eða koma inn á svæðin
nema með leyfi hernámsliðsins. Í
annarri tilskipun er hermönnum
heimilað að skjóta á
alla sem koma nær en
50 metra að múrnum.
Undanþágu frá þess-
um tilskipunum hafa
ísraelskir ríkisborgarar
og allir þeir sem sam-
kvæmt ísraelskum lög-
um hafa rétt á búsetu í
Ísrael. Þetta þýðir að
gyðingar hvar sem er í
heiminum, hvort þeir
hafa nokkru sinni stigið
fæti á palestínska
grund eða ekki, geta
ferðast frjálsir til og frá
Naslat Isa, Baqa ash
Sharqiya og allra ann-
arra byggðarlaga og
ræktarlanda Palest-
ínumanna sem eru, eða
verða bráðlega,
innikróuð af múrnum.
Þeir geta einnig sest
þar að án leyfis – enda
er það vafalítið von ísr-
aelskra stjórnvalda að
palestínskir íbúar
svæðanna gefist upp á
innilokuninni og að að-
fluttir gyðingar taki yf-
ir þessi frjósömu ræktarlönd.
Ef Ísraelsmenn væru í raun og
veru að reisa múrinn í öryggiskyni
væri staðið að byggingu hans með
öðrum hætti. Tilgangur múrsins er
greinilega að ræna meira landi af
Palestínumönnum, stuðla að þjóð-
ernishreinsunum og tryggja inn-
limun ólöglegra landsetubyggða í
Ísraelsríki. Tilgangurinn er einnig
að koma í veg fyrir að palestínska
þjóðin geti nokkurn tíma lifað frjáls
í sjálfstæðu ríki á Vesturbakkanum
og Gaza, sem þó þekur aðeins 22%
af upphaflegu landi Palest-
ínumanna. Múrinn mun leiða til
þess að Palestínumenn munu í
framtíðinni aðeins geta lifað í að-
skildum og einangruðum gettóum,
umkringdir ísraelska hernum og
landtökumönnum.
Staðreyndirnar liggja fyrir. Að-
skilnaðarmúrinn er ólöglegur sam-
kvæmt Genfarsáttmálanum og öðr-
um alþjóðalögum sem Ísrael er aðili
að. Bygging hans er einnig skýlaust
brot á samþykktum Sameinuðu
þjóðanna, enda krafðist allsherj-
arþingið í lok síðasta árs að fram-
kvæmdum Ísraelsmanna yrði hætt
tafarlaust og sendi málið til Al-
þjóðadómstólsins í Haag. Múrinn
leggur líf hundraða þúsunda manna
í rúst og gerir að engu möguleika
þeirra á að lifa mannsæmandi lífi.
Tilurð hans kemur einnig í veg fyrir
að raunverulegur friður geti náðst á
svæðinu þar sem sjálfstætt ríki Pal-
estínu fengi þrifist við hlið Ísraels.
Ísland á að sjá sóma sinn í því að
beita áhrifum sínum innan Samein-
uðu þjóðanna og annara al-
þjóðastofnana til að stöðva bygg-
ingu aðskilnaðarmúrsins. Einnig
ætti að setja viðskiptabann á Ísrael
þar til ríkisstjórn landsins þóknast
að fara eftir samþykktum SÞ og
þeim friðar-, mannréttinda- og al-
þjóðasamningum sem það hefur við-
urkennt. Viðskiptabann af Íslands
hálfu yrði vissulega aðeins táknræn
aðgerð – en myndi senda ísr-
aelskum stjórnvöldum skýr skilaboð
og verða öðrum þjóðum gott for-
dæmi.
Áhugasömum um baráttuna gegn
aðskilnaðarmúrnum er bent á
heimasíðu palestínsku hreyfing-
arinnar Anti-Apartheid Wall
Campaign, www.stopthewall.org,
þar sem er að finna kort, greinar,
frásagnir og ýmsar aðrar upplýs-
ingar um múrinn.
Aðskilnaðarmúr
í Palestínu
Eldar Ástþórsson skrifar um
málefni Palestínu
Eldar Ástþórsson
’Aðskiln-aðarmúrinn er
ólöglegur sam-
kvæmt Genf-
arsáttmálanum
og öðrum al-
þjóðalögum sem
Ísrael er aðili
að.‘
Höfundur er námsmaður og skrifar
frá Ramallah í Palestínu.
Fréttasíminn 904 1100