Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 30
30 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Risaeðlugrín
SJÁIÐ
ÞETTA
STRÁKAR!
© DARGAUD
Grettir
Grettir
Smáfólk
ER
KALLI
HEIMA?
HVER
ERT
ÞÚ?
ÉG HEITI MAGGA... ÉG ER
VINKONA BRÓÐUR ÞÍNS ÚR
SUMARBÚÐUNUM
GETUR EKKI VERIÐ,
BRÓÐIR MINN Á
ENGA VINI
HVERNIG
GETURÐU
SAGT ÞETTA?
ÞÚ ÞEKKIR
MIG EKKI...
NEI, EN
ÉG ÞEKKI
BRÓÐUR
MINN!
ÉG SEM HÉLT AÐ ÉG HEFÐI
SKILIÐ LYKLANA MÍNA EFTIR
HÉRNA EINHVERS STAÐAR
ÁI!
ÉG ÆTLA AÐ FARA
ÚT AÐ HLAUPA
ÉG
LÍKA
FYRIR UTAN AÐ
“FARA ÚT” HLUTANN
OG ÞETTA “HLAUPA”
DÆMI
ÞIÐ EIGIÐ LANGT Í LAND
ÁÐUR EN ÞIÐ VERÐIÐ JAFN
GÓÐIR OG ÉG AÐ FLEYTA KER-
LINGAR. ÉG SKAL SKO SEGJA
YKKUR ÞAÐ!
GETURÐU
LÍKA GERT
ÞAÐ MEÐ
ÞESSU?
HA HA!
EKKERT
MÁL! HOP!
HVAÐ
MEÐ
ÞETTA?
EINS OG AÐ
DREKKA VATN
SKO! NÆSTA! EITTHVAÐANNAÐ?
HA
HA!!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
GUNNAR Smári Egilsson ritstjóri
og fjölmiðlafursti hefir lengi ljómað á
lofti með spakvitringaslúður sitt, en
svo nefndi Halldór Laxness viðlíka
vísdóm og þann, sem heyra má og
lesa í þáttum þeirrar gerðar.
Fróðleikur sá er Fréttablað Gunn-
ars Smára birti í tilefni þess að 100 ár
voru liðin frá fæðingu Ragnars Jóns-
sonar frá Mundakoti á Eyrarbakka
er fráleitur.
Einar Ragnar, eins og hann hét,
var oftast kenndur við Smára, smjör-
líkisgerð er hann stofnaði ásamt vini
sínum og félaga, Þorvaldi Thorodd-
sen. Gunnar Smári lét einhvern
starfsmann sinn birta frétt og viðtal
við Ernu, dóttur Ragnars og systur
Jóns Óttars, athafnamanns. Nú hefði
mátt búast við því að ritstjóri, sem
ber Smáranafnið, hefði átt að fjalla af
þekkingu um einskonar nafna sinn.
Það var öðru nær. Honum tókst að
vinna það þrekvirki að breyta um að-
setur Ragnars og flytja hann eins-
konar hreppaflutningi frá Eyrar-
bakka og hola þessum þekktasta syni
Eyrarbakka niður á Stokkseyri. „Svo
er mikill Satanskraftur að saltaðir
ganga þorskar aftur,“ kvað Grímur
Thomsen um Stokkseyrarreimleika.
Ragnar í Smára framleiddi Smá-
rasmjörlíki, sem hann nefndi „Bláa
borðann“. Gunnar Smári hefir unnið
sér a.m.k. tvö stykki af Smárasmjör-
líki með kjörorði Ragnars „Alltaf er
hann bestur Blái borðinn“.
Væri til of mikils mælst að Gunnar
Smári tæki sér frí um skeið og aflaði
sér upplýsinga um málefni sem eru á
vitorði flestra landsmanna, en láti af
yfirlæti og stigi af palli sínum niður
til almúgans.
Karl Karlsson, afi Gunnars Smára,
var vatnsmaður í þjónustu Reykja-
víkurhafnar. Stefán Jónsson frétta-
maður ræddi eitt sinn við Karl í út-
varpsþætti. Karl fór létt með að
nefna tugi báta og ef ekki hundruð
sem lögðust að bryggju í Reykjavík.
Karl var stéttvís og vaskur í baráttu-
sveit sjómanna í Blöndahlsslagnum
árið 1923. Móðir Karls vatnsmanns
var nafnkunn í hópi afrekskvenna við
uppskipun í Reykjavík. Hún var
nefnd í sömu andrá og Salvör (Salla)
amma Ívars Guðmundssonar. Þær
báru níðþunga kolapoka upp Kola-
sund.
Nefna má fjölda nafnkunnra Eyr-
bekkinga, samtíðarmenn Ragnars
Jónssonar. Haraldur Blöndal, fræg-
ur ljósmyndari, Ásgeir Blöndal lækn-
ir, Ragnheiður Blöndal, móðir Lár-
usar bóksala og Blöndalsbræður,
Lárus skjalavörður, Sölvi Gunnar og
Björn, Sigfús Einarsson tónskdáld,
Aron í Kauphöllinni o.fl.
Þessar línur eru á engan hátt rit-
aðar til þess að gera lítið úr Stokks-
eyri eða Stokkseyringum. Páll Ísólfs-
son var Stokkseyringur. Ragnar í
Smára og Páll voru frændur af Berg-
sætt og góðir vinir. Ragnar bauð Páli
á kvikmyndasýningu í Tónabíói, sem
var nýlega tekið til starfa. Tónlistar-
félagið var alltaf að safna fyrir tón-
listarhöll.
Tónabíó átti að sýna hljómlistar-
myndir og söngvaseið. Myndin sem
sýna átti að þessu sinni var hins veg-
ar fatafellumynd með Brigitte Bard-
ot. Páll sagði við Ragnar. „Ragnar
minn, þetta bíó á ekki að heita Tóna-
bíó. Það á að heita Dónabíó.“
Ludvig Hjálmtýsson var Stokks-
eyringur. Hann sótti létta lund sína
til Bernhöftanna. Svo eru ættingjar
Önnu, konu Jóns Pálssonar, gjald-
kera og fræðimanns. Það eru gyð-
ingar af ætt demantaslípara frá
Hamborg, afkomendur Petersens
doktors. Brynja Benediktsdóttir
leikkona er af þeirri ætt. Svo mætti
lengi telja. Gunnar Smári ætti að
sökkva sér í brunn þjóðlegra fræða.
Ég óska honum velfarnaðar.
PÉTUR PÉTURSSON,
þulur.
Ragnar í Smára og
Gunnar Smári
– „Alltaf er hann
bestur Blái borðinn“
Frá Pétri Péturssyni:
ÉG las grein í Morgunblaðinu þann 7.
febrúar, „Ætlast til að við hlaupum
hraðar og sinnum fleiri sjúklingum“,
og mér stóð alls ekki á sama.
Það hlýtur að vera gífurlegt álag á
starfsliðið og sjúklinga og mér fannst
þessi grein satt að segja hálf óhugn-
anleg með framhaldi eftir því sem
Einar Oddsson hafði að segja í sam-
bandi við sparnaðinn á Landspítalan-
um háskólasjúkrahúsi eftir samein-
ingu og ekki lagaðist ástandið. Allt
hefur hríðversnað um allan helming,
og sérstaklega á kostnað sjúklinga.
Sem sagt er verið að þvinga fram
sparnað með því að loka sjúkrastofum
og deildum, og aumingja starfsliðið er
óttaslegið við að missa sína vinnu. Ég
var einu sinni sjálf gangastúlka og
vann allar vaktir, næturvakt, kvöld-
vakt og dagvakt. Þetta var árið 1962.
Við vorum eins og stór fjölskylda og
okkur leið svo vel í vinnunni. Pening-
ar entust mikið lengur en nokkurn
tíma í dag.
Já, þá var öldin önnur, en núna er
það því miður allt öðruvísi. Það eru
tvær fjölskyldur í þessu landi, önnur
er rík og hin er fátæk. Svo komast ör-
yrkjar ekki af með sínar bætur vegna
mikils sjúkrakostnaðar og alls konar
reikninga. Of lítið er eftir til að kaupa
mat út mánuðinn, nú þá borðar maður
bara brauð og tvíbökur og drekkur te.
Ég held að það sé kominn tími til að
hrista þennan sofandahátt og hugsa
bara um sig, ég meina ríkisstjórnina
okkar. Hún mætti svo sannarlega
taka sig saman í andlitinu og borga
öllum mannsæmandi laun. Þetta
gengur ekki svona.
MONIKA PÁLSDÓTTIR,
Torfufelli 27, Reykjavík.
Þetta gengur ekki svona
Frá Moniku Pálsdóttur: