Morgunblaðið - 23.02.2004, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
STÚLKURNAR tvær sem létust eftir
umferðarslys sem varð rétt við Bifröst í
Borgarfirði á föstudag hétu Linda Guð-
jónsdóttir og Sunna Þórsdóttir. Þær voru
báðar á fjórtánda ári.
Linda fæddist 25. apríl 1990 og var til
heimilis á Dunhaga 11 í Reykjavík. For-
eldrar Lindu eru Ellen Ólafsdóttir og
Guðjón Kárason. Sunna fæddist 23. mars
1990 og var til heimilis á Melhaga 16 í
Reykjavík. Foreldrar Sunnu eru Guðrún
Gunnarsdóttir og Þór Sigurjónsson.
Stúlkurnar voru báðar nemendur í
Hagaskóla í Reykjavík og voru á leið á
skíðamót þegar slysið varð.
Sunna
Þórsdóttir
Linda
Guðjónsdóttir
Létust eftir
umferðarslys
VETRARHÁTÍÐ Reykjavíkur lauk í gær með
samkomu í Elliðaárdal. Gestir söfnuðust sam-
an í Minjasafni Rafveitunnar til að ljúka hátíð-
inni með pompi og pragt. Þá var fólk hvatt til
að taka með sér vasaljós til að lýsa upp dalinn
þar sem skemmtiatriði voru jafnt utan dyra
sem innan. Á myndinni sést Lögreglukórinn
en hann skemmti gestum ásamt kontrabassa-
kvartettinum Tröllagígjunum. Hljómsveitin
Tunnustafir lék fyrir gesti en meðlimir hennar
nota m.a. olíutunnur og ryksugur við flutning-
inn. Tunnustafi skipa Olga Björk Ólafsdóttir,
Ólafur Hólm, Richard Korn, Roland Hartwell
og Steef van Oosterhout. Hljómsveitin Stein-
tryggur, skipuð þeim Sigtryggi Baldurssyni
og Steingrími Guðmundssyni slagverksleik-
urum, spilaði einnig í dalnum á sunnudags-
kvöld. Andri Snær Magnason og Kristinn H.
Þorsteinsson fluttu gjörning undir heitinu „Er
ljóðið dautt?“ Þá fluttu nemendur út Lang-
holtsskóla Skuggaleikhús.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetrarhátíð kvödd í Elliðaárdal
STEFNT er á að fá erlenda forn-
leifafræðinga sem sérhæfa sig í
að rannsaka mannvistarleifar á
sjávarbotni til að kafa við Kolku-
ós sumarið 2005, en Kolkuós var
landnámshöfn, ein af helstu höfn-
um landsins og hafnaraðstaða
Hóla í Hjaltadal til einhvers tíma.
Þetta er hluti af tilraunum
fornleifafræðinga til að fá heild-
arsýn á Hóla, þennan forna höf-
uðstað Norðurlands, segir Ragn-
heiður Traustadóttir
fornleifafræðingur. Hún segir
brýnt að rannsaka Kolkuós sem
fyrst þar sem landbrot, og jafnvel
landsig, ógni minjum frá þessari
sögufrægu höfn. Mælingar á
hafsbotni verða gerðar í sam-
vinnu við Landhelgisgæsluna
næsta sumar til að finna vænleg-
ustu staðina fyrir kafarana að
skoða.
„Við héldum að þetta væru
meira og minna einhver ruslalög
sem væru að fara út í sjó, en all-
ar niðurstöður frá þessum þrem-
ur vikum sem við vorum þarna í
sumar lofa svo miklu meiru.
Þarna erum við að finna síðustu
leifar af verslunarstað sem á sögu
aftur að landnámi, það hafa engar
landnámshafnir verið skoðaðar
áður,“ segir Ragnheiður.
Hefur verið góð
náttúruleg höfn
Ragnheiður segir nálægðina við
Hóla mjög mikilvæga, en höfnin
er talin hafa verið mjög góð nátt-
úruleg höfn á sínum tíma. Talið
er að Elínarhólmi sem er þar úti
fyrir landi hafi jafnvel verið land-
fastur, og þá hafi þessi tangi
myndað mjög góða hafnarað-
stöðu; fremur aðdjúpt með sand-
fjöru og skjóli fyrir helstu veður-
áttum.
Meðal þess sem fannst við upp-
gröft á svæðinu síðasta sumar er
það sem talið var vera smiðja, en
gæti reynst vera staður þar sem
járnframleiðsla fór fram.
„Það segir okkur að það er
jafnvel einhver iðnaður sem fer
fram á hafnarsvæðinu,“ segir
Ragnheiður. Hún segir það hafa
komið á óvart að hafa fundið
járnframleiðslu þarna, enda fylgi
slíkri starfsemi hiti og reykur
sem ekki eigi við handverk sem
hugsanlega var unnið í næstu
húsum.
Landnámshöfn rannsökuð í tengslum við Hólarannsókn
Leita fornminja á sjávarbotni
Talið er að Elínarhólmi hafi jafnvel verið landfastur og myndað gott skjól
fyrir helstu vindáttum og Kolkuós því verið kjörið skipalægi.
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, ræddi um breytingar á ráð-
herraembættum í fréttaskýringaþættinum Í brenni-
depli, sem sýndur var í Sjónvarpinu í gærkvöldi. Fyr-
ir liggur að Davíð mun hætta sem forsætisráðherra í
haust þegar Halldór Ásgrímsson tekur við starfinu,
en enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvaða
breytingar Sjálfstæðisflokkurinn gerir á ráðherraliði
sínu.
„Það er þá bara spursmál um það hvort formaður
flokksins vilji vera heima en ekki í utanríkisráðuneyti
þar sem menn þurfa að vera mjög mikið í burtu. Það
myndi ekki hugnast mér kannski að vera mikið í
burtu. Fjármálaráðuneytið er ráðuneyti sem þarf að
sinna mjög miklum fundahöldum með öðrum ráðherr-
um. Það er ekki endilega víst að það sé heppilegt fyrir
formann flokks. Þess vegna kemur ráðuneyti eins og
dómsmálaráðuneyti sem er ekki eins umfangsmikið
kannski eins og þessi tvö ráðuneyti, en mikilvægt þó,
einnig til greina,“ sagði Davíð Oddsson í gær.
Davíð Oddsson í þættinum Í brennidepli
„Dómsmálaráðuneytið
kemur einnig til greina“
TVEIMUR unglingspiltum var bjargað
úr sjálfheldu ofarlega í Helgafelli í Kald-
árbotnum seinnipartinn í gær. Björg-
unarsveit Hafnarfjarðar og Hjálparsveit
skáta í Kópavogi voru kallaðar út. Rign-
ing var við Helgafell og erfitt að fóta sig
á hálum klöppum í fellinu, auk þess sem
lausar moldarskriður voru varasamar.
Piltarnir lentu í vandræðum efst í fell-
inu með klettabelti á báðar hendur og
þurftu björgunarsveitarmenn þess
vegna að síga með þá niður 70–80 metra
þar til komið var á öruggt svæði. Pilt-
arnir voru orðnir kaldir þegar þeir komu
niður.
Ljósmynd/Atli Már Markússon
Björgunarmenn þurftu að síga niður með
mennina sem voru í sjálfheldu.
Bjargað úr sjálf-
heldu í Helgafelli
MIÐASALA á tónleika bresku
stúlknasveitarinnar Sugababes
hefur farið fram úr björtustu
vonum, en langar raðir mynd-
uðust við verslanir Skífunnar
strax í fyrrinótt.
Tónleikar sveitarinnar verða
8. apríl en Kalli Bjarni, Idol-
sigurvegari, og Hip-Hop sveit-
in Skytturnar frá Akureyri hita
upp fyrir söngkonurnar ungu.
Frábær
aðsókn að
Sugababes
Löng biðröð/37