Morgunblaðið - 29.02.2004, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.02.2004, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þann 1. mars n.k eru liðin 80 ár frá því að aðalbanki Lands- bankans var byggður á ný eftir brunann mikla árið 1915. Í tilefni af afmælinu hefur verið sett upp ljósmyndasýning í Aðalbanka sem spannar sögu hússins og nánasta umhverfi þess frá aldamótum til dagsins í dag. Á sýningunni má sjá fyrsta Landsbankahúsið, myndir frá brunanum og endurreisn nýja hússins. Einnig verður sýnt stutt myndband með myndbrotum frá þessum tíma. Sýningin verður opin til 31. mars og hvetjum við alla áhuga- sama til að líta við. Myndasýning í tilefni af 80 ára afmæli Landsbankahússins Banki og hús í áttatíu ár www.landsbanki.is sími 560 6000 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - LB I 23 83 5 0 2/ 20 04 Magnús Ólafsson, 1910-1920 Atvinnuhúsnæði byggingar . Landsbankinn í Austurstræti Þ að hefur myndast röð við glerbúrið á bráðamóttöku Borg- arspítalans. Ungi maðurinn fremst í röðinni hóar í gamlan hvíthærðan mann, sem hvílir sig á stól í biðstofunni. – Það er komið að okkur! En gráhærður gamall maður stígur í veg fyrir þann hvít- hærða. – Ætlarðu að fara fram fyrir mig? segir hann ógnandi. Blaðamanni verður hugsað til einvígis Gandalfs og Sarúmans í Hringadróttinssögu. – Ertu eitthvað á móti því? spyr sá hvíthærði og spennir upp brjóst- kassann. Það er eins og hann yngist um 20 ár. – Ég vildi bara spyrja, svarar sá gráhærði og það sljákkar í honum. Heiminum er borgið. Frískleg stúlka í bláum sloppi eftir nýjustu tísku á spítölunum tekur á móti fólki í alla vega ásigkomulagi og spyr það út úr persónulegum högum. Brjóstvasinn er út- belgdur af pennum, skærum, teygjum og barmmerkjum – fagmennskan leynir sér ekki. – Hvað kom fyrir, spyr hún. – Fótbolti, svarar blaðamaður pínulítið stoltur. – Missteigstu þig? – Já. – Ertu að æfa með einhverju félagi? – Ha? Ja, jæja, ég veit ekki hvort það skiptir máli. Ufsanum. – Eigum við ekki bara að skrifa það, segir hún hughreystandi. – Ha, jú. Að loknu samtalinu sprettur blaðamaður á fætur og rekur höfuðið af miklu afli í glerið. Hann þreifar angistarfullur á höfðinu eftir áverk- anum; bíður eftir sársaukanum. En finnur ekkert. Þá áttar hann sig á því að búið er að klæða glerið með svampi. Enda má gera ráð fyrir að helstu hrakfallabálkar landsins sæki þessa þjónustu. Fólkið í röðinni skellihlær og móðir hvíslar að dóttur sinni: – Rak karlinn sig í? Litteratúrinn er hinn skemmtilegasti. Þar er viðtal við Berthu Maríu Waagfjörð í Skýjum; búið er að rífa úr blaðinu hálfa síðu með mynd af henni naktri bak við rimlagardínur. Glittir þó í annað brjóstið. Ef til vill hefur einhver laumað hinu heim með sér. Reglulega eru kölluð upp nöfn þeirra sem bíða á biðstofunni. Loks kemur röðin að blaðamanni. Pétur! Við tekur ósköp notaleg sjúkrastofa með bangsaveggfóðri, sem hefur einhvern tíma verið barnabiðstofa. Á veggnum hangir skjöldur með áletruninni: Leikföng gefin af Lionsklúbbnum Þór. Nú eru einu leik- föngin sótthreinsivökvar, plastmál og klútar. Sár eru í veggnum eftir tæki sem tekin hafa verið niður, en enginn virðist líklegur til að lækna þau sár. Í einverunni meðan beðið er eftir lækninum er skvaldrið frammi eins og lyftutónlist; ráðningarbann ber á góma og sagt er í umkvörtunartón: – … svo fækkar bara starfsfólkinu þangað til einn daginn að við lok- um deildinni! Úr næsta herbergi stígur gamall maður og segir: – Mér var vísað inn í þessa stofu að bíða eftir lækninum en nú er ég búinn að bíða í bráðum hálftíma og mér er orðið kalt: Þið eruð ekki búin að gleyma mér? – Nei, það er fylgst með þér, svarar hjúkrunarfræðingurinn hlýlega. Að vörmu spori gengur læknir inn til hans og síðan tveir hjúkr- unarfræðingar sem gefa honum parkódín. – Nú, ég hélt ég fengi kókaín eða ópíum, segir hann og gerir sér upp undrun. Það kemur læknir til blaðamanns, ung stúlka sem heilsar vinalega. Hún þreifar á ökklanum til að komast að því hvar blaðamaður finnur til – og ýtir þar. Síðan ýtir hún aftur nokkrum sinnum, þangað til hún seg- ir, að það þurfi að mynda ökklann. Eftir skamma stund á biðstofu röntgendeildarinnar liggur blaðamað- ur á sjúkrastofu og fer í hinar ýmsu stellingar með ökklann, svolítið eins og alvöru fyrirsæta. Hann áttar sig á því að það hlýtur að vera óskap- lega flókið að sitja fyrir á nektarmyndum. Hann er bara komin úr öðr- um sokknum! Blaðamaður heldur síðan með röntgenmyndirnar aftur á bráða- móttökuna. Þar kemst hann að því að ljósmyndara Morgunblaðsins hef- ur verið vísað frá vegna þess að starfsfólkið hélt að hann væri að leita að þingmanninum Pétri H. Blöndal og vildi ekkert um það segja, hvort hann væri staddur á spítalanum. – Það er nafnleynd í heilbrigðiskerfinu, segir deildarstjórinn ábúð- arfullur. Blaðamaður er þakklátur fyrir hönd nafna síns, þingmannsins. Á bið- stofunni er fólk enn að bíða í röð. Einn talar laumulega í gemsa úti í horni að ganga frá viðskiptadíl. Andlitsfríð stúlka er berfætt á öðrum fætinum og telur á sér tærnar. Hópur af strákum leitar að hálfri síðu, sem vantar í Ský. Blaðamaður hugsar sér gott til glóðarinnar að komast aftur í fótbolta, – með Ufsanum. Morgunblaðið/Jim Smart Fyrirsæta á sjúkrabekk SKISSA Pétur Blöndal sótti bráða- móttökuna. HJÖRLEIFUR Guttormsson, fyrr- verandi þingmaður, hefur sent Skipulagsstofnun bréf þar sem hann óskar eftir að stofnunin taki ákvörðun um hvort raflýsing á Gullfossi að vetrarlagi sé mats- skyld framkvæmd samkvæmt lög- um um mat á umhverfisáhrifum. Hjörleifur greindi frá þessu á fundi sem Landvernd og Bláskógabyggð efndu til á Hótel Borg á föstudag undir yfirskriftinni: Má raflýsa Gullfoss? Í bréfi til Skipulagsstofnunar segir að flóðlýsing við Gullfoss sé meiriháttar inngrip í umhverfi eins þekktasta náttúrufyrirbæris á Ís- landi sem feli einnig í sér breyt- ingu á þjónustumiðstöð og tengd- um aðgerðum fyrir ferðamenn við fossinn, þar með talið við gang- stíga. Bláskógabyggð hefur um nokk- urt skeið haft uppi áform um að raflýsa Gullfoss til að bæta aðgengi ferðamanna að fossinum að vetri til og lengja ferðamannatímabilið. Oddur Hermannsson landslags- arkitekt, sem vann að gerð að- alskipulags fyrir Bláskógabyggð, sagði á fundinum að koma mætti ljóskösturum þannig fyrir að þeir yrðu huldir undir vesturbrún gjár- innar og að miðað væri við að lýsa upp fossinn í myrkri frá nóvember fram í mars. Verkefnið yrði til- raunaverkefni til tveggja ára og að þeim tíma liðnum mætti endur- skoða það í ljósi reynslunnar. Hann undirstrikaði að um afturkræfa framkvæmd væri að ræða. Ari Trausti Guðmundsson jarð- fræðingur sagði það mat sitt að rétt væri að flóðlýsa Gullfoss og til- tók dæmi erlendis frá þar sem ein- stök náttúrufyrirbæri hefðu verið flóðlýst með góðum árangri. Hann sagðist ekki óttast að með því væri verið að skapa fordæmi fyrir því að fleiri fossar yrðu flóðlýstir. Árni Bragason, forstöðumaður á Umhverfisstofnun, sagði að um- hverfisstefna stjórnvalda hefði fram að þessu verið að lágmarka byggingu mannvirkja við nátt- úrufyrirbæri. Umhverfisstofnun hefði sem umsagnaraðili vegna er- indis Bláskógabyggðar í nóvember í fyrra lagt til að Gullfoss yrði ekki flóðlýstur. Árni sagði að sérstaða Íslands væri í því fólgin að hér á landi hefði tiltölulega lítið rask verið við náttúrufyrirbæri, ólíkt því sem væri víða erlendis. Fjöldi ferðamanna Hjörleifur Guttormsson, fyrrum alþingismaður, sagði það fjar- stæðukennda hugmynd að láta lýsa upp fossinn og augljóst dæmi um firringu sem rekja mætti til borg- arsamfélagsins. Sveinn Sæland, oddviti Blá- skógabyggðar, sagði ljóst að um 80% ferðamanna sem kæmu til Ís- lands heimsæktu Gulfoss og að ferðamenn sem þangað kæmu, einkum að vetrarlagi, gerðu ráð fyrir annarri aðstöðu en þar væri fyrir. Mikilvægt væri að huga að lýsingu til að bæta öryggi ferða- manna. Fram kom á fundinum að nokkr- ir fossar eru flóðlýstir hér á landi, s.s. Seljalandsfoss og Foss á Síðu. Raflýsing við Gullfoss rædd á fundi Landverndar Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Efri fossinn og bakkarnir voru upplýstir með bílljósum og kösturum 26. febrúar 1999. Myndin er tekin um hánótt. Óskað eftir úrskurði um matsskyldu lýsingar KAUPMÁTTUR launa jókst að meðaltali um 2,5% á einu ári, milli fjórða ársfjórðungs á síðasta ári og sama tímabils árið 2002, að því er fram kemur í nýrri launakönnun Kjararannsóknarnefndar. Á tímabilinu hækkuðu laun að meðaltali um 5,1%, en það var nokk- uð mismunandi á milli starfsstétta eða á bilinu 4,1% til 7,4%. Vísitala neysluverðs hækkaði um 2,6% og því jókst kaupmáttur sem því nam að meðaltali. Laun kvenna hækkuðu nokkru meira en laun karla á tímabilinu eða um 6,1% samanborið við 4,7% og laun á höfuðborgarsvæðinu hækk- uðu meira en laun á landsbyggðinni eða um 5,3% samanborið við 4,9%. Laun þjónustu-, sölu- og af- greiðslufólks hækkuðu mest eða um 7,4% en hækkun annarra stétta var á bilinu 4,1 til 4,9%. Kaupmáttur launa jókst um 2,5% ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.