Morgunblaðið - 29.02.2004, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 9
Menning, umgjörð, umhyggja
Málþing um niðurstöður CCC-verkefnis
Evrópusambandsverkefni um möguleika kvenna og karla til fæðingar- og
foreldraorlofs og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.
Staður: Hótel Kea, Akureyri.
Tímasetning: 5. mars kl. 13:00-17:00.
Fundarstjóri: Margrét María Sigurðardóttir,
framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
Setning: Árni Magnússon, félagsmálaráðherra.
Um verkefnið - tildrög og vinnuferli.
Elín Antonsdóttir, verkefnisstýra.
Rannsóknarskýrslan:
Menning umgjörð og umhyggja í fjórum löndum. Niðurstöður rannsóknar.
Þorgerður Einarsdóttir, lektor í kynjafræðum við HÍ.
Few but committed fathers on parental leave.
Antonia Griese - Federal Ministry for Family Affairs, Þýskalandi.
Flexible fathers - the Norwegian experience.
Elin Kvande og Berit Branth, Norwegian University of Sience and
Technology, Þrándheimi, Noregi.
Maternity leave and parental rights in Spain.
Ingólfur Gíslason fyrir hönd Maria Amparo Ballester-Pastor,
Universitat de Valencia, Spáni.
Umræður og fyrirspurnir.
Rannsóknaraðilar sitja fyrir svörum.
Frumsýning valdra kafla heimildarmyndar.
Jafnframt vinnu rannsóknarskýrslu var á vegum verkefnisins gerð
heimildarmynd sem einnig byggir á viðtölum við foreldra í
þátttökulöndunum um rétt þeirra og notkun fæðingar-
og foreldraorlofs.
Ráðstefnulok.
ALLTAF BETRA VERÐ
Í VEIÐIHORNINU
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 13-17
Veiðihornið Hafnarstræti 5 - sími 551 6760
Veiðihornið Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sjá upplýsingar á www.veidihornid.is
Munið gjafabréfin – Sendum samdægurs
Ódýrustu byssuskáparnir á markaðnum?
3 mm stál, boltalæsing með 5 25 mm boltum, innfelldar lamir, gataðar fyrir veggfestingar.
Geymdu skotvopn í öruggum, viðurkenndum skápum frá Veiðihorninu. Allar upplýsingar í
símum 551 6760 og 568 8410 eða á www.veidihornid.is. Nú geymir þú ekki byssurnar
undir rúmi lengur.
Frábært pakkatilboð á 3" pumpu
Norinco pumpa, 28" hlaup, 3" skot, ólarfestingar, ól, 3 þrengingar,
hörð plasttaska, 250 skeet-skot og 150 leirdúfur. Verð aðeins 38.900 fyrir allt
þetta. Góð byssa fyrir byrjendur eða í slarkið. Fáir pakkar í boði. www.veidihornid.is
22 cal l.r. Norinco riffill
6x40 sjónauki, festingar, hörð plasttaska og 100 skot.
Frábært verð. Aðeins 29.990 fyrir allt þetta.
Sage flugustangapakki á frábæru tilboðsverði.
Sage grafit 2, diskabremsuhjól, uppsett flotlína með baklínu og taumatengi. Aðeins 29.900 fyrir allt þetta.
Sage er vinsælasta stöngin á markaðnum - það er ekki tilviljun.
Sage VPS 14 feta tvíhenda, diskabremsuhjól og Rio lína með skiptanlegum sökkendum. Aðeins 59.900.
Ný sending frá Sage var að koma í hús - 40 gerðir af Sage stöngum á lager í Veiðihorninu.
Lærðu að hnýta heima. 2 ný íslensk kennslumyndbönd í fluguhnýtingum.
Hvergi meira úrval af fluguhnýtingaefni og verkfærum frá
Whiting, Veniard, Hareline, Dr. Slick, Sprit River og fleirum.
Alltaf betra verð í Veiðihorninu.
Námskeiðin hafin, leiðbeinendur Sigurjón Ólafsson og Sigurður Pálsson.
Skráning í símum 551 6760 og 568 8410 eða veidihornid@veidihornid.is.
Alltaf meira úrval í Veiðihorninu - Opið í dag 13-17
INNAN við klukkutíma sigling er
hjá Hornafjarðarskipunum, Jónu
Eðvalds og Ásgrími Halldórsyni, á
loðnumiðin 10 mílur suðvestur af
Hornafirði og landa þau daglega
hjá Skinney-Þinganesi hf. Mok-
veiði var á föstudag og segja má
að nótaveiðin sé núna fyrst að
komast á skrið. Skipin fengu góð
köst um nóttina, allt upp í 400
tonn.
„Það var fyrst í morgun sem
menn fóru að fá almennileg köst,“
sagði Halldór Jónasson, skipstjóri
á Jónu Eðvalds, í samtali við
Morgunblaðið á föstudag. Jóna
Eðvalds landaði 720 tonnum af
loðnu þá um morguninn eftir
stutta veiðiferð. Halldór segir að
núna fyrst sé komin alvara í veið-
arnar.
„Fyrst voru hömlur á veið-
unum, óvissa með kvóta og brælu-
kafli í síðustu viku svo það birtir
óneitanlega yfir mönnum um
borð,“ segir Halldór. Þeir á Jónu
Eðvalds fengu tvö 300 tonna köst
á föstudagsmorgun og aðeins liðu
tólf tímar frá því skipið fór á
veiðar þar til það lagðist að
bryggju nánast með fullfermi.
Frysting á Japansmarkað er í
fullum gangi hjá Skinney-
Þinganesi hf á Höfn. Að sögn Her-
manns Stefánssonar framleiðslu-
stjóra vinna þrjátíu manns á vökt-
um allan sólarhringinn í
frystingunni. Það er aðeins
hrygnan sem er fryst fyrir Jap-
ansmarkað en hængurinn er
flokkaður frá og fer í bræðslu.
Hrognafyllingin er 19–20% og
loðnan á eftir einhverjar vikur í
hrygningu. Það er því talsverður
tími þar til hrognataka hefst.
Loðnuhrogn hafa ekki verið unn-
in á Hornafirði síðustu ár en nú
hyggjast menn sækja á þann
markað. Mikið af hreinum sjó eða
saltvatni þarf í hrognavinnsluna
og í vetur var reynt að bora eftir
ferskum sjó í nágrenni við fisk-
iðjuver Skinneyjar-Þinganess.
Það bar ekki árangur og verður
notað tilbúið saltvatn í staðinn.
Japansloðnan er flutt landleið-
ina til Reykjavíkur þaðan sem
hún fer með skipi til Japans.
Frystigetan hjá fyrirtækinu er
330 tonn á sólarhring og því fara
10–15 gámabílar daglega frá
Hornafirði með frysta loðnu.
Mokveiði og innan
við klukkutíma í land
10–15 gámabílar
fara daglega frá
Hornafirði með
frysta loðnu til
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Sigurður Mar
Í brúnni: Halldór Jónsson, skipstjóri á Jónu Eðvalds, við stjórnvölinn.
Hornafirði. Morgunblaðið.
EXPERT á Íslandi ehf., nú Ex-
Nor ehf., sem rekið hefur raf-
tækjaverslunina Expert í Súðar-
vogi, hefur gert kröfuhöfum sín-
um tilboð um sáttagreiðslu vegna
krafna á Ex-Nor ehf. Hljóðar til-
boðið upp á að allir kröfuhafar
með lögmætar heildarkröfur upp
á kr. 100.000 eða meira fái 50%
greiðslu en þeir sem hafi lægri
kröfur en 100.000 fái fullnaðar-
greiðslu.
Í bréfi sem félagið hefur sent
kröfuhöfum kemur fram að tap
félagsins á síðasta ári hafi numið
211,4 milljónum króna og eigið fé
félagsins sé neikvætt um 98 millj-
ónir króna.
Ex-Nor ehf. er að fullu í eigu
Expert Norge ASA sem starf-
rækir rúmlega 380 verslanir á
Norðurlöndum og tengist inn-
kaupasambandinu Expert Global.
Fá minna fyrir kröfur sínar
takist samningar ekki
„Náist ekki samningar í þessa
veru blasir ekkert annað við en
formlegir nauðasamningar eða
gjaldþrot en í báðum tilvikum er
það okkar álit að kröfuhafar
fengju mun minna upp í kröfur
sínar,“ segir í bréfi Ex-Nor ehf.
til kröfuhafa.
Þar segir jafnframt að sam-
kvæmt kaupsamningnum um
rekstur félagsins muni nýir eig-
endur taka yfir verslun félagsins
með lager, húsgögnum og tækj-
um og tólum gegn greiðslu á 152
milljónum króna sem að meg-
instofni til greiðast í febrúar
2004, en eftirstöðvar á næstu
tveimur árum. Þá segir að Ís-
landsbanki sé með veð í hinu
selda upp á 42 milljónir króna.
„Af þessu leiðir að félagið mun fá
peningagreiðslu upp á 110 millj-
ónir króna. Frá þessari fjárhæð
þarf að draga skatta, launakostn-
að, kostnað vegna sölunnar og
kostnað við að loka félaginu,“
segir í bréfi Ex-Nor ehf. til
kröfuhafa.
Viggó H. Viggósson, annar
nýrra eigenda Expert-verslunar-
innar, sem tóku við rekstrinum í
byrjun janúar sl., segir í samtali
við Morgunblaðið að í samningi
nýrra eigenda við Ex-Nor sé
ákvæði um að það sé ósk nýrra
eigenda að frágangur mála þeirra
hér á Íslandi sé með þeim hætti
að það skaði ekki fyrirtækið.
Eins og kom fram í fréttum í
byrjun janúar var ástæða þess að
Expert Norge ASA seldi rekst-
urinn slæmt gengi og að rekst-
urinn hér hafi íþyngt rekstri Ex-
pert-samstæðunnar.
Tap Ex-Nor ehf., áður Expert, var
rúmar 211 milljónir króna í fyrra
Býður kröfu-
höfum sátta-
greiðslu
Nauðasamningar eða gjaldþrot
semjist ekki, segja eigendur
Fréttir á SMS