Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 13

Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 13 fyrir áreitni, ofbeldi eða hótunum í vinnunni. Algengast var að vistmenn eða sjúklingar ættu þar hlut að máli. Í ljós kom að þetta hafði margvísleg áhrif á líðan þessara starfsmanna, þeir voru t.d. líklegri en aðrir til að finna til óþæginda í líkamanum og voru að auki óánægðari í starfi, upp- lifðu minni glaðværð og samstöðu í starfshópnum og voru óánægðari með samskipti sín við samstarfsfólk og yfirmenn. Þegar spurt var um lífsstíl starfs- manna í öldrunarþjónustu kom m.a. í ljós að um þriðjungur þeirra reykir daglega. Var útkoman mismunandi eftir stöðu og aldri en sérfræðingar Vinnueftirlitsins telja þá niðurstöðu hljóta að krefjast viðbragða að um 50% ófaglærðra starfsmanna yngri en 25 ára sögðust reykja. Þrír af hverjum fjórum svarendum sögðust neyta áfengis. Af þeim drekka þrír af hverjum tíu einu sinni til fimm sinn- um á ári, um 27% sex til tíu sinnum á ári og um 20% einu sinni til þrisvar í mánuði. Um 7% starfsfólks sögðust neyta áfengis vikulega eða oftar og tæp 5% sögðust hafa misnotað áfengi, annaðhvort að eigin dómi eða annarra. Líkamlegt og andlegt álag þessa starfsfólks lýsir sér m.a. í því að 86% svarenda sögðust hafa leitað til læknis einhvern tímann á árinu á undan og 78% voru einhvern tímann frá vinnu vegna eigin veikinda. Al- gengast var að fólk hafði leitað lækn- is eða meðferðar vegna vöðvabólgu, bakveiki, kvefs eða umgangspesta en einnig vegna blóðþrýstings, svefnvandamála, kvíða eða spennu, augnsjúkdóma, þunglyndis og hjart- sláttartruflana. Þrátt fyrir þessi ein- kenni sagði meira en helmingur starfsfólksins heilsu sína vera góða og voru yfirmenn og faglærðir yfir- leitt ánægðari með heilsuna en ófag- lærðir. Meira en sex af hverjum tíu sögðust vera sáttir við vinnu sína. Elliheimilin brugðust vel við Í kjölfar rannsóknarinnar var fjöl- mörgum ábendingum og athuga- semdum komið á framfæri við stjórnendur öldrunarstofnana og að sögn Kristins, Guðbjargar Lindu og Hólmfríðar hafa viðbrögðin verið mjög góð og jákvæð. Niðurstöður rannsóknarinnar voru líka kynntar á stærstu elliheimilunum. Þau segja að víða hafi verklagsreglum verið breytt, úrbætur gerðar og sumar öldrunarstofnanir tekið upp ný vinnubrögð, með það að markmiði að bæta líðan og aðbúnað starfsfólks- ins. Upp úr svörum þátttakenda í rannsókninni hefur rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins síð- an unnið skýrslu og skrifað greinar til birtingar í erlendum tímaritum og til kynningar á ráðstefnum erlendis. Fyrsta greinin sem fékkst birt upp úr rannsókninni var á vefnum Pub- Med í desember síðastliðnum og fjallaði um sálfélagslega áhættu- þætti fyrir stoðkerfiseinkenni meðal kvenna í öldrunarþjónustu. Þar voru reifaðar helstu niðurstöður varðandi líkamleg og andleg einkenni sem konurnar höfðu og tengdust klárlega vinnunni, samanber umfjöllun hér að framan. Ekki sjálfgefið að fá grein birta Aðspurð um tilurð þess að fá greinar kynntar og birtar erlendis segja þau að mikil vinna liggi þar að baki. Ekki sé sjálfgefið að fá slíkar greinar birtar og það geti tekið mörg ár. „Það skiptir okkur miklu máli að fá greinarnar kynntar á erlendum ráðstefnum, þar sem sérfræðingar á þessu sviði eru samankomnir, til að segja okkur og leiðbeina hve mikil- vægar niðurstöðurnar eru. Kostur- inn við að fá greinar birtar í tímarit- um er að þá eru þær skoðaðar af sérfræðingum, sem komast þá kannski að því að hér eru nýjungar á ferð sem skipta raunverulegu máli í vinnuvernd. Ef við erum ekki að gera neitt nýtt þá er einskis virði að fá greinar birtar,“ segir Kristinn. Hólmfríður segir að greinarnar núna séu það nýlega birtar að ekki sé farið að bera mikið á viðbrögðum. Hins vegar hafi fyrri greinar starfs- manna Vinnueftirlitsins vakið at- hygli og verið vitnað til þeirra víða í ræðu og riti. Þau eiga von á að svo verði einnig nú, ekki síst í ljósi þeirr- ar staðreyndar að íslenskar rann- sóknir nái almennt mikilli heildarsýn yfir samfélagið sökum fámennisins. Nú hafi vinnuumhverfi á öldrunar- stofnunum heillar þjóðar verið rann- sakað og það eigi eftir að vekja at- hygli. Kristinn segir að það sé ekki síður mikilvægt að kynna þessar rann- sóknir meðal almennings. Vinnueft- irlitið hafi verið að gera sérstakt átak í því og reynt að koma sem mestu efni á vefsíðu stofnunarinnar, www.vinnueftirlit.is. Hólmfríður tekur undir þetta og segir að rannsóknir á sviði vinnu- verndar séu aldrei nógu vel kynntar. Áhersla sé lögð á að kynna niður- stöðurnar á þeim vinnustöðum þar sem þær eru gerðar, bæði fyrir stjórnendum og almennum starfs- mönnum. Einnig sé mikilvægt að fá rannsóknirnar kynntar í fjölmiðlum. Vinnuvernd skipti alla máli. Morgunblaðið/Eggert Vinnuvernd skiptir alla máli, segja þau Kristinn Tómasson yfirlæknir, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir sérfræðingur og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir félagsfræðingur, starfsmenn rannsókna- og heilbrigðisdeildar Vinnueftirlits ríkisins. Um 12% starfsfólks höfðu orðið fyrir áreitni, ofbeldi eða hótunum í vinnunni. Algengast var að vistmenn eða sjúkling- ar ættu þar hlut að máli. bjb@mbl.is FRÉTTIR The International Business Academy Skamlingvejen 32 . DK-6000 Kolding . Tlf. +45 72 24 18 00 . Fax +45 72 24 18 08 iba@ibc.dk . www.iba.dk IBA – en del af Erhvervsakademi Syd Alþjóða Markaðs- og Viðskiptanám. Kynningarfundur miðvikudaginn 3. mars 2004 kl. 17 - 19 á Nordica Hotel, Reykjavik. IBA býður upp á 2 ára markaðs-og viðskiptanám með áherslu á markaðsfræði, viðskipti og hagfræði. Boðið er upp á fjórar brautir: Alþjóðabraut. –áhersla er lögð á markaðsfræði, samskipti og alþjóðaviðskipti. Hægt er að velja um verklega þjálfun í 3 - 6 mánuði hjá erlendu eða dönsku fyrirtæki. Stjórnunarbraut. –áhersla er lögð á stjórnun, (HRM), og stjórnunarfræði. Samskiptabraut. –áhersla er lögð á markaðssamskipti og alþjóða markaðssetningu. Auglýsingabraut. – áhersla er lögð á hönnun/auglýsingar. Verkleg þjálfun. Á öllum brautum getur námið tengst verklegri þjálfun hjá þekktum fyrirtækjum í Danmörku og erlendis eins og t.d.: Microsoft, Maersk, IBM, Alfa Laval,Danfoss, LEGO, B-Young o.fl.. Framhaldsnám. Bachelor, MBA, HA, HD - í Danmörku eða erlendis. Skráning á kynningarfundinn fer fram hjá Guðrúnu í síma 897-0684 eða á netfangið 1612ge@ibc.dk Hringið eða sendið okkur e-mail og finndu út hvernig þú getur orðið hluti af þessu spen- nandi og virka mámsumhverfi með ca. 300 öðru námsfólki á IBA. Þið getið einnig pantað hina umfangsmiklu mámsmöppu sem inniheldur allar upplýsingar EITT ár er liðið frá því flugvél Ice- land Express hóf sig á loft frá Kefla- víkurflugvelli í jómfrúflugi fyrirtæk- isins. Af því tilefni hefur Iceland Express ákveðið að styrkja þrenn góðgerðarsamtök til utanferða á næstu mánuðum. Samtals gefur fé- lagið 52 ferðir til þessara samtaka, eina fyrir hverja viku sem félagið hefur verið á lofti. Iceland Express segist vonast til að farmiðarnir nýtist samtökunum með margvíslegum hætti, jafnt til að efla alþjóðleg samskipti og að verð- launa þá sem þar koma að starfi. Samtökin sem fá þessa styrki eru Stígamót, fræðslu- og ráðgjafarmið- stöð um kynferðisofbeldi, foreldra- samtökin Vímulaus æska, sem starf- rækja Foreldrahúsið í Vonarstræti og foreldrasímann, og klúbburinn Geysir, sem er hluti af alþjóðlegum samtökum og vinnur eftir hug- myndafræði Fountain House og er vinnustaður fólks sem er að byggja sig upp eftir geðræn veikindi. Morgunblaðið/Eggert Helen Breiðfjörð frá Vímulausri æsku, Sigurður I. Halldórsson, stjórn- arformaður Iceland Express, Jóhanna María Eyjólfsdótttir frá klúbbnum Geysi og Guðrún Jónsdóttir frá Stígamótum. Iceland Express styrkir þrenn samtök TVENNT var flutt á slysadeild eftir að eldur kom upp í eldhúsi í íbúðar- húsi við Þorragötu í Reykjavík á föstudagskvöldið. Maður og kona á sjötugsaldri voru í íbúðinni þegar eldur kviknaði í pönnu á eldavél og náði að læsa sig í gufugleypi. Voru þau flutt með sjúkrabíl á slysadeild vegna gruns um að hafa fengið snert af reykeitr- un og var konan með brunasár á höndum. Þau reyndust þó ekki alvar- lega meidd. Ekki urðu stórvægilegar skemmdir á húsnæðinu. Á slysadeild eftir að eldur kviknaði í pönnu FASTEIGNIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.