Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
76. Óskarsárið er liðið og feiknalegt vatnsmagn runnið til sjávar síðan fyrstu verðlaunum Bandarísku kvikmyndaakademíunar,
AMPAS, var úthlutað 16. maí árið 1929. 250 gestir voru í Blómasalnum á Hollywood Roosevelt-hótelinu og höfðu greitt 10 dali
hver fyrir veisluna. Engan grunaði þá að þetta huggulega kvöldverðarsamsæti ætti eftir að verða upphafið á einum um-
deildasta og merkasta, árvissa viðburði kvikmyndasögunnar. Sæbjörn Valdimarsson veltir fyrir sér hverjir standi uppi
með gyllta karlinn í kvöld – að þessu sinni frammi fyrir á annað hundrað milljónum áhorfenda um víða veröld.
S
em fyrr stendur maður
frammi fyrir þeirri blá-
köldu staðreynd að hafa
litla hugmynd, líkt og
aðrir, hvernig málin æxl-
ast í huga hinna 6.000
meðlima akademíunnar,
en þeir tilheyra 14 stéttarfélögum:
Leikstjóra, leikara, heimildarmynda-
gerðarmanna, stuttmyndargerðar-
manna o.s.frv. Aðeins löggiltir með-
limir í hverju félagi hafa kosningarétt
en allir félagar akademíunnar eiga
rétt á að kjósa í einum flokki í samein-
ingu, sem er Besta mynd ársins.
Að venju hefur margt verið rætt og
ritað undanfarnar vikur, eftir að til-
nefningarnar voru birtar í janúar – en
í ár er gömul hefð brotin og verðlaun-
in afhent mánuði fyrr en venja hefur
verið. Það sem vekur hvað mesta at-
hygli er að nú er engin myndanna
fimm sem tilnefndar eru þær bestu,
úr Miramaxsmiðju Weinsteinbræðra,
enda slíkt ekki gerst á annan áratug.
Svo virðist sem akademíumeðlimum
hafi ofboðið árangur bræðranna á síð-
asta ári þegar þeir áttu hlutdeild í
þremur þeirra og komu við sögu allra
helstu verðlaunanna. Það verður ekki
af Weinsteinunum skafið að þeir eru
snjallir og smekkvísir kvikmynda-
framleiðendur með gott nef fyrir nýj-
um sem margreyndum hæfileika-
mönnum, það verður heldur ekki
fram hjá því gengið að enginn stend-
ur þeim á sporði í auglýsingaher-
mennsku og áróðurskúnstum. Þeir
eru meistara- „plöggarar“ iðnaðarins,
en nú virðist sem sexþúsundmenn-
ingarnir hafi fengið nóg í bili.
Vonarpeningur bræðranna í ár er
Kaldbakur, nýjasta afrek Anthonys
Minghella (sem rakaði Óskarsverð-
launum til Miramax árið 1997 fyrir
Enska sjúklinginn – The English
Patient). Verkið hlaut að vísu sjö til-
nefningar en aðeins eina í hópi þeirra
eftirsóttu – fyrir bestan leik Jude
Law. Bæði myndin og Minghella
liggja óbætt hjá garði. Ég leyfi mér
að fullyrða að þessi mikilúðlega epík
úr Þrælastríðinu er miklum mun
betri en ýmis Óskarsverðlauna-„af-
rek“ Weinsteinanna á undanförnum
árum. Þar með talin Shakespeare in
Love (’98), sem hafði betur en Saving
Private Ryan! Menn rekur líka minni
til þess að Enski sjúklingurinn var
tekin fram yfir Fargo, eina bestu
myndina frá Bandaríkjunum í ára-
raðir.
Tilfinningin segir að nú verði
Hringadróttinsþrennunni umbunað,
enda ekki seinna vænna. Ég spái að
hún verði ótvíræður sigurvegari
kvöldsins og njóti „sóps-áhrifanna“
góðu – sópi grimmt til sín minni verð-
laununum - svo fremi að hún verði
kjörin besta mynd ársins og fyrir
leikstjórn og handrit. Eigum við ekki
að segja svona 7–8 stykki?
Sagan endurtekur sig, menn verða
aldrei á eitt sáttir með tilnefningarn-
ar né sigurvegarana, það er hluti af
leiknum. Margir sakna myndanna 21
gramm, Ófreskja, og Amerískur
glæsibragur, í fleiri flokkum. Hins-
vegar getur Tarantino sjálfum sér
um kennt, Bana Billa (Kill Bill) hefði
örugglega hlotið ófáar og eftirsókn-
arverðar tilnefningar ef hann hefði
ekki klofið myndina í herðar niður.
Ekki má gleyma hinum óvæntu,
einhverjir Óskarshandhafar koma
eins og skrattinn úr sauðarleggnum,
þvert á allar spár og skoðanakann-
anir. Það er annar hluti af leiknum.
Besta mynd ársins
Fyrir tveimur árum spáði greinar-
höfundur Hringadróttinssögu: Föru-
neyti hringsins, öllum helstu verð-
laununum, sem reyndist ósvikið
púðurskot. Akademían hefur nálega
hunsað meistaraverk Peters Jack-
sons til þessa, að undanskildum örfá-
um minni háttar verðlaunum. Þríleik-
urinn hefur vakið gífurlega hrifningu
um allan heim og farið batnandi, nú
er að duga eða drepast. Akademían
bíður þess ekki bætur ef hún gengur
framhjá lokakaflanum, Hilmir snýr
heim. Jackson og öllu hans afbragðs-
fólki tókst hið ómögulega – að enda
þrennuna með slíkum tilþrifum að
myndin skyggir á önnur úrvalsverk
ársins og gera bálkinn að sígildu stór-
virki í kvikmyndasögunni. Það skiptir
öllu máli því sagan segir ekkert um að
menn eigi inni hjá akademíunni þó
hún hafi sniðgengið þá í marggang.
Ég tel Hilmi 90% örugga – en ef svo
ólíklega vill til að þríleikurinn verði
hunsaður eina ferðina enn þá rís
Meistari og sjóliðsforingi talsvert upp
úr hópnum. Glæsileg og ótrúlega
vandvirknislega gerð í alla staði. Dulá
á magnaða spretti og upphafsatriðið
er sígilt. Glötuð þýðing? Á hún eitt-
hvert erindi frekar en Seabiscuit, á
meðal ofangreindra, þriggja hákarla?
Ég held ekki. Myndinni sem ég tel
sigurstranglegasta stilli ég efst – síð-
an koll af kolli:
Hringadróttinssaga:
Hilmir snýr heim
(The Lord of the Rings: Return of
the King)
Meistari og sjóliðsforingi:
Á fjarlægum slóðum
(Master and Commander: Far
Side of the World )
Dulá
( Mystic River)
Glötuð þýðing
( Lost in Translation)
Seabiscuit
Hverja vantar?
Sá stóri
– Big Fish
Leikstjóri ársins
Allt er þegar þrennt er: Jackson er
tilnefndur þriðja árið í röð, nú fyrir
stórvirkið Hilmir snýr heim, en hann
er fjarri því að vera öruggur. Ég gef
honum 80% sigurlíkur. Það leynir sér
auðvitað ekki að Jackson hefur skip-
að sér í röð fremstu stórmyndasmiða
sögunnar, ásamt David Lean, Spiel-
berg, Ridley Scott og þeirra líkum.
Það breytir engu um hina órannsak-
anlegu vegi Akademíunnar.
Dulá sannar svo ekki verður um
villst að Clint Eastwood er ekki dauð-
ur úr öllum æðum og hann á heilmikið
inni hjá vinum sínum og aðdáendum í
Hollywood. Sofia Coppola sannar að
eplið fellur ekki langt frá eikinni, hin
snjalla dóttir Francis Ford hefur
þegar brotið blað í sögunni því hún er
fyrsta konan til að fá tilnefningu sem
leikstjóri, Hún er greinilega mun
hæfari leikstjóri og handritshöfundur
en leikkona.
2004 verður tæplega árið hans
Weir, sem kom engu að síður með
enn eitt ógleymanlegt meistaraverk
fram í dagsljósið. Þá kemur röðin að
þeim sem á minnstu möguleikana í
hópnum, Brasilíumanninum Fern-
ando Meirelles. Hann á fullt erindi á
meðal þeirra bestu (þó svo að ég telji
að hann og myndin hans standi tals-
vert í skugganum af Babenco og Pix-
ote), en hans tími er greinilega ekki í
ár.
Peter Jackson
– Hringadróttinssaga:
Hilmir snýr heim
Peter Weir
– Meistari og sjóliðsforingi:
Á fjarlægum slóðum
Clint Eastwood
– Dulá
Sofia Coppola
– Glötuð þýðing
Fernando Meirelles
– Borg guðs (Cidade de Deus).
Hvern vantar? Tim Burton
- Sá stóri.
Besti leikari í aðalhlutverki
Þá er komið að langerfiðasta
flokknum í ár – þó vanti leikarann
sem vann hvað stærstan leiksigur á
árinu, Russell Crowe í M&S. Hér er
ótrúlegt mannval og mikilúðlegt.
Johnny Depp er einn af mögnuðustu
stórleikurum samtímans – líkt og
keppinautar hans í ár, aðrir en Jude
Law, sem er á góðri leið með að kom-
ast í úrvalsliðið. Depp er ógleyman-
legur í mýgrút mynda og túlkar jafn-
an hlutverk sín af fagmennsku og
sannfæringarkrafti. Hvað með það,
þrátt fyrir leiksigra í myndum á borð
við Ed Wood og Hvað nagar Gilbert
Grape, er hann að fá sína fyrstu til-
nefningu fyrir sjóræningjann Jack
Hilmir snýr heim
– með fangið fullt
Ian McKellan í miklum ham í einni af stórorrustum Hringadróttinssögu: Hilmir snýr heim.
Hringadróttinssaga:
Hilmir snýr heim – 11
Meistari og sjóliðsforingi:
Á fjarlægum slóðum – 10
Kaldbakur – 7
Seabiscuit – 7
Dulá – 6
Sjóræningjar Karíbahafsins:
Bölvun Svörtu perlunnar – 5
Borg guðs – 4
Glötuð þýðing –4
Leitin að Nemó –4
Síðasti samúræinn – 4
Myndirnar sem fengu
flestar tilnefningar
Nicole Kidman og Jude Law fara með aðalhlutverkin í Kaldbaki.
Kevin Bacon og Sean Penn í hlutverkum sínum í Dulá.