Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 35 sem eru aðal þeirra, öllu heldur áhrifamikil framsetningin, litahryn ásamt einfaldri og formrænni mynd- bygging þar sem engu skeikar, þó umfram allt hin tæra útgeislan sem lyftir efniviðnum á æðra tilverustig. Leikurinn í sjálfu sér hvorki nýr né frumlegur, en ber í sér sterka lifun gerandans sem grípur, það er galdur hans ásamt tæru sköpunarferli. Hér eru fundnir hlutir, og annað sem ger- andinn hefur einkum sankað að sér notaðir sem uppistaða í myndverk. Sýningin heldur að sjálfsögðu áfram á efri hæðinni og þar kennir margra grasa. Allt frá ljósmyndum af lostfögrum filmdívum afþreying- ariðnaðarins og litríkum Hawaii- skyrtum Birgis Arnars Thorodd- sens/ Bibba Curver, í innsta sal til fagurlegra mótaðra styttna um for- eldri og afkvæmi í manna- og dýra- heimi sem frú Vigdís Finnbogadóttir hefur safnað frá 1980. Fjölþættar stytturnar eru alveg sér á báti og skírskota beint til hámenningarinn- ar, bera í þá veru af öllu öðru sem gull af eiri á hæðinni. Þetta eru jafn- framt hinir andstæðu pólar sýning- arinnar; kitsch-hámenning og þarna togast á gildi og viðmið hefðbund- innar söfnunar og óreiðukenndrar söfnunar eins og stendur í sýning- arskrá. Hinnar óreiðukenndu söfn- unar sér þó helst stað á myndbandi Kára Schram; Valdi koppasali og grúskari af guðs náð fylgt eftir af viðtali við Jónas Halldórsson antík- sala, þó ámælisvert að myndbandið skuli ekki textað á jafn vandaðri sýn- ingu. Einstakir sýningargripir eiga sér merkilega sögu bæði í sjálfum sér og hvað tilorðningu og gerandann að baki þeirra snertir. Þarna er til að mynda fagurlega hannaður og skreyttur vettlingur innan um marga slíka en málið er að hann er prjónaður af einhentri sveitakonu, Guðrúnu Ingólfsdóttur frá Söndum, þegar hún var sjötíu ára. Hef ekki grænan grun um hvernig manneskj- an fór að, segi bara bravó. Í einum vettlingi samsamast vitnisburður um viljastyrk, þrautseigju og lífsvilja eldri kynslóða í landi hér, jafnframt sjónræn hugmyndaauðgi. Mál málanna varðandi fram- kvæmdina er áhuginn og einlægnin að baki sem er drifkraftur eðlislægs sköpunarferlis og svipmikilla at- hafna. Safnaranum, hverju nafni sem nefnist, má stundum líkja við STEFNUMÓT við safnara nefnist framkvæmd í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi sem verið hefur í gangi frá 17. janúar og lýkur nú um helgina. Ekki um að ræða neina al- menna listsýningu, hafði samt hug á að sækja hana heim og lét verða af því á sunnudag. Óvenju mikið af fólki á listsýningum borgarinnar þennan lokadag mikið auglýstrar vetrarhá- tíðar og trumbur barðar, alveg salla- klárt að fólk sækir í þesslags hátíðir og stórviðburði svona líkt og á mikils háttar opnanir. Öllu síður dags dag- lega hvort heldur um sé að ræða al- mennar sýningarnar listhúsa eða stærri framkvæmdir í virðulegum húsakynnum safnanna. Fátt dapur- legra en að koma í auða sali á besta sýningartíma helgidaga og þá hafa menn tilhneigingu til að álíta að eitt- hvað mikið sé að. Síður til krufningar hér en það er langt síðan ég hef séð jafn marga gesti á Kjarvalsstöðum og Gerðubergi á sunnudegi, hins vegar var færra á Sigurjónssafni, þykir úrleiðis sem er mikill misskiln- ingur og auðvelt að eiga þar upp- byggjandi unaðsstund. Aðkoma fót- gangandi hins vegar afleit og enginn strætisvagn stoppar við afleggjar- ann frá umferðaræðinni og getur verið nokkuð mál að komast yfir göt- una. Tilgangurinn með heimsókninni var einungis að skoða, síður skrifa, enda mestmegnis dregið mig í hlé um rýni á almennar sýningar, en hreint út sagt kom framkvæmdin mér mjög á óvart. Fullgild, bæði hvað einstök framlög snertir og heildarsvip, man satt að segja naum- ast eftir skilvirkari og betur upp- settri sýningu á staðnum nema ef vera kynni þeirri sem sett var upp í tilefni Sjónþings Kolbrúnar Björg- ólfsdóttur. Strax og inn um dyr neðri hæðar kom blöstu við mér áhuga- verð og vel framsett verk Hrafnhild- ar Sigurðardóttur, þau hrifmestu þó helst á endaveggjum. Eru fullgild á núlistasýningar, einkum myndheild- ir þúsunda gos- og bjórtappa útfærð- ar af nostri og nákvæmni. En það er ekki nostrið og nákvæmnin og enn síður sjálft óaðfinnanlegt handverkið njótandann, einstakling sem mótar hvorki hlutina né hannar þá. Að sanka að sér aðskiljanlegustu hlut- um getur verið árátta og þráhyggja en einnig lífsnautn, veisla fyrir skyn- færin. Það væri til að mynda engin upphafin list til ef hún hreyfði ekki við kenndum leikmanna sem láta hrífast og vilja fórna miklu til þess eins að geta nálgast hana. Ótal dæmi þess að einstaklingar jafnt og stórir hópar fólks fari um hálfan hnöttinn til að nálgast tónleika eða myndlist- arviðburði, listviðburði í það heila. Meginveigurinn að þetta er óvenju- leg, lifandi og áhugaverð fram- kvæmd sem situr eftir í heilabúi skoðandans, sá enda ekki betur en að flestir stöldruðu lengi við, lakara að kaffistofan skyldi lokuð, því þar inni mátti greina verk sem sýndust til- heyra framkvæmdinni. Þessar línur helst festar á blað til að vekja athygli á vandaðri fram- kvæmd, sem hefði átt skilið að fá meiri umfjöllun fjölmiðla, minna jafnframt á að dyr falla að stöfum um helgina ... – Á staðnum einnig myndverka- sýning í félagsstarfi, þar á ferð Kristinn R. Alexandersson, sem lengi tók á móti fötum baðgesta í gömlu sundlaugunum. Mestu heilsu- lind norðan Alpafjalla meðan þær voru og hétu hvert háir sem lágir, ungir sem aldnir, ráðherrar sem rón- ar vöndu reglulega komur sínar. Kristinn málar af hrekklausri ein- lægni og bestu skiliríin bera með sér að í honum búi listræn æð, veigurinn þó hvernig gerandinn, aldinn og ómenntaður á dýpri lífæðar mál- verksins, að auk farinn að heilsu, nær í þessa veru að festa lit á dúk. Stefnumót Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson Hrafnhildur Sigurðardóttir: Myndverk gert úr bjór- og gostöppum. Hinn makalausi vettlingur hinnar einhentu Guðrúnar Ingólfsdóttur frá Söndum. Af safni Vigdísar Finnbogadóttur. Himbrimi með unga og urta með kóp. MYNDLIST Gerðuberg Opið virka daga kl. 11–19 og kl. 13–17 um helgar. Til 29. febrúar. STEFNUMÓT VIÐ SAFNARA Bragi ÁsgeirssonKristinn R. Alexandersson: Reyjavíkurtjörn 1999. Bon appétit – frönsk barokktónlist inniheldur verk eftir Boismortier, La- vigne, Marais og Leclair í flutningi Bar- okkhópsins. Hópinn skipa Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau, bar- okkflautur, Camila Söderberg, blokk- flautur, Svava Bernharðsdóttir, barokk- fiðla, Elín Guðmundsdóttir, semball, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, viola da gamba, Peter Tompkins, barokkóbó og Snorri Örn Snorrason, teorba. Tónlist þessa hefur hópurinn flutt á aðventutónleikum undanfarin 12 ár undir nafninu „Jólabarokk“. Útgefandi er Fermata. Upptöku fóru fram í Digraneskirkju á vegum Halldórs Víkingssonar. Hönnun annaðist Ingvar Víkingsson. Útgáfan er styrkt af Kópa- vogsbæ og Félagi ísl. hljómlist- armanna. Edda – miðlun annast dreif- ingu. Verð: 2.399 kr. Barokk ÍSLENSKA óperan hefur gert samstarfssamninga við fjögur fyr- irtæki, Flugfélag Íslands, VISA Ís- land, Landsbanka Íslands og Landsvirkjun, um kostunarþátt- töku í ferðum Óperunnar í Eyja- fjörð og á Eskifjörð á vormisseri 2004. Einnig hefur Óperan gert samstarfssamning við matvælafyr- irtækið Vogabæ um markaðssetn- ingu á nýrri vörulínu Vogabæjar, svokölluðum óperusósum og -súp- um. Brúðkaup Fígarós í Laugarborg Brúðkaup Fígarós verður kynnt á tónleikum í Laugarborg í Eyja- fjarðarsveit 17. mars og í byrjun maí er ferðinni heitið á Eskifjörð, þar sem óperan Carmen verður flutt í samstarfi við kór og hljóm- sveit heimamanna. Mótframlag Óperunnar gegn myndarlegum framlögum fyrir- tækjanna felst m.a. í kynningu á fyrirtækjunum fjórum í tengslum við ferðirnar. Korthafar VISA fá 20% afslátt af miðaverði á tón- leikana í Laugarborg og sýninguna á Carmen á Eskifirði, sé greitt með VISA. Þá fá handhafar flugkorts Flugfélags Íslands 20% afslátt og sömuleiðis aðrir viðskiptavinir Flugfélagsins, gegn framvísun brottfararspjalds. Vörur Vogabæjar bera nöfn ým- issa þekktra ópera, svo sem Car- men, Aida, Don Giovanni og Tosca – og á límmiðum á krukkunum er að finna fróðleiksmola um þessar óperur. Vegna þessarar tengingar við starfsemi Íslensku óperunnar átti Vogabær frumkvæði að gerð sam- starfssamningsins við Óperuna. Framlag Vogabæjar verður hlut- fall af sölu á óperuvörunum á árinu 2004, nánar tiltekið munu 5 kr. af verði hverrar seldrar einingar af óperusósum og -súpum renna til Óperunnar. Framlaginu verður varið til uppbyggingar fræðslu- starfsemi á Óperuvefnum og verð- ur hafist handa við gerð fræðslu- síðnanna nú á næstunni. Mótframlag Óperunnar verður m.a. í formi kynningar og auglýs- inga í Óperublaði og á Óperuvef, sérstaklega í tengslum við fræðslu- síðurnar. Framlög samningsaðila eru lögð að jöfnu, enda eru þeir sammála um að báðum sé mikill hagur að þessu samstarfi. Íslenska óperan gerir samstarfs- samninga Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson - Ímynd Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Friðrik Soph- usson, forstjóri Landsvirkjunar, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands, Leifur Steinn Elísson, aðstoðarframkvæmdastjóri VISA og Bjarni Daníelsson óperustjóri við undirritun samninganna. Sigrún Ósk Ingadóttir, stjórn- arformaður Vogabæjar, og Bjarni Daníelsson óperustjóri handsala samstarfssamninginn. Leggðu rækt við ástina eftir Önnu Valdimarsdóttur sálfræðing er komin út í kilju. Bókin kom fyrst út í innbund- inni útgáfu árið 2002. Anna fléttar saman almennum hugleiðingum og lýsingum úr heimi ástarinnar og fæst m.a. við spurningarnar hvað er ást?, að elska eða vera ástfanginn?, ást og hamingja, mitt persónulega rými, elskaðu sjálfan þig, að rækta ást- arsamband, að auðga kynlífið og af- brýðisemi og ótrúnað. Útgefandi er JPV Útgáfa. Bókin er 180 bls. prentuð í Nörhaven. Hönnun kápu: Hunang. Verð: 1.590 kr. Kilja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.