Morgunblaðið - 29.02.2004, Page 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hjörtur Bjarna-son fæddist í
Reykjavík 26. sept-
ember 1936. Hann
lést á líknardeild
Lsp. í Kópavogi 16.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Bjarni Ingimarsson
skipstjóri, f. 22.5.
1909, d. 31.12. 1988,
og Margrét Elísabet
Hjartardóttir hús-
freyja, f. 26.4. 1917,
d. 19.10. 2000. Systk-
ini Hjartar eru Hall-
dóra, Margrét, Svan-
dís, Guðrún og Ingi.
Börn Hjartar og fyrri eiginkonu
hans, Ingibjargar Loftsdóttur,
eru: 1) Ólafía Sigríður, f. 12.10.
1957, gift Konráði Konráðssyni, f.
28.9. 1957. Börn þeirra eru Brynj-
ar, f. 24.7. 1984, Ingibjörg Helga,
f. 11.3. 1987, og Edda Björk, f. 7.7.
1992. 2) Bjarni, f. 31.10. 1959.
Börn hans og fyrrverandi eigin-
konu hans, Guðlaugar Þorsteins-
dóttur, f. 2.3. 1961, eru Loftur
Ingi, f. 7.12. 1986, Bjarki Freyr, f.
13.12. 1988, og Þorsteinn Hjörtur,
f. 26.7. 1990. 3) Margrét Elísabet,
f. 14.1. 1967, gift Pétri Stefáns-
syni, f. 20.7. 1966. Börn þeirra eru
Kolbrún Ósk, f. 12.8. 1993, og
Hallfríður Erla, f. 29.11. 1996.
Hjörtur kvæntist árið 1981 eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Guðrúnu
Jónu Sigurjónsdóttur, f. 16.10.
1936, en þau kynntust á Kanar-
íeyjum 1978. Guðrún
átti fyrir einn son,
Baldur Þór Baldurs-
son, f. 19.3. 1961, og
þótti Hirti ekki síður
vænt um hann en sín
eigin börn. Börn
Baldurs eru: Guðrún
Erla, f. 8.11. 1979,
Baldur Þórir, 8.6.
1981, Rakel Huld, f.
23.10. 1983, Karen
Rut, f. 18.6. 1987,
Davíð Þór, f. 20.5.
1989, Aron Örn, f.
1994, Guðrún Frey-
dís, andvana fædd
24.1. 2003, og Björt, f. 2.1. 2004.
Hjörtur útskrifaðist frá Verzl-
unarskóla Reykjavíkur og Stýri-
mannaskólanum og starfaði að
segja má jöfnum höndum við
skrifstofustörf og sem stýrimaður
á togurum til ársins 1982, en þá
hætti hann alfarið á sjónum. Hann
hafði mikinn áhuga á að mennta
sig meira og fór í Tölvuskólann og
á ýmis tölvunámskeið. Einnig sótti
hann námskeið í bókbandi og
hafði mjög gaman af. Síðustu 13
árin, eða þar til hann lét af störf-
um í febrúar 2002 vegna veikinda
sinna, vann hann hjá Sturlaugi
Jónssyni og co. Hjörtur var einnig
mikill áhugamaður um dans og
voru hann og Guðrún óþreytandi
við þá iðju.
Útför Hjartar var gerð frá
Grafarvogskirkju, í kyrrþey að
hans ósk.
Elsku Hjörtur, ég á mjög erfitt
með að trúa því að þú sért farinn frá
okkur að eilífu. Ég veit þó í hjarta
mínu að þú fylgist með okkur hvar
sem þú ert, hvort það er í Sumarlandi
eins og Karen segir eða í Himnaríki
skiptir ekki máli. Ég trúi því líka að
nú líði þér vel, þú sért að braggast aft-
ur og verða eins og ég man þig. Stór,
sterkur og fjörmikill.
Það eru svo margar minningar að
ég veit ekki hvar ég á að byrja. Þegar
þú greindist með veikindi þín í febr-
úar fyrir u.þ.b. ári man ég svo vel eftir
því hversu bjartsýnn þú varst og
sterkur. Þótt læknarnir héldu jafnvel
að þú værir að fara, þá varst þú ekk-
ert á þeim buxunum. Þegar Davíð var
fermdur í apríl varstu mjög veikur, en
samt alveg ákveðinn í því að mæta í
ferminguna hans og það gerðir þú. Þú
slóst bara öllu upp í grín þegar þú
varst borinn upp í salinn í „gullstól“
og varst hetja dagsins í augum okkar
allra, sérstaklega Davíðs, en hann
gleymir því aldrei að þú skyldir gera
þetta fyrir hann.
Síðan með vorinu komst þú okkur
öllum á óvart og hresstist svo vel að
það var næstum eins og þú værir ekk-
ert svona alvarlega veikur. Þetta var
gjöf Guðs til þín og Gunnu, því að
þetta gaf ykkur svo gott sumar og
haust. Þið fóruð í bíltúra út um allt,
kíktuð í heimsóknir og fenguð tíma til
að tala saman um hlutina og í raun að
kveðjast og það held ég að sé mjög
gott. Þegar ég hugsa til þín er mér
efst í huga hversu gott hjónaband
ykkar Gunnu var. Get ég varla hugs-
að mér samhentari hjón. Þið voruð
alltaf svo glöð og samhent í öllu því
sem þið gerðuð. Ferðast, út að dansa,
í bíó og bara að vera heima í rólegheit-
um. Einnig er mjög minnisstætt sam-
band ykkar Kela. Fólk sem ekki hefur
átt ketti gæti haldið að þú værir stór-
skrítinn. Þú vandir hann á að fara
með þér út að ganga og þegar hann
mátti ekki lengur vera úti í Breiðuvík
fórst þú bara með hann í vinnuna og
leyfðir honum að vera úti þar. Svo
þegar vinnan var búin og þú settir bíl-
inn í gang kom hann bara og stökk
upp í bílinn. Eins vandir þú hann á að
geta skilið hann eftir úti í Kirkjugarði
eða uppi á Korpúlfsstöðum í nokkra
klukkutíma og alltaf kom hann þegar
þú komst á bílnum að sækja hann.
Um miðjan desember varstu aftur
orðinn svo veikur að þú varðst að fara
alfarið aftur á spítalann og um jólin
fórstu á líknardeild Lsp. í Kópavogi.
Þar minnist ég þín með mikilli virð-
ingu. Alltaf varst þú svo glaður að sjá
okkur þegar við komum til þín og
sagðir okkur að koma fljótt aftur. Það
lifnaði svo yfir þér þegar þú sást
strákana, Davíð sem þú kallaðir tölvu-
manninn þinn og Aron sem var
íþróttamaðurinn þinn. Þú varst svo
stoltur af þeim. Þú spurðir líka alltaf
um stelpurnar og varst svo ánægður
ef ég sagði þér að þær ætluðu að
koma. Þú sagðir líka alltaf að þær
væru svo duglegar og fallegar og það
yrði örugglega eitthvað mikið úr
þeim.
Í öllum þínum veikindum kvartaðir
þú aldrei, sagðir bara að svona væri
þetta og við því væri ekkert að gera.
Það eina sem þú hafðir áhyggjur af
var að Gunna hefði það ekki nógu
gott, svona varst þú.
Ég ætla nú að kveðja þig elsku
Hjörtur og við öll og láta fylgja kveðj-
unni ljóð sem Gunna lét mig fá og
fannst svo fallegt. Það segir allt sem
segja þarf.
Sáum hraustan
í heimi standa.
Stóran og stoltan
sterkan, góðan.
Illt er að vita
illt er að missa.
Sárt er að sakna
sætt er að muna.
(Höf. ók.)
Guðrún Lára, Guðlaugur
Már, Rakel Huld, Karen Rut,
Davíð Þór og Aron Örn.
Elsku afi.
Eftir erfiðan tíma ertu loksins bú-
inn að fá hvíldina og ég veit að þú ert
núna á betri stað og fylgist með okk-
ur. Þú hefur alltaf verið í mínum huga
mikil fyrirmynd. Það fór aldrei á milli
mála hversu snjall þú varst, heill í
gegn og virkilega góður maður. Mín-
ar minningar um þig eru allar góðar.
Þegar ég kom í heimsókn léstu þig
oftast hverfa inn í annað herbergi svo
að ég og amma gætum talað um öll
mín tilveruvandamál sem snérust nú
oftast um stráka, skóla, vinnu og vina-
sambönd, en þegar ég kvaddi sagðir
þú alltaf að ég væri alltaf velkomin og
ætti að láta sjá mig oftar. Léstu svo
fylgja með kveðjunni að ég ætti að
koma með kærastann næst.
Þú hafðir fræga matarlyst og ég
var alltaf jafn hissa á því hversu mikið
þú gast borðað. Ég man líka eftir því
að það var ekki ósjaldan sem ég sá þig
í göngutúr með Kela og Blíðu. Þú
gekkst fremst með hendur fyrir aftan
bak, þar á eftir kom Keli og Blíða rak
lestina og ef maður kannaðist ekki við
ykkur þá gat þetta verið stórfurðuleg
sjón. Tveir kettir og maður í göngu-
túr. Þú og amma eruð mér miklar fyr-
irmyndir í lífinu. Ég hef sjaldan séð
par sem er svona innilega ástfangið
og jafnmiklir vinir eins og þið tvö og
ef ég upplifi brot af þeirri ást sem að
þið deilduð þá hef ég verið blessuð.
Elsku afi minn. Þó að sorgin og
söknuðurinn séu mikil þá er ég þakk-
látt fyrir að hafa fengið þig sem afa og
vin og ég veit að þegar minn tími
kemur hittumst við aftur á betri stað.
Rakel Huld Baldursdóttir.
Afi minn, þú varst nú meiri karlinn.
Ég sé eftir því að hafa ekki kynnst þér
betur, þó að ég þekki þig vel. Nú ert
þú eflaust í „sumarlandi“ umvafinn
vinum, kunningjum og óteljandi kis-
um.
Ég vil halda að þegar fólk deyr þá
„deyi“ það ekki, heldur hefji nýtt og
miklu betra líf og ég vona innilega að
þitt nýja líf fari vel með þig. Þegar
einhver nákominn manni deyr, þá
syrgir maður, nú ert þú farinn og við
syrgjum öll, en á sama tíma gleðjumst
við fyrir þína hönd. Nú ert þú kominn
á betri stað og dag einn munum við öll
hittast á ný. Þú lifir í okkur og afkom-
endum okkar, við dýrkum þig og
dáum.
Karen Rut Baldursdóttir.
Elsku afi minn, þú varst góður
maður og mér þykir mjög, mjög vænt
um þig. Þú þurftir að deyja af því þú
varst svo veikur og nú er gott að þú
ert kominn til Guðs. Ég veit að núna
sérð þú mig og ég ætla að reyna að
vera duglegur í skólanum og í körfu-
boltanum.
Fyrir afa og ömmu: Elsku Guð,
passaðu afa Hjört og ömmu. Ég veit
að þú ert glaður uppi á himnum og ég
veit að þú saknar Kela mikið og ég
veit að hann saknar þín líka og ég veit
að hann gleymir þér aldrei. Ég veit að
amma passar hann voða vel.
Elsku afi, ég sakna þín líka mjög
mikið.
Kær kveðja, þinn
Aron Örn Baldursson.
Elsku afi, ég vil þakka þér fyrir öll
árin, öll skiptin sem ég hef komið yfir
til að gista hjá ykkur ömmu þó ég vildi
að ég hefði komið oftar yfir til ykkar
að gista. Ég veit að þú ert farinn á
betri stað og við erum öll glöð fyrir
þína hönd þó ég væri til í að sjá þig
einu sinni enn, glaðan, brosandi, með
krossgátuna í hendinni og Kela í fang-
inu. En því miður ertu farinn, en á
betri stað og hefur það gott þar og
fylgist með okkur.
Við söknum þín öll mjög mikið og
vonum að þér líði vel á himnum.
Kær kveðja, þinn
Davíð Þór Baldursson.
HJÖRTUR
BJARNASON Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og systur,
SIGRÚNAR JÓHÖNNU JÓNSDÓTTUR
frá Bjargi,
Mýrargötu 18,
Neskaupstað.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins á Neskaupstað.
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, Eðvarð Guðmundsson,
Sæmundur Sigurjónsson, Klara Sigríður Sveinsdóttir,
Einar Guðjón Sigurjónsson, Hólmfríður Garðarsdóttir,
Árni Sigurjónsson, Fiona Sigurjónsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hinnar látnu.
Elskuleg móðir okkar, dóttir, unnusta, systir,
mágkona og frænka,
MARGRÉT ÞÓRA SÆMUNDSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 2. mars kl. 13.30.
Sæmundur Karl Finnbogason,
Daníel Björn Finnbogason,
Júlía Nicole Finnbogadóttir,
Elín Þorsteinsdóttir,
Sæmundur Nikulásson,
Klaus Abel,
Ragnheiður Halldóra Sæmundsdóttir,
Þorsteinn Sæmundsson,
Berglind Ásgeirsdóttir
og börn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA STELLA ÁGÚSTSDÓTTIR,
Lönguhlíð 3,
áður til heimilis í Sigluvogi 16,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut fimmtudaginn 26. febrúar.
Útförin auglýst síðar.
Tómas Vilhelm Kristinsson, Hulda Hanna Jóhannsdóttir,
Sigríður Júlía Wíum Kristinsdóttir,
Anna Sigurlaug Wíum Kristinsdóttir, Jón Halldórsson,
Hjörtur Vilhelm Wíum Kristinsson,
Reynir Páll Wíum Kristinsson,
Halldór Þór Wíum Kristinsson, Jenefer Kruskamp Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
JÓNÍNA KRISTÍN SIGMUNDSDÓTTIR
frá Miðvík,
lést á heimili sínu, Grenimel 4, Reykjavík,
11. febrúar síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk Jónínu.
Ragnheiður, Björg
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÚLÍUS JÚLÍUSSON,
kennari,
Skálarhlíð,
Siglufirði,
sem lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar mánudaginn
23. febrúar verður jarðsunginn frá Siglufjarðar-
kirkju þriðjudaginn 2. mars nk. kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á Landssamtök hjartasjúklinga.
Svava Baldvinsdóttir,
Baldvin Júlíusson, Margrét Sveinbergsdóttir,
Theodór Júlíusson, Guðrún Stefánsdóttir,
Hörður Júlíusson, Sigurlaug J. Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is.