Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 44

Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 44
SKOÐUN 44 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ TÍMABÆRT má telja að víkja að nokkrum staðreyndum varðandi línuívilnun og áhrif hennar, einnig nokkrum órökstuddum og röngum fullyrð- ingum, sem andstæð- ingar hennar hafa sleg- ið fram. Meðal þeirra sem þar hafa verið í broddi fylkingar er Einar Valur Krist- jánsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss- ins-Gunnvarar hf. í Ísafjarðarbæ, en á málflutningi hans um þessi efni hefur mér stundum þótt meiri slagsíða en hægt sé að una þegjandi. Í desemberhefti Útvegsins, fréttabréfs Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, segir Einar Valur m.a.: „Nú eru 100 ár síðan Vestfirðingar sýndu þá miklu fram- sýni að setja fyrstir Íslendinga mót- or í bát og mér þykir það vægast sagt skjóta skökku við að nú skuli menn 100 árum seinna vera verð- launaðir sérstaklega fyrir að berjast fyrir því að hverfa aftur til fortíðar og fara að vinna með höndunum ein- um saman. Þetta er fullkomin öf- ugþróun ...“ Hér á Einar Valur bersýnilega við það ákvæði, sem sett var inn í lög um stjórn fiskveiða rétt fyrir síðustu jól, að línuívilnun sem þá var lögfest skuli einskorðuð við dagróðrabáta sem beita línu í landi. Það er alrangt hjá Einari Val, að þeir sem hlut eiga að þessu máli hafi barist fyrir handbeit- ingu í landi. Hverjir vildu handbeitingu? Ég vil af þessu tilefni árétta, að í þeirri til- lögu um línuívilnun, sem ég flutti á síðasta Landsfundi Sjálfstæð- isflokksins og þar var samþykkt, var aldrei talað um beit- ingu í landi. Þar var hins vegar talað um dagróðrabáta sem landa fersk- asta hráefninu. Ekki var heldur minnst á landbeitingu í stefnu- yfirlýsingum stjórnarflokkanna fyr- ir kosningar, né heldur er minnst á hana í stjórnarsáttmálanum. Þetta sérkennilega ákvæði er einfaldlega komið inn í lögin að kröfu sjáv- arútvegsráðherra. Ég vil minna Einar Val Krist- jánsson á, sem og aðra, vegna þess að hann talar um að „hverfa aftur til fortíðar“, að meðalaldur fiskiskipa Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. er nærfellt fjórðungur aldar eða 24 ár. Öll endurnýjun í nýsmíði skipa hér á norðanverðum Vestfjörðum er í smábátum. Hér er hvert nýsmíðaða glæsifleyið af öðru að koma til róðra, nýir fimmtán tonna bátar af full- komnustu gerð og með afbrigðum vel tækjum búnir, þannig að aldrei hefur annað eins sést, svo sem með þrívíddardýptarmælum sem sýna fjöll og dali í hafdjúpunum. Jafn- framt hafa orðið miklar framfarir í línunni sjálfri. Ég leyfi mér að hafa þá skoðun, og það ekki að ástæðulausu, að sú harða krafa sjávarútvegsráðherra, að forsenda línuívilnunar skuli vera að línan sé handbeitt, sé komin frá Landssambandi íslenskra útvegs- manna, sem hefur um langan aldur haft tögl og hagldir í sjávarútvegs- ráðuneytinu. Krafan um landbeit- ingu var væntanlega sett fram til þess að LÍÚ og félagsmenn þess geti sagt að línuívilnunin sé bara fyr- ir smábáta en ekki skip innan þeirra vébanda. Krafa þessi er sannarlega ekki komin frá Landssambandi smá- bátaeigenda, einstökum félögum smábátaeigenda eða smábátamönn- um yfirleitt. 1000 tonn eða 160 tonn? Í áðurnefndu hefti Útvegsins verður Einari Val tíðrætt um línuívilnunina: „Hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. starfa um 250 manns. Afleiðingar þess, að ef við misstum frá okkur yf- ir 160 tonn að óbreyttu, af þorski, ýsu og steinbít, sem færð verða út- gerðarmönnum hraðfiskibáta hér á svæðinu og víðar, verða töluverðar.“ Þetta þykir mér loðið orðalag og fremur undarlegt, ekki síst í ljósi þess sem sami maður sagði um sama efni á opinberum vettvangi um þremur mánuðum fyrr. Vé- fréttastíllinn er þar allsráðandi eins og hjá kollegum hans í LÍÚ: „Hvernig má vera að fólki detti það í hug að það muni styrkja byggð á Ísafirði, Hnífsdal og Súðavík ef kröf- ur smábátamanna ná fram að ganga? Ef svo færi þýddi það að tæp þúsund tonn af aflaheimildum Hrað- frystihússins-Gunnvarar hf. yrðu teknar af fyrirtækinu og afhentar öðrum útgerðum á sama svæði.“ Reyndar er þetta í samræmi við Línuveiðar og línuívilnun – ómerkilegur áróður stórútgerðarinnar Guðmundur Halldórsson skrifar um línuívilnun ’Því meira svigrúm ogþví meiri tími sem þar gefst, þeim mun lengra inn í löndin er hægt að selja fiskinn og stækka þar með markaðina.‘ Guðmundur Halldórsson Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Öll eignin við Álftamýri 1-3 er til leigu, samtals ca 1.600 fm. 706 fm á tveimur hæðum, innréttað sem aðgerða- og læknastofur. 264 fm á annarri hæð, innréttað fyrir sjúkraþjálfun og skrifstofur. 602 fm verslun og lager innréttað sem apótek. Mögulegt að leigja í smærri einingum ÁLFTAMÝRI/TIL LEIGU Mjög góð staðsetning. Mjög góð aðkoma. Næg bílastæði. Hagstæð leiga. Glæsilegt og einstaklega vel staðsett rúmlega 400 fm einbýlishús með inn- byggðum tvöföldum 39 fm bílskúr. Húsið er teiknað af Guðmundi Kr. Guð- mundssyni og stendur innst í botnlanga á um 1.000 fm lóð. Einstakt sjávarút- sýni. Óbyggt er fyrir framan húsið og austan við það. Fullbúin 2ja-3ja herb. íbúð er í húsinu (inni í heildarfm). Allar innréttingar eru teiknaðar af arkitekt hússins. Nánari upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar. 3950 BAKKAVÖR - SELTJARNARNESI SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Atvinnuhúsnæði Auðbrekka 2 til sölu eða leigu Gott 152 fm atvinnuhúsnæði á götu- hæð með góðri aðkomu og bílastæð- um. Allt nýlega endurnýjað. Rúmgóð móttaka. 5-6 skrifstofuherb. Parket á gólfum. Hentar undir léttan iðnað, skrifstofur, heildverslun o.fl. Húsnæðið var nýlega endurnýjað. Hagstæð langtímalán áhv. Laust stax. Verð 14,9 millj. Nánari uppl. 820 5767 og 864 8800 Hléskógar Glæsilegt 267 fm einbýlishús á tveimur hæðum með inn- byggðum 65 fm bílskúr. Eign- in skiptist m.a. í forstofu, flísa- lagt gesta w.c., hol með mikilli lofthæð, stórt eldhús m. góðri borðaðstöðu og nýlegum tækjum, samliggjandi stofur með mikilli lofthæð og útg. á stórar svalir í suðvestur, 3 svefnherbergi og baðherbergi auk séríbúðar á neðri hæð. Ræktuð lóð með hlöðnu útigrilli. Hiti í innkeyrslu og tröppum upp að húsi. Áhv. húsbr 4,0 millj. Verð 31,5 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala GARÐATORG - 3JA GARÐABÆ Nýkomin í einkasölu á þessum góða stað mjög falleg 103 fermetra íbúð á þriðju hæð í góðu lyftuhúsi, vel stað- sett í göngufæri við alla þjónustu sem býðst við Garðatorg. Íbúðin er með sérinngang, forstofu, baðherbergi, tveimur góðum herbergjum, stofu, borðstofu, eldhúsi, þvottahúsi og geymslu. Fallegar innréttingar og gólfefni. Suðaustursvalir. Stæði í bíla- geymslu. Verð 17,9 millj. NAUSTAHLEIN - GBÆ - RAÐH. - M. BÍLSK. Eldri borgarar. Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra stað mjög gott rað- hús á einni hæð ásamt góðum bílskúr með geymslulofti samtals um 101 fm. Húsið stendur á fallegum útsýnisstað og skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, garðskála, stofur og svefnher- bergi. Gólfefni eru parket og flísar. Fallegur gróinn garður, útsýni. Eignin er laus strax. ARNARSMÁRI - 4RA - KÓPAV. - M. BÍLSK. LAUS STRAX. Nýakomin í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað mjög falleg 110,8 fermetra 4ra herbergja íbúð á annarri hæð ásamt 28 fermetra bílskúr samtals um 138,8 fermetrar. Eignin er með sérinngang og skiptist í forstofu, hol, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, stofu og borðstofu ásamt geymslu í kjallara. Innréttingar og gólfefni eru öll hin glæsilegustu. Ákveðin sala. Verð 18,9 millj. HÓTEL Í STYKKISHÓLMI Um er að ræða heila húseign (hótel Breiðafjörður) 400 fm á þremur hæð- um, vel staðsett miðsvæðis í bænum. Gestarými fyrir 26 gesti í 14 herbergj- um, húsið var áður læknisbústaður en breytt í gistiheimili kringum 1990. Miklir möguleikar í ört vaxandi ferða- mannabæ. Áhv. hagstæð lán. Verð 16,8 millj.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.