Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 47
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 47
Í JANÚAR las ég merka bók
sem kom út árið 2003, Fátækt á
Íslandi við upphaf nýrrar aldar.
Hin dulda félagsgerð borgarsam-
félagsins. Markmið höfundar,
Hörpu Njáls félagsfræðings, eru
margþætt: að greina og lýsa stöðu
fátækra á Íslandi og
þar með að auka og
dýpka þekkingu á fá-
tækt í íslensku vel-
ferðarsamfélagi.
Segja má að það sé
hlutverk fræðimanns-
ins. En lokamarkmið
verksins er pólitískt:
Að bæta kjör hinna
verst settu. Með það í
huga leggur höfundur
fram tillögur sem
ætla megi að dragi úr
fátækt og því sam-
félagsböli sem henni
fylgir og hefur látið
reikna út hvað þær umbætur
kosti.
Á undanförnum árum hef ég
fylgst með umræðu um fátækt í
fjölmiðlum, um langar biðraðir hjá
Mæðrastyrksnefnd fyrir jól, orð
biskups Íslands og ræður forseta
Íslands, umræður um öryrkjadóm-
inn svokallaða og mestu kjarabót
til öryrkja sem kom til fram-
kvæmda í byrjun þessa árs. Ég
hef einnig heyrt menn afneita fá-
tækt, segja að fólk sé að misnota
hjálparstarfið, ná sér í læri fyrir
jólin. Menn hafa séð ,,fátæk-
lingana“ skjótast upp í jeppana
sína hinum megin við hornið. En
hver er sannleikurinn?
Með lestri bókarinnar Fátækt á
Íslandi fékk ég glögga heildarsýn
yfir stöðuna og þróun velferð-
arsamfélagsins. Ég hafði alls ekki
gert mér grein fyrir því að myndin
væri svo dökk, staðan svo skelfi-
leg, vonlaus og niðurlægjandi.
Áhrifamikil eru viðtöl við ein-
staklinga sem búa við fátækt.
Þetta er ósköp venjulegt fólk, ég
leyfi mér að segja á mælikvarða
allra, sem vegna heilsubrests þarf
að lifa á bótum frá Trygg-
ingastofnun og Félagsþjónustunni
í Reykjavík. Sumir gætu unnið
hlutastarf en vegna skerð-
ingarákvæða borgar sig ekki fjár-
hagslega að vinna. Þannig kemst
Þorgerður (dulnefni) einstæð móð-
ir með þrjú börn og öryrki á
vinnumarkaði, í 50% starfi, að
orði: ,,Þú sérð fram á að vera alla
tíð á bótum eða fara á vinnumark-
að og hafa ekkert upp úr því,
staða þín batnar ekkert. Það er
þetta sem drepur fólk niður, lífs-
löngunina og sjálfsbjargarviðleitn-
ina. Möguleikarnir eru engir …
Staðan eiginlega versnaði, ég hef
minna úr að spila eftir að ég fór að
vinna.“
Hugmyndafræði
Hvaða hugmyndafræði býr að baki
lágum bótum? Er það svo að við
trúum því að allir geti bjargað sér
sem vilja, hinir eigi ekkert gott
skilið og geti étið það sem úti
frýs? Oft hef ég heyrt talað niðr-
andi um velferðarkerfin á Norð-
urlöndum sem geri fólk að aum-
ingjum, lami sjálfsbjargarviðleitni
þess. En hvað höfum við fyrir okk-
ur í því? Eitt er víst að við Íslend-
ingar verjum lægsta hlutfalli
landsframleiðslu til velferðarmála
á Norðurlöndum og reyndar er
hlutfallið lægra en hjá öllum Evr-
ópubandalagsþjóðunum að Írlandi
undanskildu. Ef litið er til Norð-
urlanda er örorkulífeyrir 58%
hærri í Noregi en á Íslandi og
100% hærri í Danmörku.
Í bókinni Fátækt á Íslandi er
hægt að fá miklar upplýsingar um
þróun almannatrygginga á Íslandi
og annars staðar á Norðurlöndum
og þá hugmyndafræði sem að baki
býr. Þar hefur þróunin orðið til
jafnaðar en hér svífur andi frjáls-
hyggjunnar æ meira yfir vötn-
unum sem boðar lága skatta og lít-
il útgjöld til velferðarmála.
Áhersla er frekar á góðgerð-
arstarfsemi og ölmusu fyrir þá
verst settu. Starfsmenn opinberra
stofnana, bæði Tryggingastofn-
unar og Félagsþjónustunnar, vísa
fólki á Mæðrastyrksnefnd, Hjálp-
arstofnun kirkjunnar og Samhjálp
þegar engin úrræði er að fá og
hefur svo verið um
árabil. Segja má að í
því endurspeglist ölm-
usustefna stjórnvalda
sem hafa engin úr-
ræði til að leysa
vanda fólks. ,,Velferð-
arkerfið íslenska er
komið langt frá því
markmiði sem stefnu-
mótun ríkisins kvað á
um og setti sér um
miðjan fimmta áratug
20. aldar. Að allsherj-
arnet almannatrygg-
inga tryggði þegnum
skilyrði til lágmarks-
lífsafkomu svo þeir gætu fram-
fleytt sér og sínum.“ Þá ræðir höf-
undur um félagsþjónustu
sveitarfélaga sem sé orðinn örygg-
isventill ríkisvaldsins vegna skerð-
ingarákvæða laga og lágra bóta og
dugi ekki til. ,,Þetta er sú umgjörð
sem velferðarkerfið á Íslandi
skapar fólki og börnum þess sem
kippt er út af vinnumarkaði vegna
veikinda, örorku, atvinnuleysis og
lágra tekna, og hvað sárast er
þessu fólki að horfa upp á börn sín
sitja stöðugt hjá og koðna niður í
depurð og vonleysi. Þannig sprett-
ur fram hin dulda félagsgerð borg-
arsamfélagsins.“
Þáttaskil
Af lestri bókarinnar má ráða að
þáttaskil hafi orðið í almanna-
tryggingum árið 1993 með endur-
skoðun laganna er þeim var skipt í
tvo lagabálka, Lög um almanna-
tryggingar og Lög um félagslega
aðstoð sem eru heimildarlög. Með
breytingum á lögum um almanna-
tryggingar tekur við tekjutenging
og þröng frítekjumörk sem leiða af
sér mikinn niðurskurð á bótum ef
fólk er með tekjur umfram þau
lágu mörk sem sett eru.
Þá var einnig tekið út það
ákvæði að tryggja skuli fólki lág-
marksframfærslu. Lög um fé-
lagslega aðstoð hafa þær afleið-
ingar að nokkur hluti lífeyrisþega
hefur verið hnepptur í mjög erfiða
stöðu bæði efnalega og félagslega
vegna skerðingarákvæða og túlk-
unar á lögunum. „Margt bendir til
þess, þegar grannt er skoðað, að
sú löggjöf hafi ekki fært starfs-
aðferðir og leiðir til framþróunar
heldur afturhvarfs til fyrri tíma,
m.a. þarfagreiningar og lágtekju-
viðmiða,“ skrifar höfundur verks-
ins. Hér er ekki ráðrúm til að lýsa
þróuninni en þess skal þó geta að
árið 1997 var farið að skattleggja
þá sem eiga að lifa af greiðslum
frá Tryggingastofnun.
Vegvísir til framtíðar
Harpa Njáls hefur með verki sínu
Fátækt á Íslandi ekki aðeins kort-
lagt kjör hinna verst settu heldur
setur hún einnig fram tillögur til
úrbóta. Hún hefur unnið það afrek
að reikna út lágmarksframfærslu-
viðmið, eins og það er kallað, en
ekkert slíkt viðmið er til innan
stjórnsýslunnar og er það afar
merkilegt. Samkvæmt því hefði
einstaklingur þurft að hafa kr.
100.750 á mánuði árið 2000 en fékk
kr. 63.593. Alla bótaþega óháð að-
stæðum vantaði 40.000–50.000
krónur á mánuði til að ná lág-
marksviðmiði. Í framhaldi af því
leggur höfundur fram ákveðnar
tillögur um breytingar sem fela í
sér að tryggja afkomu lífeyrisþega
þar sem greiðslur verði alfarið
felldar undir lög um almanna-
tryggingar. Þær fela einnig í sér
að frítekjumörk verði hækkuð,
bæði vegna lífeyris og barnabóta,
og skerðingarhlutföll á tekjur ör-
yrkja umfram frítekjumörk verði
lækkuð.
Margir stjórnmálamenn tóku
bókinni Fátækt á Íslandi fagnandi
þegar hún kom út. En brátt féll
málið í þann farveg að stjórn-
málamenn sökuðu hver annan um
ástandið og umræðan lognaðist út
af. Ljóst er af lestri bókarinnar að
allir stjórnmálaflokkar eiga sök á
ástandinu. Kannski ætluðu menn
árið 1993 að gera gott en gerðu
illt? Um það þýðir ekki að fást nú
en það er í gegnum framkvæmda-
og löggjafarvaldið sem breytingar
verða. Höfundur bókarinnar hefur
smíðað tillögur sem gætu lyft ís-
lensku þjóðfélagi á hærra stig.
Þær tillögur þarfnast umræðu:
,,Niðurstöður þessar gefa tilefni til
að álykta að hækkanir vegna líf-
eyrisgreiðslna og barnabóta, þ.e.
aukin útgjöld velferðarkerfisins,
sem voru 19,1% af landsfram-
leiðslu árið 1999, yrðu nálægt
22,5% af landsframleiðslu. Þrátt
fyrir þessar breytingar á velferð-
arkerfinu yrðum við enn með
lægst velferðarútgjöld af lands-
framleiðslu á Norðurlöndum. Lífs-
kjör lágtekjufólks og lífeyrisþega
myndu stórbatna og fátækum
fækka verulega. Ísland yrði í allra
fremstu röð sem velferðarþjóð-
félag.“
Fátækt á Íslandi
Eftir Gerði
Steinþórsdóttur ’Ljóst er af lestri bók-arinnar að allir stjórn-
málaflokkar eiga sök á
ástandinu.‘
Gerður
Steinþórsdóttir
Höfundur vinnur að málefnum
fatlaðra.
www.101skuggi.is
Sími 588-9090Sími 530-1500
Glæsilegar fullbúnar íbúðir
verð frá 14,6 - 24,6 milljónir kr.
Við bjóðum m.a. vandaðar, nýtískulegar og vel
hannaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í 101 Skugga-
hverfi. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna.
Hverri íbúð fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Gerið samanburð á gæðum og verði
við aðrar eignir á svæðinu.
2 og 3 herbergja íbúðir í miðborginni
Íbúðir til afhendingar í september 2004
Verðdæmi:
69 m2 2 herb. 14,6 m kr.
73 m2 2 herb. 17,2 m kr.
95 m2 3 herb. 19,9 m kr.
102 m2 3 herb. 21,7 m kr.
117 m2 3 herb. 24,5 m kr.
123 m2 3 herb. 24,6 m kr.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Netfang: kjoreign@kjoreign.is
Heimasíða: www.kjoreign.is
Sími 533 4040 • Fax 533 4041
Opið í dag frá kl. 12-14
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Ármúla 21 • Reykjavík
jöreign ehf
Dan V.S. Wiium hdl.,
lögg. fasteignasali
Erlendur Davíðsson,
lögg. fasteignasali
Hákon R. Jónsson,
sölumaður
Ólafur Guðmundsson
sölustjóri,
ELDRI BORGARAR
BREIÐABLIK - EFSTALEITI (Penthouse) Endaíbúð á efstu hæð. Stærð
145 fm. Einstaklega glæsileg sameign. Íbúðin er með sérhönnuðum innréttingum og
sérlega vönduð. Útsýni. Tvennar svalir. Stæði í bílskýli. Verð 34,9 millj. Nr. 6666
MIÐLEITI Falleg 2ja herb. íbúð á 4. hæð. Lyftuhús, Parket og flísar á gólfum. Fallegt
útsýni, góð staðsetning, vinsælt hús. Verð 15,9 millj.
2JA HERB.
FOSSVOGUR Góð íbúð á jarðhæð. Húsið allt klætt að utan og sameign góð. Íbúðin
er í góðu ástandi, parket og góðar innréttingar. Lagt fyrir þvottavél á baðinu. Góð
geymsla. Húsbréf 5 milljónir. LAUS STRAX. Verð 9,550 millj.
3JA HERB.
HJARÐARHAGI. Falleg 3ja herb. íbúð um 82,0 fm á 4. hæð. Glæsilegt útsýni.
Stórar suðursvalir. Parket á gólfi. Hús og sameign í mjög góðu ástandi. Nýl. gler. Verð
12,9 millj.
4RA HERB
BÁSBRYGGJA (Penthouse) Vorum að fá í sölu glæsilega íbúð á efstu hæð í
þessu fallega húsi. Íbúðin er glæsilega innréttuð með góðum svölum. Hátt til lofts, falleg
gólf. Stærð 126 fm. Verð 18,9 millj. Nr. 3820
SÉRHÆÐIR
LAUGATEIGUR Neðri sérhæð um 111 fm. Sérinngangur og sérhiti. Tvö rúmgóð
herbergi og góðar stofur. Stórar suðursvalir. Íbúðin er mikið endurnýjuð. FRÁBÆR
STAÐSETNING. Verð 16,9 millj., áhv. 8,4 millj. húsbréf.
ATVINNUHÚSNÆÐI
TANGARHÖFÐI Mjög gott atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum með innkeyrsluhurð
og tveimur gönguhurðum. Bjart og gott húsnæði. Stærð alls 594,5 fm. ATH. Laust strax.
Verð 38,0 millj. Nr. 3810
SMIÐSHÖFÐI Sérlega vandað húsnæði á einni hæð með mikilli lofhæð og góðum
innkeyrsludyrum. Girt lóð og góð malbikuð bílastæaði. Hús í mjög góðu ástandi. Stærð
1148 fm. Verð 75,0 millj.