Morgunblaðið - 29.02.2004, Page 50

Morgunblaðið - 29.02.2004, Page 50
KIRKJUSTARF 50 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ 1. Skýrsla stjórnar félagsins um liðið starfsár. 2. Skýrsla forstjóra. 3. Endurskoðaðir reikningar ársins 2003 lagðir fram til samþykktar. 4. Tillaga um ráðstöfun hagnaðar. 5. Stjórnarkjör. 6. Kosning endurskoðunarfirma. 7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar. 8. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins til að hækka hlutafé félagsins og að hluthafar falli frá forkaupsrétti að aukningunni. 9. Tillaga um að félagið megi kaupa allt að 10% hlutafjár í sjálfu sér. 10. Önnur mál. Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. árið 2004 Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn þriðjudaginn 16. mars 2004 í Ármúla 3, Reykjavík og hefst kl. 16:30. Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, Þjónustuver 560 5000, www.vis.is Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. F í t o n F I 0 0 8 9 3 5 Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins fyrir árið 2003 verður hluthöfum til sýnis í höfuð- stöðvum Vátryggingafélags Íslands hf. að Ármúla 3 í Reykjavík, frá og með 9. mars nk. Þessi gögn verða einnig aðgengileg á www.vis.is. Atkvæðaseðlar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað, frá kl. 15:30 á fundardegi, þriðjudaginn 16. mars nk. Dagskrá jöreign ehf Sími 533 4040 www.kjoreign.is Ármúla 21, Reykjavík Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali, GISTIHÚS Gistihús í fullum rekstri á svæði 105 í Reykjavík til sölu Húsnæðið er 600 fm á annarri og þriðju hæð, fullinnréttað og að mestu leyti ný tekið í gegn. Í húsnæðinu er 75 fm húsvarðaríbúð, 8 stúdíóíbúðir og 12 tveggja og þriggja manna herbergi, tveir morgunverðarsalir sem geta tekið 45 manns í mat. Öll tilskilin leyfi eru fyrir hendi. Upplýsingar gefur aðeins Dan Wiium í síma Kjöreignar eða 896 4013. Tómasar- messa í Breið- holtskirkju ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar Tómasarmessur efnir til fimmtu messunnar á þessum vetri í Breið- holtskirkju í Mjódd í kvöld, sunnu- daginn 29. febrúar, kl. 20. Tómasarmessan hefur vakið mikla ánægju þeirra sem þátt hafa tekið í henni og virðist hafa unnið sér fastan sess í kirkjulífi borg- arinnar, en slík messa hefur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu sex árin. Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna. Heiti Tómasarmessunnar er dregið af postulanum Tómasi, sem ekki vildi trúa upprisu drottins nema hann fengi sjálfur að sjá hann upprisinn og þreifa á sárum hans. Markmið messunnar er öðru fremur að leitast við að gera nú- tímamanninum auðveldara að skynja návist drottins, einkum í máltíðinni sem hann stofnaði og í bænaþjónustu og sálgæslu, en mik- il áhersla er lögð á fyrirbænaþjón- ustu. Þá einkennist messan af fjöl- breytilegum söng og tónlist og sömuleiðis af virkri þátttöku leik- manna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd Tómasarmessunnar, bæði leik- menn, djáknar og prestar. Það er von okkar, sem að mess- unni stöndum, að þær góðu mót- tökur sem Tómasarmessan hefur hlotið hingað til gefi tóninn um framhaldið og að hún megi áfram verða mörgum til blessunar og starfi íslensku kirkjunnar til efl- ingar. Dómkirkjan – skólamessa VIÐ messu kl. 11 sunnudaginn 29. febrúar syngur kór Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn söngstjóra síns, Marteins H. Friðrikssonar dómorganista. Sr. Hjálmar Jóns- son predikar og fyrir altari þjónar sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Nemendur og starfslið, eldri sem yngri MR-ingar, verið hjart- anlega velkomin ásamt fjöl- skyldum ykkar til messu í Dóm- kirkjunni. Dómkirkjan. Enn eru konur konum bestar MÁNUDAGINN 1. mars kl. 19 hefst á vegum Leikmannaskólans í Grensáskirkju námskeiðið Konur eru konum bestar II í umsjón sr. Petrínar Mjallar Jóhannesdóttur. Námskeiðið er sjálfstætt fram- hald af námskeiðinu: Konur eru konum bestar I sem haldið hefur verið víða um land við miklar vin- sældir. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig konur geta hlúð að sjálf- um sér og eru helstu umfjöllunar- efni líkamsímynd, sjálfsþekking, samskipti við aðra og markmið- asetning. Eins og á fyrra nám- skeiðinu verða sögur Biblíunnar notaðar til að varpa ljósi á það sem tekið er fyrir. Gott er að hafa lokið Konur eru konum bestar I en þó er það ekki skilyrði til þátttöku. Kennt er í tvö skipti, 3 tíma í senn. Skráning fer fram í síma 535 1500 eða á vef Leikmannaskólans, www.kirkj- an.is/leikmannskoli. Háteigskirkja. eldri borgarar Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setr- inu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélagið kl. 20–22 (fyrir 8.–10. bekk). Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og vestra. Hádegisverðarfundur presta í Bústaðakirkju mánudag kl. 12. Árbæjarkirkja. Kl. 20 Lúkas, æsku- lýðsfélag Árbæjarsafnaðar, með fundi í safnaðarheimilinu. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og 10. bekk kl. 20. Mánudagur: Æsku- lýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20. Bessastaðasókn. Sunnudagaskólinn er í sal Álftanesskóla kl. 11. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Krist- jana og Ásgeir Páll. Allir velkomnir. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnudag, kl. 19.30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir. Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601. Í dag er vitnisburðarsamkoma kl. 14. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára og 7–12 ára börn á samkomutíma. Kaffi og sam- félag eftir samkomu. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á www.kefas.is. Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Jón Þór Eyjólfs- son. Gospelkór Fíladelfíu sér um lof- gjörðina. Fyrirbæn í lok samkomu. Barnakirkja á sama tíma. Miðvikudag- inn 3. mars kl. 18–20 er fjölskyldu- samvera með léttri máltíð. Allir vel- komnir. Fimmtudaginn 4. mars kl. 15 er samvera eldri borgara. Allir vel- komnir. Bænastundir alla virka morgna kl. 6. www.gospel.is. Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11. Kennsla og efni fyrir alla aldurshópa. Létt máltíð og samfélag að samkomu lokinni. Allir velkomnir. Bænastund kl. 19.30. Almenn samkoma kl. 20. Eiður H. Einarsson prédikar, lofgjörð, fyrirbænir og samfélag eftir samkomu í kaffisalnum. Allir velkomnir. Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.