Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 56
56 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Lukku Láki – Hefnarinn
© DARGAUD
Grettir
Grettir
Smáfólk
UPP MEÐ HENDUR UTANBÆJAR-
MAÐUR! HÉR ERTU EKKI
VELKOMINN!
EN... HANN LÍTUR EKKI Á
MIG! ÞETTA ER ÞAÐ ALLRA
VERSTA!
KOMDU HINGAÐ TIL BAKA
UTANBÆJARMAÐUR! ANNARS
SET ÉG MERKI MITT Á ÞIG!
MERKI
ZOTTO!
JÆJA ÞÁ,
ÉG KEM!
NÚ SKELFURÐU UTANBÆJARMAÐUR!
ÞÚ HRÆÐIST HEFND MÍNA!
HAFÐU
ÞETTA!
SVONA SVONA! STÓR OG STERK
HETJA EINS OG ÞÚ GRÆTUR EKKI
SVONA. ER ÞAÐ NOKKUR?
FER ÞESSI LITUR
MÉR EKKI VEL GRETTIR? SVO SANNARLEGA!
EN HANN FER SKYRTUNNI
ÞINNI ALVEG HÖRMULEGA!
JÓN. ÉG HEF ÞÖRF
FYRIR AÐ TJÁ MIG
ÉG HEF MÁLAÐ NÝTT
MEISTARAVERK!
ÉG KALLA ÞAÐ
HEIMSKINGI Í GRÆNU
ÞETTA ER FYRIR
ENSKUTÍMA... VIÐ EIGUM AÐ
SKREYTA SETNINGU...
ÞÚ MEINAR SKEYTA
Æ Æ Æ
Æ Æ!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ALVEG er það ótrúlegt að fylgjast
með deilunni um heimahjúkrunina.
Þessi þjónusta sem hefur gert það að
verkum að ekki er algert neyðar-
ástand á sjúkrahúsunum! Hvernig
geta menn haldið því fram í alvöru að
ekki skapist neyðarástand við að 60%
starfsins leggist niður? Er þetta
vegna þess að of margir hafa verið
ráðnir til starfa? Þá er líka best að
losa okkur skattborgarana við þessa
óhæfu stjórnendur, sem safna bara
starfsfólki sem ekkert hefur að gera!
Ég lenti inn á spítala um jólin og
var þar í þrjár vikur. Þegar ekkert
meira var hægt að gera fyrir mig þar
var ég sendur heim, en þó aðeins
vegna þess að til staðar var þjónusta
heimahjúkrunar, sem gat litið inn til
mín daglega og skipt á umbúðum og
haft faglegt eftirlit með gangi mála,
síðan hef ég notið aðhlynningar
heimahjúkrunarinnar. Trúlega er svo
um fjölmarga. Í staðinn fyrir útúr-
fulla spítala, með tilheyrandi biðlist-
um, er hægt að senda fólk heim án
þess að slaka á kröfum um rétta að-
hlynningu og spara þannig milljónir.
Sama gildir um takmarkaðan fjölda
heimila fyrir aldraða, langveika og
fatlaða. Trassaskapur á uppbyggingu
þeirrar þjónustu eftir þörfum bjarg-
ast aðeins fyrir störf heimahjúkrun-
arinnar, þó það sé engin afsökun fyrir
trassaskapnum. Stjórnvöld ættu að
skammast sín fyrir að vera ekki búin
að leysa þessi mál fyrir löngu, því
meðan heimahjúkrunin veitir þessa
frábæru þjónustu hefur ekki skapast
það neyðarástand í málum aldraðra
og sjúkra sem allt stefnir annars í.
Að skjóta fyrst og spyrja svo!
Langfjölmennasti hópur þeirra
sem sinna heimahjúkrun eru fyrir-
vinnur sinna heimila og þá einstæðar
mæður í meirihluta. Það hlýtur að
vera öllum ljóst að þeim er nauðsyn
að vera með bíl í þessu samfélagi
einkabílsins og jafn lélegar almenn-
ingssamgöngur og raun ber vitni. Af
eðlilegum ástæðum hafa þær því talið
það hluta af sínum launum að fá
greidda aksturspeninga, þar sem það
auðveldaði þeim að reka bíl sem ann-
ars gæti verið þeim um megn.
Hvernig stendur þá á því að þetta
er komið í þennan rembihnút? Í stað
þess að vinna með starfsmönnunum
voru gerðir samningar við bílaumboð
um svo og svo marga bíla, síðan
ákveðið að breyta gerðum samning-
um svo bílarnir standi ekki bara
óhreyfðir niðri á hafnarbakka. Fyrir
hverja er þetta? Áreiðanlega ekki
fyrir okkur skattborgarana. Ef til vill
gæðinga stjórnvalda, eða vini og
kunningja stjórnenda? Fnykinn legg-
ur langar leiðir!
Ég er þess fullviss að ég mæli fyrir
munn meirihluta landsmanna þegar
ég geri þá kröfu til stjórnvalda að
leysa þessi mál farsællega þegar í
stað!
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON,
Sléttuvegi 3,
103 Reykjavík.
Er þessum mönn-
um ekki sjálfrátt?
Frá Guðmundi Magnússyni:
VIÐ lifum á alvörutímum, meiri al-
vörutímum en margan grunar.
Menn gleyma sér í anda efnis-
hyggju, lífsgæðakapphlaups, svo
ekki sé minnst á spíritismann og all-
an sorann í öllum hugsanlegum
myndum. En hvar erum við stödd?
Guð er ekki búinn að gleyma þjóð-
inni. Einhverra hluta vegna vill
hann koma boðskap til þessarar
þjóðar á undan öðrum þjóðum.
Hann vill vekja þessa þjóð af blundi
andvaraleysis og rangrar lífssýnar.
Opinberunin hefur verið hulinn
leyndardómur í 1900 ár en hana er
að finna í Opinberunarbókinni 10.
kafla. Margir hafa í gegnum tíðina
viljað vita um leyndardóm hinna sjö
þruma sem þar eru nefndar, en að-
eins í fyllingu tímans opinberar Guð
sinn leyndardóm. Eftir 4000 ár
gamla testamentisins og 2000 ár
nýja testamentisins. Allt af hans
hendi er nákvæmt og á réttum tíma.
Og þá komum við að útlistun op-
inberunnarinnar sem finna má í 19.
kafla 6. versi Opinberunarbókarinn-
ar. Þrumurnar sjö segja okkur að
það sé komið að brúðkaupi lambs-
ins. Við erum komin í jaðarinn á
1000 ára ríkinu. Við erum komin í
19. kafla Opinberunarbókarinnar.
Við erum rétt komin að bókarlokum
í orðsins fyllstu merkingu. Það er
kominn tími til að þjóðin vakni. Það
er kominn tími til að kennimenn
spyrji. Hvað orð Guðs segir má sjá í
Jesaja, 45. kafla 23 versi.
SÆVAR PÉTURSSON,
Seljalandi 3,
Reykjavík.
Opinberun til íslensku
þjóðarinnar
Frá Sævari Péturssyni:
Fréttir í tölvupósti