Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 59
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ung/ur í anda og mikil
einstaklingshyggjumann-
eskja. Þú ert að hefja nýtt og
spennandi upphaf í lífi þínu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft á meiri hvíld og ein-
veru að halda. Reyndu að
finna tíma til að vera ein/n
með sjálfri/sjálfum þér í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þetta er góður dagur til að
tala við vini þína og kunn-
ingja um framtíðardrauma
þína. Þú getur lært eitthvað
mikilvægt af viðbrögðum
þeirra.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hikaðu ekki við að taka á þig
aukna ábyrgð í dag, jafnvel
þótt það beini aukinni athygli
að þér. Þú munt eiga mik-
ilvægar samræður við for-
eldra þína eða yfirmenn í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gerðu það sem þú getur til að
brjóta upp hversdagsleikann
í dag. Farðu í aðrar búðir eða
kaffihús en venjulega og aðra
leið úr vinnunni. Láttu eins
og þú sért ferðamaður á þín-
um heimaslóðum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur þörf fyrir að bæta
þig og reyna að ná betri ár-
angri. Láttu endilega verða
af því. Mundu að ekkert okk-
ar á eftir að yngjast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hlustaðu vel á samræður þín-
ar við maka þinn og nána vini.
Þú getur lært eitthvað gagn-
legt um sjálfa/n þig.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gefðu þér tíma til að taka til í
kring um þig bæði á heimilinu
og í vinnunni. Umhverfi þitt
hefur mikil áhrif á þig og þér
mun því líða betur þegar allt
er í röð og reglu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er leikur í þér og því
muntu njóta þess að leika þér
við maka þinn, börn eða vini í
dag. Farðu út og leiktu þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft að einbeita þér að
heimilinu og fjölskyldunni í
dag. Best væri ef þú gætir
varið deginum heima með
fjölskyldunni. Ekki gleyma
foreldrum þínum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það hefur verið mikið að gera
hjá þér að undanförnu og það
verður það áfram næstu vik-
urnar. Reyndu að laga þig að
þeim hraða sem er í lífi þínu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Staðan í fjármálunum vekur
hjá þér spurningar um það
hvað skiptir þig raunverulegu
máli í lífinu. Forðastu að sam-
sama þig eigum þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sólin er í merkinu þínu og
það gefur þér bjartsýni og
kraft. Þetta gerir það að
verkum að fólk laðast að þér.
Gerðu sem mest úr þessu
tækifæri til að koma ár þinni
vel fyrir borð.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 29.
febrúar, er áttræður Hauk-
ur Þ. Benediktsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Borgarspítalans, til heim-
ilis að Hæðargarði 29,
Reykjavík.
ÞEGAR hittni kemur við
sögu við spilaborðið er gæfa
manna æði misjöfn. Lítum á
spil frá tvímenningi
Bridshátíðar þar sem hitt-
ingur ræður för:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ÁD874
♥D107
♦93
♣D54
Suður
♠G32
♥Á6
♦ÁK87
♣Á982
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 grand
Pass 2 hjörtu * Pass 2 spaðar
Pass 3 grönd Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Víða varð suður sagnhafi í
fjórum spöðum eftir gran-
dopnun og yfirfærslu. Og al-
gengt útspil var lítið hjarta.
Fyrsti hittingur: tían eða
drottningin?
Vestur virðist eiga í vand-
ræðum með útspil, hvort
sem hann á kóng eða gosa.
En eftir þessar sagnir er
kannski heldur ósennilegt
að vestur kjósi að spila frá
kóng upp í grandopnun. Það
er eina vísbendingin, en hún
dugir, því tían kostar kóng.
En hvað á að gera næst?
Spaði á drottningu lítur
vel út og hún heldur slag.
Nú er snjöll áætlun að fara
heim á hjartaás og læða út
laufáttu, svona rétt til að
kanna viðbrögðin.
Norður
♠ÁD874
♥D107
♦93
♣D54
Vestur Austur
♠K106 ♠95
♥G954 ♥K832
♦G542 ♦D106
♣G6 ♣K1073
Suður
♠G32
♥Á6
♦ÁK87
♣Á982
Ef vestur setur hiklaust
lítið lauf er ekki líklegt að
hann sé með kónginn og þá
er vel í dæminu að setja
smátt úr borði með þeirri
áætlun að síðar drottning-
unni og gleypa millispil ann-
að í vestur. Sem sagt, spila
upp á „intra“ svíningu.
Þeir sem svona spiluðu
uppskáru 650 og 120 stig af
132 mögulegum. Það gaf
líka vel að fá tíu slagi, því
ýmsir óhittnari spilarar fóru
einn niður (gáfu slag á
tromp, á hjarta og tvo á
lauf).
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 c6
4. f4 d5 5. e5 f6 6. Rf3 Rh6 7.
h3 0–0 8. Be3 fxe5 9. fxe5
Rf5 10. Bf2 Bh6 11. Bd3 Re3
12. Bxe3 Bxe3 13. De2 Bf4
14. 0–0 e6 15. Df2 Rd7 16.
Re2 Bh6 17. Dg3 De8 18.
Rh4 Hxf1+ 19. Hxf1
Rf8 20. Rf4 Bxf4 21.
Hxf4 b6 22. Dg5 a5
23. Dh6 Ha7 24. Rf3
Hg7 25. Rh2 c5 26.
Rg4 De7 27. c3 Bd7
28. h4 Be8 29. h5
cxd4 30. cxd4 gxh5
Staðan kom upp á
Norðurlandamóti í
skólaskák sem lauk
fyrir skömmu í Sví-
þjóð. Halldór B.
Halldórsson (2.150)
hafði hvítt gegn Ei-
rik Norberg (2.177).
31. Rf6+ Kh8 32.
Rxh7! Rxh7 33. Bxh7 Bf7
33. … Hxh7 gekk ekki upp
vegna 34. Hf8+ og hvítur
vinnur. 34. Bg6+ Kg8 35.
Bxh5 Bxh5 36. Dxh5 b5 37.
Hh4 og svartur gafst upp.
Seinni keppnisdagurinn í
minningarmóti Jón Þor-
steinssonar hefst í dag í
Menntaskólanum í Hamra-
hlíð kl. 13.00.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Hann?
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir,
fjölskylduráðgjafi
Skemmtilegt námskeið fyrir konur á öllum
aldri af öllum stærðum og gerðum verður
haldið í Brautarholti 4a,
laugardaginn 6. mars frá kl. 13-17.
Efni námskeiðsins er m.a:
Eigi vil ek hornkerling vera
BE- ástandið
„Þóknast þér“ skeiðið
Seinkunartæknin
Hverjir voru heimsmeistarar
í sektarkennd 2003
Skráning í símum 588 2092 og 862 7916
Stuttir fyrirlestrar með léttu ívafi og meðlæti
Ágætu félagar
og velunnarar
Sunnudaginn 29. febrúar (hlaupársdag) opnar MS-félag Íslands
nýuppfærða og glæsilega vefsíðu í húsnæði þess á Sléttuvegi 5
kl. 14:00-16:00.
Einnig er okkur ánægja að tilkynna að við þetta tækifæri munum
við bjóða Þuríði Sigurðardóttur velkomna til starfa á ný hjá Dag-
vist félagsins. Skemmtiatriði og veitingar í boði félagsins. Við
hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórnin
www.msfelag.is
Aðalfundur
Aðalfundur Parísar, félags þeirra sem eru einar/einir, verður haldinn
laugardaginn 13. mars 2004 kl. 18.00 á Hótel Borg, Reykjarvíkursofu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Árshátíð félagsins verður
haldin að loknum aðalfundi.
Stjórnin.
Laugavegi 41 • sími 561 4465 • Opið mán.-fös. frá kl. 10-18. • lau. frá kl. 10-16.
Við erum fluttar
Við opnum á morgun glæsilega búð fulla
af nýjum vörum á Laugavegi 41.
Og bjóðum gamla og nýja viðskiptavini
hjartanlega velkomna.
Hef flutt lækningastofu mína að
Suðurlandsbraut 34, Orkuhúsinu.
Tímapantanir hjá Össuri hf.
í síma 515 2361
Baldur Tumi Baldursson dr. med.
Sérfræðingur í húð og kynsjúkdómum.
HÚÐSJÚKDÓMALÆKNIR
HJÁ mér hefur legið of
lengi góð ábending frá
Baldri Ingólfssyni, fyrrv.
menntaskólakennara, sem
hefur áður sent mér ýmsar
hugleiðingar um orð og
málfar. Sendi hann úr-
klippu úr blaði, þar sem
segir frá því, að óvænt var
hætt við lendingu flugvél-
ar í Keflavík. Í blaðinu
stóð: Farþegum var
brugðið þegar hætt var við
lendingu. Þessi notkun so.
að bregða verður Baldri að
umhugsunarefni. Hér á
hann við, að ruglað er sam-
an að bregða = verða
hverft við og vera brugðið
= láta mjög á sjá, vera
með feigðarsvip. Segist
hann hafa búið í fjölbýlis-
húsi, þar sem var margt
barna sem notuðu sögnina
að bregða alltaf rétt: En
hvað mér brá o.s.frv. So.
að bregða er notað í margs
konar merkingum og m.a.
á þann veg sem Baldur
getur um. Honum brá við
þetta, þ.e. hann hrökk við,
skipti litum, honum varð
bilt við, eins og skýrt er í
OM og OE. Ég hygg, að
lesendur kannist vel við
þessa merkingu sagnorðs-
ins. Í áðurnefndum orða-
bókum er svo orðasam-
bandið að vera brugðið,
honum er brugðið = hon-
um hefur hrakað (t.d. orðið
sjúklegri í útliti), hefur
sýnilega orðið fyrir áfalli.
Þarna getur raunar verið
mjótt á munum um þessar
merkingar, en þó hefði
verið heppilegra að segja:
„Farþegum brá, þegar
hætt var við lendingu“,
eins og Baldur bendir á.
Samt vil ég ekki með öllu
dæma hitt orðalagið úr
leik samkv. máltilfinningu
minni. Farþegum var
vissulega brugðið, þ.e.
þeim varð hverft við, varð
bilt við, þegar hætt var við
lendingu. Í sömu frétt var
svo sagt, að aðskilnaður
milli flugvéla hafi ekki ver-
ið nægur í þetta skipti.
Baldur spyr, hvort ekki
hefði mátt segja: Of
skammt milli flugvélanna.
Ég er sammála honum,
enda eru aðrar merkingar
í no. aðskilnaður, svo sem
kemur fram í áðurnefnd-
um orðabókum. Hvað
segja lesendur um þetta?
Sími 557 4977 og tölvufang
jaj@simnet.is - J.A.J.
ORÐABÓKIN
Að vera brugðið
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira
lesendum að kostn-
aðarlausu. Tilk. þurfa að
berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FOSSANIÐUR
Þá væri, Sjáland, sælla hér
sumarið þitt og blómin,
ef þú gætir gefið mér
gamla fossaróminn.
Hefði allur auður þinn
eitthvað slíkt að bjóða,
léti ég fyrir lækinn minn
leikhússönginn góða.
– – –
Þorsteinn Erlingsson
LJÓÐABROT