Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 60
DANS er bæði holl og
skemmtileg hreyfing. Það vita
krakkarnir sem tóku þátt í
„Freestyle“-danskeppninni
um síðustu helgi í
Laugardalshöllinni. Keppt er í
frjálsri aðferð og þátt taka
krakkar á aldrinum 13–16
ára.
Bæði er keppt í hóp- og
einstaklingskeppni og leggja
keppendur mikið upp úr því
að vera í flottum búningum.
Aðeins einn strákur tók þátt í
keppninni að þessu sinni og
náði þeim góða árangri að
verða í þriðja sæti í
Íslandsmeistarakeppni
einstaklinga.
Sigurvegari í
einstaklingskeppninni var
Inga Birna Friðjónsdóttir en í
hópakeppninni fór Eldmóður
með sigur af hólmi. Hópinn
skipa sex stelpur úr
Reykjavík, Hugrún, Hildur
Jakobína, Eva Dögg, Heiða
Björk, Ólöf og Nanna.
Morgunblaðið/Eggert
Þessi hópur var í skemmtilegum búningum í keppninni.
Dansað dátt
Freestyle-keppnin
AUÐLESIÐ EFNI
60 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SJÖ til fimmtán þúsund
fermetra verslunar-miðstöð
mun rísa í miðborg
Reykjavíkur ef hugmyndir,
sem kynntar hafa verið fyrir
borgarstjóra og
menntamála-ráðherra, verða
að veruleika. Húsið myndi
tengjast tónlistar- og
ráðstefnuhúsi, sem ætlunin
er að byggja við höfnina.
Hópur fjár-festa setti fram
þessa hugmynd, en þeir
hafa reynslu af byggingu
Smára-lindar og Kringlunnar.
Í húsinu gætu allt að 50
verslanir og veitinga-staðir
starfað. Einnig verður
bygging bílastæðakjallara,
undir þessum húsum,
könnuð.
Pálmi Kristinsson
verkfræðingur er í forsvari
fyrir fjárfesta-hópinn. Hann
segir að áætlaður kostnaður
sé á bilinu 20-30 milljarðar
króna. Telur hann
framkvæmda-tíma vera um
þrjú ár og að hægt væri að
vinna verkið í einum áfanga.
Telur hann að þetta verkefni
gæti snúið við þeirri
öfug-þróun sem orðið hafi í
miðborginni síðustu ár.
Verslunarmið-
stöð rísi í miðbæ
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á þessu svæði mun verslunar-miðstöðin rísa, verði hugmyndirnar að veruleika.
MEISTARADEILD Evrópu í
knattspyrnu hófst á nýjan
leik í vikunni og var nú leikið
í 16-liða úrslitum. Ensku
liðin áttu misjöfnu gengi að
fagna, Arsenal og Chelsea
eru bæði í góðum málum
eftir sigur á útivelli en
Manchester United tapaði
sínum leik, einnig á útivelli.
United tapaði 2:1 fyrir
Porto í Portúgal, og missti
auk þess fyrirliða sinn Roy
Keane út af með rautt spjald
skömmu fyrir leikslok og
verður hann því ekki með
þegar síðari leikirnir í 16-liða
úrslitunum verða eftir rúma
viku.
Á sama tíma vann
Chelsea lið Stuttgart í
Þýskalandi, 1:0. Eiður Smári
Guðjohnsen var í byrjunarliði
Chelsea, var tekinn út af
eftir 70 mínútna leik og náði
ekki að skora frekar en aðrir
leikmenn Chelsea. Eina
mark leiksins var sjálfsmark
leikmanns Stuttgart.
Arsenal lagði Celta Vigo,
3:2, á Spáni í fjörugum leik
og er í mjög góðum málum
þar sem liðið skoraði þrjú
mörk á útivelli.
Úrslit annara leikja urðu
þau að Bayern München og
Real Madrid gerðu 1:1
jafntefli þar sem Oliver
Kahn, markvörður Bæjara,
gerði hræðileg mistök þegar
Madrídingar jöfnuðu.
Spartak Prag og
Evrópumeistarar AC Milan
gerðu markalaust jafntefli.
Lokomotiv Moskva vann
Mónakó 2:1 í Moskvu, Lyon
vann Real Sociedad 1:0 á
Spáni og Deportivo lagði
Juventus með sama
markamun á heimavelli
sínum.
Reuters
Ryan Giggs, leikmaður United, í kröppum dansi við Pedro
Mandes og Jorge Costa, leikmenn Porto.
Manchester United
í erfiðleikum
FORSETI Makedóníu fórst í
flugslysi á fimmtudag.
Makedónía er land í
Suðaustur-Evrópu og var
áður hluti af Júgóslavíu.
Forsetinn hét Borís
Trajkovskí. Hann var 47 ára
gamall.
Forsetinn var á leið frá
Makedóníu til borgarinnar
Mostar í Bosníu. Það er stutt
flugleið. Alls voru níu manns
í flugvélinni. Hún var af
gerðinni Bechcraft. Sagt er
að hún hafi verið gömul og
úr sér gengin.
Niðaþoka var í suðurhluta
Bosníu þar sem flugvélin
fórst. Hún flaug inn í
fjallshlíð. Um borð voru alls
níu manns. Enginn komst
lífs af. Flakið fannst á
föstudag.
Þjóðarsorg hefur verið lýst
yfir í Makedóníu. Trajkovskí
var kosinn forseti
Makedóníu árið 1999. Hann
var vinsæll stjórnmálamaður.
Hann vildi koma á ýmsum
umbótum í Makedóníu.
Trajkovskí vildi líka að landið
gengi í Evrópusambandið.
Forseti Makedóníu
ferst í flugslysi í Bosníu
Reuters
Forsíða dagblaðs í Makedóníu. Sagt er frá því að forseti
landsins hafi farist í flugslysi.