Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 61
Öll fastan miðar aðdauða Jesú og hinnævaforni siður, aðreyna að halda sigfrá neyslu kjöts á
þessu tímabili, helgaðist af því að
ekki þótti sæma manninum að
lifa í vellystingum, meðan frelsari
heimsins píndist. Þetta er m.ö.o.
undirbúningstími, þar sem krist-
inn söfnuður íhugar af alvöru þá
atburði, sem leiddu til aftöku
meistarans á föstudaginn langa
fyrir bráðum 2000 árum. Og til að
undirstrika þetta, breytist litur-
inn, sem undanfarið hefur verið
grænn, í fjólublátt.
Það sem hér á eftir fer styðst
mjög við upplýsingar sem finna
má á vef þjóðkirkjunnar (kirkj-
an.is), en þar er jafnan boðið upp
á marga áhugaverða lesningu
hvað varðar trúarleg efni.
Hinn eiginlegi föstutími byrjar
miðvikudaginn eftir sunnudag í
föstuinngang, eða m.ö.o. á ösku-
dag. Þá eru 40 virkir dagar til
páska. En askan er tákn iðrunar
og er víða notuð í helgihaldi þess
dags, einkum þó í löndum kaþ-
ólskra.
Mánudagur og þriðjudagur
fyrir öskudag bera ýmis nöfn.
Þriðjudagurinn kallast sprengi-
dagur, vegna þess að fyrr á tím-
um þegar menn tóku hina ytri
föstu alvarlega, var hann síðasti
dagurinn sem neyta mátti kjöts,
allt til páska. Heitið bolludagur á
mánudeginum er á hinn bóginn
ungt heiti og tekur mið af síðari
tíma venju.
Ýmislegt í sambandi við þessa
daga, eins og það að stunda ærsl
og læti á öskudaginn, eða þá sum-
ar kjötkveðjuhátíðirnar erlendis,
standa nú orðið í mjög óljósum
tengslum við hina eiginlegu föstu.
Hinn kristni skilningur á þess-
um dögum byggist á spá-
mannaritunum og orðum Jesú
sjálfs. Þar nægir að minna á orð-
in í lexíu öskudagsins, sem tekin
eru úr Jesaja 58:5–7:
Sú fasta, sem mér líkar, er að leysa fjötra
rangsleitninnar, láta rakna bönd oksins,
gefa frjálsa hina hrjáðu og sundurbrjóta
sérhvert ok, það er, að þú miðlir hinum
hungruðu af brauði þínu, hýsir bágstadda,
hælislausa menn, og ef þú sér klæðlausan
mann, að þú þá klæðir hann og firrist eigi
þann, sem er hold þitt og blóð.
Og í Fjallræðunni (Matteusar-
guðspjall 6:17–18) segir Jesús:
En nær þú fastar, þá smyr höfuð þitt og
þvo andlit þitt, svo að menn verði ekki varir
við, að þú fastar, heldur faðir þinn, sem er í
leynum. Og faðir þinn, sem sér í leynum,
mun umbuna þér.
Talan 40 hefur táknræna
merkingu, eins og áður var nefnt,
en það vísar jafnframt aftur í sög-
una og tengist göngunni í fylgd
Móse í eyðimörkinni í 40 ár. Á
sama hátt er öskudagur fyrst og
síðast að boða hinum kristnu
söfnuðum þetta: Við búum okkur
sameiginlega undir gönguna til
páska. Góð aðferð til þess er að
lesa og hugleiða boðorðin tíu, já
velta þeim aðeins fyrir sér, líta í
eigin barm og spyrja hvernig þau
rími við göngulagið hér á jörð. Er
farið eftir þeim? Og í hvaða mæli
þá?
Fyrstu þrjú boðorðin fjalla um
afstöðuna til Guðs, en hin sjö um
kærleikann til náungans, til með-
bræðra okkar og systra. Þau er í
heild sinni að finna á tveimur
stöðum í Gamla testamentinu (2.
Mósebók 20:2–17 og 5. Mósebók
5:6–21). En eftirfarandi röð
þeirra og uppsetning er sótt í
„Fræðin minni“ eftir Lúther:
1. Þú skalt eigi aðra guði hafa.
2. Þú skalt eigi leggja nafn Drottins Guðs
þíns við hégóma.
3. Halda skaltu hvíldardaginn heilagan.
4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.
5. Þú skalt eigi mann deyða.
6. Þú skalt eigi drýgja hór.
7. Þú skalt eigi stela.
8. Þú skalt eigi bera ljúgvitni gegn náunga
þínum.
9. Þú skalt eigi girnast hús náunga þíns.
10. Þú skalt eigi girnast konu náunga þíns,
þjón, þernu, fénað né nokkuð það sem
náungi þinn á.
Boðorðin tíu, sem eru grund-
völlur allra laga og siðferðislegra
reglna í gyðingdómi, kristindómi
og íslam, eru oft nefnd umferðar-
reglur lífsins. Þau eiga að kenna
okkur að umgangast Guð og
menn á eðlilegan og réttan hátt,
þ.e.a.s. með elsku og virðingu.
Þau eru okkur nokkurs konar
áttaviti, hjálpartæki til að rata
um brautir ævinnar; án þeirra
myndum við fljótt lenda í ógöng-
um.
Oft er gott að binda flókið mál í
vísur og ljóð, til að auðvelda sér
að muna. Þá gætu boðorðin litið
svona út:
Fyrst ber að nefna fróman Guð,
fremstan í þessum heimi (1).
Hégóma (2) næst, og hvíld (3), ei puð.
Heiðrun (4) ég ekki gleymi.
Fimm (5), þú skalt ekki fremja morð.
Forðast svo hórsins (6) neista,
þjófnað (7) og lygı́ (8) og þjónsins borð
(9 og 10),
þó kunni allt að freista.
Fasta
Nú er byrjaður sá tími kirkjuársins sem nefnist
langafasta eða sjöviknafasta. Verið er að minna
á dagana 40 sem Jesús fastaði í eyðimörkinni,
eftir að hafa verið skírður í ánni Jórdan.
Sigurður Ægisson leit inn á vef þjóðkirkjunnar
og athugaði skrif um föstuna.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
HUGVEKJA
1. Hvað heitir heitmey Friðriks,
krónprins Dana?
2. Hvar fór Samfésballið í fyrradag
fram?
3. Hvaða tónlistarmaður mun
fara með hlutverk Jimi Hend-
rix í væntanlegri kvikmynd um
kappann?
4. Hver er pabbi Krumma í Mín-
us?
5. Hver leikstýrir myndinni Vind-
verkir (A Mighty Wind)?
6. Á rithöfundurinn J.K. Rowling
(Harry Potter) meira en einn
milljarð dala?
7. Hver er höfundur leikritsins
Draugalestin?
8. Virt tónlistartímarit fjallaði um
tónleika Muse í Laugardalshöll
í desember. Hvaða blað er
þetta?
9. Hvað heitir plata Ske frá
haustinu 2002?
10. Hvaða tveir leikarar fara með
aðalhlutverkið í myndinni 50
fyrstu stefnumótin?
11. Trúbrotin 13 er ný plata sem
er væntanleg bráðum. Með
hvaða listamanni?
12. Hvað heitir hópurinn sem sigr-
aði í Íslandsmeistarakeppninni
í Frjálsum dansi sem haldinn
var á dögunum?
13. Hvað heitir ný plata Noruh
Jones?
14. Hvaða ár var kvikmyndin um
Jón Odd og Jón Bjarna frum-
sýnd?
15. Hvað heitir þessi náungi og
hvaða gengi tilheyrir hann?
1. Mary Donaldson. 2. Í Laugardalshöll. 3. Andre 3000 úr Outkast. 4. Björgvin Halldórsson. 5.
Christopher Guest. 6. Já. 7. Jón Atli Jónasson. 8. Q. 9. Life, Death, Happiness & Stuff. 10. Adam
Sandler og Drew Barrymore. 11. Rúnari Júlíussyni. 12. Eldmóður. 13. Feels like home. 14. Árið
1981. 15. Þetta er Raekwon úr Wu-Tang Clan.
Spurt er Spurningakeppni um efni sem finna má ásíðum Fólks í fréttum í Morgunblaðinu.
Pera vikunnar: Settu tölur í hringina þannig að summan á
hverju striki verði 72.
Finndu töluna x.
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er á há-
degi föstudaginn 5. mars.
Ný þraut birtist sama dag kl. 16:00 ásamt
lausn þessarar þrautar og nöfnum vinnings-
hafa.
Þátttakendur skrái lausnina á vefsíðu Digranesskóla,
digranesskóli.kopavogur.is, fyrir kl. 24:00 fimmtudaginn 4. mars nk.
Tveir þátttakendur fá verðlaun, sjá nánar á vefsíðu Digranesskóla.
Lausn síðustu þrautar er: D (2 cm)
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
ÞAÐ var fjörugt og fjölmennt í
Grunnskólanum í Grímsey þegar
skólastjórinn Dónald lagði af stað
með gítarinn og 22 grunnskóla-
nema til að heimsækja fyrirtækin í
Grímsey. Já, fullt af krökkum
mættu til að heimsækja fjölskyldur
og vini í vetrarfríinu sínu á fasta-
landinu og slógust í hópinn með
skólabörnunum í öskudagsgöng-
una.
Grímskjör, Fiskmarkaður Gríms-
eyjar, Sæbjörg og Vélaverkstæði
Sigurðar Bjarnasonar fengu öll
söng frá skólabörnunum sem í stað-
inn fengu glás af nammi. Endað var
í Sigurbirninum, saltfiskverkuninni
og þar var „kötturinn“ sleginn úr
tunnunni. Biðröð krakkanna við
tunnusláttinn var sú lengsta sem
sést hefur hér í mörg ár! Tunnu-
kóngur þetta árið var Guðlaugur
Óli Guðlaugsson frá Akureyri. Eftir
heimsóknirnar í fyrirtækin héldu
börnin í fjölbreyttum og frumlegum
grímubúningum sínum og klyfjuð
sælgætispokum í Félagsheimilið
Múla. Þar biðu kvenfélagskonurnar
Guðbjörg, Margrét og Rannveig
með sjóðandi heitar pylsur og ískalt
kók. Börnin völdu síðan fallegasta
og frumlegasta búninginn í hópnum
þetta árið og tunnukóngurinn var
krýndur með viðhöfn.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Öskudagsfjör: Krakkarnir í Grímsey skemmtu sér vel á öskudaginn.
Löng biðröð við tunnusláttinn
Grímsey. Morgunblaðið.
Kynning á framhaldsnámi við
Kennaraháskóla Íslands verður
þriðjudaginn 2. mars kl. 16.15 í
fyrirlestrarsalnum Bratta í ný-
byggingu skólans Hamri við
Stakkahlíð. Fundurinn hefst með
almennri kynningu deildarforseta
framhaldsdeildar á námi við deild-
ina. Síðan gefst þátttakendum
kostur á að kynna sér nám á ein-
stökum námsbrautum.
Framhaldsnámið er ætlað kennur-
um, þroskaþjálfum og öðrum upp-
eldisstéttum. Námið mun nýtast
þeim sem sinna þróunarverk-
efnum, rannsóknum eða öðrum
fræðistörfum og fólki í forystu- og
stjórnunarstörfum.
Allar námsbrautir í framhaldsdeild
fara fram með fjarnámssniði,
þannig að unnt er að stunda námið
jafnhliða starfi. Námið fer fram að
stórum hluta með tölvusam-
skiptum og á Neti, en einnig eru
staðlotur þar sem nemendur og
kennarar hittast. Rétt til að sækja
um inngöngu eiga þeir sem lokið
hafa fullgildu starfsmenntanámi á
sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis
og umönnunar. Að jafnaði er mið-
að við að umsækjendur hafi a.m.k.
tveggja ára starfsreynslu. Um-
sóknarfrestur er til 17. mars nk.
Nánari upplýsingar um námið er
að finna á heimasíðu skólans
(www.khi.is).
Fundur hjá ættfræðiklúbbi
Bókasafns Hafnarfjarðar verður
haldinn í fjölnotasal Bókasafns
Hafnarfjarðar, Strandgötu 1, kl.
19 þriðjudaginn 2. mars. Á fund-
inum mun Sigurður Gylfi Magn-
ússon sagnfræðingur ræða um ein-
sögu og sjálfsævisögur.
Ættfræðiklúbbur Bókasafns Hafn-
arfjarðar heldur fundi fyrsta
þriðjudag í mánuði yfir vetr-
armánuðina.
Hvers þarfnast góður vefur?
Hvað gerir vef að góðum vef?
Leitað verður svara við þessari
spurningu á námskeiði hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands sem
hefst 8. mars nk. Námskeiðið er
ætlað þeim sem koma að vefhönn-
un og uppbyggingu vefjar, en
einnig kaupendum veflausna. Far-
ið er í undirbúning, skipulag, við-
mót og kynningu á vefsvæðum
með skýrleika og gott aðgengi í
fyrirrúmi, vinnubrögð, fram-
kvæmdaliði o.fl.
Kennari á námskeiðinu er Gunnar
Grímsson, viðmótshönnuður og
vefsmiður hjá Engu ehf. Skráning
og frekari upplýsingar er að finna
á vef Endurmenntunar,
www.endurmenntun.is.
Á NÆSTUNNI
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111