Vísir - 29.04.1981, Síða 3
Miðvikudagur 29. april 1981
VÍSIR
Friðrik óiafsson. lorsetl fide, um máielni Ijðlskyidu Kortsnojs:
„Býst vfð að
málin skýrlst
ettlr mánuð”
„ Ég býst við að málef ni
fjölskyldu Kortsnojs geti
farið að skýrast eftir einn
mánuðeða sva en ef þau
leysast ekki á viðunandi
hátt er Ijóst að FIDE
verður að taka til sinna
ráða".
Þetta sagði Friðrik Ólafsson,
forseti FIDE, i samtali við
blaðamann Visis, en Friðrik er
nýkominn Ur ferð til Sovétrikj-
anna þar sem hann ræddi við
þarlenda ráðamenn, — meðal
annars um málefni Viktors
Kortsnojs.
Friðrik sagðist á þessu stigi
ekkert vilja gefa upp um það
hvaða aðgerða FIDE kynni að
gripa til, enda kynni það ekki
góðri lukku að stýra að opinbera
þau tromp sem maður hefði á
hendi.
Hann sagðisthafa talað við þá
menn i Sovétrikjunum sem
hann teldi sig þurfa að tala við i
þessu sambandi, og væri þar
bæði um að ræða iþróttafrömuði
og aðra ráðamenn.
Friðrik var spurður hvað ylli
Friðrik Ólafsson forseti FIDE
þvi að hann tæki harðar til orða i
sambandi við þetta mál nú en
áður.
,,Ég hef gefið Sovétmönnum
umþóttunartima og hef vonast
til að hægt væri að komast að
lausn málsins án þess að hleypa
hörku i það”.
Friðrik sagði að Sovétmenn
hefðu tekið erindi sinu nokkuð
vel, — þeir vissu nákvæmlega
hver afstaða FIDE væri i mál-
inu, en það væri ýmislegt sem
stæði f vegi fyrir beinni lausn
þess.
„Sovétmenn viðurkenna i
rauninni ekki rétt FIDE til þess
að skipta sér af málinu, en i við-
ræðunum lagði ég þunga
áherslu á þann þátt þess sem
snýrað Karpov sjálfum. Það er
fádæma óleikur sem sovésk
yfirvöld myndu gera Karpov
með þvi' að láta hann tefla við
nUverandi aðstæður, þvi álagið
yrði gífurlegt á hinn unga og
geðþekka heimsmeistara. Mað-
ur skyldi ætla að formsatriði um
skiptingu valds á milli hinna
einstöku stofnana i Sovetrikjun-
um, eins og skáksambandsins
og þeirra sem gefa leyfi fyrir
brottflutningi fólks, væru létt-
væg þegar slikir hagsmunir eru
i hUfi”.
— Er hugsanlegt að FIDE af-
lýsi heimsmeistaraeinviginu ef
engin lausn fæst á þetta mál?
,,Ég vil ekkert um það segja á
þessu stigi”. —P.M. ■
Þróunaraðsloð á
sviðl larðborana
Isieilur
I Ollbull
Þessa dagana er Isleifur
Jónsson forstöðumaður
Jarðborana rikisins stadd-
ur í Afríku — smáríkinu
Djibuti, þar sem hann leið-
beinir við jarðboranir og
virkjun háhita.
ísleifur er þarna á vegum þró-
unarhjálpar Sameinuðu þjóðanna
og er þetta ekki fyrsta ferð hans
til Djibuti.
Islenskir verkfræðingar hafa
víða veitt aðstoð á þessu sviði, og
nU er Sveinn S. Einarsson verk-
fræðingur yfirmaður jarðhita-
verkefna þróunaraðstoðar S.Þ.,
með aðsetri i New York.
HERB
FétaosprentsmlOlunnar hf.
Spitalastig 10 —Simi 11640
Sigurjóni veitt
rlddaraorða
Sigurjóni Sæmundssyni, ræðismanni Svia á Siglufirði var veitt orð-
an Riddari hinnar konunglegu Norðurstjörnu 18. mars siðastliðinn
og fór veitingin fram að heimili sænska sendiherrans á Islandi, Et-
hel Wiklund. Sigurjón hefur verið ræðismaður Svia á Siglufirði frá
árinu 1968.
—KÞ
Reiðhjóla
úrvalið
Reiðhjólaúrvalið er hjá okkur
Ódýr tékknesk barnahjól með
hjálpardekkjum fyrir 5-8 ára.
Einnig fjölskylduhjól. DBS, gíralaus,
DBS 5 gíra, DBS 10 gíra.
Ath. tökum vel með farin notuð
hjól í umboðssölu.
Grensásvegi 50 : Sími 31290
FE RÐAVINNINGAR
300 utanferðir
á tíu þúsund hver
FJOLGUN OG
STORHÆKKUN
VINNINGA
Auk þess 11 vinningar til
íbúða- og húseignakaupa á
150.000.-, 250.000,- og 700.000.-
krónur.
Fullfrágenginn sumarbústað-
ur. 100 hílnr ncr firtldi hnchnn-
Sala á lausum miðum og
endurnýjun flokksmiða og
ársmiða stendur
Miði er