Vísir - 29.04.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 29.04.1981, Blaðsíða 8
8 Miðvikudagur 29. apríl 1981 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð- mundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Árni Sigfússon, Fríða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Páll Magnússon, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaður á Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur Ö. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés- son. Útlitsteiknun: Gylfi Kristjánsson, Magnús Olafsson. Safnvörður: Eirikur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14, sími 86611, 7 Ifnur Auglýsingarog skrifstofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, sími 86611. Áskriftargjald kr. 70 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 4 krónur eintakið. Vísir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. Þegar geröar eru ráðstafanír i efnahagsmálum fer innihald þeirra oftast fyrir ofan garð og neðan hjá öllum almenningi. í raun og veru er f ólk hætt að taka mark á þeim og öllum þeim um- ræðum sem út af þeim spinnast. Fyrirheitum ríkisstjórnar og ráðherra er tekið með fyrirvara, gagnrýni stjórnarandstöðunnar er tekið með varúð. Of margar vonir hafa brugðist, of oft hefur úlfur, úlfur, verið hrópað, til að mark sé tekið á rökum og mót- rökum. Það sem a Imenni ngur ski lur og veit er verðlagið í versluninni, afkoma heimilisins. Þar er verð- bólgan mæld og þar vegur hún þyngst. Ekki í áætlunum Þjóð- hagsstof nunar eða spádómum st jörnmálamanna. Stundum mætti ætla að íslend- ingar kærðu sig kollótta hvort verðbólga væri meiri eða minni. Kannske hefur fólk ekki lengur trú á því, að viðnám beri ár- angur, að þetta sé vonlaus bar- átta og betra sé að laga sig að henni f rekar en æsa sig út af hinu óumbreytanlega. Það liggur við að sú hugsun sé orðin landlæg, að stjórnmálamenn megi svo sem pexa sín f milli um leiftursóknir og niðurtalningu, verðstöðvanir eða vergar þjóðartekjur. Það breyti engu hvort sem er,sé f jar- lægt þeim raunveruleika, sem fólkið þekkir. I stað réttlátrar reiði yfir hald- leysi ef nahagsráðstafana, kjara- skerðingum og dýrtíð, leikur nánast góðlátlegt bros um varir landsmanna í hvert skipti sem efnahagsmál komast á dagskrá. Stjórnmálamennirnir sjálfir eru hættir að trúa á sín eigin töfrabrögð. ( örvæntingu eða sjálfsblekkingu er gripið til nýrra nafngifta. Fyrst heitir það verðstöðvun, svo hert verð- stöðvun og það nýjasta er verð- lagsaðhald! Þessi tilþrif eru síðan kórónuð með sérstökum lagaákvæðum um lögregluað- gerðir til að hindra verðhækk- anir. Glöggt mátti finna á alþingi í gær, að ekki fylgdi mikill hugur máli. þegar lögbannsaðgerðirnar og verðlagsaðhaldið var til um- ræðu. Þei r hefðu eins getað verið að tilkynna, stjórnarherrarnir, að nú ætti að banna rigninguna, svo brjóstumkennanlega vonlaus er sú viðleitni að hóta lögreglu og fógetavaldi við verðhækkunum. Sú hugsun gerist æ áleitnari hvort þess sé engin von, að verð- bólgan verði kveðin niður. Eða er verðbólgan hugsanlega til góðs eftir allt? Nógu vel lætur for- sætisráðherra að minnsta kosti af ástandinu. Bankarnir blómstra, segir hann, launþegar una glaðir við sitt, atvinnu- reksturinn þarf ekki á verðhækk- unum að halda. Rikisstjórnin tel ur sig geta sparað sextíu millj- ónir króna án fyrirhafnar og at- vinna er næg. Alvarlegasta mein- semdin í fslenskum stjórnmálum, segja kommarnir, er fólgin í stjórnarandstöðunni! Ekki kemur það þeim að sök, og virðast pví áhyggjuefnin vera lítil á bænum þeim. En nú má vel vera að ríkis- stjórnin telji ástandið harla gott og Alþýðubandalagið telji ekki önnur vandamál vera fyrir hendi en slappleika stjórnarandstöð- unnar. Ekki kvarta braskararnir og spákaupmennirnir undan verðbólgu, það eitt er víst. En hvað um barnafjölskyid- una, gamla fólkið, láglauna- hópana? Hvað um alla þá, sem standa álengdar í verðbólgu- kapphlaupinu, lítilmagnann í þjóðfélaginu? Hvað um þá sem ekki ná endum saman milli launa og útgjalda, og skera þó allt við nögl? Hvað um fyrirtækin sem berjast í bökkum vegna rekstrar- erfiðleika eða unga fólkið sem flýr land vegna dýrtíðar? Á þetta fólk sér ekki lengur málsvara? Á það að gjalda ráð- leysis stjórnvalda og sjálfum- gleði ráðherra? Þessar spurn- ingar verður hver og einn að gera upp við pólitíska samvisku sína. Samviskuspurningar reynast oft betri en fógetavald. "va rnaTmá lar ððhérr a^eágáns^ " ™ ™ ™' : Þrlóskur 09 harður ! en afar viðfelldinn Lengi hefur tollað við hann viðurnefnið „Kappi hnifur” vegna dugnaðarins viö að skera niöur óþarfa útgjöid I sinum embættum. Þar að auki er Caspar Weinbergcr, varnar- málaráðherra Bandarfkjanna, iafn haröur i yfirlýsingum gegn Sovétstjórninni og starfsbróöir hans úr Reaganstjórninni, Alex- ander Haig utanrikisráöherra. Svo að gestgjöfum Weinberg- ers þótti sumum nóg um i ný- legri heimsókn hans til ýmissa Evrópulanda. V-þýska blaðið ,,Die Welt” lét þau orð falla, að varnarmálaráðherrann hefði komið fyrir eins og „rómversk- ur ræðismaður”. Breskur emb- ættismaður sagði, að „hann hefði lag á að lempa hand- sprengjum inn i glervöru- verslanir”. Annar Breti vildi þá bæta úr, og sagði, að i viðræðum væri Weinberger „aðlaðandi þrjóskur”. Einhverjir landar Weinberg- ers mundu kannast vel við þetta siðasttalda. Sem varnarmála- ráðherra er Weinberger meðal þeirra stjórnarmanna, sem mest ber á. Þykir hann klifa mjög á Rússagrýlunni, en hafa lag á þvi i þrákelkninni að laða menn meir á sitt band og láta viöfeldni sina njóta sin, fremur en kaffæra þá i boðskapnum. Þessi aðlöðunarhæfni þykir annars einkennandi fyrir Ron- ald Reagan og innstu koppana i búri hans, sem með honum komu til Washington frá Kali- forniu. — Háttsettur embættis- maður i Washington hefur reynt að auka við þessa lýsingu á manninum með þvi að bera þá saman Weinberger og Haig eftir að hafa starfað undir báðum: „Haig hefur áhyggjur af þvi, hvort hann hafi raunverulega völdin. Weinberger gengur hinsvegar út frá þvi sem gefnu og leiðir aldrei hugann að þvi. Haig er að eðli eins og strengdur á þráð, en Weinberger af- slappaður.” — Það sýnist koma heim við reynsluna eftir nokk- urra mánaða setu i ráðherra- stóli. Weinberger hefur sloppið við alla gagnrýni um valda- brölt, sem Haig er hinsvegar ekki laus við. Yfirvegað sjálfsöryggi Wein- bergers má kannski rekja til þess, hversu náin tengsl hans við Reagan eru. Gagnkvæm að- dáun þeirra hvor á öðrum stafar frá þvi 1968, þegar Weinberger fylkisþingmaður og skólaður umsjónarmaður viðræðuþátta i sjónvarpi gerðist f jármálastjóri fylkisstjórnar Reagans i Kali- forniu. Hinn 63 ára gamli Weinberger sýnist taka áhrifaaðstöðu sina og völd sem sjálfsögðum hlut, en án þess að hreykjast af þeim eða yfirleitt gefa þvi nokkurn sérstakan gaum. Fremur að hann kimi yfir sumu tilstandinu, sem embættinu fylgi. Eins og þegar hinir v-þýsku öryggis- verðir i heimsókn hans þangað, sendu ráðherrabil eftir honum til þess að flytja Weinberger i afskekktan skóg, svo að hann gæti þar skokkað þar sinn dag- lega þriggja milna spöl. Wein- berger maldaði vingjarnlega i móinn og vildi heldur skokka á strætunum i nágrenni hótels sins i Bonn. Við það var ekki komandi. Siðar sagði hann svo frá, að sennilega hafi Þjóðverj- unum ekki fundist við hæfi að hann sæist á almannafæri i gamla lúða æfingargallanum, sem hann brá sér i fyrir skokk- ið. Þessi þægilega viðfeldna framkoma mælist vel fyrir, þvi að ýmsir forverar hans i varnarmálaráðherraembættinu hafa ekki þótt lausir við hroka og jafnvel oflátungshátt. Einn af starfsmönnum þinghallar- innar orðaði það þannig: „Það er notaleg tilbreyting að hafa ekki varnarmálaráðherra, sem tottar pipu sina og horfir niður á mann af gáfnastalli sinum”. En afstaða Weinbergers til valdataflsins við Kreml gerir ýmsum bandamönnum i Evrópu órótt i sinni. Hann er sannfærður um, að „detente” hafi komið Rússum einum til góða. Eins og hann sagði á fundi með NATO-ráðherrum: „Ef þróunin frá kalda-striðinu til þiöunnar, á að heita framför, þá vil ég segja, að við höfum ekki efni á mikið meiri framförum.” — V-Þjóðverjar, sem mestan hag höfðu af auknum samskipt- um austurs og vesturs i meiri Weinberger heilsar upp á bandariska dáta við landamæri Austur- og Vestur-Þýskalands. verslun og minni spennu, voru litt hrifnir. Þegar Haig utan- rikisráðherra kom til Bonn nokkrum dögum siðar, varð hann að reyna að gera gott úr, og fékk þá einkunn i „Neu Ruhr Zeitung”, að hann „hefði limt saman glervöruna, sem Wein- berger ráðherra hefði brotið áð- ur”. En Weinberger hefur ekki hvikað af harðlinu sinni og fyrir skömmu sagði hann blaða- mönnum i Washington, að við- ræður um vopnatakmarkanir hlytu að verða háðar þvi, að Sovétmenn fækkuðu i herliði sinu viöPólland. Utanrikisráðu- neytið varðað flýta sér að senda skeyti til höfuðborgar NATO og fullvissa bandamenn um ein- lægan vilja USA til þess að taka þessar viðræður upp að nýju. Svo virðist sem Weinberger eigi eftir að slipast betur i hinu diplómatiska orðfari. Hann hef- ur haft tilhneigingu til þess að láta frá sér yfirlýsingar i við- ræðum við blaðamenn, sem þótt hafa ónákvæmar og hafa kallað á leiðréttingar meðstjórnar- manna. A fyrsta blaðamanna- fundi sinum sagði hann, að USA kynni að ákveða að taka neftrónusprengjuna i vopna- birgðir sinar. Haig varð að flýta sér að leiðrétta, að engin slik ákvörðun hefði verið tekin. Og fleiri dæmi mætti telja. Flogið hefur fyrir, að innan Reaganstjórnarinnar.hafi menn orðið fyrir smávonbrigðum með „Kappa hnif”, þvi að hann hafi verið til þessa i sinu nýja emb- ætti litið fundvis á möguleika til sparnaðar. Þvert á móti er málaflokkut hans, varnarmál- in, sá eini, sem fær auknar fjár- veitingar á fjárlögum Reagans. (Þýtt úr TIME og stytt.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.