Vísir - 29.04.1981, Page 9
Miövikudagur 29. aprll 1981
VÍSIR
9
Korsætisráðhcrra talar yfir auöum stóluin og (ieir llallgrímssyni
Alþingi bar þess ekki
merki i gærdag, að neitt
sérstakt væri í uppsigl-
ingu. Menn vöppuðu á
göngum og höfðu varla
fyrir því að taka sér sæti
enda þótt hringt væri til
fundar. í neðri deild var
aðeins eitt mál á dagskrá,
frumvarp rikisstjórnar-
innar til laga um verð-
lagsaðhald, lækkun vöru-
gjalds og bindisskyldu
innlánsstofnana.
Forseti deildarinnar
þurfti þó að biða góða
stund áður en gengið yrði
til dagskrár, þar sem
hvergi bólaði á fram-
sögumanni, sjálfum for-
sætisráðherra. Hann hef-
ur sennilega lagt sig eftir
matinn, blessaður, og
ekki hafa efnahagsráð-
stafanirnar haldið fyrir
honum vöku.
„Réttlátara verðlags-
eftirlit"
Enumræðan hófst átta mínút-
ur yfir tvö, og ráðherrann var
með skrifaða ræðu, þar sem
rakin voru höfuðatriði frum-
varpsins 1) áframhaldandi að-
haldi verðlagsmálum, 2) auknir
möguleikar til aðhalds i pen-
ingamálum og 3) niðurskurður
framkvæmda og rekstrarút-
gjalda rikisins til þess að skapa
svigrúm til að lækka fram-
færslukostnað.
Ráðherrann skýrði hverja
grein fyrir sig og bætti þar litlu
við, sem lesa má i greinagerð
með frumvarpinu og komið hef-
ur fram áður.
Um aðra grein frumvarpsins,
þar sem verðlagsstofnun er
heimiltað krefjast lögbanns við
byrjuðu eða yfirvofandi broti á
fyrirmælum, sagði ráðherrann:
önnur grein frumvarpsins
miðar að virkara verðlagseftir-
liti. Þorri seljenda vöru og þjón-
ustu hlitir verðlagsákvæðum.
En þvi miður er ekki svo um
alla. 1 þeim tilvikum tekur það
verðlagsyfirvöld mánuði og
jafnvel misseri að fylgja málum
eftir og á meðan selur aðili vöru
sina eða þjónustu við ólöglegu
verði, sem hækkar framfærslu-
kostnað og kyndir undir verð-
bólgu. Það er réttlætismál og
mikilvægt fyrir hjöðnun verð-
bólgu, að hér verði úr bætt. Með
þvi að heimila verðlagsstofnun
að leita til fógeta um lögbann
við hinu ólöglega verði á að
tryggja markvissara og réttlát-
ara verðlagseftirlit”.
Heillavænleg stefna
I lok ræðu sinnar upplýsti for-
sætisráðherra að verðbólgu-
hraðinn hefur á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs verið milli
30-40%.
Um hærri bindiskyldu inn-
lánsstofnana á árinu, gat ráð-
herrann þess að þróun peninga-
mála hefði tekið nýja og heilla-
vænlega stefnu en um langt
skeið og vonir standa til að
framhald geti orðið á ef vel er
að gætt. Þannig er þvi spáð
sagði ráðherrann að innlán á
þessu ári verði um 26% af
þjóðarframleiðslu en svo hátt
hefur þetta hlutfall ekki verið
siðustu sjö árin.
Forsætisráðherra flutti ræðu
sina áherslulaust, las hana frek-
ar en flutti, rétteins og honum
fyndist ekki mikið til málsins
koma.
Á meðan mátti heyra mál-
skraf þeirra i efri deild, og var
ekki að heyra að þar væru
átakamál á ferðinni. Þingmönn-
um fækkaði i þingsal og lögðu
frekar við hlustir i kurteisis-
skyni.
Lamdi ekki í borðiö
Nasstur tök til máls Geir Hall-
grimsson. Ræða hans var ekki
skrifuð, en þykkur blaða- og
skýrslubunki gáfu til kynna, að
framundan væri löng ræða. Það
fóreftir. Geir talaði i nær hálfan
annan tima og fór sér að engu
óðslega. Hann lamdi ekki i borð-
ið frekar en fyrri daginn, en
fann þó frumvarpinu flest til
foráttu.
Hann lofaði að bregða ekki
fæti fyrir frumvarpið en áskildi
stjórnarandstöðunni rétt til
upplýsinga. Ef rikisstjórnin
þarf fjóra mánuði til að undir-
búa þetta frumvarp, þá getur
enginn ætlast til þess að
stjórnarandstaðan stimpli upp á
frumvarpið m öglunarlaust á
tveim sólarhringum.
Neitunarvald
Geir vék i fyrstu að áhrifum
verðstöðvana. Verðstöðvun hef-
ur veriði gildi allan þennan ára-
tug, og sérstakar verðstöðvanir
hafa verið settar 1978,1979 og nú
siðast á gamlársdag. En er það
ekki athyglisvert, sagði Geir, að
einmitt á þessum árum, hefur
verðbólgan geysað hvað ákafast
i kjölfar verðstöðvana.
Nú á ekki lengur að taka mið
af rekstri velrekins fyrirtækis,
eins og lög hafa kveðið á um, nú
má verðlagsráð ekki taka
ákvarðanir nema innan ákveð-
inna marka, og nú eru völdin
jafnvel tekin aí viðskiptaráð-
herra. Rikisstjórnin öll verður
að leyfa sérstakar verNiækkan-
ir, og með þvi er auðvitað verið
að færa Alþýðubandalaginu enn
einu sinni neitunarvald i hend-
ur.
Árás á eignaréttinn
Siban vék Geir Hallgrimsson
að þvi ákvæði frumvarpsins
sem fjallar um lögbanns-
heimildina, og lét að þvi liggja
að hér væri um stjórnarskrár-
brot að ræða, og bein árás á
eignaréttinn. Hann furðaði sig á
þvi, að nokkur maður sem að-
hyllist sjálfstæðisstefnuna, gæti
stuttslikt lagaákvæði, og brýndi
bæði sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn til andstöðu gegn
ákvæðinu.
Þetta ákvæði er bæði vitavert
og hættulegt og leiðir okkur inn
á braut lögreglurikis.
Þegar hér var komið sögu
brýndi þingmaðurinn raustina
en þingmenn virtust sýna þess-
um aðvörunum litinn skilning,
þvi enn fækkaði i salnum.
Nordalsishús
Lækkun vörugjalds á gos-
drykki flokkaði Geir undir sjón-
hverfingar og sýndarmennsku
og grátbroslegan allan þann
gang mála. Ýmist væru þing-
menn pi'ndir til að fylgja hækk-
un vörugjaldsins við fjárlagaaf-
greiðslu, eða skipað að greiða
atkvæði með lækkun þess, allt
eftir duttlungum og reddingum
ráðherra hverju sinni.
Geir óskaði framsóknar-
mönnum og alþýðubandalagi til
hamingju með það traust sem
þeir bæru nú til „frystingarinn-
ar i Nordalsishúsi”, og átti þá
við aukna innlánsbindingu
banka og sparisjóða i Seðla-
banka. Þetta ákvæðisagði Geir,
leiðir til meiri miðstýringar en
þekkist i afturhaldssömustu
kommúnistarikjum og fullyrti
að lagaákvæðið, ef framkvæmt
yrði, kynti undir verðbólgu i
stað þess að draga úr henni.
Spurningalistinn
Og nú var komið að spurning-
unum sem hann vildi beina til
forsætisráðherra. Þá hvarf ráð-
herrann úr salnum.
Hver verða hin ársfjórðungs-
legu verðlagsmörk? Hverjar
eru verðhækkunarbeiðnimar og
hvað á að hækka eftir 1. mai.
Hvernig á að fara með land-
búnaðarvöruhækkunina sem
yfirvofandi er og gerist eftir
fiskverðshækkun?
t lok ræðu sinnar hafði Geir
Hallgrimsson það fyrir satt að
fyrirsjáanl eg væri 6-10%
gengislækkun eflir 1. júni.
Það voru kannske tiðindi
dagsins.
Talaði fram í kaffitíma
Sighvatur Björgvinsson talaði
fyrir hönd Alþýðuflokksins.
Honum er létt um mál, Sighvati,
en var grunsamlega ljúfmann-
legur i málflutningi. Taldi sjálf-
sagt að greiða fyrir afgreiðslu
málsins, en vildi eins og Geir fá
svör við fjölmörgum spurning-
um og þær létu ekki á sér
standa.
Hverjar eru framhaldsað-
gerðirnar, sem Steingrimur
Hermannsson talar um? A að
greiða niður landbúnaðarvöru-
hækkanir, og þá hversu mikið?
Hverjar verða tollalækkanirn-
ar? Hvar á að skera niður i
opinberum rekstri? A að klipa
af fjárfestingarsjóðunum?
Sighvatur lét móðan mása og
áður en varði var kominn kaffi-
timi hjá þreyttum þingmönn-
um.
Sá grunur leikur þó á, að fjöl-
mennara hafi verið i kaffistof-
unni heldur en i þingsal löngu
fyrir kaffihlé. Þeir eru greini-v
lega orðnir þvi vanir, fulltrúar
þjóðarinnar, að taka við efna-
hagsmálapökkum og kippa sér
litt upp við stjórnarskrárbrot,
eignaupptökur og gengis-
lækkunarspádóma.
Og hversvegna ætti þá þjóðin
sjálf að æsa sig upp út af einni
litilli verðstöðvun, meðan þing-
menn kyngja henni með kaffi-
sopanum löngu áður en umræð-
an er úti?
Það þarf varla að taka það
fram, að forsætisráðherra taldi
það ekki ómaksins vert að svara
fyrirspurnunum. Hann hefur
sjálfsagt hugsað eins og fleiri:
Þessi verðstöðvun skiptir engu
hvort sem er.
ebs
Geir Hallgrimsson i ræðustól
Nlyndir:
Gunnar v. Andrésson
Ráðherrar dunda sér við Visislestur undir ræðuhöldum.