Vísir - 29.04.1981, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 29. april 1981
VlSIR
Floabardaginn
I Sogamýrlnnl
„Það var hreinlega ekki flóa-
friður á heimilinu og við urðum
að flytja út”, sagði Gunnar V.
Andrésson ljósmvndari i sam-
tali við blaðamann. „Undir þak-
brúninni á húsinu okkar gerði
starri sér hreiður i fyrrasumar
og létum við það óáreitt vegna
þess að börnin höfðu gaman af
að fylgjast með fuglinum. En
ánægja fyrra árs breyttist i
skelfingu nú i vor þegar lags-
kona starrans flóin kom i heim-
sókn”.
Starrinn, þessi leiðindafugl,
tók sér bdlfestuhér á landi fyrir
nokkrum árum. Með fullri virð-
ingu fyrir jafnvægi náttúrunnar
hjá mönnum og dýrum er okkur
fyrirmunað að skilja hvaða
hlutverki starrinn gegnir á jafn-
vægislinunni i dýrarikinu. Hann
er litt fagur, hann er grimmur
um varptimann og hrekur aðra
fugla i burtu og söngur hans
hjáróma i annars fallegum
fuglakór vorsins. Starrinn er
vágestur sem kemur óboðinn
um rifur og göt á hibýlum
manna.
Ef litil rifa er á húsvegg, og
hann kemur hausnum þar inn,
fylgir búkurinn á eftir, og hann
spyr hvorki kóng né prest um
leiguskilmála. Leiguliðar hans
eru svo flæmar, blóðsugur sem
nærast á nærveru fuglsins.
Þegar boðflennan færir sig um
set, sitja leiguliðarnir eftir með
aukið hUsrými en enga næringu.
Þá er leitað i mannheim. Frá
heimsókn flónna i leit að æti til
fjölskyldu Gunnars segir hann
áfram:
„Við urðum vör við að fló var
komin i hUsið og þá var farið að
athuga hreiður starrans frá i
fyrra. Ég fjarlægði hreiður-
stæðið undir þakskegginu, var
ákveðin i að veita ekki starran-
um gistingu aftur i ár. Hreiðrið
var kolsvart af fló. Við yl vor-
geisla sólarinnar klekjast lirf-
urnarUtog varaldeilis komið lif
og f jör i messuhald flónna sann-
kölluð svört messa. Þegar
hreiðrið var farið hélt ég að
málinu væri lokið, en þá hófst
fyrst nætursvall flónna fyrir al-
vöru”.
Meðan ibUarnir sváfu svefni
hinna réttlátuog saklausu, fylit-
ist hUsið af skæruliðum, her
skorkvikinda hélt innreið sina
og héldu blóðveislur nótt eftir
nótt i hibýlum fjölskyldunnar.
„Skæruliðarnir fóru i felur
þegar dagaði, saddir og sælir en
við vöknuðum upp með bólgna
hUð eftir blóðsugurnar og fylgdi
þessi ofsakláði”, sagði Gunnar,
„og þá var gripið til næsta ráðs.
Við fengum meindýraeyði á
vettvang, sem Uðaði allt hUsið
hátt og lágt. A meðan urðum við
að flyt ja burt Ur hUsinu, en áður
en til þess kom varð að flytja öll
matvæli í burtu, pakka leikföng-
um barnanna inn i plast, og taka
sængurföt af rUmum. Þegar við
gátum snUið aftur heim i hUs,
varð að viðra og þrifa allt innan-
dyra. Flóabardaganum var með
lokið”.
Gunnar V. Andrésson er
reynslunni rikari i dag og veitir
ekki starranum og hans föstu
fylgikonum flónum gistingu
framar. Strið hans og fjölskyld-
unnar er hér rituð öðrum til
varnaðar. Þegar lofthitinn
verður stöðugri nU i maibyrjun
má bUast við að leikurinn æsist
fyriralvöru hjá flónum i starra-
iu'eiðrunum. Ef þið verðið vör
við starrahreiður, og ætlið að
ráðast til atlögu, er ráðlegast að
fá meindýraeyði á staðinn áður
en þið hróflið nokkuð við
hreiðurstæðinu, verið minnug
þess sem Gunnar sagði hér á
undan að þegar hann fjarlægði
vigið hófst alvöruorustan.
— ÞG
Meindýraeyðir kominn á staðinn og byrjar á hreiðurstæðinu undir
þakskegginu. Visismynd/GVA
Innandyra er allt Uöað með eitri og fbúarnir fluttir út á meðan.
Visismynd/GVA
Flóin leitaði á ibúana i fastasvefni svo rúm og rúmföt fengu gððan
skammt af úðun. VIsismynd/GVA
11
-K-x-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-X-K-K-k-K
I Kar/mannaskór
m.* * »
leður m/ hrágúmmísólum
¥
¥
¥
¥•
■¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
í ® SXlttR)iOSK0BtiBin(
^ Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795 •
-x-K-k-k-K-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k
Teg: 8421
Litur: Ijósbrúnt
Stærðir 41-45
Verð kr. 364.00
Eigum á lager
fullkomin
mótorstillitæki.
Einnig afgasmæla,
OHM mæla,
og þjöppumæla.
Eigum einnig
i mikiu úrvaii:
kerti, kveikjulok, kveikjuhamra,
þétta og platínur
VARAHLUTIR
AUKAHLUTIR
VERKFÆRI
★-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-kf-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k-k