Vísir - 29.04.1981, Síða 14
14
MiOvikudagur 29. aprll 1981
VtSIR
V.V. skrifar:
Nýlega var sagt frá þvi i Sand-
korni Visis, að Arni Bergmann,
meðritstjóri Þjóðviljans, hefði
sagt að „Jesús hefði rekið
(væntanlega á vegum
Alþýðubandal.) vixlarana, sam-
starfsmenn viðskiptafræðingsins
og háskólarektors út úr muster-
inu”, í tilefni umræðu Guðmund-
ar Magnússonar rektors um trú-
mál, á fundi um það efni á vegum
samtakanna „Lif og land”. Einn
af fundarmönnum sagði þá við
sessunaut sinn, að i þessum orð-
um, sem raunar áttu að vera
brandari, væri nokkur sannleikur
eins og i öllu gamni, þvi að á
Vesturlöndum hefði Jesús raunar
tekist að reka „vixlarana” út úr
musterum Krists.
Enþað væri ekki siður athyglis-
vert, að í fyrirheitna landi Árna
Bergmanns þ.e. Rússlandi, væri
þessu öfugt farið. Þar hefðu
„víxlarar” þess átrúnaðar rekið
sjálfan Jesús út úr öllum muster-
um Krists og sest þar að sjálfir.
Meira
með
Ladda,
Þorgeiri
og ðmarl
Tvær ungar frá Raufar-
höfn hringdu:
VERUM VEL I VERBI
GAGNVART FlKNIEFNUM
V.S. skrifar:
Nú er álitið að mikil aukning
verði á ferðamannastraumi til Is-
lands, og er ekkert nema gott eitt
um það að segja. Að sjálfsögðu
bjóðum við ferðamenn hjartan-
lega velkomna.
En eitt ber að varast, hinn
mikla fjölda manna sem er á
flakki milli Norðurlandanna til að
selja og útbreiða eiturlyf. Flestir
þessara manna koma frá suðræn-
um löndum og Arabalöndum og
eru stórhættulegir. Vel metinn
maður í Kaupmannahöfn tjáði
mér, að um leið og þessir menn
fóru að venja komur sinar þang-
að, hafi fíkniefnasala aukist til
mikilla muna, og hann sagði að
sama gilti um Sviþjóð. Ég efa
ekki að orð mannsins eru sönn.
Vonandi er okkar ágæta út-
lendingaeftirlit vel á verði með
þann sómamann sem veitir þvi
forstöðu. Það veit ég að ef hans
nyti ekki við væri allt morandi af
þessum lýð, til mikillar óham-
ingju fyrir íslensk ungmenni, að
maður tali nú ekki um fjölskyldur
þeirra. Hafðu mikla þökk fyrir
Arni Sigurjónsson og ágætt
starfsfólk þitt.
Gætíð ykkar á
hálsbólgunní
Hálsbólginn skrifar:
Ein allsherjar hálsbólgupest
geysar nú um landið eins og svo
oft áður. Margir hafa kvartað um
geymsli I hálsi svo vikum skiptir,
Hringið i
síma 86611
milli kl.
14 og 16
eða skrilið
tii maðsins
þótt það valdi þeim engu verulegu
ónæði. Aðrir hafa fengið þennan
fjanda i stuttan tima en öllu
kröftugar þá. Ég er einn þeirra
sem ekki gætti að mér, var búinn
að hafa þessi eymsli nokkuð lengi
án þess að gæta að. Ég er barn-
margur og þarf þvi iðulega að
hasta á óstyriláta krakka mina. 1
einu sliku tilvikinu, brá svo við að
ég kom ekki upp nokkru hljóði,
eftir að hafa hrópað nokkur vel
valin orð i þann mund sem
blómavasi okkar hjóna lá möl-
brotinn i gólfinu. Ég var svo til
mállaus i fjóra daga, og ekkert
virtist vera hægt að gera. Mál-
leysi þetta stafaði af þvi að ég
hafði ekki áhuga á að koma upp
orði, þvi ef það var reynt, virtist
sem ég væri með unglingsrödd i
hinum herfilegustu mútum. Er
ekki eitthvert ráð til við þessum
ósköpum? Það hlýtur að vera
hægt að benda á varnarráð, þótt
þau komi of seint fyrir mig. Ég
vona að einhver annari gái að sér.
HÖRPU HRIF
Gunnar Sverrisson sendi einskonar
Vísi þetta Ijóð/ sem nefnir Hörpu hrif. hann persónugervingar sem dálitlu æfintýri,
Hvar eru sveinar, koma þau
hvar eru meyjar? hlaupandi,
í frjálsleik hvetjandi,
sinum, hress,
gleðifólk, æðandi,
samtvinnast með sumargolunni,
hörpu, handan frá
einskonar suðurlöndum,
persónugervingar inn I vitund
árstíðaskifta fagnandi
fjölgróskunar, alþýðunnar
Hvar eru sveinar? með sumarstef
hvar eru meyjar? I sálinni.
Við viljum helst fá islenska
þætti i sjónvarpinu eins og til
dæmis páskaþáttinn „Horft ofan
af brúnni”, með Halla og Ladda,
Omari Ragnarssyni og Þorgeiri
Ástvaldssyni. Þetta var frábær
þáttur og það hlýtur að vera hægt
að gera fleiri slika.
Laddi, Þorgeir og Ómar virðast
hafa siegið i gegn i páska-
skemmtiþætti sjónvarpsins.