Vísir - 29.04.1981, Side 23
Miðvikudagur 29. apríl 1981
23
VÍSIR
kemur EKKI ÚT
föstudaginn 1. maí
Kemur út
laugardaginn 2. maí
með myndarlegu Helgarblaði.
Auglýsendur athugið!
Frestur til að skila auglýsingum
í Helgarblað 2. maí og
mánudagsblað 4. maí er til kl. 12
á hádegi fimmtudaginn 30. apríl
Smáauglýsendur athugidtf
Smáauglýsingadeild
V/S/S er opin:
fimmtudag 30. apríl kl. 9-22
föstudag 1. maí LOKAÐ
laugardag 2. maí kl kl. 10-14
sunnudag 3. maí kl. 18-22
auglýsingadeild
Síðumúla 8 : Simi 86671
Rafveitustjóri II
Staöa rafveitustjóra II með aðsetri á Selfossi
er laus til umsóknar.
Ski lyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi
viðurkennda iðnmenntun í rafiðnaði. Æskilegt
er að umsækjandi hafi framhaldsmenntun.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf send-
ist Rafmagnsveitum ríkisins.
Rafmagnsveitúr ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavik
Tilkynning
frá Sjúkraliðaskóla íslands
Umsóknareyðublöð um skólavist næsta skóla-
ár liggja frammi á skrifstofu skólans að
Suðurlandsbraut 6, 4. hæð/ frá kl. 10 til kl. 12.
Umsóknarfrestur er til 20. júní n.k.
Skólastjóri.
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Framleiðí alls konar verðlaunagripi og
félagsmerki. Hefi ávallt fyrirliggjandi ýmsar
staerðir verðlaunabikara og verðlauna-
peninga einnig sfyttur fyrir flestar
greinar íþrótta.
Leltið upplýsinga.
Magnús E. Baldvinsson
Laugavagi 8 - Rayk|avík - Sími 22804
vertu vísis-
áskrítanúí -
Það borgar
sig
Tilboð óskast í m.s. Sigurbáru VE - 249
í því ástandi sem skipið er nú í og þar sem það
liggur í Elliðárvogi hjá Björgun hf.
Fyrir liggja tilboð í skrokkviðgerð, sem hugsan-
legur kaupandi getur gengið inn í.
Frekari upplýsingar gefur Björgun hf.
Sævarhöfða 13, sími 81833 og þangað
skulu tilboð hafa borist eigi síðar en
kl. 10.00 fh. þriðjudaginn 5. maí 1981.
|SAI M c VO Oi 1 UEJURl .ióGUNNARI MAR &SGEIRSSYNI SÍMI 35200
1 l ■ — - ■■■■ ■»
svomœur bvartnaioi lllilllllllllllllllllll
FÉLAGAR MARiU I FRIÐARMALUM
Sá Islendingur, sem fær opin-
berlega greitt fyrir upplýsinga-
þjónustu Sovétmanna á tslandi,
Haukur Már Haraldsson,
skrifar grein i Dagblaðið, þar
sem hann rómar mjög svonefnt
heimsfriðarráð og hina islensku
friðarnefnd, sem er deild I á-
róðurssamtökum Sovétmanna
gegn varnarbaráttu Vestur-
landa. Haukur Már rekur nokk-
uð upphaf og starfssemi friðar-
nefndarinnar, og nefnir þar til
félaga Maríu og svo félaga
Kristinn E. Andrésson og hans
konu, einnig Sigriði Eiriksdótt-
ur. Allt er þetta fólk horfiö af
sjónarsviðinu nema félagi
María, sem situr enn við sinn
keip, þótt „friðarmálin” hafi
margsinnis tekið öfuga stefnu,
eins og i Ungverjalandi, Tékkó-
slóvakiu og nú siðast i Afganist-
an. Islenska friðarnefndin hefur
samt ávallt staðið fast á þvi aö
hvergi væri ófrið að finna I
heiminum gjörvöllum nema
runninn undan rifjum Banda-
ríkjamanna og þátttökuríkja i
varnarbandalagi um vestræna
stjórnarhætti.
Haukur Már er nýlega kom-
inn úr sérkennilegri ferð um
austantjaldslönd, þar sem hann
kom fram ýmist sem veisluboði
ASI eða friðarboði félaga
Maríu. Og heimkominn telur
hann ástæöu til að upplýsa okk-
ur um Islensku friðarnefndina,
eins og starfsemi hennar væri
ekki öllum kunn. Haukur Már
lykur grein sinni á hvatningar-
orðum, þar sem hann lýsir þvi
yfir aö friðarnefndin sé opin öll-
um, sem af heilum hug vilji
vinna að friði i heiminum og
afvopnun. Er honum þó mest I
mun stöðvun framleiðslu kjarn-
orkuvopna, nú þegar búið er að
kjarnorkuvæða Kolaskaga, og
ekki heyrist um tilraunir með
kjarnorkusprengjur nema
neðanjarðar i Sovétríkjunum.
Auðvitaðeru allir Islendingar
friðarsinnar, eins og helftin af
mannkyninu. Þess vegna þarf
ekki sérstaka friðarnefnd til að
boða islenska friðarstefnu,
nema i þvi skyni að nota hana I
áróðurskyni á vettvangi þjóð-
mála og alþjóðamála fyrir
annað af heimsveldunum. Þetta
veitfélagi Mariaog fer sér hæg-
ar, nema þegar hún er að lýsa
friðarvilja félaga Breánefs á
friðarþingum I Moskvu. Þá
flæðir tilfinningasemin og orð-
skrúðið yfir alla barma. En í
ljósi þess að öll erum við friðar-
sinnar, má vera að i upphafi
hafi fölk leiðst til fylgis við
friðarnefndina, áður en það
áttaði sig á þvi að hún var ein-
ungis sett á stofn hér til að tala
fyrir rússneskum friði, eins og
Norðurlöndum birtist hann t.d.
á Kolaskaga. Þó virðast ein-
stöku aðilar halda áfram að
trúa á starfsemi friðarnefndar-
innar, löngu eftir að lj8st er orð-
ið að Sovétmenn vilja engan
frið, eða samkvæmt orðum Bré-
snefs: Við hefðum haldið
Tékkóslóvakiu þótt það hefði
kostaö þriðju heimsstyrjöldina.
(sbr. Mylnar).
Haukur Már telur upp fleiri en
félaga Mariu máli sinu til
stuðnings, þegar hann ræðir um
vinsældir friðarnefndarinnar.
Hann telur jafnvel séra Emil
Björnsson upp, sem maður hélt
að léti duga að leita friðar á
himnum. En óekki. Félagi Emil
er sagður hafa verið sérstakur
liðsmaður friðarins á sjötta tug
aldarinnar, þ.e. eftir Ungverja-
land. Þetta eru merkilegar upp-
lýsingar þegar haft er i huga að
um er að ræða félaga frétta-
stjóra sjónvarps, en þar hefur
fréttaflutningur stundum þótt
orka tvimælis, þótt þau mál hafi
ekki vcrið rakin til félaga Em-
ils.
Maður, sem lifir á rússnesk-
um launum á tslandi er varla
aðili til að tclja okkur hughvarf
gagnvart islensku friðarÆ'fnd-
inni. Fe'lagi Maria er heldur
ekki trúverðug I friðarstarfi.
Um friðarstarf félaga Emils er
ekkert vitað utan hann er kirkj-
unnar maður. Aftur á móti vit-
um við hvað er að gerast í
Afganistan. Við vitum hvað
mun gerast i PóIIandi. Okkur
rekur enn minni til Ungverja-
lands og Tékkóslóvakiu, sem
mátti kosta heimsstyrjöld. Þess
vegna er friðarnefndin ekkert
annað en ómerkilegt pólitiskt
svindl.
Svarthöfði.