Vísir - 11.05.1981, Blaðsíða 12
12
Mánudagur 11. mai 1981
VISLR
MATSEÐILL HEIMILISINS
Kristin Andrésdóttir hússtjórnarkennari hefur allan veg og vanda
af matseðli heimilisins þessa viku. Kristin hefur gengt húsmóður-
hlutverkinu eingöngu undanfarin ár, en hér áður þegar hún starfaði
sem ráðskona i mötuneyti útbjó hún matseðla og hafði hina mestu
ánægju af að leggja okkur lið. A hennar heimili eru fjórir i mat og
við þann fjölda miðar hún sinar uppskriftir, og þess má geta einnig
að aðalmáltið dagsins er i hádeginu.
—ÞG
MANUDAGUR
Steiktur fiskur
með coktailsósu
soðnum kartöflum og
gulrófusalati
MelónujógUrt
Fiskurinn er roðflettur, skorinn
i hæfilega stór stykki, velt upp
Ur raspi og steiktur i smjöri á
pönnu. Kryddaðmeð salti, pipar
og season-all.
Cocktailsósa:
1 dós sýrður rjómi
2-3 msk majones
tómatsósa (eftir smekk)
örlitið sinnep
Gul rófusalat:
1 meðalstór gulrófa
safi Ur 1/2 sitrónu
2 msk sykur
1 epli smátt brytjað.
ÞRIÐJUDAGUR
Saltkjöt
með hvitkálsjafningi
og soðnum kartöflum
SUrm jólk
með appelsinum
Kjötið þvegið og soðið i um 1
klukkustund.
Hvitkálsjafningur:
1/2 hvitkálshöfuð
vatn, salt
30 g smjör eða smjörliki
30 g hveiti
2-3 dl mjólk eða soð.
Hvitkálið smátt skorið, soðið i
saltvatninu þar til það er meyrt.
Sósan bökuð upp og þynnt með
mjólkinni og/eða soðinu.
Kryddað með salti, sykri eftir
smekk.
Súrmjólkin:
1 litri sUrmjólk
2-3 msk sykur
2-3 appelsinur
1 dl rjómi
SUrmjólkin þeytt með rjóman-
um. Appelsinurnar pressaðar
og safinn látinn saman við,
ásamt sykrinum. Geymt i kæli
þar til borið er fram.
MIÐVIKUDAGUR
Fiskibollur i brUnni sósu með
mUsuðum kartöflum og hvit-
káls/gulrötarsalati
KakósUpa
Fiskdeig I bollurnar:
400 g beinlaus fiskur
2 tsk salt
örlitill pipar
2 msk hveiti
1 1/2 msk kartöflumjöl
1 egg
2 laukar miðlungsstórir
2-3 dl mjólk
smjör til að steikja úr
Fiskurinn hakkaður ásamt ein-
um lauk. Deigið hrært með
hveiti, kartöflumjöli, kryddið
látið saman við ásamt egginu.
Þynnt Ut með mjólkinni.
Laukurinn brUnaður i smjörinu.
Siðan bUnar til bollur sem
steiktar eru fallega brUnar i
smjörinu, vatn sett Ut á og soðið
i um 10 mfnUtur. Sósan jöfnuð,
hellt yfir bollurnar og borið
fram með mUsuðum kartöflum
og hrásalati.
Hrásalatið:
1/4 hvitkálshöfuð
2-3 gulrætur
2-3 tómatar
safi Ur 1/2 sitrónu
Maggi krydd nr. 4
Hvitkál og gulrætur, rifið smátt,
tómatarnir brytjaðir. Sitrónu-*
safinn hrærður út með 2-3 mski
af majones og kryddinu. Hellt
yfir grænmetið.
FIMMTUDAGUR
Mexikanskar kjötbollur með
laussoðnum hrisgrjónum og
jöklasalati
Ferskir ávextir i eftirrétt
K jötbollurnar:
750 g hakkað kjöt (nauta eða
kinda)
Kristin Andrésdóttir hús-
stjórnarkennari
6'msk rasp
salt, pipar
2 1/2 dl mjólk
2 hakkaðir laukar brúnaðir i
smjöri
2 eggjarauður
smjör til að brúna i
Sósan:
200 g beikon i smábitum
1 græn paprika
3 gulrætur i sneiðum
2 dl kjötsoð (teningasoð)
sm jör
dál. rjómi
salt, pipar
dál. chili sósa.
Kjötbolurnar má laga daginn
áður ef vill. Rasp, salt, pipar,
eggjarauður, mjólk sett i skál
og látið standa dálitla stund og
siðan hrært saman við hakkið,
laukurinn settur saman við. Allt
hrært vel saman. Búnar til litlar
bollur sem brúnaðar eru i
smjöri. Bollurnar settar i eld-
fast fat og hitað i ofni. borið
fram með hrásalati og hris-
grjónum.
Sósan.
Beikonið skorið i smábita og
brUnaðá pönnu, feitinni hellt af.
Gulræturnar settar saman við
og smátt skorin paprikan. Látið
krauma þar til gulræturnar eru
meyrar, þá er smjöri bætt i og
chilisósu. Rjómanum bætt i
siðast, má hann gjarnan vera
sUr. Allt soðið saman og hellt
yfir bollurnar.
Jöklasalat:
1 salathöfuð (Iceberg)
skorið i strimla
1 epli smátt skorið
1/2 agUrka skorin i teninga
1 appelsina afhýdd og skorin i
litla bita saman við þetta er
blandað einu boxi af jógurt.
FÖSTUDAGUR
Grillaðar beikon pylsur með
heitu kartöflusalati
Samkvæmisklæðnaður á sumarkvöldi
Buxnatiskan i sumar er afar fjölbreytt, eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd. Pifublússur sem Bretar nefna í dag „Lady Diana”
blússur virðast ætla að vera vinsælar fyrirungar stúlkur.
Þær konur sem ekki vilja fylgja buxnatiskunni I sumar nema
hvunndags en gripa til kjóis fyrir sumarveisiurnar, ættu að lita á
þennan kjól þrisvar. Gæti það komið einhverri á sporið með valið á '
samkvæmiskjól sumarsins.
Þessi kjóll er hannaður af Ginu Bacconi. Pilsið er þriskipt
(„tasíupils”), satinbelti um mittiðog blússan hnýtt saman yfir aðra
öxiina. Mynstrið er stórrósótt, grunnurinn svartur og rósirnar hvit-
ar.
Hagkvæm kaup i svona kjól, þvl hann er hægt að nota við mörg
tækifæri.
—ÞG
Gamaldags eplakaka með
þeyttum rjóma
Beikonseniðunum vafið utan um
pylsurnar og grillað ofarlega i
ofni i 2-3 minUtur á hvorri hlið.
Heitt kartöflusalat:
8 meðalstórar soðnar kartöflur
2 laukar
2 msk smjör
1/2 bolli vatn
2 msk vinedik
1 tsk sykur
1/2 tsk pipar
1/2 tsk salt
Kartöflurnar skornar i þykkar
sneiðar. Sm jörið og vatnið soðið
i potti. Laukurinn skorinn i
sneiðar og soðinn með, þar til
hann er meyr. Lauksoðið bragð-
bætt með edikinu, saltinu,
sykrinum og piparnum.
Kartöflurnar settar úti og látið
gegnum hitna.
NU er graslaukurinn farinn að
spretta og þvi fallegt að klippa
hann yfir og eins gefur hann gott
bragð.
Gamaldags eplakaka:
1/2 kg epli
100 g sykur
vatn
150 g brauðmylsna
50 g sykur
50 g smjör
1/2 1 rjómi
Eplin eru þvegin og flysjuð,
skorin i litla bita og soðin með
sykrinum i litlu vatni, þar til
þau eru komin i mauk. Hrært i á
meðan.
Brauðmylsnunni er blandað
saman við sykurinn. Smjörlikið
brUnað á pönnu, brauðmylsnan
látin á og bökuð þar til hún er
hörð og brún. Kæld.
Brauðmylsnan sett i skál siðan
eplamaukið og svona koll af
kolli þar til allt er búið. Skreytt
með þeyttum rjóma, gott er að
bera rjóma með.
LAUGARDAGUR
Salat — sem sjálfstæður réttur
Vöfflur með þeyttum rjóma i
ábæti
Salatið:
1- 2 salathöfuð
250 g skinka eða einhverjar af
þessum finu pylsum sem eru á
markaðnum
2- 3 epli
2-3 appelsinur
græn og blá vinber
1-2 bananar
Salatsósan:
1 eggjarauða
1 msk sinnep
1 tsk vinedik
1/2 tsk salt og pipar
2 dl rjómi ~
Ollu blandað vel saman og hellt
yfir salatið i skálinni. Borið
fram meö nýjum brauðhnúðum
og smjöri:
Vöfflur:
1 bolli hveiti
11/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
45 g smjörlíki
1 msk sykur
2 stk. egg
3/4 bolli mjólk
kökudropar eftir smekk
Eggin aðskilin. Hviturnar stif-
þeyttar. Smjörlikið mulið
saman viðhveitið. Hrært út með
eggjarauðunum og mjólkinni.
Saltog sykur settúti, siðast stif-
þeyttar hviturnar settar var-
lega saman við.
SUNNUDAGUR
Lambahryggur með bökuðum
kartöflum belgjabaunum, sósu
og Waldorfsalati
Abætir — Piparmintuperur með
þeyttum rjóma
Hryggurinn:
1 3/4-2 kg hryggur
hvitlaukur 2 geirar
50-75 g smjör
1 tsk rosmarin
1/2 tsk timian
salt, svartur pipar
2 stórir laukar
5-6 gulrætur
1/2 flaska hvitvin eða 3-4 dl
bouillon
Þurrkið hrygginn með röku
stykki. Skerið i efsta fitulagið,
stingið smátt skornum hvit-
lauknum inn við hryggjarbein-
ið.
Kryddsmjör::
Hrærið saman smjörinu,
rosmarin, timian 2 tsk. salti og
1/2 tsk svörtum pipar. Krydd-
smjörinu er smurt á hrygginn.
Látið i ofnskúffuna. Hryggurinn
settur neðst f 250 gr. heitan ofn i
10-15 mfnUtur Eftir 10-15
minUtur er hitinn lækkaður
niður i' 160-170 gr. og laukurinn,
sem skorinn er i bita, látinn með
i skUffuna ásamt gulrótunum
sem skornar eru i strimla. Þvi
næst er hvitvinið eða kjötseyðið
settiskUffuna, má gjarnan hafa
til helminga kjötsoð og vin.
St eikt áfram i 45-60 minútur, allt
eftir þvi hvað maður vill hafa
það gegnumsteikt Ausið soðinu
vel yfir af og til.
Sósan:
Soðið siað, jafnað með smjör-
bollu eða bakað upp eftir vild.
Waldorfsalat:
150 g majones
1 dl þeyttur rjómi
sitrónusafi (örlitið)
1/4 selleri, skorið i strimla
valhnetukjarnar (örl)
vinber.
Majonesið hrært Ut með þeytt-
um rjómanum og sitrónusafan-
um. Ollu blandað saman við,
valhnetukjörnunum, sem
skornir eru i hæfilega bita, vin-
berin helminguð og steinarnir
teknir Ur.
Kartöflurnar:
Veljið dálitið stórar kartöflur,
burstið vel og skerið kross i
hverja kartöflu. Pakkið inn i ál-
pappi'r og látið i ofninn með
kjötinu. Þegar þær eru bornar
fram er álpappirinn tekinn að-
eins ofan af kartöflunni, þrýst
örlitið upp og sm jörklipa sett of-
an á i sárið.
Piparmyntuperur:
1 stór dós perur
örliti 11 safi og vin (sherry)
saman við
1 pakki sUkkulaðiplötur (After
Eight)
þeyttur rjómi
muldar makkarónukökur
Hitið ofninn i 225 gr. Leggið
perurnar I eldfast fat og hellið
vfni og safa yfir. Látið fatið i
ofninn i 5 minUtur.
Setjið siðan 1 súkkulaðiplötu á
hverja peru og bakið perurnar
áfram i 3-5 minútur eða þar til
súkkulaðið er bráðið. Borið
fram með þeyttum isköldum
rjómanum. Gott er einnig að
hræra sherry saman við rjóm-
ann.
HÚSRflfl
Lystarlaus börn valda foreldr-
um sinum oft áhyggjum. Reyniö
að setja lítið á disk barnanna i
einu, þvi mörg missa matar-
lystina ef þau sjá kúfðan matar-
disk fyrir framan sig.
Þeir sem gaman hafa að leysa
krossgátur en geta ekki gefið
sér tima til þess i bili, ættu að
klippa þærút úr blööunum, áður
cn þeim er hent. Agætí er að
hefta þær saman og geyma til
betri tima og til dæmis ef ein-
hver á heimOinu er rúmfastur
um tima er gott að luma á
nokkrum krossgátum til að
„drepa” tímann.