Morgunblaðið - 08.04.2004, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 9
FERÐAMYNSTUR
fólks hefur breyst mik-
ið síðustu árin og
ferðaskrifstofur hafa
þurft að laga sig að
þeim breytingum. Þar
á ég við að fólk þekkir
heiminn mun meira en
áður, leitar sjálft upp-
lýsinga á Netinu en
lætur ekki bara ferða-
skrifstofuna fræða sig.
Tilhneigingin er líka
orðin mikið til sú að
fólk pantar flugfar hjá
einum aðila, gistingu
hjá öðrum og enn aðra
þjónustu hjá þeim
þriðja í stað þess að kaupa allt í ein-
um pakka.
Þetta segir Fons Brusselmans,
belgískur ferðamálafrömuður, sem
starfað hefur á Norðurlöndum síð-
ustu áratugina og í ferðaþjónustu
frá árinu 1980. Hann er núna for-
stjóri Kuoni-samsteypunnar á Norð-
urlöndum og er yfirmaður ferða-
skrifstofa Kuoni í Noregi, Dan-
mörku og Svíþjóð og dótturfyrir-
tækis samsteypunnar, leiguflugs-
ferðaskrifstofuna Apollo. Einnig
rekur Kuoni leiguflugfélagið Novair.
Áður starfaði hann í áraraðir hjá
Startours og var þar síðast fram-
kvæmdastjóri og eftir það starfaði
hann fyrir samsteypuna Fritidsrese-
gruppen. Fons Brusselmans lærði
viðskipti í Noregi þar sem hann hef-
ur búið síðustu 30 árin og þar er að-
alaðsetur hans. Hann kveðst þó vera
mjög mikið á ferðinni og er t.d. einn
dag í viku í Stokkhólmi og kveðst
reyna að vera líka einn
dag í viku í Danmörku.
Þar fyrir utan sé hann
mikið á ferðalögum en
hingað til lands kom
hann aðallega í langt
helgarfrí en kona hans
er íslensk, Hafdís Ein-
arsson.
Stjórnandi ársins
Brusselmans var ný-
lega útnefndur af
starfsbræðrum innan
ferðaþjónustu á Norð-
urlöndum stjórnandi
ársins á Norðurlöndum
en honum hefur á
þremur síðustu árum tekist að snúa
taprekstri Kuoni og ekki síður
Apollo í hagnað. En hvernig fór
hann að því?
„Það var einkum með því að draga
saman seglin, minnka framboð á
þjónustu samsteypunnar og lækka
kostnað,“ segir Fons Brusselmans
en tap Kuoni árið 2000 var um hálfur
milljarður norskra króna. Í fyrra
hafði tekist að snúa dæminu við og
ná nokkrum hagnaði. Brusselmans
segir að Kuoni hafi boðið upp á of
mikið af öllu. „Við vorum með of
mikið flug, of stórar skrifstofur, of
umfangsmiklar pakkaferðir og svo
framvegis. Hver skrifstofa var líka
eins konar eigið fyrirtæki, ekki var
hugsað í samhengi við hinar og þess
vegna var nokkur ringulreið í starf-
inu,“ segir forstjórinn og kveðst hafa
ráðist strax í að breyta þessu. Allt
hafi verið endurskipulagt og mark-
aðsstarfið einnig. Í kjölfarið kom 11.
september en þá hafði Kuoni þegar
dregið saman seglin og segir Bruss-
elmans skrifstofuna því að nokkru
leyti hafa verið búna undir frekari
samdrátt. En þurfti hann ekki líka
að segja upp fólki?
„Jú, það var óhjákvæmilegt og í
kjölfarið er samsteypan orðin mun
sveigjanlegri á allan hátt. Framboð
er sveigjanlegt, álagið er mismun-
andi og duglegt starfsfólk okkar er
sveigjanlegt og á þann hátt er miklu
betra að laga reksturinn að breyt-
ingum á eftirspurn,“ segir hann og
nefnir að þarfir og langanir ferða-
langa í dag séu aðrar en þær voru
fyrir 10 árum. Í dag leiti menn í mun
meira mæli eftir upplýsingum um
áfangastaðina, leiti á Netinu en ekki
í bæklingum ferðaskrifstofa, menn
fari oftar í frí en í styttri ferðir hvert
sinn og leggi meira upp úr gistingu
og aðbúnaði en sjálfri flugferðinni, í
það minnst í styttri ferðunum. Séu
menn að fara í frí til sólarlanda
skipti flugferðin sjálf ekki höfuðmáli
og þá vilji menn helst ferðast ódýrt
en kaupa vandaðri gistingu. Séu
menn hins vegar að fljúga í 10 eða 12
tíma þurfi aðbúnaður í flugvél að
vera þokkalegur.
Brusselmans nýtti einnig tæki-
færið í Íslandsferðinni og ræddi við
Tómas Þór Tómasson, fram-
kvæmdastjóra Langferða, sem hef-
ur einkasöluumboð á ferðum Kuoni
á Norðurlöndum á Íslandi. Segir
Tómas að þeir hafi rætt ýmislegt er
varðaði samstarf fyrirtækjanna svo
og möguleika á að Kuoni á Norður-
löndum beini ferðalöngum frá Norð-
urlöndunum á Íslandsferðir.
Ferðafólk í dag gerir öðruvísi kröfur til ferðaskrifstofa og leitar
mun meira eftir upplýsingum á Netinu, segir forstjóri Kuoni á
Norðurlöndum. Langferðir og Kuoni íhuga aukið samstarf.
Segir ferðatilhögun fólks
hafa breyst síðustu árin
Fons Brusselmans
GRÍÐARLEGA stór sjóbirtingur
veiddist í vikunni í Tungufljóti, einn
sá stærsti sem sést hefur úr ís-
lenskri á í mörg ár. Fiskurinn var
ekki veginn, en mældist 95 cm lang-
ur áður en honum var sleppt, eins
og lög gera ráð fyrir í vorveiði í
Tungufljóti. Miðað við það sem
þekkt er um þyngd og lengd skaft-
fellskra sjóbirtinga, er alls ekki úr
vegi að áætla að þessi fiskur hafi
vegið að minnsta kosti 23 pund er
hann gekk í ána síðastliðið haust,
en hann var orðinn nokkuð þunnur
og tekinn eftir vetursetuna. Til
samanburðar hafa 18 punda birt-
ingar veiddir að hausti í sömu á
mælst 86 cm og meterslöng hrygna,
veidd að vori í Tungulæk fyrir
fáum árum, reyndist 23 pund.
Valgarður Ingi Ragnarsson
veiddi fiskinn, sem var hængur, of-
anvert við brúna yfir Tungufljót og
stóð að austanverðu. Gríðarlega
mikið vatn var í ánni og liggur þá
fiskur stundum niður af síkismunna
sem þar er. „Það er klapparbrún
þarna í botninum og einhver hafði
sagt mér að stundum væru stórir
fiskar þar undir. Ég var í
þrengslum þarna, en gat velti-
kastað á staðinn og þá kom þetta
tröll á fullu og negldi fluguna.
Þetta var mjög gaman og ég var
mjög hissa þegar ég sá stærðina á
honum. Ég hef veitt 85 cm birting í
haustveiði en þessi var bara miklu
stærri. Mér finnst líklegt að hann
hafi verið að minnsta kosti 23 pund
í sínu besta ásigkomulagi. Hann tók
svartan Zonker og hann var mjög
þungur í taumi og ég var drjúga
stund að ná honum, en hann var í
góðu formi þegar ég lét hann aftur
í ána,“ sagði Valgarður í samtali við
Morgunblaðið.
Valgarður var í holli númer tvö
og voru skilyrði mjög slæm. Þó náð-
ust nokkrir fiskar, m.a. einn 86 cm
bolti og fjórir sem mældust 80 cm.
Allir þeir stóru veiddust í kringum
brúna, en nokkrir smærri náðust
neðar.
Morgunblaðið/Stefán Kristjánsson
Valgarður Ingi Ragnarsson með stórfiskinn úr Tungufljóti.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Einn sá
stærsti í
mörg ár
www.ropeyoga.com
Laugavegi 34, sími 551 4301.
Opnum
kl. 9.00
virka daga
Nýjar sendingar
Þýsk jakkaföt, kr. 19.900
Stakir jakkar og buxur
Heimagisting 20 km frá Hróarskeldu
Tímabilið frá 1. maí-1. október. Möguleiki að sækja út
á flugvöll. Upplýsingar gefur Hrafnhildur
í síma 0045 4444 005. Geymið auglýsinguna.
Gisting í Danmörku
Laugavegi 63, sími 551 4422
Stórglæsileg
vorlína
Íslenskunámskeið fyrir útlendinga
30 tíma byrjendanámskeið í íslensku hefst
fimmtudaginn 15. apríl kl. 17.30
Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.30 - 19.00 í
Kvennagarði, Laugavegi 59, 4. hæð. Reyndur kennari, frábært námsefni.
Skráning í síma 511 1319 eða á netfangi fjolmenning@fjolmenning.is
Fjölmenning ehf.
ÍT ferðir - Laugardal
sími 588 9900
itferdir@itferdir.is - www.itferdir.is
Gönguferðir á Spáni
5. júní í 2-3 vikur
PÝRENAFJÖLLIN - LÚXUSGANGA
Tvær ólíkar gönguferðir
England – Ísland 5. júní
Beint leiguflug til
Manchester 4.-6. júní
3ja-5 stjörnu hótel, miði á leikinn, Guðni Bergs o.fl.
Knattspyrnuskóli Bobby Charlton
Í júní með ENGLAND-ÍSLAND
8-10 dagar um verslunarmannahelgina
Yfir 1.000 ánægð íslensk ungmenni s.l. 10 ár!
kynna
Ferðaávísun