Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 10

Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ „VIÐ, upprunalegu eigendur Vöku Helgafells, eigum ekki nein óuppgerð mál við Björgólf Guð- mundsson eða hans menn frá þeim tíma þeg- ar hann keypti hlutabréf okkar í Eddu fyrir tveimur árum og við lítum svo á að þeir eigi engar kröfur á hendur okkur vegna þessara viðskipta,“ segir Ólafur Ragnars- son, fyrrverandi stjórnarformaður Eddu-útgáfu, en Páll Bragi Krist- jónsson, forstjóri Eddu – útgáfu, sagði í Morgunblaðinu nýverið að fyrrum stjórn og stjórnendum fyr- irtækisins hefði verið kunnugt um óreiðu í bókhaldi félagsins sem leiddi til ofmats á eignum þess. Ólafur segir að umfjöllun um málefni Eddu-útgáfu nú hafi kom- ið sér mjög á óvart. „Okkur þykir illskiljanlegt og nánast óþolandi að hluthafahópur okkar skuli núna í fjölmiðlum vera bendlaður við fullyrðingar talsmanna Björgólfs um að þeir hafi fengið rangar upp- lýsingar um fjárhag og starfsemi Eddu í lok ársins 2001 þegar þeir keyptu nýtt og eldra hlutafé í fé- laginu.“ Einföld viðskipti Ólafsfell ehf., fyrirtæki Björg- ólfs Guðmundssonar, keypti eign- arhlut Vöku Helgarfells í Eddu sem var þá um 22%. „Þetta voru bara einföld viðskipti með hluta- bréf, í því sambandi var allt á hreinu,“ segir Ólafur. „Björgólfur óskaði ekki eftir neinum gögnum eða upplýsingum um fjárhag fyr- irtækisins frá mér eða öðrum úr mínum hluthafahópi.“ Áður en að sölunni kom hafði Björgólfur í talsverðan tíma verið í viðræðum um kaup á nýju hlutafé, sem átti að gefa út í Eddu, við fulltrúa Máls og menn- ingar, sem á þessum tíma átti meirihluta í fyrirtækinu og höfðu hann og hans menn fengið ýmis gögn og upplýsingar sem óskað var eftir frá þeim. Á þessum sama tíma var Björgólfur í viðræðum við Íslandsbanka um kaup á eign- arhlut bankans í Eddu. „Menn velta fyrir sér hvaða gagna fulltrúar Björgólfs hafi afl- að í sambandi við hugsanlega að- komu hans að félaginu,“ segir Ólafur. Hann segir nærtækt að minna á að núverandi forstjóri Eddu, Páll Bragi Kristjónsson, hafi sagt frá því í viðtali við tíma- ritið Frjálsa verslun í júní 2002, rétt eftir að kaupin voru gerð, að viðræður Björgólfsmanna við Mál og menningu hefðu staðið með hléum frá því í febrúar og fram í maí þetta ár. „Páll Bragi sagði að af hálfu Ólafsfells hefði verið unn- ið að undirbúningi vegna kaup- anna með faglegum hætti, með ráðgjöfum og endurskoðendum og að þeir hefðu fengið fjárhagsstöð- una staðfesta með áreiðanleika- könnun áður en kaupin voru gerð. Í því ljósi er eðlilegt að manni komi á óvart þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið síðustu daga um að eigendur Eddu hafi stórlega of- metið eignir fyrirtækisins á þess- um tíma. En hluthafar komu að sjálfsögðu ekki nálægt slíku mati á eignum eða bókabirgðum fyr- irtækisins.“ Ólafur segir mat á eignum Eddu hafa verið þá, eins og önnur ár, unnið af löggildum endurskoð- endum fyrirtækins, KPMG endur- skoðun. „Einhvers konar uppgjör sem samkvæmt blaðafréttum hefur farið fram milli þeirra aðila sem nú eiga Eddu, þ.e. Ólafsfells og Máls og menningar, í tengslum við hlutafjáraukningu hjá þeim á síðasta ári, tengist okkur auðvit- að ekki á nokkurn hátt. Þetta eru mál sem trúlega snerta innan- húshagsmuni þessa tveggja nú- verandi hluthafahópa.“ Deilur um uppgjörsaðferðir snerta okkur ekki Aðspurður hvernig hann ætli bregðast við málinu, segir Ólafur: „Við gerum ekki neitt. Staða málsins er einföld. Páll Bragi Kristjónsson, talsmaður fyrir- tækis Björgólfs, hefur sagt í fjöl- miðlum að þeir hyggist láta end- urskoðanda gera könnun á eignum og birgðum Eddu í árslok 2001. Hann hefur sagt að leiði hún eitthvað í ljós sem ekki var vitað fyrir verði tekin ákvörðun um framhaldið. Á því stigi munu menn væntanlega skoða málin. Ólafsfell hefur ekki gert neinar kröfur á hendur okkur og við sjáum ekki að deilur um upp- gjörsaðferðir geti snert á nokk- urn hátt einfalda sölu okkar á fimmtungs hlut í Eddu fyrir tveimur árum.“ Fyrrverandi stjórnarformaður Eddu um ásakanir núverandi eiganda Eiga engar kröfur á hendur okkur vegna viðskiptanna Ólafur Ragnarsson EITT af markmiðum ríkisstjórn- arinnar í jafnréttismálum er að uppræta launamun kynjanna að því er fram kemur í þingsályktun- artillögu um áætlun í jafnréttis- málum til næstu fjögurra ára. Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur lagt tillöguna fram á Alþingi. Í áætluninni er vitnað í kannanir sem sýna að kynbundinn launa- munur sé enn til staðar. „Síðustu kannanir hafa sýnt að yfirborganir og hlunnindi á al- menna vinnumarkaðnum og hjá hinu opinbera gangi frekar til karla en kvenna,“ segir í áætl- uninni. „Einnig hefur komið fram við samanburð hefðbundinna kvennastarfsgreina og hefðbund- inna starfsgreina karla sem krefj- ast sambærilegs námstíma að um verulegan launamismun sé að ræða. Ljóst er að leita verður leiða til að uppræta launakerfi þar sem stöðuheiti, föst yfirvinna og bíla- hlunnindi eru notuð til að bæta lág laun sem samið er um í kjara- samningum.“ Er því bætt við að markmið ríkisstjórnarinnar sé að uppræta launamun kynjanna þannig að jafnrétti náist á þessu sviði. Meðal þess sem lagt er til að verði gert er að skipa nefnd sem hafi það hlutverk að meta aðferðir til að mæla kynbundinn launamun og skila um það skýrslu til ráð- herra. Jafnframt er lagt til að end- urtekin verði könnun frá árinu 1995 um þá þætti sem hafa áhrif á laun og starfsframa kvenna og karla. Er lagt til að niðurstöður þeirrar könnunar verði bornar saman við niðurstöður eldri könn- unarinnar. Aðgerðir gegn mansali Ríkisstjórnin setur sér fleiri markmið í jafnréttisáætluninni, til dæmis stefnir hún að því að jafna hlutföll kynjanna í nefndum, ráð- um og stjórnum á vegum hins op- inbera. Það takmark hefur hún reyndar sett í fyrri áætlanir en án þess árangurs sem til var ætlast. Er m.a. bent á í nýju áætluninni að hlutfall kvenna í opinberum nefndum, ráðum og stjórnum hafi ekki aukist á síðustu tveimur ár- um. Þá hyggst ríkisstjórnin áfram leggja áherslu á aðgerðir til að koma í veg fyrir verslun með fólk, að því er fram kemur í áætluninni, en þar er átt við verslun sem bein- ist einkum að konum og börnum. Er m.a. lagt til í því sambandi að stofnaður verði starfshópur til undirbúnings áætlunar um aðgerð- ir gegn verslun með fólk. Yfirborganir og hlunnindi ganga frekar til karla Félagsmálaráðherra leggur fram jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára Stefnt að því að útrýma launamun kynjanna á næstu fjórum árum FISKIBÁTINN Esther GK tók niðri í höfninni í Sandgerði fyr- ir hádegi í gær en báturinn festist á sandrifi í miðri höfn- inni. Mjög lítill sjór var í höfninni þegar báturinn festist og sand- rif þurrt langt út í höfnina. Tilraunir voru gerðar til að draga bátinn af rifinu en þær skiluðu ekki árangri. Báturinn fór síðan sjálfur á flot þegar flæddi að þegar eftir því sem leið á daginn. Engin hætta var talin á ferð- um meðan á þessu stóð og skip- verjar á Esther GK voru í engri hættu staddir. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Bárðarson Festist á sandrifi í höfninni Sandgerði. Morgunblaðið. Kaffihúsið Kaffi þing á Hótel Valhöll verður opnað í dag. KAFFI ÞING er nafn á nýju kaffi- húsi sem opnað verður við Hótel Val- höll á Þingvöllum í dag. Að sögn Elí- asar Einarssonar, veitingamanns á Hótel Valhöll, er hugmyndin sú að gestir sem koma á Þingvelli geti not- ið víðtækrar þjónustu. „Kaffihúsið er viðbót við þjónustuna, nú höfum við mikla breidd og getum tekið við gestum með ólíkar þarfir, hvort sem þeir vilja bara fá sér kaffisopa og köku eða borða veislumat.“ Elías segir að til hliðar við kaffi- húsið sé einnig boðið upp á samlok- ur, pylsur, gosdrykki og annað smá- legt sem hægt sé að grípa með sér fyrir þá sem það kjósa. Hann segir mikla humarveislu standa fyrir dyrum, ætlunin sé að bjóða upp á humar á viðráðanlegu verði um páskahelgina. „Við leggjum áherslu á að hér sé ekki hærra verð heldur en í bænum. Við viljum skapa fallegt umhverfi svo að fólk geti komið hingað og fundið fyrir því að það eigi svolítið í þessum stað, Þing- völlum.“ Elías hefur rekið Hótel Valhöll frá því í júní 2002. Hann segir það hafa staðið til í töluverðan tíma að opna kaffihús til hliðar við veislusal hót- elsins eins og nú hefur verið gert. Hótelið er opið allt sumarið en á vet- urna er opið eftir pöntunum. Um páskana verður boðið upp á gistingu fyrir 3.500 krónur á manninn með morgunmat, sem að sögn Elíasar er lægra verð en vanalega. Kaffi Þing tekur um 40 manns í sæti en veislusalurinn sjálfur um 250 manns. Samanlagt geta því hátt í þrjú hundruð gestir borðað á Hótel Valhöll, en Elías segir algengt að sal- urinn sé leigður út vegna brúðkaupa, ættarmóta, fermingarveislna eða annarra uppákomna. Kaffihús opnað á Þingvöllum FÉLAG íslenskra veðurfræðinga andmælir harðlega fyrirhugaðri lok- un veðurathugunarstöðvarinnar á Hveravöllum og lýsir stuðningi við sjónarmið sem bæði starfsmenn mælingardeildar og veðurfræðingar í spádeild Veðurstofu Íslands hafa ritað vegna málsins. Veðurfræðingar benda á að Hveravellir sé eina mannaða veð- urstöðin á hálendinu og upplýsingar þaðan hafi verið nýttar við veðurspá þar auk þess sem þær hafi verið notaðar til að gefa upplýsingar um flugveðurskilyrði yfir Íslandi. Hveravellir séu með langa samfellda veðurathugun eða í um 40 ár og mikilvægt sé að halda henni áfram. Starfsmenn mælingadeildar Veð- urstofunnar segjast bæði undrandi og vonsviknir með ákvörðunina. Þeir benda t.d. á að vegna mikillar og vaxandi umferðar um hálendið hafi verið vaxandi þörf fyrir upplýs- ingar um veðrið þar og veðurhorfur. Þar hafi Hveravellir gegnt lykilhlut- verki og komi til lagningar vetrar- vega yfir hálendið muni þessi þörf vaxa. Ráðningarsamningur við núver- andi veðurathugunarmenn á Hvera- völlum rennur út í júlí. Veðurstofa Íslands þarf samkvæmt fjárhags- áætlun að draga saman útgjöld um 20-30 milljónir króna á þessu ári. Andmæla lokun á Hvera- völlum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.