Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 11 LÆTIN í gröfunni virtust engin áhrif hafa á þennan rólyndis hund, en húsbóndi hans var að vinna við framkvæmdir í Hafn- arfirði. Vel virtist fara um seppa í gröfunni og hann hvíldist vel við fætur húsbónda síns og beið þol- inmóður eftir að vinnudeginum lyki. Hann virtist ekki leggja mik- ið af mörkun við gröftinn, en sennilega er hann þó tryggur vinnufélagi, sem víkur ekki frá eiganda sínum, þrátt fyrir eril sem margri mannskepnunni þætti nóg um. Morgunblaðið/Golli Tryggur vinnufélagi Á MORGUN, föstudaginn langa, fagna AA-samtökin hálfrar aldar afmæli sínu með opnum hátíðar- fundi í Laugardalshöll. Samtökin hafa frá upphafi hjálpað þúsundum einstaklinga að ná bata af alkóhól- isma og annarri fíkn. Í dag eru um 300 deildir starfandi víðs vegar um landið og er áætlað að vikulega sæki um 6.000 manns fundi á veg- um samtakanna. Samtökin hafa alltaf haldið upp á afmæli sitt á föstudaginn langa, lengi vel í Háskólabíói en síðar varð það húsnæði of lítið fyrir sam- komuna og var hún því flutt í Laugardalshöll. Tilviljun að samtökin voru stofnuð á föstudaginn langa Jóhannes Bergsveinsson, læknir og einn af ei-ölkum AA-samtak- anna á Íslandi, segir að tilviljun hafi ráðið því að samtökin voru stofnuð á föstudaginn langa, en það hafi reynst mikil blessun. „Frumkvöðlarnir að samtökun- um höfðu komist að þeirri niður- stöðu að það væri heppilegast að vera með fundina á föstudegi, því þá var útborgunardagur, helgin að byrja og vinnuvikunni að ljúka, og þá var mönnum hættara. Fyrir vikið völdu þeir föstudaginn, en vöruðu sig ekki á því að þann dag sem þeir höfðu valið til að byrja bar upp á föstudaginn langa. Þeg- ar þeir áttuðu sig á því tóku þeir því sem ákveðinni vísbendingu og héldu sínu striki. Síðan hefur verið haldið upp á afmæli samtakanna á föstudaginn langa.“ Jóhannes segir að á fimmtíu ára starfstíma samtakanna hafi þau hjálpað miklum fjölda alkhóhólista að ná bata. „Það skiptir náttúrlega mjög miklu máli, því í kringum hvern alkóhólista sem er veikur er hópur einstaklinga sem þjáist vegna sjúkdómsins, það er ekki bara sjúklingurinn sjálfur sem þjá- ist.“ Jóhannes bendir á að ef fimm einstaklingar séu í kringum hvern sem sæki nú fundi á vegum sam- takanna, hafi þau þannig áhrif á líf um 30.000 einstaklinga. Hann segir að flestar meðferð- arstofnanir hér á landi beini sjúk- lingum sínum inn í AA-samtökin og hvetji þá til að taka þátt í störf- um samtakanna, því menn viti að það sé besta leiðin til að ná bata. Aukin þörf Jóhannes segir að þörfin hafi aukist mjög á þessu tímabili. „Jafnframt því sem hefur verið slakað til í áfengismálum hér á landi hefur neyslan aukist og fleiri orðið sjúkdómnum að bráð. Þar af leiðandi er þörfin í raun sívaxandi. Það eru auðvitað margir af þeim sem eru veikir í dag sem eru með blandaða fíkn og sækja bata sinn til samtakanna þó þau hafi upp- haflega verið stofnuð af fólki sem átti við áfengisvanda að stríða.“ Hátíðarfundurinn í Laugardals- höll annað kvöld er öllum opinn. Fundurinn hefst klukkan 20.30, en húsið verður opnað klukkan 19.30. Fulltrúi frá svæðisskrifstofu AA- samtakanna í Bandaríkjunum og Kanada ávarpar fundinn, en að öðru leyti verður dagskráin hefð- bundin. Að fundi loknum verður boðið upp á kaffiveitingar. Einnig verða afmælisfundir á Akranesi, Ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Eg- ilsstöðum og jafnvel víðar, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Hátíðarfundur í tilefni af 50 ára afmæli AA-samtakanna í Laugardalshöll Hafa hjálpað þúsundum að ná tökum á áfengisfíkn UM EITT hundrað nemendur hafa lagt stund á nám til meist- araprófs í stjórnsýslu- fræðum (Master of Public Administration eða MPA-nám) við Háskóla Íslands í vet- ur en vinsældir slíks náms hafa farið vax- andi á undanförnum tveimur áratugum. Þetta er fyrsti vetur- inn sem námið er kennt sem fullgilt MPA-nám til 60 ein- inga en námið tilheyr- ir stjórnmálaskor fé- lagsvísindadeildar. Gerð er krafa um a.m.k. BA- eða BS-próf en að sögn Ómars H. Kristmundssonar, lektors í stjórnsýslufræðum við HÍ, hafa langflestir sem leggja stund á námið einnig umtalsverða reynslu í starfi hjá hinu opinbera. Margir þeirra séu sérfræðingar á ýmsum fagsviðum sem vanti hugs- anlega viðbótarþekkingu á fjármál- um, rekstri, stjórnun og o.s.frv. Það séu slíkir þættir sem þetta fólk sé að sækjast eftir og MPA- námið henti því vel þar sem þar sé tekið mið af rekstri opinberra stofnana. Meirihluti nemenda kemur úr opinbera geiranum „Í áfanga sem ég kenni núna er fólk með fjölþætta starfsreynslu t.d. bæði embættismenn í stjórn- arráðinu og ýmsir stjórnendur op- inberra stofnana,“ segir Ómar. Hann segir flesta nemendurna vera í starfi eða tímabundnu náms- orlofi. „Það er kennt á morgnana, flest- ir áfangar eru kenndir frá kl. átta til tíu. Það er viðleitni til þess að taka tillit til fólks sem er í starfi. Víða erlendis er kennt í lok vinnu- dags en við ákváðum að kenna í upphafi dags og það virðist vera al- menn ánægja með það.“ Ómar seg- ir í kringum hundrað manns hafa lagt stund á MPA-námið í vetur. Margir séu að taka námið á eitt- hvað lengri tíma enda sé mælt með því að fólk í fullu starfi taki ekki mikið fleiri en tvo áfanga. „Þetta er 60 eininga nám og þar af er lokaverkefni 15 einingar og svo eru 15 einingar starfstími og fólk með mikla reynsla fær þær ein- ingar metnar. Þannig að stór hluti af þeim hópi, sem nú er í nám- inu, er að taka 45 ein- ingar.“ Ómar segir að sér hafi fundist námið ganga vel fyrir sig. „Auðvitað var gam- an að sjá hversu margir sýndu náminu áhuga og þá ekki síð- ur hversu margir þeirra eru með mikla starfs- reynslu. Ég held að hin mikla þátt- taka gefi einmitt til kynna þörfina á námi sem þessu.“ Ómar segir meirihluta nemenda koma úr opinbera geiranum en hinum hópnum megi skipta í tvennt, hluti sé fólk sem hafi starf- að innan einkageirans og svo nem- endur sem hafi nýlokið BA- eða BS-námi og hafi starfað stutt á vinnumarkaði. Um tíu manns í fjarnáminu „Hópur fjarnema, líklega um tíu manns, tekur þátt í náminu alls staðar af landinu. Við tökum upp fyrirlestrana og þeir eru síðan settir á vefinn þar sem fjarnemar geta horft á þá. Þeir hafa verið í samstarfi um hópverkefni. Það er skemmtilegt hvað fjarnámið hefur tekist vel,“ segir Ómar og bætir við að við uppbyggingu námsins hafi menn haft hliðsjón af námskrá háskóla í Bandaríkjunum sem bjóði upp á sambærilegt nám. „Þetta er þannig samræmdur pakki sem á að gefa mönnum al- menna fræðilega þekkingu en líka ákveðna færni í vinnubrögðum. Ég held að ávinningurinn af náminu geti verið margþættur, m.a. að auka færni stjórnenda og starfs- manna opinberra stofnana. Einnig getur námið auðvitað leitt til fram- gangs innan kerfisins. Það hefur almennt sýnt sig að fólk með þessa prófgráðu, sérstaklega í Banda- ríkjunum, á auðveldara með að ná framgangi í starfi,“ segir Ómar. Nám til meistaraprófs í stjórnsýslufræðum við HÍ Nemendur oft með mikla og fjölþætta reynslu Ómar H. Kristmundsson ÍSLENSK erfðagreining (ÍE) og Kári Stefánsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, voru sýknuð í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær af kröfum Læknalindar sem krafðist 24,5 milljóna bóta úr hendi hvors aðila um sig, ÍE og Kára. Fram kemur í dómi Héraðsdóms að aðila hafi greint á um málavöxtu í veigamiklum atriðum. Af hálfu Læknalindar var því haldið fram að í lok apríl 2002 hefði Kári óskað eftir því við Guðbjörn Björnsson, stjórnarformann Læknalindar, að fyrirtæki hans tæki yfir og hefði umsjón með öllum lífsýnatökum fyrir Íslenska erfðagreiningu. Hefði tilboðið gengið út á að Læknalind sæi til þess að þáver- andi kostnaður ÍE vegna lífsýna- töku myndi lækka um 25–50% en fengi þess í stað öll útgjöld greidd vegna verkefnisins ásamt tiltekinni aukagreiðslu. Hefði Kári sagt að starfsemi Þjónustumiðstöð rann- sóknarverkefna (ÞMR) í Nóatúni og Hæðasmára væri illa rekin og best væri að koma verkefnunum öllum til einkaaðila. Þá hefði komið fram hjá honum að Læknalind gæti fengið allt húsnæði ÞMR gegn hóflegri leigu auk allra tóla og tækja sem til starfseminnar þyrfti. Hefði Kári fullyrt að hann hefði fullt umboð ÍE til að semja um þetta og hefði Læknalind sam- þykkt þetta. ÍE og Kári Stefánsson hefðu hins vegar hafnað því alfarið í mál- inu að samningar hefðu tekist um að Læknalind tæki yfir alla lífs- ýnatöku fyrir ÍE. Hins vegar hefði oft komið upp í umræðum Kára og Guðbjörns sú hugmynd að Lækna- lind gæti rekið ÞMR með skilvirk- ari og ódýrari hætti en þá hefði verið. Hefði meginkjarninn í þeirri hugmynd, að Læknalind tæki að sér rekstur ÞMR eða kæmi inn með öðrum hætti, verið sá að með því mætti ná fram lækkun á kostn- aði en á þessum tíma hefði ÍE unn- ið að leiðum til að draga úr kostn- aði við rekstur ÞMR. Dómari komst að þeirri niður- stöðu að Læknalind hefði ekki sýnt fram á það með haldbærum rökum að samningur hefði komist á milli fyrirtækisins og ÍE um að það tæki að sér alla eða hluta sýnatöku fyrir ÍE og yrði því að bera hall- ann af þeim sönnunarskorti. Með sömu rökum var hafnað þeirri málsástæðu Læknalindar að stofn- að hefði verið til samningsígildis milli félagsins og ÍE. Læknalind var gert að greiða ÍE og Kára samtals 300.000 krónur í málskostnað. ÍE og Kári Stefánsson sýkn- uð af kröfum Læknalindar FRÁR VE-78 strandaði í inn- siglingunni til Eyja í fyrrinótt upp úr klukkan fjögur, en var dreginn af strandsstað af Lóðs- inum og komið til hafnar um sexleytið í gærmorgun. „Þetta er ekki góður staður til að stranda á, grjót og klapp- ir. Það var hraustlegur kippur sem kom en skipið var á rólegri siglingu og vonandi litlar skemmdir ef þær eru þá ein- hverjar,“ sagði Sindri Óskars- son skipstjóri við Morgunblað- ið. „Við vorum að koma af veið- um, vorum með um 90 kör eða rúmlega 30 tonn sem við feng- um á Grindavíkurdýpi og Sel- vogsbanka,“ sagði Sindri. Frár VE er 170 tonna skip og 26 metra langt, smíðað í Skot- landi árið 1977 en breytt árið 1993. Á skipinu er 10 manna áhöfn og sagði Sindri að engan þeirra hefði sakað og hefðu þeir haldið kyrru fyrir um borð á strandstað. Strandaði í innsigling- unni til Eyja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.