Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 18
VEL heppnuð árshátíð Þela- merkurskóla í Eyjafirði var haldin í Hlíðarbæ í síðustu viku. Þar var meðal annars frum- fluttur nýr skólasöngur eftir Arnstein Stefánsson í Stóra- Dunhaga auk þess sem börnin skemmtu viðstöddum með ým- iss konar tónlistaratriðum og leikþáttum. Meðal annars var sýnt brot úr Grænjöxlum, leikriti sem Pétur Gunnarsson rithöf- undur og Spilverk þjóðanna sömdu og fluttu fyrir margt löngu. Morgunblaðið/Kristján Yngstu nemendurnir frumfluttu nýjan skólasöng á árshátíðinni. Hér til hliðar leika krakkar í 5. bekk skemmtilega út- færslu á leikritinu um Rauðhettu og úlf- inn, þar sem Rauðhetta fór m.a. til ömmu sinnar með pizzu, kók og hangikjöt. Fjölbreytt árshátíð Skólastarf Fæst á næsta blaðsölustað Áskriftarsími 586 8005 Sumarhúsið og garðurinn Síðumúla 15, 108 Reykjavík, Sími 586 8005, www.rit.is/askrift Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Veisla til styrktar fötluðum | Næst- komandi laugardag verður haldin mat- arveisla á Horna- firði sem kannski er ekki í frásög- ur færandi nema af því að veislan er í stærra lagi og ágóðinn renn- ur til góðgerð- armála. Það er Jón Sölvi Ólafs- son mat- reiðslumaður sem stendur fyr- ir styrktarveisl- unni en hann segist lengi hafa haft hug á að styrkja fötluð börn með einhverju móti. Það lá því bein- ast við fyrir kokkinn að slá upp glæsilegri matarveislu. Margir gefa vinnu og hráefni | Allir sem koma að styrktarveislunni með einum eða öðrum hætti, fólk í eldhúsi, þjónar, tónlistarfólk, fyrirtæki sem útvega mat- föng og aðrir, gefa alla vinnu sína og vörur. Í fréttatilkynningu segir að fullyrða megi að þessi styrktarveisla sé sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Aðeins um 100 sæti verða í veislunni, sem haldin verður í Nesjaskóla og hefst kl. 18 á laug- ardag. Verðinu er stillt í hóf og kostar aðeins 4.800 kr. fyrir manninn en alls eru sex réttir á matseðlinum fyrir utan fordrykk og kaffi. Fólki er þó að sjálfsögðu heimilt að greiða meira og styrkja þannig enn frekar verkefnið. Kaupa á lyftustól í sundlaugina | Fyrirhugað er að kaupa lyftustól í sund- laugina fyrir féð sem safnast í veislunni. Slíkir stólar auðvelda hreyfihömluðum aðgengi og gera þeim kleift að komast ofan í sundlaugina. Talsvert vantar á að aðgengi að sjálfri byggingunni sé nægi- lega gott en lyftustóllinn hlýtur að kalla á aðgerðir til að svo megi verða og að hann nýtist vel í framtíðinni. Þeir sem vilja legga þessu verkefni lið geta lagt inn á reikning nr. 1147-26- 100404 í Sparisjóði Hornafjarðar og ná- grennis, kt.: 640491-1249. Úr bæjarlífinu Jón Sölvi klár í slaginn. HÉÐAN OG ÞAÐAN Ásöfnunum á Eyr-arbakka gefur umþessar mundir að líta tvær ólíkar sérsýn- ingar, annars vegar er í Sjóminjasafninu á Eyr- arbakka sýningin „Þorpsbúar“ með ljós- myndum af íbúum á Eyr- arbakka sem Linda Ásdís- ardóttir ljósmyndari tók vorið 2003 og hins vegar er í borðstofu Hússins á Eyrarbakka portrettsýn- ingin „Myndir af skáld- um“ með listaverkum úr hluta af listaverkagjöf Ragnars Jónssonar í Smára til Alþýðu- sambands Íslands 1961 og sýnir portrettmyndir eftir ýmsa listmálara af ýmsum skáldum. Söfnin eru opin frá skír- degi til annars í páskum kl. 14–17 og til maíloka á laugardögum og sunnu- dögum kl. 14–17 og á öðr- um tímum eftir sam- komulagi við Lýð Pálsson safnstjóra. Eyrarbakkasöfn Margrét Jóns-dóttir, listakonaá Akureyri, hef- ur í tæp þrjú ár verið með vinnustofu að Gránu- félagsgötu 48 þar í bæ og í dag opnar hún lítið gall- erí á sama stað. Það verð- ur gert við hátíðlega at- höfn milli kl. 15 og 18 í dag og eru allir velkomn- ir. Margrét gerir bæði nytjahluti og listmuni. „Það má segja að gall- eríið verði sýning- argluggi fyrir mig en draumurinn er að í fram- tíðinni geti ég leigt öðrum listamönnum plássið fyrir stuttsýningar, til dæmis eina helgi,“ sagði Mar- grét við Morgunblaðið. Morgunblaðið/Kristján Margrét opnar gallerí Vegamál eru alltafefst á baugi, þegarþingmenn dreif- býlisins hittast. Halldór Blöndal orti: Í Víkurskarði í skafli sat. Skelfing var að reyna’ða. Elsku Drottinn! gef mér gat! Guð veit að ég meina’ða! Halldór hefur ásamt sjö öðrum alþingismönnum flutt þingsályktun- artillögu um að leggja veg norður Stórasand til Akureyrar og kallar Norðurveg. Karl af Laugaveginum orti: Ó, að við gætum, yndisleg, áður en lýkur nösum skotist norður Norðurveg í norðan garra þú og ég. Í tilefni af yrkingum um hvort pissa megi úti í blaðinu í gær er vert að rifja upp limru Kristjáns Karlssonar: Af ástæðum ótilgreindum, ef til vill flóknum, leyndum hann gat ekki pissað, sem gjörði oss svo hissa að við gátum ei heldur sem reyndum. Vegamál pebl@mbl.is Blönduós | Á fundi bæjarstjórnar Blöndu- óss sl. þriðjudag var samþykkt samhljóða ályktun um hálendisvegi, en bæjarstjórnin er andvíg þessum hug- myndum. „Bæjarstjórn Blönduóssbæjar mót- mælir harðlega tillögu til þingsályktunar um vegagerð úr Borgar- firði, um Stórasand yfir í Skagafjörð. Bæjar- stjórn álítur að með þessari vegafram- kvæmd sé verið að ganga þvert á hagsmuni íbúa í Norðvesturkjördæmi. Enn bíða ótal verkefni úrlausnar á þjóðvegi 1 og verja mætti meiri fjármunum í að auka umferð- aröryggi þar. Í því sambandi má benda á að á þjóðvegi 1 eru 66 einbreiðar brýr með tilheyrandi slysahættu. Bæjarstjórn hafnar því að umferðar- þungi þjóðvegar verði færður inn á hálend- ið með tilheyrandi umhverfisspjöllum. Bæjarstjórn skorar hér með á stjórnvöld að veittir verði fjármunir í að kanna þjóð- hagslega arðsemi legu þjóðvegar nr. 1 um Þverárfjall, Hegranes, Hjaltadal og í gegn- um Tröllaskaga með jarðgöngum yfir í Hörgárdal. Meginkostur þessarar leiðar er að hún liggur í námunda við alla stærstu þéttbýlis- staðina á þessum slóðum. Ennfremur leys- ir þessi leið af hólmi tvo fjallvegi, Vatns- skarð (hæst 420 m) og Öxnadalsheiði (hæst 540 m). Þjóðvegur þessi myndi sameina þjón- ustu- og atvinnusvæði þéttbýlisstaða á Norðurlandi öllu, stytta leiðina á milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur og síðast en ekki síst stuðla að jákvæðri byggðaþróun á Norðurlandi.“ Hálendisvegi harðlega mótmælt LÖGREGLAN á Húsavík kom ítalskri fjölskyldu á ferðalagi um Ísland til bjargar við Dettifoss í fyrradag, en hún sat þar föst í jeppabifreið sinni Að sögn lögreglunnar er vegurinn að Dettifossi lokaður vegna snjóa. Lögreglan dró jeppann lausan en ferðamennirnir voru vel haldnir og héldu áfram ferðalagi sínu um landið. Sátu föst við Dettifoss ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.