Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 24
SUÐURNES 24 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Grímsey | „Skólaferðalagið til „Ís- lands“ í vor er ofarlega í hugum eldri nemendanna í Grunnskól- anum í Grímsey og hefur verið í all- an vetur. Fjáröflunarleiðir fyrir ferðina hafa verið bæði fjölbreyttar og hugmyndaríkar. Boðið hefur verið upp á barnabíó með poppi og djús, gluggaþvott bæði í heima- húsum, sundlaug og félagsheimili sem hefur verið einkar kærkomið eftir tíðar vestanáttir. Krakkarnir hafa líka haft opið hús í skólanum einu sinni í mánuði. Áheitasund syntu þau og buðu eyjarbúum upp á máltíð strax á eftir. Skólajólablað stútfullt af góðu efni og fjölda auglýsinga var gefið út og nú síðast var það tombóla með stórkostlegu kökuuppboði. Allir fengu vinning því engin voru núllin og uppboðið á rjómaskreyttum veislutertum og matarlegum brauðréttum, sem mæður elstu nemendanna reiddu fram að venju, sló algjörlega í gegn. Menn spenntu bogann hátt í ákafa sínum eftir góð- um hnallþórum og var dýrasta kak- an slegin á annan tug þúsunda! Stuðningur íbúa er mikill og ein- lægur við skólann sem kemur fram í einstökum undirtektum við allar fjáraflanir skólabarnanna. Bros þeirra var því breitt þegar búið var að taka saman afrakstur kvöldsins og horfa þau nú fram á fræðandi og fjöruga daga á fastalandinu seinni partinn í maí. Morgunblaðið/Helga Mattína Kökur til sölu: Skólabörn í Grímsey efndu til kökuuppboðs til að fjármagna skólaferðalag upp á fastalandið og ekki vantaði stuðning Grímseyinga. Kökuuppboð vegna ferðar á fastalandið Ólafsfjörður | Hlynur Guð- mundsson, sjómaður í Ólafsfirði, hyggst setja á fót eins konar Sjóminjasafn í Ólafsfirði. Er hann búinn að ganga með þessa hugmynd í nokkur ár, en það var ekki fyrr en í vetur að hann tók fyrstu skrefin til að láta draum- inn verða að veruleika. Í síðustu viku fékk Hlynur jákvætt svar við umsókn sinni til atvinnuleys- isnefndar en þar fékk hann út- hlutað (í nafni sjómannadags- ráðs Sjómannafélags Ólafsfjarðar) 1 starf í 3,5 mánuð. Hugmyndin er að búa til safn sem nýtur sérstöðu, en ekkert sambærilegt safn er til á land- inu. Þarna verða til sýnis hlutir sem tengjast sjómennsku og út- gerð frá fornu fari til nútímans. Í byrjun verður hugsað um út- gerðarsögu í Ólafsfirði en safnið mun þó ekki einskorðast við það þegar fram í sækir. Hlynur stefnir að því að opna safnið á sjómannadag, það er sunnu- daginn 6. júní næstkomandi. Starfsmaður verður ráðinn til að skrá hluti og muni sem koma til með að verða sýndir á safninu og vonandi getur hann hafið störf um mánaða- mótin næstu. Flytja þarf alla þessa muni í húsnæði safnsins, en öll slík vinna fer fram í samstarfi við safna- fræðing. Hlynur segir að hann fái aðstoð frá Héraðssafni Eyjafjarðar. „Mig langar að koma því á fram- færi til fólks hvort það eigi ekki hluti í sínum fórum sem myndu sóma sér vel á svona safni,“ segir Hlynur Guð- mundsson. „Við erum að tala um allt milli himins og jarðar, fatnað og skó, verkfæri, dagbækur, myndir og sög- ur, einnig líkön, bara að nefna það. Ég er t.d. kominn með leyfi frá sýslumanninum í Ólafsfirði um að fá allar lögskráningar- bækur síðan útgerð hófst í Ólafsfirði.“ Hlynur segir að safn af þess- ari tegund hafi eitt sinn verið sett upp á vegum Þjóðminja- safnins og var það í Hafnarfirði. Þá átti að lána muni út á land en af því varð ekki og safnið lagðist af og því segist hann hafa ákveð- ið að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd. Hlynur er búinn að taka Aðal- götu 16 á leigu undir safnið. Það er húsnæði gamla Valbergs og síðan Valbúðar, sem hefur staðið autt í allnokkurn tíma. „Ég hélt að Ólafsfjarðarbær myndi taka Aðalgötu 16 á leigu undir bókasafn og jafnvel fleira, þegar bænum bauðst það í fyrra,“ segir Hlynur. „Ég var því mjög hissa þegar bærinn hafnaði þeim möguleika og stökk þá sjálfur á það, því þetta er langbesta húsnæðið í bænum undir svona safn. Húsið er tvær stórar hæðir og kjall- ari, meira en 600 fermetrar að stærð. Það er ekki hægt að fá betri aðstöðu og það í sjálfum mið- bænum,“ segir þessi stórhuga sjó- maður að lokum. Sjómaður hyggst opna sjóminjasafn í Ólafsfirði Morgunblaðið/Helgi Jónsson Stórhuga sjómaður: Hlynur Guðmundsson fyrir framan Aðalgötu 16, gamla Valberg, þar sem Sjóminjasafnið í Ólafsfirði verður. Keflavíkurflugvöllur | Eftir að hafa gengið með þann draum í maganum að vinna við flugvélar er Elsa Ýr Guðmundsdóttir farin að vinna sem flugvirki hjá Tækniþjónustunni á Keflavíkurflugvelli, dótturfélagi Flugleiða, og er hún fyrsta konan sem starfar sem flugvirki þar. Elsa segir að starfið henti konum í raun alveg eins og körlum. „Maður hefur alltaf haldið að þetta sé eins og með bifvélavirkjana, að maður þurfi að vera í sterkari kantinum til að geta unnið við þetta, en það er alls ekki þannig. Það þarf aðallega lagni og maður þarf að geta fylgt bók- unum,“ segir Elsa. Hún segir flug- virkja að vissu leyti þurfa að vera smámunasama, enda er mikil papp- írsvinna á bak við hvert verk til að öryggi sé fullnægt. Elsa er 28 ára, og er búin að vinna sem flugvirki í tvær vikur, en hún menntaði sig í faginu í Bandaríkj- unum. Hún segir að vissulega séu ekki margar konur í faginu, en þó hafi verið þrjár íslenskar konur á sama tíma í náminu í Bandaríkj- unum. Gaman að vinna við flugvélar Sjálf segist hún ekki hafa verið neinn ofboðslegur fiktari áður en hún fór í flugvirkjanám, ekki verið í bílaviðgerðum eða öðru þvílíku. Ákvörðunin um að læra flugvirkjann hafi því komið svolítið úr lausu lofti. Það er mjög mikið að gera hjá flugvirkjum á Keflavíkurflugvelli þessa dagana, en Elsa segir það bara skemmtilegt. „Það er bara gaman að geta verið að vinna við flugvélar, og svo er mórallinn mjög góður hérna. Ég held að það skipti mjög miklu máli. Ég hef ekki enn fundið neitt neikvætt við starfið, en ég er búin að vera svo stutt að það er ekki alveg að marka.“ Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Fyrsta konan: Elsa Ýr Guðmundsdóttir er fyrsta konan sem starfar sem flugvirki hjá Tækniþjónustunni á Keflavíkurflugvelli. Þarf lagni og smá- munasemi í starfinu Reykjanesbær | Starfsfólk Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) er sammála stefnu stjórnar spítalans, og segir aðstoðardeildarstjóri D- deildar að deildin henti hreinlega ekki sem hjúkrunarrými eins og kröfurnar séu í dag. Þegar D-álman var skipulögð, fyrir 25 árum, var gengið út frá því að þar yrði hjúkrunardeild. Síðan hefur mik- ið vatn runnið til sjávar og hugmyndir um öldrunarþjónustu hafa breyst mikið, segir Ástríður Vigfúsdóttir, að- stoðardeildarstjóri D-deildar á HSS. Hún segir deildina hreinlega ekki henta sem hjúkrunarrými fyrir aldr- aða, þetta sé sjúkradeild en ekki hjúkrunarheimili, sem eiga að virka meira sem heimili og minna sem sjúkrahús. Ástríður segir vissulega þörf fyrir langlegurými, og segir að t.d. mætti breyta einhverjum rúmum á Hlév- angi, sem er dvalarheimili fyrir aldr- aða, í hjúkrunarrými, en þar er sem stendur ekki boðið upp á hjúkrun. „Þar eru engir fagaðilar að vinna og okkur finnst að á þessu heimili ætti að breyta einhverjum rúmum í langlegu- rými. Þar hefur alltaf verið langur biðlisti af fólki að komast inn, en nú er svo komið að fólk er farið að flytjast þaðan aftur heim til sín vegna þess að það fær meiri þjónustu heima hjá sér. Þá fær það heimahjúkrun.“ 2–3 bíða eftir hjúkrunarrými Ástríður segir að gera verði grein- armun á hjúkrunarrými, og þjónustu- rými. Í hjúkrunarrými eru einstak- lingar sem þurfa hjúkrunarþjónustu, læknisþjónustu og aðra þjónustu fag- fólks. Í þjónusturými eru hins vegar einstaklingar sem ekki ráða við að halda eigið heimili, en þurfa ekki á hjúkrun að halda. Þörfin fyrir hjúkrunarrými fyrir aldraða hefur verið nokkuð á reiki, en Ástríður segir að í dag séu ekki nema 2–3 sem þyrftu að komast í langleg- upláss, en ekki 70 eins og oft sé haldið fram. „Talan 70 segir manni að það séu 70 manns búnir að fá vistunar- mat. En það er ekki það sama og að þeir einstaklingar séu allir á biðlista inn í hjúkrunarrými,“ segir Ástríður. Hún segir vistunarmat oft gert hjá fólki sem komið er með heimahjúkrun og því séu alls ekki allir af þeim sem hafa farið í vistunarmat að bíða eftir plássi. Ástríður segir heimahjúkrunina hafa góða yfirsýn yfir stöðuna, og þar á bæ segi menn að yfirgnæfandi meirihluti þeirra vilji frekar njóta heimahjúkrunar en að leggjast inn á stofnun, á meðan það sé hægt, og bendir hún á að á höfuðborgarsvæð- inu séu menn komnir enn lengra en HSS í þessari hugsun. Til að fara í langlegupláss þá þarf að vera búið að fullreyna heimahjúkr- un og dagvistun, segir Ástríður, og hún segir það ákveðna þumalputta- reglu að þegar einstaklingur þurfi fjórar eða fleiri heimsóknir frá heima- hjúkruninni á dag þá þurfi að huga að langlegurými. En almennt er það svo að fólk vill miklu frekar vera heima hjá sér heldur en að leggjast inn á hjúkrunarheimili eða sjúkrahús. Þögull meirihluti ánægður Ástríður segir starfsfólk á HSS orðið langþreytt á að fá ekki starfsfrið fyrir gagnrýni velmeinandi áhuga- manna, en hún segir hinn þögla meiri- hluta, þar á meðal sjúklinga sem nota sér þjónustuna, ánægða með stofn- unina. Hún segir fagaðila almennt mjög ánægða með stjórn spítalans og framkvæmdastjóra hans, Sigríði Snæbjörnsdóttur, og segir hana mjög hæfa og skila sínu starfi mjög vel. „Það er mikill einhugur hér innan- húss með þessa stefnu stjórnarinnar og fólk er ekki sammála því að breyta eigi D-álmunni í langlegudeild. Fólk sér alveg að þörfin er miklu meiri fyr- ir bráðaþjónustu,“ segir Ástríður. Hún segir þennan mikla einhug starfsfólksins skipta stjórnendur miklu máli, en segir fólk langþreytt á endalausum barningi. „Maður finnur einhvernveginn ekki mikinn stuðning úr bæjarfélag- inu, þó að maður viti að hér sé fullt af fólki sem er ánægt með þjónustuna og það sem er að gerast hér, en ein- hverra hluta vegna heyrist ekki hátt í því fólki,“ segir Ástríður. Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar ánægt með stefnuna Hugmyndir um öldrun- arþjónustu breyttar ÁRNI Leifsson, yfirlæknir skurð- deildar HSS og formaður lækna- ráðs HSS, segir deildina í D-álm- unni nýtta sem blandaða deild, enda ekki ástæða til mikillar sérhæfingar á spítala af þessari stærð. Deildin sinnir öllum bráðum vandamálum sem upp koma á Suð- urnesjum og eru þess eðlis að ekki þurfi að senda sjúklinginn á Land- spítala – háskólasjúkrahús í Reykja- vík. Eðli málsins samkvæmt eru margir af sjúklingunum eldra fólk, segir Árni. „Við læknarnir teljum að þetta sé heppileg nýting á þeirri aðstöðu sem hér er, og reikna með að menn vilji halda áfram á svipaðri braut,“ segir Árni. Hann segir læknana styðja þær aðgerðir sem stjórn spít- alans hefur gripið til, enda sé stjórnin í raun aðeins að framfylgja ráðleggingum fagaðila á stofnun- inni. Árni segir að almenn umræða endurspegli því miður ekki breyttar aðstæður í þjónustu við aldraða þar sem megináhersla sé lögð á þjón- ustu við aldraða í heimahúsum ef þess er nokkur kostur. Hann segir það mun betri kost fyrir alla aðila, eldra fólk vilji heldur vera heima og fá þjónustu, og það sé ódýrara fyrir heilbrigðisþjónustuna. „Mér líst mjög vel á starf þessara ungu og drífandi hjúkrunarfræð- inga í heimahjúkrun og ég veit að skjólstæðingarnir kunna mjög vel að meta þjónustuna,“ segir Árni. Heppileg nýt- ing á deildinni AÐALFUNDUR Ferðamálasam- taka Suðurnesja verður haldinn í Félagsheimilinu í Garði þriðjudag- inn 13. apríl nk. og hefst klukkan 17. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa mun Pétur Rafnsson frá Ferðamálaráði Íslands flytja erindi. Ferðamálasamtök Suðurnesja eru samtök ferðaþjónustufyrirtækja og áhugafólks um ferðaþjónustu, en allir áhugamenn eru velkomnir til að taka þátt í störfum fundarins. Ferðaþjónustufólk heldur aðalfund í Garði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.