Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 25

Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 25
AUSTURLAND MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 25 Fljót | Undanfarnar sex vikur hafa hjónin Anna Englund og Gunnar Björnsson, bændur í Sandfelli í Öx- arfirði, farið um Norður- og Austur- land með tækjabúnað og talið fóstur í sauðfé. Þau byrjuðu 14. febrúar og enduðu 27. mars og fóru um svæðið frá Fljótsdal á Héraði og vestur í Skagabyggð í Austur-Húnavatns- sýslu. Þá voru þau búin að skoða 28 þúsund fjár. Skagfirðingar gripu þessa þjónustu fegins hendi og var talið á 35 bæjum um 6.000 kindur. Fréttamaður tók Gunnnar tali þegar hann kom í Fljótin á dögunum og spurði hann útí lambatalninguna sem er eitt það nýjasta í sauðfjárbú- skapnum á síðustu árum. „Upphafið er það að hingað til lands hefur komið norskur maður með fangskoðunartæki undanfarna þrjá vetur. Hann hefur skoðað fé hjá allmörgum bændum á Vesturlandi en engan veginn komist yfir að sinna öllum sem óskað hafa eftir. Það var farið að ræða þetta hér í Fjárrækt- arfélaginu síðastliðinn vetur þ.e.a.s. að félagið keypti tækið og síðan yrðu einhverjir aðilar sem sæju um að bjóða út þessa þjónustu þ.e. fang- skoðunina. Endirinn varð þó sá að við hjónin keyptum tækið sjálf og sæjum um fjármögnunina og að bjóða út þessa þjónustu á meðal bænda. Síðan þá höfum við svo farið með það milli bæja og skipst á að vinna með því. Við byrjuðum á að fara og læra á verkfærið hjá Norðmanninum suður á Hesti í Borgarfirði. Það er alveg ljóst að það tekur 2–3 ár að ná há- marks nákvæmni í talningunni. Við höfum sagt bændum að við séum sæmilega sátt ef við náum 90% rétt- um í ár. Við erum hins vegar næsta viss um að á sumum bæjum munum við ná hærra hlutfalli réttu en það fer þó mest eftir aðstöðu í húsum og ekki síst ástandi ánna sem við skoðuðum þ.e.a.s. hversu fullar þær voru við skoðun. Þriðja atriðið til þess að ná góðri talningu er að fóstrin séu ekki orðin of gömul. Yfir 95 daga gömul fóstur gefa ávísun á mistalningu. Samkvæmt upplýsingum frá Norðmanninum þá væri það talsvert góður árangur að ná þessum 90% ár- angri. Svo við vonum bara það besta en eitt er víst að á næsta ári komum við tvíefld til leiks, og reynslunni rík- ari. Það eru sérstaklega þrílemburn- ar sem við höldum að geti blekkt okkur. Til gamans má geta þess að Norðmaðurinn spurði okkur á dög- unum hvort við yfir höfuð hefðum fundið einhverjar þrílembur! Mark- miðið í ár er að gera þetta eins vel og við getum og einnig að kynna þetta fyrir bændum, en aðsókn í þetta hef- ur verið meiri en við áttum von á. En við bíðum mjög spennt eftir sauð- burðinum, þegar árangurinn af þessu kemur í ljós bæði á okkar búi og hjá öðrum“ sagði Gunnar. Fóðrun ánna hagað eftir því hvað mörg fóstur þær eru með Fangskoðunartækið, sem er að uppistöðu tölva, kostaði um eina og hálfa milljón króna. Auk þess er skoðunarbúr heimasmíðað sem kind- in er sett í. Búið er að smíða þrjú slík búr til þess að uppfylla kröfur yf- irdýralæknis um sóttvarnir. Nauðsynlegt er vegna sjúkdóma- varna að þrífa búnaðinn á hverjum bæ, en sjálf fá þau utanyfirföt og skótau hjá hverjum bónda. Gunnar segir að ávinningur bænda af fóst- urtalningunni sé að með henni megi haga fóðrun ánna eftir því hvað mörg fóstur þær séu með. Þannig sé hægt að fóðra þrílemburnar meira en aðr- ar og einlembur minna og svo verði líklega fylgst sérstaklega með ein- lembunum á sauðburði því menn reyni oftast að koma öðru lambi und- ir þær. Þá sé einnig hægt að fóðra tvílembda gemlinga betur en aðra og fá þannig betri burð úr þeim. Þó verði hver bóndi auðvitað sjálf- ur að ákvarða hvernig hann nýtir sér þessa talningu til hagræðingar á sínu búi en möguleikarnir eru marg- víslegir, segir Gunnar. Hafa talið fóstur í 28 þúsund kindum Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Í fjárhúsunum: Gunnar og Anna við fangskoðunartækið. Jóhannes, bóndi á Brúnastöðum, er brosleitur enda Gunnar nýbúinn að tilkynna honum að síð- asta ær gangi með þrjú lömb, en þrílembingar geta verið tækninni erfiðir. Grundarfjörður | Togskipið Þor- varður Lárusson frá Grundarfirði var á veiðum fyrir síðustu helgi á Eldeyjarbanka þegar smyrill settist á dekkið. Reyndist hann nokkuð þrekaður svo að skipverjar náðu honum fljótt og tóku að hlúa að hon- um. Hann braggaðist fljótt og gæddi sér á kjötsúpu með skipverjum. Að sögn skipstjórans á Þorvarði, Sigurðar Óla Þorvarðarsonar, höfðu skipverjar samband við Nátt- úrufræðistofnun, og var þeim tjáð að smyrill þessi væri með þeim fyrstu sem kæmu til Íslands á þessu vori og líklegast frá Skotlandi. Þeg- ar Þorvarður Lárusson kom til Grundarfjarðar um síðustu helgi var smyrlinum sleppt á vit íslenskr- ar náttúru. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Spakur smyrill: Fuglinn hændist að skipverjum og situr hér á öxl Hjart- ar Guðmundssonar. Smyrill um borð í Þorvarði SH Neskaupstaður | Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hyggst nýtt ol- íufélag, Íslensk olíumiðlun ehf., hefja starfsemi í Neskaupstað á árinu. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu danska olíufélagsins Malik Supply Ltd, en einnig standa að því nokkrir innlendir aðilar, m.a. Salur ehf. Það fyrirtæki fékk hinn 20. nóvember sl. úthlutað lóð fyrir að minnsta kosti tvo olíutanka í höfninni í Neskaup- stað. Ólafur Þ. Kjartansson, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar olíumiðl- unar, segir verið að kanna undirlag í lóðinni, en þar á til að byrja með að reisa tank sem tekur fjögur þúsund tonn af olíu. „Svona tankur hefur áhrif eina sautján metra ofan í jörðina og því fengum við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða til að gera þar kjarnabor- un.“ Sé undirlagið fullnægjandi segir Ólafur strax verða ráðist í byggingu tanksins, en ella þurfi að fergja lóð- ina og geti það tekið nokkra mánuði. Höfnin í Neskaupstað ákjósanleg Ólafur segir líklegt að umferð er- lendra skipa aukist í höfninni í Nes- kaupstað með tilkomu Íslenskrar ol- íumiðlunar. „Það eru afar mikil umsvif í höfn- inni í Neskaupstað og þeir vel í stakk búnir þar til að taka við aukinni skipaumferð“ segir Ólafur. „Höfnin er því ákjósanlegur grundvöllur fyr- ir starfsemi af þessu tagi.“ Ólafur segir að styrkur Íslenskrar olíumiðlunar í samstarfinu við Malik liggi ekki síst í því að danska fyr- irtækið sé stöðugt með skip á Atl- antshafinu. „Ef við þurfum olíu geta skip komið með hana með mjög skömmum fyrirvara. Því þurfum við ekki að byggja mjög stórar birgða- stöðvar.“ Ólafur segir sérþjálfaða miðlara starfa hjá Malik við að ná besta verði í olíukaupum á hverjum tíma víðs vegar um heim. „Malik gerir einnig miklar kröfur um gæði. Það er regla hjá þeim, og mun gilda hjá okkur, að þegar olíu er dælt um borð í skip eru tekin þrjú sýni sem fara til okkar, skipstjóra og útgerðar og þau geymd í hálft ár til staðfestingar á gæðum olíunnar,“ segir Ólafur. Þjónusta á úthöfum Ólafur er ósmeykur við sam- keppnina og segist viss um að fyr- irtæki sitt muni skapa áþreifanlega samkeppni í eldsneytissölu til fiski- skipaflotans. Malik Supply Ltd var stofnað árið 1989 í Danmörku, með það að mark- miði að þjónusta alþjóðlega fiski- skipaflotann í hafi um eldsneyti, ol- íur og rekstrarvörur. Malik er svokallað „bunkers“ fyrirtæki, þ.e. það selur úr sérstökum olíuskipum eldsneyti, olíur og rekstrarvörur til skipa á höfunum, aðallega á Norður- og Suður-Atlantshafi. Einkum hefur fyrirtækið þjónustað fiskiskip, en er nú í auknum mæli byrjað að sinna flutningaskipum samhliða. Malik gerir nú út um tug olíusöluskipa en er einnig með aðstöðu til eldsneytis- sölu í höfnum. Íslensk olíumiðlun ehf. nýr samkeppnisaðili í sölu eldsneytis til íslenskra og erlendra fiskiskipa Höfnin í Neskaupstað fær toppeinkunn Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Höfnin í Neskaupstað: Danskt olíufyrirtæki hyggst láta reisa olíutanka utanvert í höfninni og bjóða fiskiskipum eldsneytisþjónustu. LANDSSAMBAND íslenskra út- vegsmanna stóð fyrir því að fá hingað til lands leiguskip frá danska olíufélaginu Malik Supply í lok ársins 2000 og seldi það olíu beint til íslenskra skip á lægra verði en sem nam listaverði olíufé- laganna. „Það er allt jákvætt um það að segja að það sé einhver að koma inn á markaðinn og það verði auk- in samkeppni. Það er aðalatriði málsins,“ segir Kristján Ragnars- son, fyrrverandi stjórnarformað- ur LÍÚ. „Það er mjög athyglisvert að þeir setji sig upp fyrir austan, það kæmi þá loðnuflotanum mjög vel og svo aftur togaraflotanum sem gerður er út fyrir austan. Menn hafa haft tilhneigingu til að setja sig upp hér við [Faxa]flóann, Atl- antsolía er að því en þetta væri þá samkeppni á landsbyggðinni sem er mjög kærkomin,“ segir Krist- ján. Kristján Ragnarsson, fyrrv. formaður LÍÚ Athyglisvert að þeir verða fyrir austan STJÓRNENDUR hjá stærstu olíufé- lögunum, Esso, Skeljungi og Olís, telja ekki tímabært að tjá sig að marki um áform Íslenskrar olíu- miðlunar um að hefja sölu á olíu til fiskiskipa í Neskaupstað á árinu og reisa þar olíutank. Þeir segjast þekkja vel til Malik, sem eiga mun meirihlutann í nýja félaginu, enda hafi það um langt árabil selt olíu á rúmsjó til íslenskra skipa. Þeir segj- ast munu bíða og takast á við sam- keppnina þegar og ef af henni verð- ur. Eins og hver önnur samkeppni Jón Halldórsson, yfirmaður markaðssviðs stórnotenda hjá Olís, segir áformin virðast vera á frum- stigi og ósköp lítið um þau að segja að svo stöddu. „Þetta er eins og hver önnur samkeppni sem sýnir sig og við munum bara kljást við hana eins og alla aðra samkeppni þegar að henni kemur. Auðvitað taka menn stöðuna upp á nýtt þegar þetta fer í gang hjá þeim en miðað við þær yf- irlýsingar sem þeir hafa gefið sjálfir hef ég fátt um þetta að segja.“ Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Esso, segir þessi áform í sjálfu sér ekki koma á óvart. Danska olíufé- lagið Malik, sem eiga mun meiri- hluta í nýja félaginu, hafi um langt árabil selt olíu til íslenskra skipa, bæði hér við land en eins í Barents- hafi og á Flæmska hattinum og menn séu því vanir að keppa við það og þekki vel til þess. Að vísu sé það nýtt að það hyggist opna birgðastöð hér en Hjörleifur segist fagna auk- inni samkeppni. Þorsteinn V. Pétursson, á mark- aðssviði stórnotenda hjá Skeljungi, segir danska félagið lengi hafa selt olíu á sjó en það sé í raun fátt að segja um málið að svo stöddu. Nokkrir aðilar hafi haft uppi áform af þessu tagi en síðan ekkert orðið úr þeim. „Þannig að það er kannski best að bíða og sjá og segja sem minnst þangað til eitthvað er orðið að veruleika. Það er okkar afstaða,“ segir Þorsteinn. Stjórnendur olíufélaganna Munum takast á við samkeppnina þegar af henni verður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.