Morgunblaðið - 08.04.2004, Page 27

Morgunblaðið - 08.04.2004, Page 27
ar á páskaeggjum nú en í fyrra, en ef horft er lengra aftur í tímann hef- ur samskonar staða komið upp áður. Það er partur af þessum markaði.“ Ingvi Guðmundsson, kaupmaður í versluninni Spar, segir lambakjöt og léttreykt svínakjöt efst á baugi í sinni verslun. „Einnig hefur nauta- kjötið sótt í sig veðrið að undan- förnu. Kannski að fólk sé að verða leitt á hvíta kjötinu. Mér finnst áber- andi hvað nautakjöt á markaði er yf- irleitt gott, það eru engar beljur þar lengur. Ég finn það á fólki að það tekur eftir áberandi gæðamun.“ Spar hefur verið með flokkað lambakjöt á boðstólum frá því í nóv- ember á liðnu ári og segir Ingvi að sala á því sé langt yfir landsmeð- altali í versluninni. „Sala á lamba- kjöti hafði dregist saman um 11% í febrúar á landsvísu en aukist um 7% í minni verslun á sama tíma. Hlut- deild lambakjöts í minni kjötsölu hefur síðan vaxið um 10%, mest á kostnað svíns,“ segir hann. Ingvi segir verðsamkeppni í sölu páskaeggja hafa verið meiri en nokkru sinni fyrr að undanförnu. „Satt að segja finnst mér þetta komið út í algjört rugl. Í sumum tilvikum sýnist mér að menn séu að selja eggin nálægt 50% undir kostnaðarverði og hverjir haldið þið að borgi fyrir það? Eitt nýtt dæmi er 700 g egg sem kost- ar 1.659 krónur í innkaupum en var selt á 1.250 krónur út úr búð,“ segir Ingvi Guðmundsson. Kalkúnn og túnfiskur Friðrik Guðmundsson, aðstoð- arverslunarstjóri í Melabúðinni, kveðst hafa selt mikið af lambakjöti í páskamatinn. „En fólk tekur þetta mikið í bland við svína- og fuglakjöt. Páskalambið heldur sínu, sem og grillkjötið. Einnig seljum við nokkuð af kalkún og fiski. Fólk virðist enn borða fisk á föstudaginn langa og velur þá allt frá ýsu upp í ferskan túnfisk.“ Sala á páskaeggjum hefur farið svipað fram í ár og áður að hans mati. „Það er eitt verð í dag og ann- að á morgun. Mér finnst verð- mynstur á páskaeggjum svipað og undanfarin ár. Í sumum tilvikum eru dagsprísar í gangi sem eru undir innkaupsverði. Við höfum ekki farið út í þennan slag enda teljum við okk- ur hafa það mikla sérstöðu sem sæl- keraverslun,“ segir Friðrik að síð- ustu. veðri, vorstemmningu og skapi, segir rekstrarstjóri Nóatúns Morgunblaðið/Heiðar Þór NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.