Morgunblaðið - 08.04.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.04.2004, Qupperneq 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 31 STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2004-2005. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 31. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. EITT þekktasta verk tónlistarsög- unnar, Sálumessa eða Requiem W.A. Mozarts, verður flutt í Langholts- kirkju á morgun, föstudaginn langa. Það er Kór Langholtskirkju ásamt kammersveit kirkjunnar og fjórum einsöngvurum sem flytja, undir stjórn Jóns Stefánssonar. Sálumessa Mozarts er ósjaldan flutt í kringum páskana, enda dymb- ilvikan einn helsti tími sálumess- unnar. Þetta er í þriðja sinn sem Kór Langholtskirkju stendur að flutningi á verkinu. „Við fluttum hana bæði 1982 og 1991, en í síðara skiptið stjórnaði Petri Sakari kórnum ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þá fékk ég sjálfur að syngja með, sem var mjög gaman,“ segir Jón Stefánssson í samtali við Morgunblaðið. Þeir fjórir einsöngvarar sem taka þátt í flutningnum eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Nanna María Cortes, Gunnar Guðbjörnsson og Bergþór Pálsson, en konsertmeistari kamm- ersveitarinnar er Júlíana Elín Kjart- ansdóttir. „Við val á einsöngvurum þarf maður að hugsa sérstaklega um hversu mikill samsöngur er hjá þeim í Sálumessunni, þetta er eins konar kvartett. Maður velur því söngvara sem maður veit að falla vel saman að því leyti,“ segir Jón. Hann segist þekkja vel til allra söngvaranna, enda hafi þau oft sungið með honum áður. Ólöf Kolbrún söng meðal annars með honum í uppfærslu Sálumessunnar árið 1982 og Bergþór Pálsson hóf söngferil sinn í Langholtskórnum. „Það er reyndar orðið langt síðan Gunnar söng með mér síðast, enda hefur hann verið mikið erlendis. Svo er gaman að fá Nönnu Maríu til að syngja með okkur, en hún er fastráð- in við óperuna í Ósló og gengur mjög vel þar.“ Ekki hægt að semja fegurri tónlist Mozart lést áður en Sálumessan var fullgerð og kom það í hlut nem- anda hans, Franz Xavier Süssmayr, að ljúka henni fyrir hann. Sagt er að kvöldið fyrir andlátið hafi Mozart kallað til þrjá vini sína til að syngja með sér þá hluta verksins sem þegar voru fullgerðir. Eftir aðeins átta fyrstu taktana í Lacrimosa-kaflanum svonefnda brast Mozart í grát – hon- um var þá orðið ljóst að hann næði ekki að ljúka verkinu. Á heimili hans voru þá stödd, auk Konstönzu eig- inkonu hans, Soffía systir hennar og Süssmayr og lagði Mozart honum lín- urnar að því hvernig hann vildi að gengið yrði frá verkinu að honum látnum, en hann lést þá um nóttina. Þessi samtvinnun listsköpunar og þjáningar á banabeðinum hefur ljáð dauðdaga Mozarts ákveðinn helgiblæ og hefur Sálumessan stundum verið kölluð sálumessa Mozarts sjálfs. Að mati Jóns er Sálumessan eitt það fegursta verk sem samið hefur verið. „Það er auðvitað ekkert eitt verk sem er hægt að kalla fegursta verk sem samið hefur verið. En ég hef einmitt verið að ræða það við kór- inn, að það er ekki hægt að semja fegurri tónlist en Sálumessuna – hún er fullkomin músík. Það eru nokkur verk sem eru í þeim flokki. Sú umræða um hver samdi hvað í verkinu, Mozart eða Süssmayr, finnst mér engu máli skipta þegar maður hlustar á þessa músík,“ segir Jón, en hann valdi sér þetta verk til flutnings í tilefni af 40 ára starfs- afmæli sínu við Langholtskirkju sem hann fagnar um þessar mundir. „Það er orðið langt síðan ég hef stjórnað þessu verki og mig hefur alltaf lang- að til þess að gera það aftur. Reyndar er Sálumessan styttra en þau verk sem við flytjum venjulega og því komu upp ýmsar bollaleggingar um hvort ætti að flytja eitthvað annað verk með henni á tónleikunum. En það er svo erfitt að finna eitthvað sem passar. Sálumessan er hinn full- komni konsert og engu við hana að bæta.“ Tónleikarnir í Langholtskirkju á föstudag hefjast kl. 17. Þeir verða endurteknir annan laugardag, 17. apríl, kl. 17. Sálumessa Mozarts er hinn fullkomni konsert Jón Stefánsson Gunnar Guðbjörnsson Nanna María Cortes Ólöf Kolbrún Harðardóttir Bergþór Pálsson HIN ÁRLEGA páskasýning Mynd- listafélags Árnessýslu verður haldin á Hótel Selfossi dagana 8. til 18. apr- íl, að báðum dögum meðtöldum. Sýn- ingin verður opin frá kl. 14 til kl. 18 alla daga. Þetta verður 23. páskasýning Myndlistafélags Árnessýslu. Félagið hefur að auki staðið fyrir fjölda samsýninga frá stofnun þess. Í félaginu er hátt í hundrað manns og hefur það starfað af krafti með námskeiðum, sýningarferðum o.m.fl. Á þessari sýningu verða sýnd fjöl- breytileg myndverk er félagar hafa málað af innlifun og gleði, segir í kynningu. Verk á sýningunni á Selfossi. Páskasýning á Selfossi ELSTU myndverk Svavars Guðna- sonar í eigu Listasafns Austur- Skaftafellssýslu verða til sýnis í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði yf- ir páskana, 8.–12. apríl kl. 14–17. Sýningin er virðingarvottur við Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars, sem hefur gefið Sveitarfélaginu Hornafirði yfir 100 verk eftir mann sinn. Þá eru einnig til sýnis nokkur verk frá fyrstu Kaup- mannahafnarárum Svavars, sem Herdisi Dahlman Olsen, hefur gef- ið. Byggðasafnið í Gömlubúð verður einnig opið þessa daga á sama tíma, þar sem sjá má ný aðföng í bland við annað. Sýningarnar eru opnar kl. 14–17 og er aðgangur ókeypis. Verk Svavars á Höfn Á PÁSKADAG kl. 16 verða tón- leikar í Hömrum, sal Tónlistar- skóla Ísafjarðar, þar sem æska og fjör verða í aðalhlutverki. Þar koma fram þrír harmón- ikkuleikarar, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir (16 ára), Leif- ur Þorbergsson (19 ára) og kennarinn þeirra, rússneski harmónikkuleikarinn Vadim Fyodorov og spila þau öll á hnappaharmónikkur, en mjög fáir Íslendingar hafa tileinkað sér færni á það hljóðfæri enn sem komið er. Á fjölbreyttri efnisskránni er bæði einleikur og samleikur þremenninganna og flytja þau vinsæl harmónikkulög frá Finnlandi, Frakklandi, Rúss- landi og Ítalíu, „ragtime“ eftir Scott Joplin, lög eftir Bach og margt fleira. Helga og Leifur eru á leið til Frakklands í sumar í fylgd Va- dims og munu þar sækja sum- arnámskeið á vegum Centre National & International de Musique & d’Accordéon (la CNIMA) dagana 7.–18. júní. Þarna koma saman afburða harmónikkuleikarar víðs vegar að úr heiminum til að læra og leika. Í ferðinni er einnig fyr- irhugað að heimsækja bæinn Castelfidarde á Ítalíu, sem er e.k. „Mekka“ harmónikkunnar, en þar munu þau kynnast harmónikkusmíði og -viðgerð- um og láta sérfræðinga yfirfara og stilla hljóðfærin sín. Tónleikarnir á páskadag eru einmitt haldnir í því skyni að afla fjár til fararinnar, en einnig hafa þau fengið styrki frá fyr- irtækjum og stofnunum. Helga Kristbjörg Guðmunds- dóttir og Leifur Þorbergsson ásamt Vadim Fyodorov. Harmónikk- ur í Hömrum GUÐRÚN Ingimarsdóttir og Alej- andro Graziani halda tónleika í Ara- tungu á laugardag kl. 17. Á tónleik- unum flytja þau verk úr óperettum, söngleikjum og argentínska tangóa. Alejandro Graziani er fæddur og uppalinn í Buenos Aires í Argentínu og stundaði þar nám í söng, píanóleik og stjórnun. Að námi loknu starfaði hann sem æfingastjóri m.a. í Teatro Colón í Buenos Aires. Alejandro hef- ur búið í Þýskalandi frá 1992 og hefur starfað sem undirleikari, tangósöngv- ari og kórstjóri. Guðrún Ingimarsdóttir stundaði nám við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Elínar Óskar Ósk- arsdóttur. Guðrún hélt síðan til Lond- on þar sem hún sótti söngtíma hjá prófessor Vera Rosza. Frá 1995–1998 stundaði hún framhaldsnám við Tón- listarháskólann í Stuttgart hjá Sylvíu Geszty og í óperudeild skólans. Guð- rún hefur komið fram í mörgum óp- erum í Bretlandi og Þýskalandi og á tónleikum víða um Evrópu. Árið 1996 vann hún til verðlauna í alþjóðlegu Erika Köth-söngkeppninni. Söngtónleikar í Aratungu BIRGIR Rafn Friðriksson opnar sýningu á nýjum verkum í næsta galleríi, Næsta bar, Ingólfsstræti 1a, á laugardag kl. 17. Birgir hefur verið ötull við sýningarhald síðustu miss- erin og jafnframt má geta þess að hann rekur gallerí og vinnustofu í Engjahjalla 8, Teits gallerí. Sýning Birgis stendur til mánaðamóta. Birgir á Næsta bar ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.