Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 32

Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S turlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra var sýni- lega nóg boðið í ávarpi sínu á blaðamannafundi í gær er hann ræddi um umferðaröryggi á Íslandi og þá stað- reynd að ár hvert deyr á þriðja tug manna í umferðarslysum. Tilefni fundarins var útkoma skýrslunnar Afbrot í umferðinni, en í gær, 7. apr- íl, var alþjóðaheilbrigðisdagurinn, sem að þessu sinni var helgaður um- ferðaröryggi. „Það er óásættanlegt að á Íslandi látist eða slasist jafnmargir í um- ferðinni og raun ber vitni,“ sagði Sturla. „Á þriðja tug banaslysa er tala sem við erum orðin vön þegar árið er gert upp. Það er hins vegar tala sem við eigum ekki að sætta okkur við. Við hana bætast svo 200 alvarleg slys. Þessu getum við breytt og þessu verðum við að breyta.“ Hann sagði það staðreynd að flest alvarleg slys yrðu þegar ökumaður bryti lög, en þar væri um að ræða hraðakstur, ölvunarakstur og akst- ur án bílbelta. „Hugarfarsbreytingu þarf í umferðarmenningu okkar Ís- lendinga. Tillitsleysi ökufanta gagn- vart samferðamönnum sínum er með ólíkindum. Ökumenn skaða sjálfa sig með þessu háttalagi og skaða saklausa vegfarendur sem aka á löglegum hraða og virða um- ferðarreglur.“ 64 þúsund umferðar- lagabrot í fyrra Í skýrslunni kemur fram að um- ferðarlagabrot í málaskrá lögreglu voru rúmlega 64 þúsund í fyrra eða 72,6% af öllum skráðum brotum. Þar af voru hraðakstursbrot 25.285 eða 39,4% af öllum umferðarlaga- brotum. Hefur skráðum hraðakst- ursbrotum fjölgað mjög á undan- förnum árum og má m.a. rekja þá fjölgun til aukinnar notkunar á eft- irlitsmyndavélum. Samkvæmt at- hugun Vegagerðarinnar á þróun hraða á þjóðvegum á tímabilinu 1990–2003 hefur meðalhraðinn auk- ist á þessu tímabili þó að ökumenn virðist aðeins vera farnir að hægja á sér á síðustu þremur árum. Enn fremur sýna umferðargreinar Vega- gerðarinnar og Reykjavíkurborgar að bil á milli bíla er í mörgum til- fellum allt of stutt. Skýrslan leiðir í ljós að 92% bíl- stjóra nota bílbeltin á þjóðvegum landsins og er beltanotkun almennt betri þar en í þéttbýli þar sem hún er að meðaltali 80% en fer á sumum stöðum allt niður í rúm 50%. Belta- notkun á þjóðvegum er mest á sunnudögum eða 94% en minnst á miðvikudögum eða 89%. Tæplega 20% þeirra ökumanna og farþega sem létust í umferðarslysum árið 2002 notuðu ekki bílbelti. Vísbendingar um minnkandi ölvunarakstur Þá segir í skýrslunni að ýmislegt bendi til þess að dregið hafi úr ölv- unarakstri á undanförnum árum. Eftir fjölgun ölvunarakstursbrota á milli áranna 1999 og 2000 úr 1.959 í 2.482 hefur þeim fækkað á síðustu þremur árum og voru 1.757 árið 2003. Þá fækkaði ölvuðum ökumönn- um sem valda meiðslum eða dauða í umferðinni úr 61 árið 1998 í 42 árið 2002. Síðast en ekki síst hafa færri 17–20 ára ökumenn sagst hafa ekið ölvaðir á síðustu árum. Árið 1996 sögðust 49% hafa ekið ölvaðir en 20% árið 2002. Akstur undir áhrifum áfengis eða lyfja er engu að síður ennþá ein af þremur algengustu or- sökum banaslysa ásamt hraðakstri og vannotkun á bílbeltum. Enn fremur eru svefn og þreyta algeng orsök banaslysa sem og að biðskylda er ekki virt. Helstu orsakir alvarlegra slysa í umferðinni eru mannleg mistök af ýmsu tagi en ekki ytri aðstæður s.s færð, birta, ástand umferðarmann- virkja eða ökutækis. Til að renna frekar stoðum undir þetta benda skýrsluhöfundar á að flest banaslys eða 65% verða við bestu aðstæður þegar bjart er úti, færðin góð og veg- urinn þurr. 6% barna laus í bílum Samkvæmt könnun á notkun ör- yggisbúnaðar fyrir börn í bílum árið 2003 reyndust 6% barna vera laus í bílum, 12% notuðu eingöngu bílbelti og 82% notuðu viðeigandi öryggis- búnað. Enn fremur sátu 29 börn í framsæti bíla andspænis uppblásan- legum öryggispúða og voru því í lífs- hættu. Þrátt fyrir allt er þetta einn besti árangur sem náðst hefur frá því farið var að kanna notkun á ör- yggisbúnaði fyrir börn árið 1996. Á árunum 1995–2002 sátu að með- altali 16,8 % fanga í fangelsum lands- ins vegna umferðarlagabrota, eða að meðaltali 49 fangar á ári. Að auki sinntu að meðaltali tæplega 60 manns samfélagsþjónustu á hverju ári vegna umferðarlagabrota frá 1995–2003. Þá voru gefnir út samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir 2003 14.355 staðfestir refsipunktar vegna um- ferðarlagabrota það ár. Þar karlar 10.992 punkta en kon Mun færri voru sviptir ök um árið 2003 á grundvell fjölda en árið á undan eða 7 voru 68 karlar og 4 konur 67% þeirra sem voru sviptir indum vegna punktafjölda 2 yngri. Þá segir í skýrslunni a kostnaður vegna umferðar óhappa nemi allt að 20 m króna eða að meðaltali 26 krónum á hverja fjögurr fjölskyldu. Um helmingu kostnaðar kemur til vegna b og annarra umferðarslysa s Sókn gegn afbrotum í umferðinni á alþ „Tillitsleysi ökufanta með ólíkindum“ Samstarfshópur um umferðaröryggismál hefur blásið til sóknar gegn afbrotum í umferðinni og gefið út skýrslu sem leiðir í ljós að langstærsti brotaflokkurinn sam- kvæmt málaskrá lögreglu er umferðar- lagabrot sem kosta samfélagið 20 millj- arða króna á ári. D!!*/% :! 5: !; : H :!  + H    $ !!%-! ,! - ! ! :    I 3 % !;  *%  %; ) '6  Árekstur á 20 km hraða, e ir. Fólki gafst kostur á að fundinum í gær. „Það er óásættanlegt að á Íslandi látist eða slasist jafnmargir í um Böðvarsson á alþjóðaheilbrigðisdeginum í gær. Í SAMSTARFSHÓPNUM komið var á laggirnar ve þjóðaheilbrigðisdagsins, þjóðaheilbrigðismálastofn (WHO) stendur fyrir, eru fulltrúar eftirfarandi stof fyrirtækja og samtaka: Bindindisfélag ökuman lag íslenskra bifreiðaeige heilbrigðis- og trygginga málaráðuneytið, Landlæk isembættið, Landssamban lenskra akstursíþrótta, Lýðheilsustöð, Neyðarlín rannsóknanefnd umferða Rauði kross Íslands, ríkis Víðtækt s RÁÐLEYSI Í LYFJAMÁLUM Skýrsla Ríkisendurskoðunarum lyfjamarkaðinn, sem birtvar sl. föstudag og þær um- ræður, sem fram hafa farið hér á síðum Morgunblaðsins í kjölfar þess hafa leitt eftirfarandi í ljós: Kostnaður vegna lyfjanotkunar á hvern Íslending er 46% hærri en meðaltal í Danmörku og Noregi. Í ljósi þess, að lyfjakostnaður lands- manna nemur um 14 milljörðum króna er ljóst að mikill sparnaður er fólginn í því að ná þessum kostnaði niður á sama stig og hjá nágrönnum okkar. Að mati Ríkisendurskoðunar er skýringin á þessum umframkostn- aði okkar fyrst og fremst minni notkun samheitalyfja. Aðrar skýr- ingar eru t.d. fleiri apótek á hvern íbúa en í nágrannalöndum okkar. Lyfsölukeðjurnar virðast ekki hafa skilað þeirri hagræðingu, sem bú- ast hefði mátt við samkvæmt þessu. Lyfsölukeðjurnar viðurkenna, að þær fái afslætti frá Pharmaco, sem er nánast eini framleiðandi sam- heitalyfja á Íslandi. Þær neita að upplýsa hver afslátturinn er en segjast skila honum til sjúklinga en viðurkenna að þær skili honum ekki til aðalgreiðanda lyfjanna – íslenzka ríkisins. Tryggingastofnun segir, að ákvarðanir lyfjaverðsnefndar séu ein helzta ástæða fyrir háu verði samheitalyfja þar sem nefndin samþykki að samheitalyf séu seld á svo til sama verði og frumlyf í stað þess að verðleggja þau á u,þ.b. 20% lægra verði en frumlyf. Páll Pétursson, formaður lyfja- verðsnefndar og fyrrum ráðherra, er ekki sannfærandi í viðtali við Morgunblaðið í gær, þegar hann reynir að útskýra ákvarðanir nefndarinnar. Hann segir að nefndin geti ekki fastákveðið að verð samheitalyfja verði 20% lægra en frumlyfja eins og Inga J. Arnardóttir, deildarstjóri hjá Tryggingastofnun, telur að nefnd- in eigi að ákveða og segir að þá myndum við „detta í sama fen og Svíar“, sem hefðu lent í árekstri við Evrópurétt en segir líka að verð á samheitalyfjum verði tekið til endurskoðunar eftir umfjöllun undanfarinna daga. Hvers vegna var það ekki gert fyrr ef grund- völlur er á annað borð til endur- skoðunar, að mati Páls Pétursson- ar? Formaður lyfjaverðsnefndar virðist vera ráðalaus gagnvart þeirri ósvinnu, að sama lyf sé selt á 13 þúsund krónur hér sem kost- ar 1500–1600 krónur í Danmörku og Svíþjóð og ljóst að útskýringar talsmanna Delta um markaðs- ástand í Danmörku skýra ekki sama lága verðið í Svíþjóð. Páll Pétursson segir: „Ódýru lyfin eru einfaldlega ekki í sölu hér og það hefur enginn séð sér hag í því að flytja þau inn. Þeir vilja láta þessi lyf sivakor og sokor nægja á mark- aðnum hér.“ Er þetta hinn vígreifi og um- bótasinnaði stjórnmálamaður frá Höllustöðum, sem þannig talar? Ætlar hann að láta það gott heita að „þeir“ fari svona með íslenzka skattgreiðendur? Þessi vinnubrögð duga ekki. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra verður að grípa nú þegar til rót- tækra ráðstafana til þess að fram- kalla rækilegan uppskurð á inn- kaupum á lyfjum og verðlagningu á lyfjum. LÆKNAR OG LYFJAFYRIRTÆKI Sigurbjörn Sveinsson, formaðurLæknafélags Íslands, skrifar merkilega ritstjórnargrein í síð- asta tölublað Læknablaðsins, um samskipti lækna og lyfjafyrir- tækja. Hann hvetur til þess, að læknar rjúfi tengsl risnu og fræðslu, sem hann telur „auðmýkj- andi“ fyrir lækna og „andlega heilsuspillandi“. Þetta eru stór orð en tímabært að þau heyrist frá læknum sjálfum. Formaður Læknafélagsins segir í greininni samkvæmt frétt í Morg- unblaðinu í gær, „að því hafi verið haldið fram, að fræðsla sem læknar njóti hjá lyfjafyrirtækjum kunni að leiða til ótraustari ákvarðana um lyfjaávísanir og að risna sem læknar fái í tengslum við þá fræðslu geri þá vilhalla framleiðslu þeirra fyrirtækja, sem í hlut eigi“. Sigurbjörn Sveinsson segir að stingi kvöldverðarboð lyfjafyrir- tækja eða utanlandsferðir á aug- lýsingafundi um lyf í augu almenn- ings „fyrir utan að vera þýðingar- laust framtak fyrir menntun lækna, þá verða læknar að taka til- lit til þeirra sjónarmiða“. Það er ástæða til að fagna því, að forystumaður félagasamtaka lækna hefur tekið þetta mál til umræðu með svo umbúðalausum hætti. Kynnisferðir lækna á vegum lyfja- fyrirtækja hafa áður komið til um- ræðu og síðast fyrir ekki mörgum misserum. Lengi vel vörðu læknar þátttöku í slíkum kynnisferðum af umtalsverðri ákveðni en úr henni hefur dregið seinni árin. Nú er hins vegar talað mjög skýrt. Vænt- anlega taka læknar mið af þessum ábendingum þannig að breyting verði þar á. En jafnframt er ástæða til að vekja athygli á eftirfarandi um- mælum Sigurbjarnar Sveinssonar: „Það liggur fyrir að lyfjaframleið- endur og dreifingaraðilar lyfja leggja verulegt fé til fræðslu lækna og þar með símenntunar þeirra.“ Sjálfsagt er að rækilega verði kannað vegna þessara ummæla, hvort eitthvað þurfi að koma á móti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.