Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 42

Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 42
FRÉTTIR 42 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Slysa- og bráðamóttaka, Landspítali – háskóla- sjúkrahús, Fossvogi: Slysa- og bráðamóttaka Land- spítala – háskólasjúkrahúss, Fossvogi, er opin allan sólarhringinn og sinnir slysa- og neyðartilfellum. Sími slysadeildar er 543 2000. Sjá nánari upplýsingar á þjónustusíðu Morgunblaðsins. Slökkvilið, sjúkrabifreið og lögregla: Neyðarnúmer fyrir allt landið í síma 112. Læknavaktin, Smáratogi: Opið er yfir hátíðarnar sem hér segir: Skírdag, föstudaginn langa, laugardag, páskadag og annan páskadag kl. 9–23.30. Símaþjón- usta og vitjanaþjónusta allan sólarhringinn í síma 1770. Í síma 543 1000 fást upplýsingar um göngudeildir. Á Akureyri er síminn 848 2600 sem er vaktsími læknis. Neyðarvakt tannlækna: Opið verður á stofum eft- irtalinna tannlækna, kl. 11–13. Skírdag: Kristinn Þorbergsson, Síðumúla 28, Rvk, sími 861 7666. Föstudaginn langa: Jón Hjaltalín Gunnlaugsson, Garðatorgi 3, Garðabæ, sími 565 6588. Laugardag: Jónas B. Birgisson, Laugavegi 126, Rvk, sími 552 1210. Páskadag: Bjarki Ágústsson, Staðarbergi 2–4, Hafn- arf., sími 565 1600. Annan páskadag: Kjartan Örn Þorgeirsson, Skipholti 33, Rvk, sími 588 8370. Á vegum Tannlæknafélags Íslands er ekki rekin neyðarvakt um kvöld og nætur og er sjúklingum bent á að snúa sér til slysadeildar sjúkrahúsanna þegar um alvarleg slys er að ræða. Sjá ennfremur heimasíðu TFÍ: www.tannsi.is Apótek: Sjá þjónustusíðu Morgunblaðsins. Bensínstöðvar: Skeljungur: Stöðvarnar við Bústaðaveg (Öskjuhlíð), Suðurfell, Vesturlandsveg, Reykjavíkurveg í Hafn- arfirði og Smárann í Kópavogi verða opnar allan sóla- hringinn um páskana. Aðrar stöðvar á höfuðborg- arsvæðinu eru opnar á skírdag og annan páskadag kl. 10–16 nema stöðvarnar á Birkimel, Hraunbæ, Langa- tanga og Reykjanesbraut verða opnar til kl. 18. Akureyri, á skírdag og annan páskadag er stöðin við Mýrarveg opin kl. 9–20 og stöðin við Hörgárbraut kl. 9–22. Lokað á föstudaginn langa. Páskadag er stöðin við Hörgárbraut opin kl. 10–16. Sjálfsalar opnir allan sólarhringinn. Olís: Á skírdag og annan páskadag eru Uppgrips- stöðvar opnar kl. 9–23.30. Á skírdag eru stöðvarnar í Hafnarfirði, Hamraborg, Háaleiti og Klöpp opnar kl. 9–18. Föstudaginn langa er opið í Álfheimum kl. 10– 20, lokað páskadag. Annan páskadag eru stöðvarnar í Hafnarfirði, Hamraborg og Klöpp opnar kl. 10–19.30. Korta- og seðlasjálfsalar eru opnir alla daga og næt- ur. Bilanir: Í Reykjavík skal tilkynna hitaveitu-, vatns- veitu- og rafmagnsbilanir í síma 516 6200, sem er sími hjá bilanavakt Orkuveitu Reykjavíkur. Ef óskað er aðstoðar vegna snjómoksturs, hálku eða flóða á göt- um skal hringja í bilanavakt borgarstofnana í síma 580 0430. Unnt er að tilkynna símabilanir í 145. Neyðarnúm- er er 112. Afgreiðsla endurvinnslustöðva: Lokað á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan páskadag. Op- ið laugardag kl. 10–18.30. Afgreiðslutími verslana: Verslanir Bónuss eru opnar á skírdag og laugardag kl. 10–19, lokað föstudaginn langa, páskadag og annan páskadag. Fjarðarkaup eru opin á skírdag og laugardag kl. 10– 16, lokað föstudaginn langa, páskadag og annan páskadag. Verslanir Hagkaupa eru opnar á skírdag og laug- ardag kl. 10–18, lokað föstudaginn langa og páskadag. Annan páskadag er opið kl. 12–18. Verslanir Nóatúns eru opnar á skírdag og laug- ardag kl. 10–21, lokað föstudaginn langa og páskadag. Annan páskadag er opið kl. 11–21. Verslanir 10-11 eru opnar skírdag, laugardag og annan páskadag kl. 9–24, lokað föstudaginn langa og páskadag. Verslanirnar í Lágmúla, Sporhömrum Grafarvogi og Staðarbergi Hafnarfirði og Akureyri eru alltaf opnar til kl. 24, nema föstudaginn langa og páskadag, þá er opnað á miðnætti. Bláa lónið er opið alla páskahelgina kl. 10–20. Sundstaðir í Reykjavík: Á skírdag og annan páska- dag er opið í Breiðholtslaug, Laugardalslaug og Vest- urbæjarlaug kl. 8–20, í Árbæjarlaug kl. 8–22, Graf- arvogslaug kl. 8–20.30, Sundhöllinni kl. 8–16 og Klébergslaug kl. 11–17. Á föstudaginn langa og páskadag eru sundstaðir opnir kl. 10–18, nema Klé- bergslaug og Sundhöllin eru lokaðar. Skautahöllin í Reykjavík er opin á skírdag, föstudag- inn langa og páskadag kl. 13–18 og annan páskadag er opið kl. 13–17. Leigubílar: Á Reykjavíkursvæðinu verða eftirtaldar leigubílastöðvar opnar allan sólarhringinn yfir páskana: BSR, sími 56 10000. Hreyfill Bæjarleiðir, sími 588 5522 og 553 3500. Borgarbílastöðin, sími 552 2440. Bifreiðastöð Hafnarfjarðar, sími 565 0666. Akstur Strætó bs.: Þjónusta Strætó bs. verður með hefðbundnu sniði um páskana. Á skírdag og annan páskadag er akstur samkv. sunnudagsáætlun. Á föstudaginn langa og páskadag hefst akstur kl. 13 og er ekið samkv. sunnudagsáætlun. Allar nánari upplýsingar má fá í þjónustusíma Strætó bs., 540 2700. Ferðir Herjólfs: Á skírdag er farið frá Vestmanna- eyjum kl. 8.15 og 16 og frá Þorlákshöfn kl. 12 og 19.30. Föstudaginn langa og páskadag er engin ferð. Annan páskadag er farið frá Vestmannaeyjum kl. 8.15 og 16 og frá Þorlákshöfn kl. 12 og 19.30. Innanlandsflug: Upplýsingar um innanlandsflug Flugfélags Íslands hf. eru veittar í síma 570 3030/ 460-7000 og í símum afgreiðslu á landsbyggðinni. Sími sjúkra- og neyðarflugs Flugfélags Íslands er 894 5390. Skíðastaðir: Upplýsingar um skíðasvæðið í Bláfjöll- um, Skálafelli og Hengli eru gefnar í símsvara 570 7711. Upplýsingar um skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri eru gefnar í símsvara 878 1515. Ferðir sérleyfishafa BSÍ: Norðurleið ekur á skírdag samkv. venjulegri áætlun, engin ferð á föstudaginn langa og páskadag. Annan páskadag er ekið samkv. sunnudagsáætlun. Sæmundur ekur á skírdag og annan páskadag samkv. sunnudagsáætlun. Engin ferð á föstudaginn langa. Á páskadag er ekið til Akraness og Borgarness kl. 17 og frá Akranesi kl. 15.15 og frá Borgarnesi kl. 14.45. Sérleyfisbílar Keflavíkur aka á skírdag, páskadag og annan páskadag samkv. helgidagaáætlun. Engin ferð á föstudaginn langa. Austurleið Kynnisferðir aka á skírdag og annan páskadag samkv. sunnudagsáætlun. Engin ferð á föstudaginn langa. Á páskadag er ekið frá Reykjavík til Selfoss kl. 12.30, 15, 18 og 20 og frá Selfossi til Reykjavíkur kl. 9.30, 13. 16.10 og 18.10. Þingvallaleið ekur samkv. áætlun alla daga. Nánari upplýsingar hjá BSÍ í síma 591 1000 og 562 1011. Minnisblað lesenda um páska Morgunblaðið/Ómar TÓNLISTARFÉLAGIÐ í Reykjavík hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er því að nú skuli hilla undir byggingu tónlistarhúss í Reykjavík. „Þau mikilvægu skref sem þegar hafa verið stigin fylla tónlistarunn- endur bjartsýni um að í náinni fram- tíð muni þjóðin loksins eignast verð- skuldað hús sem hýst getur allar tegundir tónlistar. Forsenda hönnun- ar, sem allt annað tekur síðan mið af, hlýtur að vera fullkominn hljómburð- ur. Hljómburðarstjórn er sérfræði- þekking sem fleygt hefur fram á und- anförnum áratugum enda nauðsynlegt að geta lagað hljómburð að þörfum hinna ólíku tímabila sí- gildrar tónlistar og að hinum ýmsu tónlistarstefnum samtímans. Óperulistin krefst hins vegar að tekið sé tillit til meira en hljómburðar. Hún þarf hljómsveitargryfju, svið og sviðsbúnað með svipuðum hætti og leikhús svo að óperusýningar verði ekki að taka mið af tæknilegum tak- mörkunum hvað þetta varðar. Nú er tækifæri til þess að skapa þessari list- grein viðeigandi umgjörð og það tækifæri ber að nýta. Reynsla ann- arra tónlistar- og óperuhúsa hefur sýnt að óperustarfsemi fer vel með öðrum reglubundnum flutningi sí- gildrar tónlistar. Margir af okkar þekktustu listamönnum sem reynslu hafa af slíkri samvinnu listanna á al- þjóðavettvangi hafa hvatt eindregið til þess að óperuflutningur verði fast- ur þáttur í starfsemi hússins. Tónlist- arfélagið í Reykjavík tekur heils hug- ar undir þau sjónarmið og bendir á að með þessu sé ekki verið að gera lítið úr mikilvægi þess að Sinfóníuhljóm- sveit Íslands eignist varanlegt heimili heldur er einmitt verið að tryggja stöðu tónlistarhússins í íslensku menningarlífi og styrkja ímynd þess og rekstrargrundvöll í komandi fram- tíð enda mun sviðsbúnaður nýtast til margvíslegra uppfærslna annarra en ópera. Það eru eindregin og skýr skoðun Tónlistarfélagsins í Reykjavík að í fyrirhuguðu Tónlistarhúsi sem rísa mun við austurbakka hafnarinnar eigi að vera hljómsveitargryfja, svið og sviðsbúnaður til óperuflutnings og að í rekstrarforsendum hússins eigi að gera ráð fyrir óperustarfsemi.“ Ályktun frá Tónlistar- félaginu í Reykjavík HEIMDALLUR, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, fagnar frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi um breytingar á fyrirkomulagi smá- söluverslunar með áfengi. Samkvæmt frumvarpinu verður matvöruverslun- um heimilað að selja léttvín og bjór. „Frumvarpið felur í sér jákvæðar breytingar á löngu úreltri einkasölu ríkisins. Verslun með áfengi á að vera í höndum einkaaðila líkt og aðrar vörur enda hefur ÁTVR fyrir margt löngu misst sjónar af þeim markmið- um sem versluninni er ætlað að hafa að leiðarljósi. Það frumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi gengur þó ekki nægilega langt í frjálsræðisátt. Í frumvarpinu felast óeðlilegt höft á verslun með áfengi, svo sem hvað varðar opnunar- tíma og hvaða verslunum verður heimilt að selja áfengi. Þá er það und- arlegt að sterkt áfengi eigi að vera undaþegið breytingum. Heimdallur hvetur þingmenn til að breyta framlögðu frumvarpi á þann veg að Áfengis- og tóbaksverslun rík- isins verði lögð niður. ÁTVR hefði betur horfið með Viðtækjasölu ríkis- ins og öðrum leiðum ríkisverslunum. Hið opinbera á ekki að reka verslan- ir,“ segir í ályktun Heimdallar. Heimdallur Fagnar frumvarpi um breytingar á sölu áfengis ICELANDAIR útskrifaði 6. apríl sl. fyrsta hópinn af fjórum sem und- anfarnar vikur hafa verið á und- irbúningsnámskeiðum fyrir störf um borð í vélum félagsins. Tuttugu og tveir nýliðar voru í þessum fyrsta hópi, en í heild eru þeir um 80 talsins sem hefja störf í sumar. Alls verða starfandi hjá Ice- landair um 700 flugfreyjur og flug- þjónar í sumar, eða fleiri en nokkru sinni fyrr í sögu félagsins. Icelandair hefur einnig ráðið inn 25 nýja flugmenn fyrir sumarið og verða þeir í heild um 240 í sumar, einnig fleiri en nokkru sinni fyrr. Félagið er að bæta við sum- aráætlun sína frá því á síðasta ári, eða um 20%. Icelandair flýgur í sumar í áætlunarflugi til 21 áfanga- staðar í Bandaríkjunum og Evrópu, þ.e. til Boston, Minneapolis, Balti- more, Orlando og New York í Bandaríkjunum og til Stokkhólms, Osló, Helsinki og Kaupmannahafn- ar, London, Glasgow, Amsterdam, Frankfurt, Hamborgar, Berlínar, München, Zurich, Parísar, Mílanó, Madrid og Barcelona í Evrópu, seg- ir í fréttatilkynningu. Nýliðarnir sem útskrifuðust 6. apríl sl. ásamt kennurum sínum. Fleiri flugfreyjur/ -þjónar og flugmenn en nokkru sinni fyrr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.