Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.04.2004, Blaðsíða 45
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 45 37.995kr. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 www.heimsferdir.is Mallorca Heimsfer›ir bjó›a flri›ja ári› í rö› beint flug til Mallorca í sumar og stórlækka ver›i› til flessa vinsælasta áfangasta›ar Spánar. Mallorca hefur veri› ókr‡nd drottning fer›amanna undanfarin 40 ár enda getur enginn áfangasta›ur státa› af jafn heillandi umhverfi og fjölbreyttri náttúrufegur›. A› auki eru strendurnar gullfallegar og a›sta›a fyrir fer›amenn frábær. Á Mallorca er au›velt a› lifa lífinu og njóta fless a› vera í fríi. Á eyjunni eru heillandi bæir sem hafa hver sinn sérstæ›a karakter og yfirbrag› og flví flreytist ma›ur aldrei á a› flakka um og kynnast n‡jum sjónarhornum á eyjunni fögru. Við stórlækkum verð á Mallorcaferðum 37.995 kr. M.v. hjón me› 2 börn 2-11 ára, 23. júní, Playamar, vikufer› me› sköttum og 8.000 kr. afslætti. Netver›. Ferðir til og frá flugvelli 1.800 kr. 39.995 kr. M.v hjón me› 2 börn, 2-11 ára, 23. júní, í 2 vikur, Playamar, me› 8.000 kr. afslætti. Netver›. Ferðir til og frá flugvelli 1.800 kr. 47.090 kr. M.v. 2 í íbúð, Playamar, vikuferð, 26. maí, með 8.000 kr. afslætti. Netverð. Ferðir til og frá flugvelli 1.800 kr. Fegursta eyjan N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 1 4 5 5 / si a. is 8.000 kr. afsláttur ef þú bókar fyrir 26. apríl. Valentin Club Í LEIÐARA blaðsins í gær, mánu- daginn 5. apríl, var m.a. fjallað um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og þær hugmyndir að banna umferð vélknúinna farartækja á Hvanna- dalshnjúk og svæðið þar í kring. Sú hugmynd að stofna þjóðgarð hefur mælst almennt vel fyrir hjá áhuga- fólki um ferðamennsku á hálendinu enda gera sér flestir, sem hafa farið um þetta stórbrotna landsvæði, grein fyrir því að þetta er hiklaust landsvæði sem þarf að vernda. En orðalagið í leiðaranum í gær fór fyrir brjóstið á mörgum jeppamanninum og varð ég satt að segja svolítið hissa við lesturinn því alhæfingarnar voru miklar og samansem merki sett á milli vélknúinna ökutækja og óæski- legra afleiðinga nútímamenningar. Ég hef ferðast um stóran hluta há- lendisins í nokkur ár og er ein af þeim sem ek um á svokölluðum breyttum jeppa. Ástæðan fyrir því að ég á slíkan jeppa er ekki sýnd- armennska eða stórmennskubrjál- æði heldur mikil ástríða á fjalla- mennsku og jeppamennsku almennt og er ég satt að segja orðin háð því að komast út fyrir borgarmörkin reglulega og upplifa hálendið beint í æð. Ef ég notaði ekki jeppann á þennan hátt myndi ég líklegast aka um á litlum fólksbíl! Stór hluti jeppa- fólks hugsar svipað og ég, við notum jeppann sem tæki til að komast á fjöll þar sem hægt er að njóta óspilltrar náttúru með því að ganga, aka eða fara um á skíðum. Það er nefnilega misskilningur að ferðafólk haldi sig við aðeins einn ferðamáta. Í ferðum mínum um hálendið snemma á vorin, þ.á m. jöklana, hef ég sjaldan orðið vör við göngufólk, nema í þau tvö skipti sem við ferðafélagarnir skutluðum þreyttum skíðamönnum í næsta fjallaskála. Það er helst að maður verði var við umferð einmitt í kringum fjallaskálana. Á Vatnajökli hef ég sjaldan orðið vör við aðra jeppamenn, þetta er svo mikið víð- erni að þarna rúmast margir ferða- langar á sama tíma ef það vill svo til að fleiri en einn hópur ferðalanga er á jöklinum. Tillögurnar um aksturs- bannið á Vatnajökli virðast vera byggðar á svolitlum misskilningi en að sögn á bannið að taka gildi 1. apríl og gilda alveg fram til 15. september. Í apríl og maí er ekki mikið um að göngufólk fari um jökul nema kannski örfáir skíðaleiðangrar. Þessir tveir mánuðir eru hins vegar á langbesta tíma ársins til þess að fara á jökul á breyttum jeppum. Í sjálfu sér er ekkert að því að banna umferð á hnjúkinn sjálfan, enda ill- fært að aka þangað hvort eð er. En bannið virðist eiga að ná vel út fyrir hnjúkinn en menn aka yfirleitt að honum og ganga þaðan upp. Göngu- fólk úr byggð kemur annars staðar upp, enda algengast að gengið sé á hnjúkinn að sunnanverðu t.d. frá Virkisjökli. Það er engin hætta á að göngufólk verði vart við jeppamenn, enda koma þeir að hnjúkinum ann- ars staðar frá og eru þeir t.d. ekki mikið á ferð á jökli eftir 1. júní enda verður jökullinn hættulegri yfirferð- ar á sumrin. En líkurnar á að hitta fyrir jeppa eru svo þverrandi litlar að ég skil ekki af hverju ekki er hægt að leyfa þessa mismunandi ferða- máta á sama tíma, þ.e. í apríl og maí. Einnig má nefna að fjöldinn allur af fólki getur ekki gengið alla leið úr byggð, en vill gjarnan fá að upplifa Hvannadalshnjúk nálægt og kannski ganga aðeins upp að honum en þarf að sætta sig við að gera það í slæmu tíðarfari. Þau rök koma fram í leiðaranum í gær að það sé „sjálfsagt“ að banna vélknúin ökutæki á jöklinum, þeim fylgi drasl og óþrifnaður. Nú gildir eflaust annað um leiðaraskrif en fréttaflutning, en þessi alhæfing er varla við hæfi blaðs eins og Morg- unblaðsins því hún felur í sér mikla fordóma. Umferð manna almennt, fótgangandi, akandi eða á skíðum fylgir jú stundum drasl, en það tíðk- ast, allavega á meðal ferðafélaga minna, að hirða allt upp eftir sig og taka með til byggða. Innan vébanda Ferðaklúbbsins 4x4 líðst ekki slíkur sóðaskapur sem nefndur er í leiðar- anum. Heldur ekki akstur utan vega eða önnur umhverfisspjöll. Nútíma- jeppamaður virðist nefnilega í flest- um tilvikum vera mjög umhverfis- sinnaður og meðvitaður um um- gengni sína um náttúruna og er rekinn öflugur áróður innan 4x4 um að ganga vel um þar sem maður kemur enda starfar innan klúbbsins mjög afkastamikil umhverfisnefnd sem m.a. hefur fengið viðurkenning- ar og einnig styrki frá Alþingi til þess að gefa út bæklinga um akstur á hálendinu til erlendra ferðamanna. Einnig hafa félagsmenn aðstoðað kortagerðarmenn við kortlagningu slóða og stikað margan veginn til þess að koma í veg fyrir utanvega- akstur. Félagsmenn Ferðaklúbbsins 4x4 hafa því brugðist frekar illa við þeim ummælum sem féllu í leiðara blaðsins í gær og fundið að sér vegið. Ég treysti því að Morgunblaðið muni leyfa öllum sjónarmiðum að koma fram í blaðinu í umfjöllun um þessar tillögur nefndar um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, ekki síst þeirra sem reynsluna hafa af ferða- lögum á vélknúnum ökutækjum um jökulinn og svæðið í kringum hann. Það yrði mikil synd ef aldagamall almanna- og umferðarréttur sem svo skýrlega endurspeglast í lögum og reglum um náttúruvernd ætti ein- göngu við um fótgangandi ferða- langa á Vatnajökli, Skeiðarárjökli og Eyjafjallajökli en vélknúin ökutæki annarra ferðalanga útilokuð. SOFFÍA EYDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR, Hólmatúni 35, 225 Bessastaðahreppi. Um Vatnajökulsþjóðgarð Frá Soffíu Eydísi Björgvinsdóttur: ÉG vil þakka Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa bréf í Morgunblaðinu þann 17. marz sl. um strætisvagna- biðskýli borgarinnar og nærsveita. Mig hefur lengi langað til að drepa niður penna um þennan óskapnað. Þegar þessir svokölluðu frændur okkar Danir komust ekki lengur upp með að selja okkur maðkað korn, þá lætur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í broddi fylkingar, plata inn á okkur þessum heilsuspillandi vistarverum frá AFA JC DECAUX, með rifur í öllum hornum, og við loft og gólf, sem þar af leiðandi halda hvorki vatni eða vindi, þvílíkt skjól, mögu- leiki að mætti herða í þeim þorsk- hausa fyrir Nígeríumarkað. Ég beið í einu svona með ungri dömu í fyrravetur í roki og hríð og auðvitað klæddist hún eins og hinar dömurnar, með bert á milli. Hún skalf náttúrlega eins og hrísla, sá ég því aumur á henni og bauð henni trefilinn minn um mittið, sem mér til undrunar hún þáði með þökkum. Ég hitti um daginn fyrrverandi bæjarstjóra og var að kvarta undan skýlunum. Hann sagði, „ha, eru þetta ekki fín skýli?“ Ég sagði: „Þú hefur náttúrlega aldrei brölt út úr fína jeppanum þínum og staðið þarna í eins og fimmtán mínútur í roki og byl“, frekar en Ingibjörg út úr Heklujeppanum, sem þeir skutu undir hana. Ég legg til að borgarstjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins komi með þá til- lögu að skýlin verði þétt á sumri komanda, eða þau verði keyrð austur á eyðikotið Haug, sem er ættaróðal Ingibjargar. Nálægir bændur mundu með glöðu geði lána haugsug- ur sínar til að jarða þennan ósóma. Ég hvet íbúa höfuðborgarsvæðis- ins til að stoppa bílana og skoða þessa forheimsku, og þá sjá menn hvernig R-listinn býr af sérstakri al- úð að æsku, öldruðum og þeim sem minna mega sín. P.S. Kjartan lýkur grein sinni á at- hyglisverðan hátt. Hann segir: Nið- urstaðan varð sú að gerður var ein- okunarsamningur um endurnýjun biðskýla án útboðs við danska fyr- irtækið AFA JC DECAUX. Í hvaða vasa renna umboðslaunin? SVEINN KJARTANSSON, Laufvangi 3, 220 Hafnarfirði. Hin gömlu kynni gleymast ei Frá Sveini Kjartanssyni: ÉG hefði gaman að láta orð í belg í sambandi við fjölmiðla, ríkisrekna eður ei. Mér finnst að litlu stöðvarn- ar séu vanmetnar og á neðanmáls- greina-grundvelli í íslensku fjöl- miðlaflórunni. Mér sýnist að öll fjölmiðlun sé í samkeppni við sjálfa sig því mark- aðurinn er lítill og hver einstaklingur dýrmætur, að því er mér virðist, og í sambandi við það vildi ég segja að litlu fjölmiðlarnir eru sterkir í sinni sérstöðu. Má benda á að stóru fjölmiðlarnir eins og Rúv og Stöð 2 sem eru mark- aðsráðandi eru þó í samkeppni við sjálfa sig um hlustun litlu stöðvanna. Þetta segi ég einfaldlega vegna alls þess auglýsingaflóðs sem þessar stöðvar hafa í gangi allan daginn til að auglýsa sjálfar sig. Radio Reykjavík er útvarpstöð sem er á algjöru sjálfseignarplani og er því með sín séreinkenni ríkari en nokkur önnur útvarpsstöð í þessari fjölmiðlaflóru og er dæmigert ein- kenni á frjálsri fjölmiðlun. Að vísu er hún ekki með fréttir á klukkutíma fresti en er þó sjálfstæður miðill. Reyndar mætti taka til miklu fleiri fjölmiðla og gera að umtalsefni en ég tek þetta sem dæmi til að vekja til umhugsunar. BJARNI ÞÓR ÞORVALDSSON, Hraunbæ 182, 110 Reykjavík. FM-urmullinn Frá Bjarna Þór Þorvaldssyni: MARGT kemur fram í huga okkar, sem við látum ekki frá okkur fara í töluðu máli. Svo er fyrir þakkandi. Það nefni ég að hemja mál sitt. Lík- lega erum við Íslendingar meðal þeirra þjóða sem láta allt flakka. Það er oft kallað að vera hreinskilinn. En svo er til málshátturinn: Oft má satt kyrrt liggja. Við eigum að hafa hemil á því, sem frá okkur fer í töluðu máli. Hið ritaða kemur ekki hér við sögu. Útlit okkar breytist með árum. Við bætum á okkur kílóum, hárið gránar og verður að lokum hvítt. Þetta þarf ekki að segja okkur. Við vitum það mæta vel. Þó var ég minntur á hvort tveggja nýlega af kunningjakonu minni. Hún sagði: „Þú ert orðinn feitur og gráhærður“. Eins og nauðsynlegt væri að segja mér þetta! Oft er nóg að hugsa það! Þegar ég ber saman Dani og Íslend- inga í þessu efni, megum við fara hjá okkur. Danir eru einkar þöglir um útlit og aldur annarra. Þeir dæma ekki eftir útlitinu, láta það liggja í þagnargildi. Að lokum eru hér tvö erindi, sem lúta að því, er ég hefi hér að framan verið að reifa: Sjálfsagt er það ei saga ný, að sjaldan þú mál þitt hemur. Og einatt hefur þú orð á því, sem upp í hugann kemur. En væri ei betra, vinur minn, þó vont sé þögn að bera, að hafa það fest í huga þinn, sem helst á þar að vera? Ekki meira að sinni, góðir lesend- ur. Þakka ykkur hringingar til mín og þakkarorð við og við, vegna bréfa minna í Morgunblaðinu. AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík. Að hemja mál sitt Frá Auðuni Braga Sveinssyni: Morgunblaðið/Kristinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.