Morgunblaðið - 08.04.2004, Qupperneq 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 49
Almennur hluti 1c
Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
ÍS
Í
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
Helgina 16. – 18. apríl n.k. verður Þjálfari 1c – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal. Námskeiðið sem er samræmt fyrir allar íþróttagreinar er 20 kennslustundir, að meginhluta
bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Haldið verður áfram að fjalla um starfsemi
líkamans og íþróttameiðsl. Farið verður yfir stefnu ÍSÍ í forvarnarmálum og einnig verður kynning á
notkun tölvu- og upplýsingatækni við þjálfun. Þátttakandi verður að hafa lokið almennum hluta 1b til
að komast á þetta námskeið. Námskeiðinu lýkur með skriflegu próf.
Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjáfarastigs 1c hlýtur réttindi sem
þjálfari hjá börnum 12 ára og yngri.
Verð á námskeiðið er kr. 8.000,- Skráningar þurfa að berast á netfangið andri@isisport.is
eða í síma 514-4000 í síðasta lagi miðvikudaginn 14. apríl.
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar fæst metin til eininga í
framhaldsskólum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar má finna á
www.isisport.is
Menntun
+
Fótbolti
www.fflillehammer.no
JÖKULL I. Elísabetarson fékk
rauða spjaldið undir lok fyrri hálf-
leiks þegar Íslandsmeistarar KR
sigruðu 1. deildarlið Hauka, 4:3, í
deildabikarkeppninni í knatt-
spyrnu á Leiknisvelli í gærkvöld.
Þó KR-ingar væru manni færri
meira en helming leiksins náðu
þeir að knýja fram sigur og úr-
slitamarkið gerði Gunnar Krist-
jánsson, 17 ára drengjalandsliðs-
maður, þegar 7 mínútur voru til
leiksloka. Sævar Eyjólfsson skor-
aði öll þrjú mörk Hauka.
ÍA varð í gærkvöld fyrsta liðið til
að tryggja sér sæti í 8-liða úrslit-
um deildabikarsins. Skagamenn
sigruðu Val, 2:1, á Leiknisvelli og
skoraði Stefán Þ. Þórðarson sig-
urmark þeirra átta mínútum fyrir
leikslok.
KIEL setti nýtt markamet í
þýsku 1. deildinni í handknattleik í
gærkvöld með því að sigra Pfull-
ingen, 48:25. Fyrir skömmu skor-
aði Kiel 47 mörk gegn Minden, og
það á útivelli. Johan Pettersson
var atkvæðamestur hjá Kiel, skor-
aði 11 mörk.
FLENSBURG er áfram efst og
vann Göppingen, 35:28, á útivelli.
Lars Krogh Jeppesen skoraði 11
mörk fyrir Flensburg en Jaliesky
Garcia gat ekki leikið með Göpp-
ingen vegna meiðsla.
GUÐJÓN Valur Sigurðsson
skoraði 3 mörk fyrir Essen sem
gerði jafntefli, 29:29, við Gumm-
ersbach. Ekkert mark var skorað
síðustu 4 mínútur leiksins. Oleg
Velyky skoraði 9 mörk fyrir Essen
og Kyung-Shin Yoon 10 fyrir
Gummersbach.
KRONAU/ÖSTRINGEN, lið
Guðmundar Hrafnkelssonar,
komst úr neðsta sætinu með því að
sigra Stralsunder, 26:21.
WETZLAR vann óvæntan stór-
sigur á HSV Hamburg, 28:16.
Gunnar Berg Viktorsson skoraði 5
mörk fyrir Wetzlar en Róbert Sig-
hvatsson komst ekki á blað.
GROSSWALLSTADT sigraði
Eisenach, 25:23, og skoraði Snorri
Steinn Guðjónsson eitt mark fyrir
Grosswallstadt.
DANIEL Stephan skoraði 10
mörk fyrir Lemgo og Volker
Zerbe 7 þegar lið þeirra sigraði
Nordhorn, 35:29, og komst upp í
þriðja sætið á ný.
FÓLK
HINN þekkti kylfingur Arnold
Palmer mun leika í síðasta sinn á
Mastersmótinu, sem hefst í dag á
Augusta-vellinum í Bandaríkj-
unum. Hann er 74 ára en hefur tek-
ið þátt í 50 Mastersmótum í röð.
Palmer kvaddi reyndar með mikilli
viðhöfn fyrir tveimur árum en þá
höfðu forsvarsmenn keppninnar
sett aldurstakmark fyrir væntanleg
mót í framtíðinni en þeir drógu þá
ákvörðun til baka. Nú geta þeir sem
einu sinni hafa sigrað á Masters
tekið þátt á meðan þeir hafa áhuga
á því. Palmer telur að nú sé best að
láta staðar numið en búast má við
því að hann verði ekki meðal þeirra
sem komast í gegnum niðurskurð-
inn.
„Það verður mjög sérstakt að sjá
hann leika í síðasta sinn á Masters,“
segir kylfingurinn Tom Watson.
„Það mun verða tilfinningaríkt fyr-
ir marga enda hefur Arnold gert
gríðarlega margt fyrir golfíþrótt-
ina,“ sagði Watson.
EIÐUR Smári Guðjohnsen fær nær
undantekningalaust góða dóma í
breskum fjölmiðlum fyrir frammi-
stöðu sína í sigurleiknum gegn Ars-
enal á Highbury í fyrrakvöld. Hann
lagði upp sigurmark Chelsea, 2:1,
fyrir Wayne Bridge þegar þrjár
mínútur voru til leiksloka.
Eiður fékk 7 í einkunn hjá Sky-
sjónvarpstöðinni sem og sjö aðrir
leikmenn liðsins en hæstu einkunn
fékk varnarmaðurinn John Terry
sem fékk fékk 8. Í The Sun fær Eið-
ur 7 í einkunn og er umsögn blaðins
um Eið þannig: „Var afar duglegur,
gerði usla í vörn Arsenal og lagði
upp sigurmarkið á glæsilegan hátt.“
Wayne Bridge fékk hæstu einkunn
leikmanna Chelsea hjá Sun, eða 9.
Independent gaf Eiði 6 í einkunn,
Frank Lampard fékk 7 en John
Terry og Wayne Bridge fengu 8. Um helgina leikur liðið hér á landivið Dani og Slóvaka í 5. riðli
undankeppni Evrópumótsins í hand-
knattleik og komast tvær þjóðir
áfram í lokakeppnina sem fram fer í
Tékklandi í lok júlí og byrjun ágúst í
sumar. Fjórða þjóðin sem ætlaði að
senda lið til keppninnar hér á landi,
Úkraína, heltist úr lestinni í byrjun
vikunnar sökum fjárskorts, hafði
ekki efni á að ferðast til Íslands.
„Við þekkjum ekkert til styrks
Úkraínu frekar en Slóvakíu þannig
að ég veit ekki hvaða áhrif það hefur
á möguleika okkar að Úkraínumenn
hafa dregið landslið sitt úr keppni.
Danir eru hins vegar þekkt stærð,
þeir eru alltaf með sterk kvennalið
þannig að slagurinn um annað sætið
stendur á milli okkar og Slóvaka.
Fyrirfram eru Slóvakar taldir sterk-
ari en við erum hins vegar með
heimavöllinn sem getur riðið bagga-
muninn ef við fáum góðan stuðning,“
segir Ágúst.
Danir mæta Slóvökum í fyrsta leik
mótsins á föstudaginn klukkan þrjú í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi þar
sem mótið fer fram. Daginn eftir
leika Íslendingar og Slóvakar kl.
16.30 og loks Íslendingar og Danir
kl. 14 á páskadag.
Ágúst segir undirbúning hafa
gengið vel. Hann hafi byrjað á
sunnudaginn. „Margir leikmenn í ís-
lenska liðinu hafa orðið góða reynslu,
eru að leika með liðum í deildinni hér
heima, eru í úrslitakeppninni og eiga
að vera aðeins sjóaðar. Ég kvíði
þessari keppni ekki á nokkurn hátt,
ég hef fulla trú á að við getum lagt
Slóvakíu,“ segir Ágúst Jóhannsson,
landsliðsþjálfari 19 ára landsliðs Ís-
lands í handknattleik.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ágúst Jóhannsson, þjálfari stúlknalandsliðsins í handknattleik, stjórnar æfingu.
Evrópukeppni 19 ára kvennalandsliða á Seltjarnarnesi
Við rennum
blint í sjóinn
„VIÐ rennum nokkuð blint í sjó-
inn hvað styrk Slóvaka varðar
en kosturinn er sá að við sjáum
einn leik með þeim áður en að
viðureigninni við þá kemur,“
segir Ágúst Jóhannsson, þjálf-
ari stúlknalandsliðs Íslands í
handknattleik, skipaðs leik-
mönnum 19 ára og yngri.
ALEN Marcina, knattspyrnumaður
frá Kanada, er væntanlegur til
reynslu hjá ÍA næsta miðvikudag.
Marcina er 25 ára sóknarmaður,
sem hefur samið við gríska félagið
PAOK Saloniki, en getur ekki
gengið til liðs við það fyrr en í
ágúst. Hann hefur leikið und-
anfarin ár með Ottawa Wizards í
Kanada. Samkvæmt vef ÍA var
Marcina um skeið í röðum Genk í
Belgíu en lék þó aldrei deildaleik
með félaginu. Marcina fer í æfinga-
ferð með ÍA til Þýskalands síðar í
þessum mánuði og þá skýrist hvort
samið verði við hann.
Kanada-
maður til ÍA
Palmer
kveður
Augusta
Eiður Smári
fékk góða
dóma