Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 08.04.2004, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ STÓRMYNDIN Hidalgo dregur nafn sitt af gæðingi kúrekans Hopkins (Viggo Mortensen), sem hann keppir á í Veðhlaupinu yfir Eldhafið árið 1890. 3000 mílna þolraun fyrir knapa og hest yfir brennheita sanda Arabíu. Viggo Mortensen valdi myndina sem sitt næsta verkefni eftir velgengni þrí- leiksins um Hringadróttin- sögu, þar sem hann fór eft- irminnilega með hlutverk Aragorns. Myndin er ósvikin rómantísk ævintýramynd um raunverulega persónu, bandaríska kúrekann og hestamanninn Frank T. Hopkins, sem átti ótrúlega litríka ævi. Barðist m.a. undir stjórn Custers í blóðbaðinu við Wounded Knee, áður en hann lagðist í langferðir í sýningarflokki Buffalos Bill. Þar var Hopkins kynntur sem fær- asti knapi heims og vakti sem slíkur áhuga soldánsins Riyadh (Omar Sharif). Gat landshöfðinginn freist- að hans með gríðarlegu verðlaunafé og tækifæri til að sanna sig meðal þeirra bestu, í einni miskunnarlaus- ustu veðhlaupakeppni sögunnar á sólstorknum eyðimörkum Sádi-Ar- abíu: Veðhlaupinu yfir Eldhafið. Etja kappi við arabíska gæðinga og knapa af kynstofni bedúína, menn og hesta sem taldir voru þeir fær- ustu á jarðríki. Sjálfur var Hopkins kynblendingur, líkt og fákurinn hans, Hidalgo, lítill, hnellinn villi- hestur af sléttum Norður- Ameríku. Eftir lærisvein Spielbergs Stórmyndinni um þessa, að því er virðist, ójöfnu keppni leikstýrir Joe Johnston, einn athyglisverðasti leik- stjóri Bandaríkjanna í dag. Hann byrjaði að geta sér gott orð sem tæknilegur ráðgjafi og aðstoðar- maður Stevens Spielberg við fyrri Stjörnustríðsþrennuna og Raiders of the Lost Ark. Sérsvið Johnstons voru sjónrænar brellur, sem reynd- ust tímamótaverk og beindu athygli Disney að Johnston þegar kom að því að finna leikstjóra Honey I Shrunk the Kids. Talsvert óvænt varð hún ein vinsælasta mynd árs- ins 1989, engin spurning að þar voru brellurnar að verki. Annað leiktjórnarverkefnið, Jum- anji, var á svipuðum nótun, síðan skipti Johnston um gír og stýrði October Sky, frábærri mynd um þroskasögu og æskudrauma Suð- urríkjapilts um miðja síðustu öld. Þá var röðin komin aftur að Spiel- berg, sem treysti honum til að blása nýju lífi í Júragarðsbálkinn. Með þeim árangri að margir telja Júra- garðinn III þá bestu í myndaröð- inni. Hin rómantíska hetja framtíðarinnar? Fróðlegt verður að fylgjast með Mortensen næstu árin, sjá hvernig honum tekst að spila úr óvæntri heimsfrægð sem hann ávann sér sem hetjan Aragorn. Mortensen er búinn að leika í hátt í fimm tugum mynda en fyrstu árin í kvikmynda- heiminum fóru fyrir lítið eins og gengur. Það segir hinsvegar sína sögu um álitið sem hann hafði áunn- ið sér í dótaríinu að Sean Penn valdi Mortensen í fyrsta ærlega hlutverkið, annað aðalhlutverkið í Indian Runner árið 1991, og Kevin Spacey fékk honum einnig stórt hlutverk í Albino Aligator (’96), sinni leikstjórnarfrumraun. Það er gæðastimpill sem er ekki á hvers manns færi að fá í ferilskrána en skipti litlu máli fyrir Holly- woodframa leikarans því báðar þessar fínu myndir fengu dræma aðsókn. Við tóku fáein aukahlutverk í meðalmoði og aðalhlutverk í rusl- myndum. Mortensen fór að verða sjáanlegur í næststærstu hlutverk- um vinsælla ónýtismynda eins og Daylight, G.I. Jane, Psycho (end- urgerðinni), A Perfect Murder (endurgerð annarrar, sígildrar Hitchcockmyndar – Dial M for Murder), og 28 Days. Til að vinna sig upp úr slíkri lægð upp í hæstu hæðir þarf kraftaverk. Jackson var kraftaverkamaðurinn, veðjaði öllum á óvart á þennan vegvillta en geð- uga leikara og hitti naglann á höf- uðið. Johnston gerði hann að kemp- unni í Hidalgo og í Alatriste, næstu mynd Mortensen, leikur hann enn og aftur hetjuhlutverkið, þar er hann greinilega á réttri hillu. Viggo Mortensen leikur kúrekann Frank T. Hopkins í Hidalgo HIDALGO: Leikstjóri: Joe Johnston. Með Viggo Morten- sen, Omar Sharif, Malcolm McDowell, Zuleikha Robinson. Sýnd í Háskólabíói og Sam- bíóum. saebjorn@mbl.is Yfir Eldhafið ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.