Morgunblaðið - 08.04.2004, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
VERÐSTRÍÐ hefur ríkt á páskaeggja-
markaði að undanförnu og hafa margar
verslanir boðið tugprósenta afslátt síðustu
daga. Teikn eru á lofti um að sala á páska-
eggjum verði umtalsvert meiri en í fyrra.
Að sögn Guðmundar Marteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Bónuss, var búið að selja
nánast sama magn af páskaeggjum eftir
síðustu helgi og fyrir páska í fyrra.
Finnur Árnason, framkvæmdastjóri
Hagkaupa, segir páskaegg seld með 25%
afslætti og að salan sé meiri en í fyrra.
„Þetta er árvisst má segja. Það er slegist
um kúnnana í þessum mikilvægu vörulið-
um, nú sem fyrr.“
Sigurður Markússon, rekstrarstjóri Nóa-
túns, segir Nóatún hafa byrjað að bjóða
30% afslátt af páskaeggjum á fimmtudag
og föstudag í síðustu viku. „Við erum komin
í þá stöðu að vera búin að selja nánast sama
magn og við seldum í fyrra þó að í venju-
legu árferði sé aðalsölutíminn eftir.“
Sveinn Sigurbergsson, kaupmaður í
Fjarðarkaupum, er þeirrar skoðunar að
verð á páskaeggjum hafi „aldrei verið
lægra“.
„Það er talsvert um undirverð og dæmi
um að egg sem kostar um 1.500 krónur í
heildsölu sé selt á 900 krónur út úr búð,“
segir hann.
Ingvi Guðmundsson, kaupmaður í versl-
uninni Spar, telur verðsamkeppni í sölu
páskaeggja komna „út í algert rugl“.
„Í sumum tilvikum sýnist mér að menn
séu að selja eggin nálægt 50% undir kostn-
aðarverði. Hverjir haldið þið að borgi fyrir
það?“ spyr Ingvi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Allt að 50%
verðfall á
páskaeggjum
Meiri áhersla/26
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út á páskadag, sunnudag-
inn 11. apríl. Fréttaþjónusta
verður að venju á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is, alla
páskahelgina. Hægt verður að
koma ábendingum um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is eða í
síma 669 1200.
Áskriftardeild verður opin á
skírdag frá kl. 6–14, á laugardag
frá kl. 11–19 og á páskadag frá
kl. 8–15. Lokað verður föstudag-
inn langa og annan í páskum.
Auglýsingadeild verður opin
á laugardag frá kl. 9–12 og ann-
an í páskum frá kl. 13–16.
Skiptiborð Morgunblaðsins
verður opið á laugardag frá kl.
8–12 og annan í páskum frá kl.
13–20.
Fréttaþjón-
usta um páska
ÚTLIT er fyrir að hagnaður Íslandsbanka,
KB banka og Landsbanka Íslands verði 11,5
milljarðar króna samanlagt á fyrsta ársfjórð-
ungi ef marka má afkomuspár greininga-
deilda bankanna sjálfra. Þar með munu bank-
arnir slá enn eitt hagnaðarmetið en til
samanburðar var samanlagður hagnaður
bankanna 16,3 milljarðar króna fyrir allt árið
2003 og 10,8 milljarðar fyrir allt árið 2002.
Reiknað er með að hagnaður bankanna á
árinu 2004 í heild muni nema 22,7 milljörðum
króna. Burðarás mun samkvæmt meðalspá
bankanna skila mestum hagnaði af fyrirtækj-
um í Úrvalsvísitölunni, eða 5,7 milljörðum
króna. Bankarnir skipa næstu þrjú sætin yfir
mestan hagnað á fjórðungnum. Íslandsbanka
er að meðaltali spáð 4,9 milljörðum króna,
Landsbankanum er spáð að meðaltali 4,1
milljarðs hagnaði og gert er ráð fyrir að KB
banki skili 2,5 milljarða hagnaði. Í fimmta
sæti situr Pharmaco með tæplega 2,5 millj-
arða hagnað.
Landsbankinn segir uppgjöra fyrir fyrsta
ársfjórðung beðið með nokkurri eftirvænt-
ingu enda bíði fjárfestar nú eftir staðfestingu
á því að félög á hlutabréfamarkaði standi
undir núverandi markaðsvirði. „Væntingar
um bætta afkomu í framtíð eru líklega ástæða
þess að hlutabréfaverð hefur ekki lækkað
meira en raun ber vitni,“ segir í afkomuspá
bankans.
Bönkunum spáð methagn-
aði á fyrsta ársfjórðungi
Spá bönkunum/C1
BLÖÐRUSELUR, gerði sér lítið fyrir í gærdag og
bægslaðist langt upp á land, eða um 100–200 metra
frá sjónum. Selurinn var um tíma við þjóðveginn
norðan við Borgarnes og vakti að vonum mikla at-
hygli vegfarenda. Lögreglan í Borgarnesi og björg-
unarsveitin Brák fengu það óvenjulega verkefni að
koma selnum aftur út í sín náttúrulegu heimkynni,
en ekki gekk það þrautalaust. Blörðuselurinn sá
arna, sem er talinn vega um 200 kíló, lét öllum illum
látum og hvæsti að mönnum og blés sig út, líklega
hræddur í návist mannfólksins, að sögn lögreglu.
Lögreglan sagði að fljótlega hafi hann þó farið að
sýna þreytumerki. Björgunarsveitin Brák kom hon-
um loks út í skurð og þaðan átti að leiðbeina honum
útí sjó. Það var þó ekki fyrr en í gærkvöldi, eða um
19.30, að selurinn var loks kominn til sjávar og að
sögn lögreglu synti hann strax á haf út, feginn að
vera á ný umvafinn söltum sjónum.
Ljósmynd/Þorgerður Gunnarsdóttir
Selur á ferð í Borgarnesi
Í NÝRRI skýrslu um afbrot í um-
ferðinni sem kynnt var í gær kemur
fram að umferðarlagabrot í málaskrá
lögreglu voru rúmlega 64 þúsund í
fyrra eða 72,6% af öllum skráðum
brotum. Þar af voru hraðakstursbrot
25.285 eða 39,4% af öllum umferð-
arlagabrotum. Skýrslan leiðir í ljós
að 92% bílstjóra nota bílbeltin á þjóð-
vegum landsins og er beltanotkun al-
mennt betri þar en í þéttbýli þar sem
hún er að meðaltali 80% en fer á sum-
um stöðum allt niður í rúm 50%.
Tæplega 20% þeirra ökumanna og
farþega sem létust í umferðarslysum
árið 2002 notuðu ekki bílbelti.
Þá segir í skýrslunni að ýmislegt
bendi til þess að dregið hafi úr ölv-
unarakstri á undanförnum árum.
Eftir fjölgun ölvunarakstursbrota á
milli áranna 1999 og 2000 úr 1.959 í
2.482 hefur þeim fækkað á síðustu
þremur árum og voru 1.757 árið
2003. Þá fækkaði ölvuðum ökumönn-
um sem valda meiðslum eða dauða í
umferðinni úr 61 árið 1998 í 42 árið
2002. Á árunum 1995–2002 sátu að
meðaltali 16,8% fanga í fangelsum
landsins vegna umferðarlagabrota,
eða að meðaltali 49 fangar á ári. Að
auki sinntu að meðaltali tæplega 60
manns samfélagsþjónustu á hverju
ári vegna umferðarlagabrota frá
1995–2003.
64 þúsund
umferðar-
lagabrot á
síðasta ári
„Tillitsleysi ökufanta“/32
MJÖG skiptar skoðanir eru meðal
útgerðarmanna um tillögu stjórnar
Landssambands íslenskra útvegs-
manna til sjávar-
útvegsráðherra
um breytingar á
úthlutun aflahlut-
deilda í karfa.
Erfðarannsókn-
ir hafa nú staðfest
að djúpkarfi sem
veiddur er í úthaf-
inu suðvestur af
landinu er af sama
stofni og djúpkarfi sem veiddur er
nær landi. Veiðiheimildum í djúpk-
arfa sem veiddur er í úthafinu hefur
hins vegar verið úthlutað eins og um
úthafskarfa væri að ræða.
Ljóst er að tekist er á um verulega
hagsmuni. Gangi tillaga stjórnar
LÍÚ eftir og úthlutun á djúpkarfa-
kvóta verði breytt, mun nærri 4 þús-
und tonna karfakvóti færast á milli
einstakra útgerða. Ætla má að verð-
mæti kvótans nemi nærri tveimur
milljörðum króna.
Talsverð átök hafa orðið um málið
innan LÍÚ og var í tillögu stjórnar
sambandsins tekið tillit til ólíkra
sjónarmiða. Megn óánægja virðist
engu að síður með tillöguna. Útgerð-
ir sem ekki hafa stundað úthafsveið-
ar á djúpkarfa en ráða yfir karfa-
kvóta á Íslandsmiðum telja að
kvótahlutdeild þeirra í karfa eigi
einnig að ná yfir djúpkarfa í úthaf-
inu, enda sé þar um sama stofn að
ræða. Segja útgerðirnar að mikil
veiði á djúpkarfa í úthafinu hafi
gengið mjög nærri stofninum og
valdið verulegum kvótaskerðingum
á heimamiðum.
Úthafsveiðiútgerðir segja hins
vegar óviðunandi að skerða veiði-
heimildir þeirra í úthafinu, enda hafi
þær kostað miklu til veiðanna í gegn-
um tíðina. Stjórnvöld hafi auk þess
með markvissum hætti beint sókn-
arþunganum í djúpakarfa og skipin
þannig aflað Íslandi veiðireynslu
gagnvart öðrum þjóðum.
Tekist á um
karfakvótann
Deilt um/C2–C3
MIKLAR annir hafa verið í innan-
landsfluginu í dymbilvikunni og ekki
dregur úr þeim yfir páskahátíðina.
Að sögn Árna Gunnarssonar, sölu-
og markaðsstjóra Flugfélags Ís-
lands, virðist sem mun fleiri séu á
ferðinni nú en um síðustu páska.
Reiknar Árni með að á bilinu 11–12
þúsund manns fari á helstu áfanga-
staði félagsins eins og Akureyri, Eg-
ilsstaði og Ísafjörð. Miðar Árni þá
við tímabilið frá síðasta föstudegi til
næsta þriðjudags en vegna mikillar
eftirspurnar hefur verið bætt við
flugferðum á þessa staði. Marg-
brotin dagskrá verður í gangi í
kringum þau skíðasvæði sem verða
opin um páskahátíðina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fullt var í allar vélar til Akureyrar í gær. Reiknað er með að um 5.000
manns ferðist með Flugfélagi Íslands til Akureyrar um páskana.
Margir í ferðahug
Búist við/33