Pressan - 29.06.1989, Blaðsíða 18

Pressan - 29.06.1989, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 29. júní 1989 Þessar eldhressu dönsku stúlkur rakst Ijósmyndari okkar á í tjörunni á Seltjarn- arnesi sl. föstudagskvöld. Þær höföu hreiðrad um sig í kringum varöeld og hugöust upplifa dulmagnaðan kynngikraft Jónsmessunæt- ur á islenskri sjávarströnd. STAÐGREIÐSLA 1989 1 ■ ^BREYTTUR PERSÓNUAFSLÁ TTUR FRÁ 1.JÚLÍ PERSÓNUAFSLÁTTUR VERÐUk 19.419 KR. Á MÁNUÐI SJÓMANNAAFSLÁTTUR VERÐUR 535 KR. Á DAG Þann 1. júlí nk. hækkar persónu- afsláttur í 19.419 kr. á mánuði og sjó- mannaafsláttur í 535 kr. á dag. Hækk- unin nemur8.84%. Hækkunin nær ekki til launa- greiðslna vegna júní og hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. • Persónuafslátt samkvæmt skatt- korti með uppsöfnuðum persónu- afslætti 1989. Ónýttur uppsafnaður persónu- afsláttur sem myndast hefur á tímabil- inu 1. janúar til 30. júní 1989 og sem verður millifærður síðar hækkar ekki. Ekki skal breyta upphæð per- sónuafsláttar launamanns þegar um eraðræða: • Persónuafslátt samkvæmt náms- mannaskattkorti 1989. Á sama hátt gildir hækkun sjó- mannaafsláttar ekki um millifærslu á uppsöfnuðum ónýttum sjómanna- afslætti sem myndast hefur á tímabil- inu 1. janúartil 30. júní 1989. Launagreiðendurmunið að hœkka persónuafslátt vegnajúiíiauna. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Það er svo einkennilegt að //viðhöld,/ ganga gjarnan ekki undir öðru nafni en //hjókonur//. Það er svona eins oa karl- menn sem halda við konur séu alís ekki viðhöld, en konur sem halda við menn eru //hjókonur//. En hvað um það. Um allan heim er fólk sem heldur við annað fólk í lengri tíma eða skemmri. Sumir eru dug- legir við að endurnýja hjó sér, aðrir halda við sömu manneskjuna órum saman. Langflestir karlmannanna eru giftir menn sem sagan segir að séu snillingar í að koma sér undan að svara viðhaldinu hvort, og þó hvenær, þeir ætli sér að skilja við konuna sína. Viðhöldin/hjókonurnar eru sumar hæstónægðar með að vera „bara viðhöld'1 meðan aðrar bíða þess eins að maðurinn drlfi sig að heiman svo þær geti platað hann I hjónaband númer tvö. EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR Framhjóhald betri kostur en skilnaður En hvers vegna er heimurinn full- ur af viðhöldum? Getur ástæðan verið sú að fæst þeirra karla og kvenna sem stunda framhjáhald ætli sér í alvöru að skilja við núver- andi maka? í Ameríku eru menn alltaf að gera alls konar úttektir á hinum og þessum málum, þar á meðal framhjáhaldi. Hjónabands- ráðgjafar og sálfræðingar þar svara þessari spurningu þannig: „Jú auð- vitað skilja margir. Við heyrum sí og æ af nýjum hjónaskilnuðum en staðreyndin er eigi að síður sú að æ fleiri horfa raunsæjum augum á það hvað hjónaskilnaður hefur í för með sér. Þetta fólk hefur lært af reynslu vina sinna, jafnvel foreldra að það er hægar sagt en gert að slíta hjónabandi." Samt sem áður, segja ráðgjafarn- ir, er líka ljóst að ótalmargir lifa tvöföldu lífi. Og það segja þeir að sé ofureðlilegt: „Fólk hefur verið gift árum eða áratugum saman og lífið er í föstum skorðum. Það þarf lítið til að koma róti á tilfinningarnar. Grái fiðringurinn er þekktasta dæmi þess enda sá tími sem fólk lít- ur gjarnan yfir farinn veg og spyr sig hvort þetta sé það Iíf sem það vilji lifa það sem eftir er. Annað tækifæri Lögfræðingur þarna ytra sem sérhæfir sig í skilnaðarmálum bendir á að karlmenn séu yfirleitt fyrirvinnurnar, þeir hafi kannski unnið fyrir sér og sínum í tuttugu ár

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.