Pressan - 29.06.1989, Blaðsíða 25
nFimmtudagur 29.' júní-1989
spáin
STJÖRNUSPÁIN
vikuna 29. júní—6. júlí
(21. niars — 20. apri/)
Þu hefur mikla þörf fyrir félagsskap
þessa dagana. Þú verður að veita henni
útrás. Fjármálin eru i finu lagi og þú hef-
ur alveg efni á að veita þér smáglaðning.
Vertu góð(ur)viðættingjanasem ef til vill
þurfa á hjálp þinni að halda.
(21. apri/ — 20. ruaij
Það eru vissir hlutir sem þú þarft að
gera fyrir luktum dyrum. En passaðu þig,
þú gætir læst þig inni í eigin hugarheimi.
Þú getur ekki framkvæmt allt ein(n) og
þarft því áaðstoð að haldaviðað leysaúr
mikilvægu máli. Eftir það dettur allt i
dúnalogn, rólegheitin verða næstum
yfirþyrmandi.
(21. inai — 21. jiiníj
Mánaðamótin verða ansi ánægjuleg
fyrir flesta tvíbura, því afstaða himin-
tunglanna er þeim hagstæð og ætti það
að valda þeim mikilli lifshamingju og
fylla þá krafti. Fyrir fjölskyldufólk er
þetta kjörinn timi fyrir skemmtiferðir.
*
(22. jiíní — 22. jiilíj
Næstu dagar koma til með að verða
stefnumarkandi í lífu þinu. Stóra tæki-
færió sem þú hefur alltaf beðið eftir!
Núna er að hrökkva eða stökkva. Og
mundu að betri er einn fugl I hendi en
tveir I skógi. Júpiter er með þér.
C* (23. jiílí — 22. úgiísl)
Kannski finnst þér allt grátt og von-
laust. En ekki gefa upp vonina, lausnin
birtist i liki nákomins ættingja eða vinar.
Ef þú hefur skipulagt einhver stór ferða-
lög skaltu geyma þau til betri tíma.
ihugaðu sjálfið og leitaðu Ijójsins i til-
verunni.
(23. ágiíst — 23. sepl.)
Streita hefur verið að safnast upp
þennan mánuð hjá meyjum. Tappaðu af
hjá þér og þá veróur umhverfið miklu
ánægjulegra fyrir þig og þina. Þegar af-
slöppun hefur verið náð er um að gera að
leita á náðir ástvina. Ftómantíkin gægist
einnig fyrir horn.
(24. sepl. — 23. okl.)
Margar vogir verða I athyglisleit um
mánaðamótin, sérstaklega lausar og lið-
ugar vogir. Fljá fjölskyldufólkinu verður
hinsvegar eitthvaö rólegra, en meö góð-
um vilja væri hægt aó lyfta sér upp og
það ærlega. Gönguferðir eru líka ansi
sniðugt fyrirbæri.
(24. okl. — 22. náv.J
Hafðu stjórn áskapi þinu.ekki látaþað
hlaupa meö þig i gönur. Foreldrum er
bent á að börn geta tekið sjálfstæðar
ákvaróanirog heimilisfriðurer mikilvæg-
ur. Sköpunargáfa sporódreka er mikil um
þessar mundir og þvi kjörið að veita
henni útrás.
01$ (23. nóv. — 21. des.)
Einbeittu þér að einum hlut I einu og
láttu utanaðkomandi aðila ekki trufla
þig. Þú hefur áhyggjur af peningamálum
þvi það líóur að skuldadögum. Láttu
samt ekki bugast þvi bráðum kemur betri
tíð með blóm i haga og byrjun júlí verður
ánægjuleg.
(22. des. — 20. janiiar)
Taktu mikla áhættu i máli sem þú hef-
ur velt lengi fyrir þér. Steingeitur elska
áhættu og það mun borga sig i þessu til-
íelli að hugsa ekkert, bara framkvæma.
Ástamálin verða hinsvegar ekki eins
ánægjuleg, en það má laga með þvi að
tala saman um hlutina.
21. janiíar — 19. febriiur/
Leitaóu leiða til að ávaxta sparifé þitt
á sem bestan hátt. Færðu jafnvel fómir
til að ná settu markmiói. Þú gætir þurft
að leita aðstoðar hjá aðila kunnugum
þér, en það er engin skömm. Annars
gengur lífið eins og vel smurð vél hjá
vatnsberum þessa dagana.
■ (20. febriiar — 20. niurs)
Gæfan er þér hliðholl um þessar
mundir. Notaðu þessa jákvæðu strauma
þér í hag á öllum sviðum lífsins. Þú færð
gamlan kunningja i heimsókn og það
verða fagnaðarfundir. Vanræktu þó ekki
fjölskylduna eða hina vinina. Vinnan
göfgar manninn.
25
i frqmhjáhlaupi
„Vildi vera prestur"
Hallur Magnússon
blaöamaöur
— Hvaöa persóna hefur
haft mest áhrif á þig?
„Faðir minn, Magnús Halls-
son. Og svo á ég bestu
mömmu í heimi.“
— Hvenær varöstu hrædd-
astur á ævinni?
„Þegar ég var eitt sinn
starfsmaðurá leikjanámskeiði
á Akranesi og litill drengur var
rétt að segja drukknaður í
lauginni. Okkur tókst að ná
honum upp á bakkann og
blása í hann lífi. Þá skildi ég
hvað stutt er á milli lífs og
dauða.“
— Hvenær varöstu glaö-
astur á ævinni?
„Þegar ég gifti mig.“
— Hvers gætiröu sist veriö
án?
„Kaffibolla og dagblað-
anna.“
— Hvaö finnst þér leiöin-
legast aö gera?
„Að skúra gólf og vera ritari
á fundum."
— Hvaö finnst þér
skemmtilegast?
„Að stunda útivist og fara út
að borða góðan mat með góðu
fólki.“
— Hvaö fer mest i taugarn-
ar á þér?
„Undirlægjuháttur og
hræsni."
— Manstu eftir pínlegri
stöðu sem þú hefur lent í?
„Já, á árshátíð Kvennaskól-
ans fyrir 13 árum. Fyrsta al-
vörukærastan mín, Bergljót
Njöla, bauð mér á árshátíðina
og sagði svo þegar ég mætti
að bindið mitt væri Ijótt. Ég
þjáðist alla árshátíðina. Það
má bæta því við að við giftum
okkur í vetur eftir 12 ára að-
skilnað."
— Hvaö vildirðu helst
starfa ef þú gætir ekki stund-
aö blaðamennsku?
„Vera prestur úti á landi á
jörð þar sem ég gæti haft
hesta, átt aðgang að lax- og
silungsveiði og sinnt hugðar-
efnum mínum, fræðimennsku
og öðru slíku grúski. Þess á
milli vildi ég fara um í sveitinni
og þiggja kjötsúpu, kaffi og
kleinur hjá húsmæðrunum.
Svo myndi ég auðvitað messa
á sunnudögum. En ástæðan
fyrir því að ég gat ekki gert
þetta að veruleika er sú að ég
erhvorki nógutrúaðurnénógu
heiðinn."
— Áttu þér draum?
„Já, ég vildi vera svo vel
stæður að ég þyrfti aldrei að
hafa áhyggjur af peningum en
ekki þó svo vel efnaður að ég
þyrfti að hafa áhyggjur af pen-
ingum. Þá gæti ég einbeitt
mér að þvi að láta gott af mér
leiða, og eignast nokkra fjör-
uga krakkagrísi."
í þessari viku:
INGA
lófalestur
(kona, fædd 13.01.1940)
LÍFLÍNAN (1):
AMY
ENGILBERTS
m
fi
Þessi kona hefur snemma
orðið sjálfstæð. Hún er nokkuð
metnaðargjörn og hefur að öll-
um likindum haft góða mögu-
leika til að komast áfram í lífinu.
Hún er hins vegar svolitið
stressuð og tímabilið frá 1980 til
1989 hefur verð umhleypinga-
samt hjá henni. En á þessu ári
færhún tækifæri til að vinnavel
úrframkvæmdum sínum, ef hún
hefur bara næga þolinmæði í
tengslum við það, sem hún tek-
ur sér fyrir hendur.
Síðustu tíu til fimmtán mán-
uði hefur verið töluvert um
seinkanir í kringum þessa konu
og stundum hefur henni ekki
fundist hlutirnir ganga nógu
fljótt.
TILFINNINGALÍNAN (2):
Þessi persónaer hrifnæm, en
samt sem áður raunsæ eða
a.m.k. afar varkár í tilfinninga-
málum. Hún hefur allmikið
sjálfstraust. Hún þarf að gæta
að heilsunni um sextugsaldur.